Morgunblaðið - 30.03.1995, Page 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
1995
FIMMTUDAGUR 30. MARZ
BLAD
E
HANDKNATTLEIKUR
Sigurður
Sveinsson
rúmfastur
SIGURÐUR Sveinsson,
stórskytta landsliðsins,
læstist í bakinu á æfingu
með landsliðinu í gærdag
og lá rúmfastur er Morgun-
blaðið hafði samband við
hann í gærkvöldi. „Bakið
fór bara í lás, það er
klemmd taug á milli hrygg-
jarliða og ég er rúmliggj-
andi. Ég verð að taka mér
frí frá æfingum og ganga
til sjúkraþjálfara næstu
daga. Þetta kemur á versta
tíma því stutt er í HM og
hefði ekki veitt af því að
koma sér í form fyrir átök-
in framundan," sagði Sig-
urður.
Á leið til Ítalíu
JASON Ólafsson skrlfar undlr tveggja ára samning vlð ítalska IIAIA Brlxen
í nœstu vlku. LIAIA er frá borglnni Brixen, sem er f ölpunum f SuAur-Týról.
Guðmundur lög-
legur með KR
GUÐMUNDUR Benediktsson úr Þór á Akureyri
er orðinn löglegur með KR-ingum. Krisfján
Kristjánsson, formaður knattspyrnudeildar
Þórs, sagði í gær að nú liefði loksins verið geng-
ið frá félagaskiptunum og búið að skrifa undir.
Belgíska félagið Ekeren, sem Guðmundur var
hjá í þijú ár, hefur einnig fyrir sitt leyti sam-
þykkt félagaskiptin.
Enn er ekki búið að ganga frá félagaskiptum
Hlyns Birgissonar úr Þór í Örebro. Kristján
sagði að þau mál væru að skýrast og reiknaði
hann með að skrifað yrði undir félagskipti hans
fyrir helgi.
Tómas Ingi til
Grindavíkur
TÓMAS Ingi Tómasson, sem lék með KR-ingum
síðasta sumar, hefur ákveðið að skipta yfir í lið
Grindvíkinga, sem leikur i fyrsta sinn í 1. deild
i sumar. Tómas Ingi er 26 ára og lék 17 leiki
með KR 8.1. sumar og gerði í þeim 6 mörk, þar
af 3 mörk i fyrsta leik mótsins gegn Breiðabliki.
Daguríhugartil-
boð frá Sviss
DAGUR Sigurðsson er með tilboð um að gerast
leikmaður hjá svissneska félaginu Wackethun,
sem er um miðja 1. deild þar í laudi. „Ég reikna
með að fara til Sviss á laugardaginn til að skoða
aðstæður hjá félaginu. Ég þekki lítið til þessa
liðs en veit að svissneski landsliðsmaðurinn
Martin Rubin leikur með þessu liði og þjálfarinn
er Júgóslavi. Það er þess virði að skoða þetta
dæmi. Ég held að það sé kominn tími fyrir mig
að breyta aðeins til og fara í annað umhverfi.
Það væri gaman að prófa að búa í Sviss um tíma.
Ég hef leikið fimm ár með meistaraflokki Vals
og unnið með liðinu fjóra íslandsmeistaratítla,"
sagði Dagur.
Valsmennirnir Júlíus Gunnarsson og Jón
Kristjánsson hafa verið að ihuga að fara erlend-
is í nám næsta vetur. Það yrði því mikill missir
fyrir Valsmenn ef þessir þrír leikmenn færu frá
félaginu.
Einar tekur við
Aftureldingu
SAMKVÆMT heimildum Morgunblaðsins verður
Einar Þorvarðarson, aðstoðarlandsliðsþjálfari í
handknattleik, næstí þjálfari Aftureldingar í
Mosfellsbæ. Aðeins á eftír að ganga frá forms-
atriðum milli Einars og félagsins. Einnig hefur
Elías Nielsson, íþróttafræðingur, verið ráðinn
aðstoðarþjálfari liðsins. Einar var einnig með
tílboð frá Haukum, sem hann hafnaði.
Jason gerir tveggja ára
samning við Brixen
Fyrsti íslendingurinn sem gerist leikmaður á Ítalíu
JASON Ólafsson, handknattleiksmaður úr Aftureldingu, skrif-
ar undir tveggja ára samning við ítalska 1. deildarliðið Brixen
i næstu viku og verður þar með fyrstur íslendinga til að leika
með ftölsku liði. „Ég fór út og skoðaði aðstæður hjá ftalska
félaginu og leist mjög vel á allt það sem í boði er. I framhaldi
að því ákvað ég á slá til og ganga til liðs við Brixen," sagði
Jason.
Jason sagði að þetta væri allt klárt
og að hann myndi skrifa undir
tveggja ára samning við félagið í
byrjun næstu viku. HannTlytur síð-
an af landi brott í ágúst í sumar
en deildarkeppnin á Italíu hefst í
október. Brixen er frá samnefndum
15 þúsund manna bæ á Norður-ítal-
íu á svæði sem er þýskumælandi.
Jason segir að styrkleiki liðanna í
ítölsku deildinni væri aðeins lakari
en hér á landi, en flest liðin væru
komin með einn útlending þannig
að gæðin ættu að aukast. „Liðið
vantar vinstrihandar skyttu og á
ég á leysa það hlutverk af hendi,“
sagði Jason.
„Það verður gaman að takast á
við þetta verkefni og jafnframt mik-
ið ævintýri fyrir mig. Ég fæ þarna
tækifæri til að komast almennilega
inn í þýskuna. Það er mikill áhugi
á handbolta í Brixen og allar aðstæð-
ur mjög góðar. Á heimaleikjum liðs-
ins koma að meðaltali þúsund áhorf-
endur en 2.500 á leiki í úrslitakeppn-
inni. Þetta er vinsælasta íþróttin í
bænum,“ sagði Jason.
KNATTSPYRNA: TYRKIR UNNU SVIA í ISTANBUL / E4