Morgunblaðið - 14.03.1995, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR14. MARZ 1995 C 7
Morgunblaðið/Bjami Eiríksson
ÍSLANDSMEISTARINN í fjölþraut, Elva Rut Jónsdóttir úr BJörk í gólfæfingum sínum á laugardag. „Elva
er toppstelpa sem vinnur afskaplega vel. Hún er fyrirmyndarnemandi bæði í fimleikum og í skóla svo
hún er sannur fulltrúi íþróttarinnar," sagði Hlín Árnadóttir, þjálfari hjá Björk.
igur hjá Elvu Rut
ar sínar á jafnvægisslá en náði ekki
að sína sitt besta á því áhaldi á sunnu-
dag. Hún datt tvívegis af slánni og
hafnaði í fjórða sætinu.
„Það er svo mismunandi hvernig
gengur dag frá degi. Ég stóð slánna
fyrsta daginn en datt bæði í dag og
í gær,“ sagði Elva Rut.
Hún æfir fimleika sex sinnum í
viku eins og aðrar stúlkur í meistara-
hópi Bjarkar og æfingarnar standa
að hennar sögn yfirleitt í ijórar til
fimm klukkustundir. „Þetta er mikill
tími en hefst ef maður skipuleggur
tímann vel og nú í kennaraverkfallinu
hefur maður nógan tíma.“
Næ aldrei gullinu
„Ég er alltaf í öðru eða þriðja
sætinu og næ aldrei gullinu. Eg er
samt ánægð með frammistöðuna en
hefði viljað ná einum gullverðlaun-
um,“ sagði Þórey Edda Elísdóttir úr
Björk sem hafnaði í öðru sæti í fjöl-
þrautinni.
„Við stefndum að því að endurtaka
leikinn frá því í fyrra og eiga efstu
þrjár stúlkurnar og það hefði líklega
tekist ef Nína hefði ekki meiðst. Ég
gerði alveg eins ráð fyrir því að Elva
Rut mundi sigra í keppninni, en dag-
urinn í dag var ekkert sérstakur hjá
henni. Hún hefur oft skorað betur
enda var hún undir miklu álagi,“ sagði
Hlín Árnadóttir, þjálfari hjá Björk að
lokinni keppni á laugardag.
„Elva er toppstelpa sem vinnur
afskaplega vel. Hún er fyrirmyndar-
nemandi bæði í fimleikum og í skóla
svo hún er sannur fulltrúi íþróttarinn-
ar,“ sagði Hlín um nemanda sinn og
nýkrýndan meistara.
____SKÍÐI_
Smimov
ósigrandi
- vann þriðju gullverðlaunin á HM í gær
Reuter
VLADIMIR Smirnov sýnir hér uppskeruna á HM.
Hann getur bætt fjóröa gullpeningnum við með
sigri í 50 km göngunni á föstudag.
SKÍÐA-
GÖNGU-
MAÐUR-
INN Vlad-
imir
Smirnov
frá Ka-
sakstan
hefur stol-
ið senunni
á HM i
norrænum
greinum
sem nú
stendur
yfir í
Thunder
Bay í
Kanada.
Hann vann
þriðju gull-
verðlaun
sín í gær
er hann
kom fyrst-
ur í marki
f 15 km
göngu
með f rjálsri aðferð og hefur því
unnið þrjár fyrstu göngurnar,
30,10 og 15 kílómetra.
Smirnov, sem hefur unnið sex
af síðustu sjö keppnum, var
17,8 sekúndum á undan Norðmann-
inum Birni Dæhlie í 10 km með
hefðbundinni aðferð á laugardag,
en gangan var fyrri hlutinn af „veið-
istarti" svokölluðu þar sem ræst var
út í 15 km gönguna í gær eftir tím-
unum í 10 km göngunni á laugar-
dag. Mike Myllyla frá Finnlandi
varð þriðji, 1,4 sek. á eftir Dæhlie.
Smirnov fór því fyrstur af stað
í 15 km gögnuna í gær, 17,8 sek.
á undan Dæhlie. Smirnov hélt ör-
yggri forystu allan tímann í 15 km
göngunni og kom í mark 11 sekúnd-
um á undan ítalanum Silvio Faun-
er, sem var 0,03 sek. á undan
Finnanum Jari Isometsea sem varð
þriðji.
„Fyrir mótið gerð ég mér ekki
vonir um að vinna þrenn gullverð-
laun,“ sagði Smirnov eftir sigurinn
í gær. „Þetta var erfiðasta gangan
af þessum þremur því færið breytt-
ist svo mikið í brautinni." Hann
sagðist hafa lagt upp með það vega-
nesti að byija hratt og eftir miðja
göngu var forysta hans orðin það
góð að hann hugsaði aðeins um að
halda öruggu forskoti og eiga þá
eitthvað inni í lokin ef á þyrfti að
halda, en það kom aldrei til.
„Þetta var aðeins keppni um silf-
urverðlaunin," sagði Alessandro
Vanoi, þjálfari ítala. „Smirnov er
svo stekur að það var ekki raun-
hæft að hugsa um að vinna hann.
Það voru því allir aðrir í keppninni
að hugsa um annað sætið — fyrsta
sætið var frátekið frá upphafi.“
Björn Dæhlie frá Norgi, sem fór
annar af stað og hélt því sæti lengst
af, missti af lestinni er bindingarn-
ar á öðru skíðinu brotnuðu þegar
um tveir kílómetrar voru eftir. Hann
þurfti því að fá annað skíði að láni
og endaði í fimmta sæti.
Finninn Isometsae gekk mjög vel
í gær. Hann var í áttunda sæti eft-
ir 10 km og 54 sekúndum á eftir
Smirnov en endaði í þriðja sæti.
Hann var reyndar orðinn annar er
300 metrar voru eftir en hann réð
ekki við frábæran endasprett ítal-
ans Silvio Fauners.
Wiberg sigraði en
Schneider meistari
Sænska stúlkan Pernilla Wiberg
sigraði í svigkeppni heimsbik-
arsins í Parpan í Sviss á sunnudag
en Vreni Schneider, sem varð í öðru
sæti, fagnaði sigri í stigakeppni
svigmóta vetrarins.
Wiberg fór á 1.17,31 mín. og
fagnaði fyrsta sigri sínum í vetur
en Schneider, sem var í fimmta
sæti eftir fyrri ferð, bætti sig í
seinni ferðinni og innsiglaði meist-
aratitlinn í sjötta sinn. Svissneska
stúlkan er með 460 stig þegar eitt
mót er eftir en Martina Ertl frá
Þýskalandi er í öðru sæti með 278
stig. Schneider er jafnframt stiga-
hæst úr öllum mótum vetrarins, er
með 1.090 stig, en þýska stúlkan
Katja Seizinger er með 1.055 stig.
„Ég vildi sanna að ég gæti stað-
ið mig vel á heimavelli," sagði
Schneider. „Þetta var spennandi
helgi og ég er ánægð að vera með
forystuna. Ég var taugaóstyrk í
fyrri ferðinni en ákvað að gefa mig
alla í þá seinni og stóð mig þá mun
betur. Meistaratitillinn í saman-
lögðu er ekki í höfn. Það eru fjögur
mót eftir en vonandi tekst mér að
sigra.“
Wiberg var ánægð með árangur-
inn. „Fyrsti sigurinn í vetur er stað-
reynd og ég er svo kát með það.
Ég hef átt í miklum meiðslum sem
hafa komið niður á árangrinum en
nú get ég horft fram á vegin full
sjálfstrausts."
Fyrsti sigur Vitalini
ítalinn Pietro Vitalini sigraði í
bruni heimsbikarsins í Kvitfjell í
Noregi á laugardaginn og var það
jafnframt fyrstu sigur hans í keppn-
inni. Josep Strobl frá Austurríki
varð annar og landi hans, Armin
Assinger, þriðji.
Tvö brun voru haldin í Kvitfjell
á laugardaginn og sigraði Banda-
ríkjamaðurinn Kyle Rasmussen í
því síðara. Kristian Ghedina frá ít-
alíu varð annar og Austurríkismað-
urinn Patrick Ortlieb þriðji.