Morgunblaðið - 14.03.1995, Qupperneq 12
HANDKNATTLEIKUR
Þannig vörðu þeir
Reynir Þ. Reynisson, Víkingi 8 (Þar af tvö
skot sem knötturinn fór aftur til mótherja).
5(2) langskot, 2 úr horni, 1 gegnumbrot.
Sigmar Þröstur Óskarsson, KA 15/2 (Þar
af tvö skot sem knötturinn fór aftur til mót-
herja). 7 langskot, 2 vítaskot, 2(1) úr horni,
2 af línu, 2(1) eftir hraðaupphlaup.
Björn Björnsson 1. 1 langskot.
Ævintýrið endalausa!
ALFREÐ Gíslason og lærisvein-
ar hans dönsuðu enn einn
stríðsdansinn í gærkvöldi —
framganga iiðsins að undan-
förnu er svo sannarlega ævin-
týrið endalausa! Menn eru ekki
búnir að gleyma sögulegum
bikarúrslitaleik, þar sem leik-
menn KA lögðu meistara Vals
ítvíframlengdum leik. Næstu
fórnarlömb KA-manna voru
Stjörnumenn — KA tapaði fyrst
stórt fyrir Stjörnunni í
Garðabæ, hefndu síðan fyrir
tapið á Akureyri og fögnuðu
sigri í æsispennandi oddaleik í
Garðabæ. Sagan endurtók sig
gegn Víkingum og í gærkvöldi
var sögusviðið Víkin, þar sem
KA-menn lögðu Víkinga, 22:23,
í æsispennandi leik, þar sem
allt var á suðumarki undir lokin.
Það verður því hlutverk KA-
manna að mæta Valsmönnum í
úrslitaviðureigninni.
Spennan var mikil í Víkinni á
lokakafla leiksins — þegar
Gunnar Gunnarsson skoraði, 18:16,
með stórgóðu undir-
Sigmundur skoti um miðjan
Ólafur seinni hálfleikinn,
Sieinarsson vonuðu hörðustu
skníar stuðningsmenn Vík-
ings, að þeirra menn væru komnir
með takið á KA, sem þeir myndu
ekki sleppa. Það var þá sem leik-
menn KA sögðu hingað og ekki
lengra — Sigmar Þröstur Óskarsson
komst í essið sitt, varði hvað eftir
annað glæsilega og KA-menn skor-
uðu fjögur mörk í röð. Spennan var
mikil, Víkingar jöfnuðu, 20:20 og
21:21, en þegar staðan var 21:22
fyrir KA varði Sigmar Þröstur víta-
kast frá Sigurði Sveinssyni og síðan
kom Alfreð Gíslason með langskot,
21:23, þegar tæp mín. var til leiks-
loka. Þá var Erlingi Kristjánssyni
vikið af Ieikvelli, Arni Friðleifsson
skoraði, 22:23, með langskoti er 50
sek. voru eftir og Víkingar fóru að
leika maður gegn manni; náðu knett-
inum þegar sautján sek. voru til
leiksloka. Æsingurinn var mikill og
braut Friðleifur Friðleifsson þá gróf-
lega á Valdimari Grímssyni, með því
að gefa honum olnbogaskot í andlit-
ið. Þetta varð til þess að uppúr sauð
og þegar Víkingar fengu aukakast
þegar leiktíminn var úti, fékk Valdi-
mar að sjá gula spjaldið og Árni
Friðleifsson það rauða fyrir að veit-
ast að leikmanni KA. Fjórir leikmenn
KA mynduðu varnarvegg og hann
var nægilega sterkur til að Víkingar
komu knettinum ekki í gegn. KA-
menn stigu stríðsdans.
Járnkarlarnir að nordan
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
JÁRNKARLARNIR í vörn KA brutu niður sóknarleik Víklnga. Þetta er dæmigerð mynd úr leiknum í Víkinni — Birglr Sigurðsson
varð að Játa sig sigraðan í viðureign sinni við Alfreð Gíslason, Leó Örn Þorleifsson og Erling Kristjánsson.
Leikurinn var mikill sigur fyrir
KA-liðið sem kom ákveðið tii leiks.
Varnarmúr Akureyringa var sterkur
og brutu járnkarlarnir; Leó Örn Þor-
leifsson, Erlingur Kristjánsson, Al-
freð Gíslason og Patrekur Jóhannes-
son, ásamt hornamönnunum Valdi-
mar Grímssyni og Val Arnarsyni,
upp sóknarleik Víkinga. Leikurinn
var alltaf í járnum, en þegar Sigmar
Þröstur, sem varði aðeins þtjú skot
í fyrri hálfleik, fann sig þegar líða
fór á seinni hálfleikinn, var KA-liðið
komið á siglingu. Sigmar Þröstur
varði þá tólf skot — þar af tvö víta-
skot. Þegar mest á reyndi var það
gamli foringinn Alfreð Gíslason sem
tók af skarið — hann skoraði tvö
síðustu mörk KA-manna með lang-
skotum. Það var sterkur leikur hjá
Alfreð að leika sóknarleikinn — þar
með skapaðist meiri ógnun, því að
Víkingar gengu vel út á móti Pat-
reki Jóhannessyni og klipptu á Valdi-
mar í horninu. Alfreð skoraði tvö
mörk með gegnumbrotum í byijun
leiks og þá átti hann tvær góðar línu-
sendingar á Leó Örn Þorleifsson,
sem gáfu mörk. Stemmningin var
mikii í herbúðum KA-liðsins í seinni
hálfleik og tóku varamennirnir virk-
an þátt í leiknum með því fagna
skemmtilega á bekknum — þeir tóku
bylgjur..., og þeir tóku dansspor að
hætti stúlknanna í Rauðu Myllunni
í París.
Víkingar áttu í erfiðleikum með
að bijóta sterkan varnarmúr KA
niður og þá sérstaklega þegar Sig-
mar Þröstur var kominn í ham. Árni
Friðleifsson hrellti KA-menn með
snöggum langskotum og það gerði
Bjarki Sigurðsson einnig í fyrri hálf-
leik. Sigurður Sveinsson gerði einnig
góða hluti, en þeir náðu ekki að sína
sitt rétta andlit í seinni hálfleik —
undir lokin voru leikmenn Víkings
orðnir spenntir, þá spennu skapaði
Sigmar Þröstur. Spennan varð Vík-
ingum að falli — annað árið í röð
horfa þeir á eftir andstæðingum sín-
um fara í úrslitaleiki gegn Vals-
mönnum.
Þetta er dásamlegt
ALFREÐ Gíslason, þjálfari KA-liðsins, var í sjöunda himni eftir leik-
inn í Víkinni. „Ég get varla lýst því hvernig mér líður — þetta er
dásamlegt. Þetta er stórkostleg stund fyrir okkur; enn einu sinni
fögnum við sigri á réttu augnabliki. Við vorum sterkari — það vor-
um við sem réðum hraða leiksins, sem byggðist á hraða mínum,“
sagði Aifreð og brosti sælubrosi. Hann kom dansandi innf búnings-
klefa KA-manna, sem fögnuðu honum ákaft.
Alf reö Gíslason kemur dansandi inn í búnlngsklefa KA-manna, þar sem samherjar fagna honum
SÓKNARNÝTING
Þriðji leikur
liðanna í
undanúrsiitum
íslandsmótsins,
mánudaginn
13. mars 1995.
Víkingur KA
Mörk Sóknir % Mörk Sóknir %
13 23 56 F.h 12 23 52
9 20 45 S.h 11 20 55
22 43 51 Alls 23 43 54
10 Langskot 5
0 Gegnumbrot 5
2 Hraðaupphlaup 1
5 Hom 3
3 Lína 3
2 Víti 6
UNIR;
X X