Morgunblaðið - 04.04.1995, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 4. APRÍL1995 C 3
KÖRFUKNATTLEIKUR
Grindvíkingar köstuðu frá sér sigri á heimavelli á lokasekúndunum í fjórða úrslitaleiknum
Nökkvi Már
er líklega
úr leik
NÖKKVI Már Jónsson, leikmað-
ur Grindvíkinga, lék ekki með
liði sínu í gærkvöldi og var ekki
einu sinni í búningi. Á laugar-
daginn hitaði hann upp en kom
ekkert inná vegna meiðsla.
„Ég fór í sneiðmyndatöku í
dag [í gær] og það skýrist trú-
lega á morgun [í dag] hversu
alvarlegt þetta er,“ sagði
Nökkvi Már við Morgunblaðið í
gærkvöldi. „Læknarnir óttast
að þetta geti verið bijósklos í
bakinu. Hvað sem þetta er þá
held ég að það sé alveg ljóst
að ég leik ekki meira með í
vetur,“ sagði Nökkvi Már.
Hann meiddist í öðrum leik
liðanna, sem fram fór á fimmtu-
daginn í siðustu viku í Grinda-
vík, tók sér svo frí á æfíngu á
föstudaginn og hélt hann gæti
leikið á laugardeginum, en ann-
að kom í ljós í upphituninni.
Það er [jóst að þetta er mik-
ill missir fyrir Grindvikinga þv
í Nökkvi Már hafði leikið mjög
vel í fyrstu tveimur leikjum fé-
laganna. Hann gerði samtals 20
stig í leikjunum tveimur auk
þess sem hann er sterkur varn-
armaður.
Njarðvíkingar komnir
með vænlega stöðu
Skúli Unnar
Sveinsson
skrífar
Ursiitakeppnin
í körfuknattleik 1995
n
Fjórði leikur liðanna I úrslitunum,
leikinn i Grindavik 3. april 1995
GRINDAVÍK NJARÐVÍK
12/17
Villur
NJARÐVÍKINGAR eru komnir
með aðra höndina á íslands-
meistaratitilinn eftir 75:79
sigur í Grindavík í gærkvöldi
ífjórða úrslitaleik liðanna.
Staðan er nú 3:1 fyrir íslands-
meistarana og róðurinn því
erfiður fyrir bikarmeistara
Grindavíkur. En það skyldi þó
enginn afskrifa þá þvítrúin
flytur fjöll og leikmenn virtist
skorta trúna á að þeir gætu
klárað leikinn í gær. Heima-
menn voru með vænlega
stöðu í lokin en voru klaufar
að láta Njarðvíkinga sigra.
Lokamínútumar voru spenn-
andi. Heimamenn náðu að gera
11 stig gegn tveimur og komast
74:71 yfír þegar tvær mínútur
voru eftir. Rondey
minnkaði muninn í
eitt stig en Grind-
víkingar misstu
boltan útaf. Teitur gerði mjög mik-
ilvæga þriggja stiga körfu lengst
utan af velli og þegar 1,04 voru
eftir misstu Grindvíkingar aftur
boltann og Friðrik skoraði úr
tveimur vítaskotum er 40 sek. voru
eftir. Mitchell minnkaði muninn
með stigi úr vítaskoti og Grindvík-
ingar náðu knettinum fljótlega og
Michell reyndi þriggja stiga skot
en hitti ekki. Gaman hefði verið
að sjá Mitchell gefa á Guðjón sem
var frír því hann hafði nýtt þriggja
stiga skotin sín vel, en það varð
ekki og Rondey tryggði sigurinn
með vítaskoti er 8,3 sek voru eft-
ir. Á þessum kafla brutu heima-
menn mikið en það kom þeim í
koll að Njarðvíkingar voru ekki
komnir með skotrétt fyrr en við
fjórða brot á lokakaflanum.
Rondey reið á vaðið í upphafi
með því að stela boltanum af
heimamönnum, vaða fram völlinn
og troða með glæsibrag. Þar með
var tónninn gefinn og fjörið byrj-
að. Mikill hraði var í upphafi, og
áttu leikmenn stundum fullt í fangi
að fylgjast með því sem var að
gerast og misheppnaðar sendingar
voru algengar.
Yfirburðimir
réttdugðu
Skúli Unnar
Sveinsson
skrífar
Njarðvíkingar höfðu mikla yfir-
burði gegn Grindvíkingum í
þriðja leik liðanna í Njarðvík á laug-
ardaginn, en yfír-
burðirnir rétt dugðu
þvi Njarðvík vann
107:97 eftir að hafa
haft mest 29 stiga
forystu í upphafi síðari hálfleiks og
mirinsta 4 stig undir lok leiksins.
Njarðvíkingar léku af eðlilegri
getu í fyrri hálfleik og stundum
mjög vel, en Grindvíkingar voru
ekki alveg með á nótunum fyrr en
í síðari hálfleik. Marc Michell lék
mjög vel vel fyrir gestina en hvarf
þegar hin sterka svæðisvörn UMFN
skellti í lás og þá gerðu Njarðvíking-
ar 19 stig gegn tveimur á fjögurra
mínútna kafla.
„Við komum með allt öðru hugar-
fari í þennan leik en hina tvo,“ sagði
Teitur Örlygsson eftir leikinn en
bætti svo við; „en það var samt
erfitt að einbeita sér í síðari hálf-
leiknum, en yfirburðimir dugðu
samt og þetta slapp fyrir horn.“
Grindvíkingar færðu vörnina
framar í síðari hálfleik og náðu að
saxa á forskotið, skoruðu 0:9 á ein-
um kafla og síðan 0:11 skömmu
síðar. Mestu munaði um að Guðjón
fór í gang og Pétur barðist af hreint
ótrúlegum krafti. En munurinn var
of mikill til að Njarðvíkingar létu
gestina ná sér.
Rondey var frábær, Teitur einnig
og þeir Jóhannes og Valur léku
vel. ísak stjórnaði af festu og var
auk þess mjög ógnandi. Mitchell,
Helgi, Pétur og Guðjón léku vel hjá
Grindavík en það er áhyggjuefni
fyrir liðið hversu slakur Guðmundur
Bragason hefur verið í fyrstu þrem-
ur leikjunum.
Morgunblaðið/Kristinn
Boltinn minn, nammi, namm!
Grindvíkingar fengu mikið af
opnum færam í leiknum, mun
meira en í fyrri leikjum, en þeir
hittu illa og því var allt í jafnvægi
fram að leikhléi, og raunar í síðari
hálfleik einnig.
Mikill hasar var í leiknum og
um tíma, um miðbik síðari hálf-
leiks, virtust dómararnir vera að
missa tökin á leiknum, en þeir
komu sér inn í hann á nýjan leik.
Allt var á suðumarki, en sem betur
fer endaði allt vel.
Menn hafa beðið eftir „alvöru“
baráttuleik í úrslitakeppninni og
hann kom svo sannarlega í gær.
Baráttan var gríðarleg allan tím-
ann og stundum svo að menn köst-
uðu sér um öll gólf til að reyna
að ná knettinum. Jafnræði var al-
veg frá byijun þó svo Njarðvíking-
ar leiddu lengstum. Leikurinn var
ekki áberandi vel leikinn, en hann
var spennandi. Bæði lið gerðu mik-
ið af mistökum. Sóknir Njarðvík-
inga vora stundum hálf vandræða-
legar og hittnin hjá báðum liðum
langt frá því sem best gerist hjá
þeim.
Njarðvíkingar beittu ekki
svæðisvöminni eins og á laugar-
daginn, nema í nokkrar mínútur í
fyrri hálfleik, en léku þess í stað
maður á mann, eins og Grindvík-
ingar, sem pressuðu einnig um
tíma.
Guðmundur náði sér loksins á
strik í liði Grindvíkinga, lék nokkuð
góða vörn gegn Rondey, sérstak-
lega í síðari hálfleik. Mitchell var
eitthvað miður sín í fyrri hálfleik
en var betri í þeim síðari. Marel
var vel heitur framan af leik en
aðrir náðu sér ekki á strik. Guðjón
á erfítt uppdráttar því Njarðvíking-
ar leika svo stífa vörn á hann að
ef samherjar koma knettinum til
hans fær hann varla sekúndubrot
til að athafna sig.
Rondey átti enn einn stórleikinn,
var hreint frábær og Jóhannes átti
mjög skemmtílega kafla. Valur
stóð sig einnig mjög vel þó svo
hann skoraði ekki mikið. Hann lék
fína vöm, átti 6 stoðsendingar og
tók 10 fráköst.
ÁSTÞÓR Ingason, fyrlrllðl
Njarðvíkinga, hafðl ástæðu
til að slelkja út um í gær-
kvöldi eftlr að Njarðvíklngar
færðust skrefinu nær Is-
landsmeistaratltllnum með
sigrl á Grindvíklngum í
Grindvaík. Staðan er nú 3-1
fyrfr UMFN sem þarf aðelns
að vinna í einum lelk tll við-
bótar tll að verða melstarl.
Urslitakeppnin
í körfuknattleik 1995
Þríðji leikur liðanna i úrslitunum,
leikinn i Njarðvfkl. aprH 1995
NJARÐVÍK GRINDAVÍK
107 Stig 97
21/35 Víti 24/40
8/16 3ja stiga 8/21
30 1
26 (varnar) 19
4 -W (sóknar) 11
1°J| Boltanáð 10
11 i Jolta tapað 9
16 St oðsendingar 13
28 Vilfur 25
Njarðvíkingar geta ekki fagnað strax
Þetta er ekki búið
því við gefumst
aldrei upp
skrifar frá
Gríndavik
Þetta er ekki búið því við mun-
um aldrei gefast upp, það er
alveg á hreinu. Við spiluðum mjög
■■■■■■ óskynsamlega í
Frímann seinni hálfleik
úiafsson fannst mér og það
var of mikið ein-
staklingsframtak
hjá okkur. Við ætlum að mæta í
Njarðvík og spilum upp á líf og
dauða, við höfum allt að vinna.
Við höfum lent í þessari stöðu
áður á móti Keflavík og unnum
þá. Nú ætlum við að endurtaka
leikinn og ég skora á áhorfendur
að styðja við bakið á okkur,“ sagði
Guðmundur Bragason fyrirliði
Grindvíkinga.
„Þetta var ofboðslega mikil-
vægur sigur hjá okkur í kvöld.
Að vinna hérna er stórviðburður
og við ætlum að klára í næsta
leik,“ sagði Jóhannes Kristbjörns-
son Njarðvík.
„Þetta var mjög mikilvægur
leikur og við erum í góðum mál-
um. Liðsheildin hjá okkur skóp
þennan sigur og karfan sem Teitur
skoraði á lokamínútunni virkaði
hvetjandi á okkur. Þetta getur þó
virkað allavega. Það getur verið
hættulegt að vera kominn í þessa
stöðu og ég er skíthræddur við
Grindvíkinga. Þeir sýndu það á
móti Keflvíkingum að þeir geta
komið til baka. Það er því of
snemmt að fagna og sigurinn er
langt í frá kominn í höfn,“ sagði
Valur Ingimundarson þjálfari og
leikmaður Njarðvíkinga