Morgunblaðið - 11.03.1995, Side 4
GOLF
FRJÁLSÍÞRÓTTIR / HM INNANHUSS
Pétur Guðmundsson kastaði aðeins tvisvar en varð sjötti
FIMLEIKAR
„Svekktur,
engekk
stohur
af velli“
PÉTUR Guðmundsson kúlu-
varpari meiddist í öðru kasti
sínuá heimsmeistarmótinu í
frjálsíþróttum innanhúss f
Barcelona í gær — en náði þó
sjötta sæti i greininni. Jón Arn-
ar Magnússon komst ekki í
úrslit í langstökki.
Pétur kastaði 19,67 metra í
fyrsta kasti sínu — sem hann
sagði bestu byijun sína á móti síðan
hann skipti um kaststíl; hætti að
beita snúningsstílnum og tók upp
þann hefðbundna. „Ég var í öðru
sæti eftir fyrstu umferðina. Það var
svo mjög neyðarlegt að ég tognaði
á fíngri í öðru kastinu — missti
kúluna upp úr lófanum, hún sveif
himinhátt en ég hef teygt á liðbönd-
um í baugfíngri," sagði Pétur við
Morgunblaðið í gærkvöldi. Hann
sagðist strax hafa ákveðið að hætta
keppni. „Þegar ég hef byijað sVona
vel á mótum, hef ég alltaf náð að
bæta mig — köstin hafa lengst.
Þegar ég kastaði til dæmis 19,60
í fyrstu tilraun í fyrra endaði ég í
20,53. Það var því svekkjandi að
þurfa að hætta núna. En ég varð
að gera það — vildi ekki taka
áhættu með keppni sumarsins í
huga. .Ef ég hefði haldið áfram
hefði ég kannski þurft langan tíma
til að jafna og ég vildi ekki taka
áhættuna. Það er til dæmis heims-
meistaramót utanhúss í sumar sem
ég stefni á. Ég var auðvitað svekkt-
ur, en gekk stoltur af velli. Ég byij-
aði vel en það voru meiðsli sem
komu í veg fyrir að ég kastaði oft-
ar — ekki það að ég kastaði ekki
nógu langt.“
Finninn Mika Halvari varð
heimsmeistari innanhúss í kúlu-
varpi, kastaði lengst 20,74 metra.
C.J. Hunter frá Bandaríkjunum
varð annar með 20,58 og Dragan
Peric frá Júgóslavíu þriðji með
20,36 m.
Miðað við hvemig Pétri hefur
tekist upp á æfingum að.undan-
fömu segist hann hafa átt að kasta
lengra en hann gerði, það sé engin
spuming, en meiðslin komu í veg
fyrir það. „Þetta getur alltaf komið
fyrir, því miður. Maður verður bara
að sætta sig við það. En já, ég átti
mikla möguleika á að komast á
verðlaunapall eftir fyrsta kastið.
Ég er alveg viss um það. En þrátt
fyrir meiðslin og hvað ég er svekkt-
ur verð ég að vera rólegur. Stefna
á næsta mót í rólegheitum. Ég hef
lent í því að byija að keppa of
snemma eftir meiðsli og það var
agalegt. Nú verð ég að taka mér
hlé en kem aftur í vor.“
Jón Arnar fyrir vonbrigðum
Jón Arnar Magnússon gerði að-
eins eitt langstökk gilt en tvö ógild
og komast ekki áfram úr undan-
keppninni. Hann stökk fyrst 7,34
metra, gerði síðan ógilt og í þriðju
tilraun gerði hann hárfínt ógilt. Var
yfír lágmarki til að komast áfram
— sem var 7,85 m en hann sagði
stökkið hafa verið um 7,90 m. „Það
var varla að sæist marka fyrir spori,
en það var þó nóg. Þetta var lengsta
stökkið í mínum riðli og því svekkj-
andi að fá það ekki gilt,“ sagði
hann.
„Ég fann mig mjög vel. Brautin
er öðru vísi en í Baldurshaga — hún
er byggð upp og dúaði mikið. Það
var eins og maður væri á parket-
gólfi. Mér fannst ég mjög sterkur,
fór hraðar yfir en venjulega og átt-
aði mig því ekki nógu vel á þessu,"
sagði hann.
Merlene Ottey varð í fyrsta sinn
heimsmeistari í 60 m hlaupi og
Kanadamaðurinn Bruny Surin sigr-
aði í 60 m hlaupi karla á nýju heims-
meti — 6,46 sekúndum.
■ Úrslit / F2
Heimsmet!
KANADÍSKI hlauparinn Bruny Surín veifar til áhorfenda í
Barcelona eftlr aö hann hljóp 60 metrana á 6,46 sekúndur
og setti þar með heimsmet á fyrsta degl mótslns.
Gerplustúlkur og Ármannspiltar urðu liða-
meistarar á íslandsmótinu í gærkvöldi
Nína Björg Magnúsdóttir fím-
leikakona úr Björk og ís-
landsmeistari síðustu tveggja ára í
fjölþraut í fímleikum mun ekki veija
titil sinn í ár.
íslandsmótið hófst í gærkvöldi í
Laugardalshöll og Nína meiddist í
fyrstu keppnisgrein sinni, stökki af
hesti. Hún kom illa niður á hægri
fótinn og að sögn Hlínar Árnadótt-
ir, þjálfara hennar er hann líklega
brotin.
Nína hefur átt í meiðslum á
vinstra fæti, liðbönd í ökkla slitnuðu
og nýstigin upp úr þeim.
í gærkvöldi fór fram keppni um
rétt til að keppa til úrslita á áhöld-
um en sex stigahæstu keppendurn-
ir vinna sér rétt til þess. Þá fór
jafnframt fram liðakeppni félaga
og urðu Gerpla og Ármann liða-
meistarar. Gerplustúlkurnar sigr-
uðu í kvennaflokki eftir jafna
keppni við Ármann og Ármanns-
strákarnir höfðu betur í viðureign-
inni við Gerplu í karlaflokki.
Morgunblaðið/Frosti
IMÍIMA Björg Magnúsdóttír
IMína Björg úr leik
á íslandsmótinu
Þrírfaraá
St. Andrews
Þrír íslenskir kylfingar fara á
St. Andrews Trophy sem fram
fer í Skotlandi 27. og 28. maí. Sig-
urpáll Geir Sveinsson frá Akureyri
fer þangað sem íslandsmeistari og
Ragnar Ólafsson landsliðsþjálfari
hefur einnig valið til fararinnar þá
Birgi Leif Hafþórsson úr Leyni á
Akranesi og Björgvin Sigurbergs-
son úr Keili í Hafnarfirði. Islending-
ar hafa árlega sent keppendur á
þetta mót en þeir hafa ævinlega
■verið tveir. íslandsmeistarinn kem-
ur ekki heim eftir mótið, heldur
ætlar hann að taka þátt í Opna
enska áhugamannamótinu sem
verður haldið helgina á eftir.
Á St. Andrews vellinum munu
keppendur verða 150 talsins og
leika allir gamla völlinn og þann
nýja á laugardeginum, alls 36 hol-
ur, og síðan verður kylfíngum
fækkað í 44 og leika þeir tvo hringi
á gamla vellinum á sunnudeginum.
Sigurjón í
26. sæti í
Flórída
Siguijón Arnarsson tók þátt í
golfmóti á Stone Crest vellin-
um í Flórida í vikunni. Keppendur
voru 80 talsins og varð Siguijón í
26. sæti, lék á pari vallarins, sem
er 72. Siguijón lék á 216 höggum
(71-70-75) en mótið vannst á 205
höggum.
„Ég hef spilað vel að undanförnu
en það vantar neistann þannig að
þetta verði mjög gott,“ sagði Sigur-
jón í samtali við Morgunblaðið.
„Viðmiðunin hjá manni er orðin
önnur en var, nú dugar ekki að leika
á parinu. Þetta er dálítið skrítin til-
finning en ánægjuleg," sagði Sigur-
jón.
Ulfar Jónsson var ekki með í
mótinu en ætlar að keppa í næstu
viku. „Þetta er allt að koma hjá
mér, vona ég. Ég hef verið að slá
illa en skora sæmilega á sama tíma
og Siguijón hefur slegið vel en skor-
að illa. Ég er að fá vit í sveifluna
á nýjan leik,“ sagði Úlfar.
ISDANS
Gritschuk og
Platov heims-
meistarar
Olympíumeistararnir Oksana
Gritschuk og Evgeny Platov
frá Rússlandi endurheimtu í gær
heimsmeistaratitilinn í listdansi á
skautum með dansatriði sem var
eins og klippt út úr handriti með
Ginger Rogers og Fred Astaire.
Parið dansaði við lagið „Stepping
Out“ en segir að þetta hafí verið
síðasta keppni þeirra því þau ætli
að snúa sér að atvinnumennsku.
Finnamir Susanna Rahkamo og
Petri Kokko, sem eru Evrópumeist-
arar, náðu öðru sæti með tveimur
Bítlalögum, “Yesterday" and “A
Hard Day’s Night“.
KNATTSPYRNA
Amar skoraði
Arnar Gunnlaugsson skoraði eitt
mark fyrir Núrnberg í gær-
kvöldi er liðið vann Dusseldorf 4:1.
Arnar gerði fyrsta mark leiksins á
31. mínútu og með sigrinum mjak-
aði Núrnberg sér úr fallsæti.