Morgunblaðið - 14.03.1995, Síða 1
JMtvgtmÞlafeifc
C
1995
ÞRIÐJUDAGUR 14. MARZ
BLAÐ
HANDKNATTLEIKUR
SKIÐI
Kristinn Bjömsson
kominn í fremstu röð
Kristinn Björnsson, skíðakappi frá
Ólafsfirði, náði frábærum árangri
um helinga er hann sigraði tvívegis í
risasvigi í Elm í Sviss. Hann fékk 11,36
(FIS) stig fyrir fyrra risasvigið á laugar-
dag og 11,40 stig fyrir það síðara á
sunnudag. Þetta er besti árangur sem
íslenskur skíðamaður hefur náð á er-
lendri grundu. Kristinn er með þessum
árangri kominn í hóp bestu skíðamanna
heims og er nú kominn niður í 45 á
heimslistanum í risasvigi.
Kristinn hefur verið að bæta sig mjög
markvisst í vetur og hápunkturinn hjá
honum var í Elm um helgina. Fyrr í
vetur vann hann risasvigi í Flachau í
Austurríki og var meðal annars á undan
Svíanum Fredrick Nyberg og fékk fyrir
það 14 stig. Risasvigið virðist henta
Kristni vel, en til gaman má geta þess
að ekki er keppt í risasvigi hér á landi.
í risasviginu á laugardag fór Kristinn'
brautina á 1.19,54 mín. og var 0,02
sekúndum á undan Didier Cuche frá
Sviss, sem varð annar en þeir voru í
nokkrum sérflokki því Austurríkismað-
urinn Wolfgang Aleder, sem varð þriðji,
var sekúndu á eftir Kristni. Vilhelm
Þorsteinsson frá Akureyri varð i 45.
sæti á 1.23,58 mín. og hlaut fyrir það
59,10 stig og Arnór Gunnarsson frá
ísafirði í 73. sæti á 1.25,85 min. og hlaut
89,29 stig. Alls voru 95 keppendur sem
komust niður brautina.
Afrek / C2
í sigurvímu í Víkinni
Morgunblaðið/Arni Sæberg
GLEDI leíkmanna KA var mlkll í Víklnnl I gærkvöldi, eftir að þeir lögðu Víkinga aö velll, 22:23. Hér fagna þeir
Árni Stefánsson, liðsstjóri, og Alfreö Gíslason. þjálfari. Umsögn um leikinn er á C12 og umfjöllun um úrsllta-
keppni kvenna er á C3. Stjarnan er komin í úrslit — mætir Fram eöa Víkingi, sem leika oddaleik annað kvöid.
Aganefnd HSÍ
vísaði kær-
um dómara frá
AGANEFND HSÍ tók í síðustu viku fyrir kærur
dómara vegna ummæla þriggja þjálfara í fjölmiðl-
um og ákvað um helgina að visa málunum frá.
„Kærurnar þrjár sem bárust aganefnd og teknar
eru hér til úrskurðar uppfylla ekki þau skilyrði
reglugerðar og laga sem aganefnd Handknatt-
leikssambands ísiands er gert að starfa eftir og
þegar af þeirri ástæðu ber að vísa málunum frá,“
er úrskurður nefndarinnar. Hjðrleifur Þórðarson,
formaður hennar, sagði við Morgunblaðið að-
spurður um á hverju úrskurðurinn byggðist að
ekkert væri meira um málið að segja og best
væri fyrir aganefndina að blanda sér ekki inn í
umræðuna. Hins vegar sagði hann að nefndin
hefði legið yfir málinu og fengið m.a. álit lögfræð-
inga „en menn ættu að kynna sér reglugerðir
Handknattleikssambandsins áður en þeir fara í
blöðin með skoðanir sínar,“ sagði hann.
Stjarnan leikur
fyrir tómu húsi
STJÓRN HSÍ staðfesti í gær úrskurð mótanefnd-
ar vegna framkomu áhorfenda eftir oddaleik
Stjörnunnar og KA í átta liða úrslitum tsiands-
mótsins, að sögn Ólafs B. Schram, formanns
HSÍ. Sljarnan kærði úrskurðinn sem var á þá
leið að fyrsti heimaleikur Stjörnunnar i íslands-
móti 1. deildar karia næsta haust verði leikinn
fyrir tómu húsi í Garðabæ, þ.e. án áhorfenda,
og að auki var handknattleiksdeild Stjörnunnar
gert að greiða 25.000 kr. sekt til HSÍ. 17. grein
reglugerðar fyrir mótanefnd HSÍ segir m.a. að
kveði úrskurður hennar á um að flylja leiki í
önnur hús eða Ieika fyrir tómu húsi er heimilt
að skjóta honum til framkvæmdastjórnar. Sam-
kvæmt sömu grein á það ekki við ef um áminn-
ingu er að ræða eða sekt að hámarki 50.000
kr. sem renna skal til HSÍ.
Mark Mitchell
til Grindavíkur
GRINDVÍKINGAR hafa fengið nýjan leikmann
til liðs við sig og mun hann, ef gerður verður
við hann samningur, spila með liðinu gegn Kefl-
víkingum í undanúrslitum á föstudaginn. Leik-
maðurinn heitir Mark Mitcheil og keraur hingað
frá Filipseyjum. Hann lék á haustmánuðum með
Pittsburg í CBA deildinni í Bandaríkjunum og
er 180 cm leikstjórnandi.
Friðrik Rúnarsson þjálfari Grindvíkinga sagði
í samtali við Morgunblaðið að hann treysti sér
ekki til að segja neitt um hvort Mitchell komi til
með að falla inn í Grindavíkurliðið en kvaðst
vona það besta. „Við vorum að leita að leikstjórn-
anda sem getur leyst Helga [Jónas Guðfinnson)
af eða spilað með honum í hlutverki leikstjórn-
anda. Það skiptir í raun mestu máli hvernig hann
passar inn í hópinn því það er stuttur timi til
stefnu,“ sagði Friðrik. Hann kvaðst vera með ítar-
legar upplýsingar um leikmanninn, hann þætti
góður leikstjórnandi og vamarmaður og upplýs-
ingarnar væru ekki bara frá umboðsmanni hans
heldur einnig andstæðingum sem gerðir þær trú-
verðugri.
Mitchell er fimmti erlendi leikmaðurinn sem
kemur til Grindvíkinga í vetur. Tony Smith lék
með liðinu í Reykjanessmótinu, síðan kom Joe
Wright til að leika með UMFG í Evrópukeppn-
inni, en fór síðan utan án þess að gerður væri
við hann samningur. Þriðji í röðinni var Greg
Bell, sem staldraði stutt við og á dögunum var
Franc Booker látinn fara.
Guðni æfði
með Bolton
„Ég kann ágætlega við mig hjá Bolton," sagði
Guðni Bergsson, landsliðsmaður í knattspyrnu,
sem mætti á sína fyrstu æfingu hjá Bolton í
gær. Guðni reiknar með að Tottenham og Bolton
gangi frá félagaskiptum hans I vikunni.
FIMLEIKAR: GUÐJONISLANDSMEISTARIIFJOLÞRAUTISJOUNDA SINN / C6