Morgunblaðið - 04.04.1995, Síða 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
C
1995
ÞRIÐJUDAGUR 4. APRIL
BLAD
Jónf Lárus og
Tóth með FH
ÞRIR leikmenn hafa á síðustu dögum ákveð-
ið að ganga til liðs við 1. deildarlið FH í
knattspyrnu fyrir átök sumarsins. Fyrstan
skal telja varnarmanninn Jón Sveinsson.
Hann lék reyndar með FH í fyrrasumar en
gekk til liðs við gömlu félagana í Fram sl.
haust. Honum hefur nú snúist hugur og verð-
ur með Hafnarfjarðarliðinu. Þá hefur Lárus
Huldarson, miðvallarleikmaður úr Víkingi,
ákveðið að ganga til liðs við FH og loks hafa
Hafnfirðingar gengið frá samningum við
erlendan leikmann — Stefan Tóth, sem leikið
hefur með 1. deildarliði Lokomotiva Kosice
í Slóvakíu. Hann er miðvallarleikmaður, sem
tók þátt i 27 leikjum liðsins á síðasta keppnis-
tímabili og gerði sex mörk í þeim.
HANDKNATTLEIKUR
Dagur kemur frá Sviss með
samning frá Wackerthun
Dagur Sigurðsson, landsliðs-
maður í handknattleik, hef-
ur verið í Thun í Sviss um helg-
ina, til að ræða við forráðamenn
1. deildarliðsins Wackerthun. Þeir
gerðu honum tilboð í gær, á 22
ára afmælisdegi hans — tilboð
sem Dagur kemur með heim í
dag. „Ég hef kunnað mjög vel
við mig hér, enda er hér fagurt
og fiðsælt," sagði Dagur í sam-
tali við Morgunblaðið í gær-
kvöldi, en þess má geta að Dagur
verður kynntur sérstaklega á
fundi með fréttamönnum í dag
klukkan tvö, þar sem hann mun
sitja fyrir svörum. Hvað segir
Dagur um samninginn, sem hann
er kominn með í hendur? „Það
þarf að fínpússa ýmislegt í samn-
ingnum. Ég kem með hann heim
og skoða hann vel áður en ég
gef svar. Ég get ekki neitað því
að ég er spenntur að breyta til,
reyna eitthvað nýtt.“ Wackerthun
er frá 40 þúsund manna bæ,
Thun, sem er við Thuner-vatnið
suðaustur að Bern. Liðið, sem
hefur herbúðir sínar í 3000
manna höll, hefur verið eitt af
sterkustu liðum Sviss og leikið í
Evrópukeppni tvö sl. keppnis-
tímabil, en í vetur hefur liðinu
ekki gengið nægilega vei, er í
sjöunda sæti. Með liðinu leikur
landsliðsmaðurinn og vinstri-
handarskyttan Martin Rubin, sem
er á förum frá félaginu — til
Þýskalands, þar sem Kristján
Arason hefur lagt áherslu að fá
hann til Dormagen til að taka við
hlutverki sænska landsliðs-
mannsins Roberts Anderssonar.
Rubin hefur samþykkt að fara til
Dormagen, en liðin eiga eftir að
ganga frá samningum og hefur
staðið á því hvað Wackerthun
vill fá mikið fyrir Rubin.
DAGUR Sigurðsson vard 22
ára í gær.
Patrekur og Andrea þau bestu
Morgunblaðið/Halldór
PATREKUR Jóhannesson úr KA og Andrea Atladóttir úr IBV voru valln bestu leikmenn Islands-
mótsins í handknattlelk karla og kvenna í lokahófi handboltamanna á Hótel islandl á laugar-
dagskvöld. KA-menn fengu þrjár aðrar útnefnlngar í hófinu þar sem Alfreð Gíslason var kjör-
Inn besti varnarmaðurinn, Sigmar Þröstur Óskarsson besti markvörðurlnn og Patrekur besti
sóknarmaðurinn. Þorbjörn Jensson, þjálfarl Vals, var útnefndur bestl þjálfarinn.
Lindgren í hlutverk Héðins
hjá Dusseldorf?
DÚSSELDORF hefur rætt við sænska landsliðsmanninn Ole Lind-
gren, til að taka við hlutverki Héðins Gilssonar, sem hefur átt
við þrálát meiðsli að stríða í rúmt ár — á öxl og ökkla. Héðinn
hefur lítið getað leikið með liðinu og nú upp á síðkastið aðeins
í vörn. „Ég geri mér fyllilega grein fyrir, að Diisseldorf getur
ekki beðið endalaust eftir að ég nái mér fullkomlega," sagði
Héðinn, sem mun ræða við forráðamenn liðsins nú i vikunni um
framtíð sína, en þýsku deildarkeppninni lýkur á sunnudaginn.
„Ég hef ekkert hugsað um hvað ég geri. Það er nægur tími til
þess — aðalatriðið er að ég nái mér góðum fyrir heimsmeistara-
keppnina,“ sagði Héðinn, sem sagðist hafa taugar til FH.
KNATTSPYRNA
Guðni lék með
Bolton á Wembley
Guðni Bergsson kom inná sem
varamaður og lék 22 mínútur
með Bolton Wanderes gegn Liverpo-
ol í úrslitaleik ensku deildarkeppn-
innar á Wembely á laugardaginn.
Þetta var fyrsti leikur hans með
nýja félaginu. Liverpool sigraði 2:1
og kom Guðni inná þegar staðan
var 2:0. Hann átti þátt í marki
Bolton, skallaði inní vítateiginn frá
hægri.
„Það var mjög gaman að koma
inná í svona úrslitaleik — og leika
á Wembley. Ég hljóp eins og vitlaus
maður fyrstu mínúturnar og var
dauðuppgefinn, en þetta gekk samt
ágætlega held ég. Það hefði verið
gaman að ná að jafna því leikurinn
var jafn. Fyrri hálfleikur var frekar
daufur en síðari hálfleikur var
skemmtilegur," sagði Guðni sem var
að spila í annað sinn á Wembely.
Hann lék í 15 mínútur með Totten-
ham í undanúrslitum bikarsins gegn
Arsenal 1993 og var það jafnframt
síðasti leikur hans með Tottenham.
„Ég hef trú á því að Bolton nái
að tryggja sér úrvalsdeildarsæti og
er það markmiðið þetta árið. Það
eru erfiðar og jafnframt spennandi
fjórar vikur framundan hjá liðinu.
Við spilum á miðvikudags kvöld
[annað kvöld] við Swindon í deild-
inni. Ég veit ekki hvort ég verð í
byrjunarliðinu, það kemur bara í
ljós,“ sagði Guðni.
KORFUKNATTLEIKUR: NJARÐVIKINGAR KOMNIR MEÐ GOÐA STOÐU / C3