Morgunblaðið - 01.04.1995, Page 4
1. deildarkeppnin
í handknattleik
iHsam
Patrekur Jóhannesson bestur ívetur að mati Morgunblaðsins
Hef þroskast
mikið við að
fara norður
PATREKUR Jóhannesson,
landsliðsmaður úr KA, var
besti leikmaður íslandsmóts-
ins í handknattleik ívetur, að
mati íþróttafréttamanna Morg-
unblaðsins og tók hann við við-
urkenningu frá blaðinu af því
tilefni í gær. Patrekur, sem er
22 ára — fæddur 7. júlí 1972 —
varð einnig markakóngur deild-
arkeppninnar ívetur, gerði 162
mörk í 21 leik og bætti svo við
49 mörkum í úrslitakeppninni.
Unnusta hans er Rósalind Mar-
ía Gunnarsdóttir.
Patrekur lék geysilega vel í vet-
ur, bæði í sókn og vörn og
átti stóran þátt í mikilli velgengni
KA-liðsins, sem varð bikarmeistari
og í öðru sæti á íslandsmótinu.
Þetta var fyrsta keppnistímabil
Patreks með KA. Fram að því hafði
hann ætíð leikið með Stjörnunni í
Garðabæ, „en mér fannst kominn
timi til að skipta um umhverfi. Ég
þurfti að sanna mig upp á nýtt og
það hefur gengið upp. Enda er
KA-liðið gott, þjálfarinn góður og
við erum með góðan heimavöll,"
sagði hann við Morgunblaðið í gær.
Patrekur hafði verið orðaður við lið
KA í tvö ár áður en hann tók af
skarið. „Tíminn sem ég var í Stjörn-
unni var mjög góður og ég er feg-
inn að hafa ekki farið fyrr í KA.
Ég held þetta hafi verið rétt tíma-
setning hjá mér,“ sagði hann.
Patrekur segir andann í KA-lið-
inu hafa verið frábæran í vetur, og
það hafa hjálpað mikið til enda
hafi velgengi liðsins í raun verið
mun meira en margur bjóst við.
„Alfreð [Gíslason þjálfari KA]
byggir þetta mikið upp á léttleika
og leikgleði. Hann hefur kennt mér
mjög mikið, bæði um sóknar- og
vamarleik á einum vetri og líka það
að ná upp betri einbeitingu. Alfreð
hefur verið lengi í þessu og hefur
mikla reynslu, en samt fínnst mér
eiginlega ótrúlegt hvað ég hef lært
mikið af honum á einum vetri.“
Hef þroskast mikið
Patrekur segist hafa haft mjög
gott af því að skipta um umhverfí.
„Þessi vetur hefur verið frábær. Það
er ótrúlegt hvað ég hef þroskast
mikið við að fara norður; fara frá
mömmu og standa á eigin fótum.
Hér fyrir sunnan var maður áber-
andi í skemmtanalífínu, en ég sé
ekkert eftir því að hafa verið það.
Eftir að ég fór norður tók ég sjálfan
mig hins vegar taki. Ég veit að ég
hef hæfileika til að geta eitthvað í
handbolta, en það er ekki alveg sama
hvernig maður hagar sér. Ekki það
að ég hafí verið í einhverju veseni,
en það fer bara ekki saman að vera
í íþróttum og skemmta sér of mikið,
og freistingamir vom mjög margar
hér fyrir sunnan."
Patrekur fagnaði titli í fyrsta
skipti er KA varð bikarmeistari í
vetur, „og það var ekki leiðinlegt
að vinna Val! Bikarúrslitaleikurinn
var rosalegur. Það hlýtur að teljast
leikur ársins. Maður hugsar til baka
til bikarúrslitadagsins núna, til að
líða betur eftir að hafa tapað fyrir
Val í úrslitakeppninni um Islands-
meistaratitilinn.
Það hjálpar manni mikið sál-
fræðilega að vinna svona titil, en
ég óttaðist kannski að menn í liðinu
tryðu tali um að við væmm orðnir
saddir þegar kom að úrslitakeppn-
inni. Væmm orðnir sáttir, en liðið
sýndi ótrúlega leikgleði sem var
mikilvægt. Ég held að landsliðið
ætti að reyna að byggja meira á
svona léttleika og leikgleði."
Augljóst þykir að Patrekur eigi
eftir að leika með erlendu liði þegar
fram líða s.tundir. Er það ef til vill
á döfinni næsta vetur? „Kannski.
Ég athuga það bara í rólegheitum
eftir HM. Ég held ég sé tilbúinn
en spurningin er hvort ég vilji fara.
Ég fer ekki nema fá mjög gott til-
boð. Það skýrist á fljótlega hvort
aftur verða leyfðir tveir útlendingar
í þýskum liðum, og ef það verður
samþykkt aukast líkurnar á að ég
fari næsta vetur. Það er líka freist-
andi að vera áfram hjá KA og taka
þátt í fyrsta Evrópuleik félagsins.
En það er ljóst að ég verð annað
hvort áfram hjá KA eða fer út —
það kemur ekki til greina að fara
í neitt annað félag á íslandi." Að-
spurður um Stjörnuna sagðist hann
ekki telja það rétt að fara svo fljótt
til baka. „Menn mega ekki halda
að ég hafi neitt á móti Stjömunni.
Það hef ég alls ekki og er reyndar
viss um að liðið vinnur eitthvað
næsta vetur. En það verður ekki
fyrr en einhvern tíma seinna sem
ég fer í Stjörnuna. Til að ljúka ferl-
inum, eftir að hafa spilað erlendis.“
ísland í þriðja sætl
Heimsmeistarakeppnin á Íslandi
hefst eftir rúman mánuð. Patrekur
segist ekki hafa gefíð sér tíma til
að hugsa mikið um þá baráttu sem
framundan er, en segist þó bjart-
sýnn. „Það er rosaleg samkeppni í
landsliðshópnum, þannig það verð-
ur erfitt að velja endanlegt lið.“
En skyldi vera óvenju mikil pressa
á leikmönnum í þessari keppni, þar
sem þeir verða í eldlínunni á heima-
velli? „Já, pressan verður ömgglega
mikil, en ég hef samt trú á að þetta
gangi upp hjá okkur og spái íslandi
þriðja sæti í keppninni. Ég er alveg
harður á því. Ég lofaði því á heims-
meistarakeppni 21 árs og yngri í
Grikklandi 1991 að við yrðum í
verðlaunasæti í næstu keppni, 1993
í Egyptalandi, og stóð við það. Við
fengum bronsið. Því skyldi þessi spá
mín nú ekki alveg eins rætast?“
sagði Patrekur Jóhannesson.
Morgunblaðið/Bjarni
PATREKUR Jóhannesson í lelknum gegn Val aö Hlíðarenda á
þriðjudagskvöldtð. Elnbelttur og fylglnn sér, að vanda.
a:
KR(Ú) (H)H! FH(Ú) 1 **
19. 20. 21. 22. umferð
MARKHÆSTU MENN MörWviti
Patrekur Jóhannesson KA 162/45
Dimitrí Filippov Stjörnunni 153/ 4
Sigurður Sveinsson Víkingi 139/63
Hans Guðmundsson FH 122/20
Sigurður Bjarnason Stjörnunni 115/22
Valdimar Grímsson KA 114/32
Jón Krístjánsson Val 110/32
...og
síðan bætti
Patrekur
við49
mörkum i
•g 11 leikjum
§ íúrslita-
-g keppninni
"S>
Patrekur Jéhannesson markakéngur 1995
„Á eftir að
verða miklu
betri“
„ÉG er mjög ánægður með
hvemig Patrekur hefur náð að
vinna sig upp um marga gæða-
flokka sem leikmaður á þeim
tíma sem hann hefur verið hjá
KA — hann er þó aðeins hálfn-
aður í að ná fullum þroska sem
leikmaður; á eftir að vera miklu
betri,“ sagði Alfreð Gíslason,
þjálfari Patreks við Morgun-
blaðið í gær. „Ég hef treyst
honum fullkomíega. Patrekur
hefur tekið miklum framfömm
sem varnarleikmaður — hefur
breyst úr villtum leikmanni, í
agðan og yfirvegaðan leikmann.
Þá hefur hann mjög gott auga
fyrir samleik í sókn og hvenar
er komið að honum til að ljúka
sóknarleiknum. Þá hefur Pat-
rekur yfír mjög fjölbreyttum
skotstíl að ráða,“ sagði Alfreð.
„Liggur
ekkert á að
fara út“
„ÞEGAR ég þjálfaði Patrek var
hann ungur og stórefnilegur, en
vantaði meiri festu. Það var mik-
il pressa á honum hjá Stjörn-
unni, þar sem ábyrgðin var á
honum. Patrekur hafði mjög
gott af því að breyta til; að fara
að leika með reyndum leikmönn-
um, eins og Alfreð Gislasyni,
Erlingi Kristjánssyni, Sigmari
Þresti Óskarssyni og Valdimar
Grímssyni,“ sagði Gunnar Ein-
arsson, fyrrum landsliðsmaður
úr FH og þjálfari Stjörnunnar.
Er Patrekur tilbúinn að gerast
leikmaður erlendis, til dæmis í
Þýskalandi?
„Það er viss ögrun að fara út
og aðlaga sig nýjum aðstæðum.
Jú, ég tel að Patrekur sé tilbúinn
í slaginn. Hann á ekki að að
fara í lið í annari deild, heldur
topplið sem er í Evrópukeppni.
Patrekur leikur nú í sterkri deild
og með liði sem leikur í Evrópu-
keppni næsta vetur. Það liggur
ekkert á fyrir Patrek að fara út,
því að mörg verkefni eru fram-
undan hjá landsliðinu — ef það
nær að tryggja sér rétt til að
leika á Ólympíuleikunum í Atl-
anta á næsta ári. Það er betra
að taka þátt í undirbúningi fyrir
þau verkefni hér heima," sagði
Gunnar Einarsson.
HANDKNATTLEIKUR