Morgunblaðið - 14.03.1995, Page 8
8 C ÞRIÐJUDAGUR 14. MARZ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
ÍÞRÓTTIR FATLAÐRA
Aldrei fleiri
keppendur
OPNUNARHÁTÍÐ íslandsmóts
fatlaðra var tilkomumikil. 420
keppendur marseruðu inná
gólf íþróttahúss Seljaskóla á
föstudaginn við undirleik
skólahljómsveitar Mosfells-
bæjar. Aldrei hafa verið fleiri
keppendur, sem komu frá tutt-
ugu og einu íþróttafélagi alls
stáðar að af landinu.
Olafur Jensson formaður
íþróttasambands fatlaðra
setti mótið og bauð keppendur vel-
komna og Reynir
Stefán Karlsson íþróttafull-
Stefánsson trúi ríkisins flutti
skrifar kveðju menntamála-
ráðherra. Báðir
lýstu yfír mikill ánægju með fjölda
þátttakenda og þökkuðu þróttmiklu
starfi, unnu í íþróttafélögum fatl-
aðra um land allt.
Keppt var í fímm íþróttagreinum
yfír alla helgina. Sunddrottningin
Sigrún Huld Hrafnsdóttir, Ösp,
bætti heimsmetið í 50 m baksundi
og níu íslandsmet fuku til viðbótar.
Boccia var að venju fjölmennast
með rúmlega 250 keppendur og þar
endurheimtu Akureyringar íslands-
meistaratitilinn í 1. deild og í borð-
tennis var Jón Heiðar Jónsson sig-
ursæll. Atli Brynjarsson, ÍFR, sigr-
aði með yfírburðum í lyftingum
þegar hann lyfti 157,5 kílóum í
bekkpressu en hann segist ætla upp
í 200 kíló á næstu Ólympíuleikum.
I bogfími skreið Óskar Konráðsson
yfír 1.000 stiga múrinn.
Morgu nblaðið/Bj arni
SIGRÚN Huld Hrafnsdóttlr, Ösp, setti enn eitt heimsmestlð
um helgina, syntl 50 m baksund á 39,28 sekúndum.
Morgunblaðið/Bjarni
JÓN Heiðar Jónsson var sigursæll í borðtennis þegar hann
keppti í þremur flokkum og vann þð alla.
Góður árangur
hjá Jóni Heiðari
Jón Heiðar Jónsson úr ÍFR kom,
sá og sigraði í borðtennis á
mótinu þegar hann keppti í þremur
flokkum og vann þá alla. Jón Heiðar
vann opna flokkinn örugglega og
var að endurheimta titlana í sitjandi
flokki og tvíliðaleik en hann varð
að sjá af þeim síðasta ár eftir að
hafa sigrað þijú ár þar á undan. „Ég
veit við hveija ég var að eiga enda
búinn að spiia mikið við þessa stráka
og vissi að ég ætti einhvem mögu-
leika,“ sagði Jón, sem æfír fjórum
sinnum í viku, 2 til 3 tíma í senn.
Að sögn þjálfara Jóns hefur hann
aldrei leikið betur og gengið ágæt-
lega á erlendum mótum þrátt fyrir
að fötlun hans setji hann í flokk
með mun minna fötluðum spilurum.
í sitjandi flokki vann Jón Heiðar
örugglega Viðar Árnason íslands-
meistara frá 1994 en þeir tveir
unnu Jón Grétar Hafsteinsson, Vík-
ingi, og Stefán Thorarensen, Akri,
í tvíliðaleik. Standandi flokk karla
vann Ámi Rafn Gunnarsson, ÍFR,
eftir tvísýnan oddaleik við Þorstein
M. Sölvason, ÍFR.
Gunnhildur Þ. Sigþórsdóttir, ÍFR,
vann flokk standandi kvenna með
yfirburðum og náði einnig að hirða
gullið í tvíliðaleik með Sigríði Þóru
Árnadóttur úr sama félagi. í flokki
þroskaheftra vann Jón Grétar ör-
ugglega karlaflokkinn og í kvenna-
flokki hélt Gyða K. Guðmundsdótt-
ir, Ösp, titli sínum.
„Við æfum saman og ég er far-
inn að þekkja styrk þeirra og veik-
leika í borðtennis," sagði Hulda
Pétursdóttir, íþróttafélaginu Nes,
eftir sigur á Sigurrósu Karlsdóttur
í úrslitaleik í opnum flokki kvenna.
Keppendur vom 28 og leikirnir
á milli 120 og 130. „Borðtennis
hentar vel fyrir fatlaða því mikið
reynir á samæfingu hugar og hand-
ar. Spastískir og mikið fatlað fólk
hefur oft náð ótrúlegum árangri.
Það væri gaman að fá nýtt blóð í
borðtennis hjá fötluðum, fá fleiri
og úr fleiri félögum, sérstaklega frá
landsbyggðinni en sum félög, til
dæmis Þjótur frá Akranesi, hafa
verið að koma til,“_ sagði Ingólfur
Amarsson þjálfari ÍFR.
Heimsmet
Islenskir fatlaðir sundmenn hafa
verið iðnir við kolann þegar
kemur að því að slá met og um
helgina varð engin breyting þar
á. Sigrún Huld Hrafnsdóttir, Ösp,
setti heimsmet í 50 m baksundi
þegar hún synti á 39,28 sekúndum
í Sundhöllinni og að auki fengu 9
önnur íslandsmet að fjúka. Birkir
R. Gunnarsson, UBK, bætti tvö
Islandsmet þegar hann synti 200
m fjórsund á 2:46.26 mínútum og
100 m skriðsund á 1:09.65 í flokki
blinþra. Kristín Rós Hákonardótt-
ir, ÍFR, í flokki S8, setti einnig
tvö íslandsmet og synti 100 m
bringusund á 1:42.95 mínútum og
100 m skriðsundi á 1:19.04. Ólaf-
ur Eiríksson, ÍFR, sló íslandsmet
í 100 m baksundi í sínum flokki,
S9, á 1:10.43 mínútum og Anna
R. Kristjánsdóttir, Óðni, í flokki
S7, fór 100 m bringusund á
2:14.66 mínútum. Harpa Þráins-
dóttir, úr Þjóti frá Akranesi sló
íslandsmetið í flokki S10 þegar
hún synti 100 m skriðsund á
1:23.27 og Berent Hafsteinsson
úr sama félagi bætti 100 m skrið-
sund í 1:19.04.
Sú spurning hefur oft vaknað
við glæsilega árangur sundfólksins
hvort hægt sé að bæta stöðugt
heimsmetin í íþróttinni. Forráða-
menn sundfélaga fatlaðra segja að
það sé enn hægt að gera mun
betur. Krakkamir séu mjög dug-
legir við æfíngar og einnig að taka
þátt í mótum ófatlaðra. Ennfremur
sé markvisst unnið að bættum ár-
angri hjá félögunum og íþrótta-
sambandi fatlaðra og samvinna
þjálfara sé góð. Mörg félög utan
af landi séu að koma til og benda
þar til dæmis á Þjót frá Akranesi
og Ægi frá Vestamannaeyjum.
REYNIR Kristófersson, ÍFR, er hér í bekkpressu en hann
hafnaöi í þriöja sæti á Islandsmóti fatlaðra um helgina. Öfugt
griplö á sinar skýrlngar því Reynir melddist á úlnllö og hefur
veriö aö æfa upp nýjan stíl.
Boccia
verðuræ
vinsælla
Boccia var að venju langfjölmenn-
asta greinin og var keppt í
þremur deildum, U-flokki og renni-
flokki, sem er fyrir mjög fatlaða.
Bocciamenn segja að sprenging hafi
orðið í greininni og rúmlega 250
keppendur mættu til leiks en fjöldi
þátttakenda hefur nánast tvöfaldast
á nokkrum árum. Þar munar mest
um lið af landsbyggðinni, til dæmis
frá Seyðisfirði, Akranesi og Borgar-
nesi. Hel'st bar til tíðinda að a-lið
Akurs frá Akureyri, stundum kallað
„Taugadeildin", vann í 1. deild en
viðurnefnið hefur liðið fengið fyrir
stáltaugar í erfíðum úrslitaleikjum.
Aðalleikurinn í 1. deild var á milli
Akurs-a og ÍFR-a. Eftir mjög spenn-
andi keppni voru liðin jöfn að stigum
og réðust úrslit á innbyrðis leik lið-
anna þó að lið Reykvíkinga hefði
betri lotuhlutfall. Lið Akurs skipar
Sigurrós Karlsdóttir og bræðumir
Elvar og Stefán Thorarenssynir.
Bronsið fékk Eik-b. í 2. deild sigraði
ÍFR-c, Ösp-i lenti í öðru sæti og
ívar-a frá ísafirði í því þriðja.
„Þetta var tæpt undir lokin og
spennan mikil. ÍFR ætlaði að vinna
titilinn núna og það var mikil sálræn
pressa í leik okkar við þá,“ sagði
Stefán úr sigurliðinu. Akur-a end-
urheimti titilinn eftir að hafa misst
hann til Viljans frá Siglufírði síðasta
ár en hafði þá haft bikarinn í 5 ár.
Gróska sigraði í rennuflokki og
ÍFR tók silfrið en bronsið féll liði
Aspar í skaut. Rennuflokkur er fyrir
mikið fatlaða og áhorfendur höfðu á
orði að seiglan og baráttan hefði
verið mikil í þeim flokki.
Esja gefur
verðlaunin
Kiwanisklúbburinn Esja gefur öll
verðlaun á íslandsmótinu og
hafa gert það frá upphafí, í 16 ár.
Þetta árið voru verðlaunapeningamir
um 450 auk 8 bikara. Konstantín
Hauksson forseta klúbbins segir háls-
ana nokkuð marga sem þeir smeygja
verðlaunum á. Þeir félagar segja þó
að það sé mjög gaman enda ríki ein-
læg gleði á mótunum.
Bættisig
um 20 kíló
Arnar Jónsson lyftingaþjálfari
ÍFR sagði fyrir mótið að það
kæmi ekki annað til greina en að slá
einhver met og hann reyndist sann-
spár því metinu urðu þijú.
Atli Brynjarsson, ÍFR, vann flokk
hreyfíhamlaðra örugglega en hann
hefur verið í mikilli uppsveiflu síð-
asta ár og bætti sig um 20 kíló.
Atli keppir í 90 kílóa flokki og sló
íslandsmetið í bekkpressu þegar
hann lyfti 157,5 kílóum. Þorsteinn
M. Sölvason varð annar og Reynir
Kristófersson þriðji. „Ég lyfti langt
undir getu, hef mest lyft 167,5 kíló-
um í bekkpressu en ætla að taka 200
kílóin á næstu Ólympíuleikunum,"
sagði Atli.
I flokki þroskaheftra vann Gunnar
Örn Erlingsson, Ösp, og dugðu ekki
minna en tvö íslandsmet. Gunnar
Öm lyfti 185 kílóum í réttstöðu og
100 í bekkpressu. Annar varð Ás-
grímur Pétursson og þriðji Sigur-
björn B. Bjömsson.
Keppendur skutu 2.280 örvum í bogfiminni
Bogfími fór fram í íþróttahúsi
fatlaðra í Hátúni og vom kepp-
endur samtals 19 í öllum flokkum.
Keppnin tók tvo daga og skaut hver
skytta 60 örvum hvom dag svo að
samanlagt urðu örvarnar 2.280. Þar
varð Óskar Konráðsson hlutskarp-
astur með 1.007 stig, annað sætið
hreppti Jón M. Ámason með 965 og
í því þriðja hafnaði Leifur Karlsson
með 951 stig en þeir eru allir í ÍFR.
„Ég hef mest fengið 1.014 stig
og það var á Norðurlandamótinu.
Við emm alltaf að beijast við að
komast upp fyrir þúsund stig en það
var eiginlega bara tilviljun að ná
þessu og fer alveg eftir því hvemig
maður em upplagður,“ sagði Óskar,
sem ásamt félögum sínum Jóni og
Leifí, náði frábæram árangri á opnu
móti í Malmö í Svíþjóð í febrúar.
Fjórar bogfimiskyttur tóku þátt í
mótinu og komust allir á pall. Óskar
náði þar silfri í a-flokki og Leifur
silfri en Jón vann b-flokkinn. Þeir
félagar unnu þar með afreksbikarinn
í liðakeppni og komu heim með bikar.
Bogfimi er mest stunduð innan-
húss á íslandi því ekki er enn komin
aðstaða utanhúss. Fjarlægðin utan-
húss er mest 90 metrar og skífan
er þá 120 sentimetrar en innanhúss
er færið alltaf 18 metrar og skífan
40 sentimetrar í þvermál. Henni er
skipt upp í 10 hringi og fást 10 stig
fyrir innsta hring, 9 fyrir næsta og
svo framvegis. Mest er því hægt að
fá 1.200 stig og hafa íslendingarnir
verið að fá á bilinu 900 til 1.000
stig á mótum.