Morgunblaðið - 22.03.1995, Side 1
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS MIÐVIKUDAGUR 22. MARZ 1995
Einmana kóngulóin
Cinu sinni var einmana ir, 7 ára, Frostafold 105,
■■kónguló. Allt í einu sagði Reykjavík, er höfundur þessar-
hún: Þetta er leiðinlegt, ar sögu og hún myndskreytti
enginn vill leika við mig. hana líka. Flott hjá þér, Sigur-
Sigurdís Jara Brynjólfsdótt- dís mín.
Múrarinn klári
Ekki er hann Magnús Jónsson
múrari óttasleginn á mynd-
inni. Ó nei, hann var fenginn
til þess að lagfæra múrinn í
kringum hús Múrarafélags ís-
lands. Þannig er að hann varð
hlutskarpastur í samkeppni
allra múrara á landinu, því að
hann einn áttaði sig á, um hvað
málið snerist. Að vita hversu
marga múrsteina vantaði til
þess að fylla í eyðuna.
Eruð þið jafn glögg, börnin
góð, og hann Magnús?
Þið fáið skorið úr því á bak-
síðunni, þar sem lausnin er -
en fyrst reynið þið upp á eigin
spýtur að fylla í eyðuna.
Brandarar
„Halló skralló, myndablað!
Ég heiti Harpa Rut og hér
eru nokkrir brandarar. Viljiði
vera svo væn að birta þá.“
Harpa Rut Björnsdóttir, 11
ára, Sætúni, Borgarfírði
eystri, eins og þú sérð, birtum
við brandarana hér með. Kær-
ar þakkir og kveðjur austur
til allra krakka, stórra og
smárra.
Kennarinn: Hvaða tennur taka
menn seinast?
Gvendur: Gervitennur.
Anna: Ég held að mamma mín
skilji ekki börn.
Beta: Hvers vegna?
Anna: Hún lætur mig í rúmið
þegar ég er glaðvakandi, en
segir mér að fara á fætur þeg-
ar ég er syfjuð.
Kennarinn: Palli, getur þú sagt
mér hvar Rauða hafið er á
kortinu?
Palli: Nei, það get ég ekki, ég
er litblindur.
Siggi: Langar þig til að koma
í afmælið mitt?
Bjössi: Já takk. Hvar áttu
heima?
Siggi: Grundarstíg 99.
Hringdu bara með olnbogan-
um á bjöllunni.
Bjössi: Með olnboganum?
Siggi: Já, þú getur varla ætlað
að koma tómhentur.
Hverju
skeikar?
IV hveija þessara fjögurra
mynda vantar tvennt,
sem fínnst á hinum
myndunum. Getið þið fundið
þetta tvennt á hverri mynd?
Lausnimar er að fínna á
baksíðunni.
Meira um
skiptimark-
aðinn
Þið sendið okkur bréf með
óskum ykkar um skipti og
við birtum það. Þið látið fullt
nafn og heimilisfang fylgja
með og SÍMANÚMER ykkar
er nauðsynlegt svo að auð-
velt og fljótlegt sé fyrir ykk-
ur að ná sambandi hvert við
annað. Og þá er nú aldeilis
mál til komið að taka til
máls eða þannig.
Skilið? Já, ég vissi það, þið
eruð ekki svo galin.
Púslið
.
Klipptu ferhyrninginn í fjóra
hluta eftir strikunum. Fjar-
lægðu svarta hlutann með spum-
ingamerkinu og í-eyndu nú að búa
til nýjan ferhyming með þremur
hlutunum sem eftir eru. Það er
enga lausn að fínna í blaðinu, hún
er í kollinum á þér. Góða skemmt-
un.