Morgunblaðið - 04.04.1995, Side 4

Morgunblaðið - 04.04.1995, Side 4
4 C ÞRIÐJUDAGUR 4. APRÍL 1995 MORGUNBLAÐIÐ 4 KNATTSPYRNA McManaman het kém FOLX ■ HOWARD Kendall var rekinn sem framkvæmdastjóri Notts Co- unty á laugardaginn, eftir að hafa verið aðeins tíu vikur hjá félaginu. Aðstoðarmaður hans, Russell Slade, var einnig rekinn. Þeir voru reknir klukkutíma eftir að liðið, sem er á botni 1. deildar, tapaði heima, 1:3, fyrir Barnsley. ■ IAN Rush, fyrirliði Liverpool, náði ekki að að slá út met Geoff Hurst, West Ham, sem hefur skor- að 49 mörk í deildarbikarkeppn- inni. Til þess varð hann að skora tvö mörk gegn Bolton á Wembley. ■ STEVE MacManaman, sem gerði bæði mörk Liverpool gegn Bolton í úrslitum enska deildarbik- arsins á Wembely á laugardaginn, hitti hinn 80 ára gamla Sir Stan- ley Mathews fyrir leikinn. „Sir Stan sagði við mig fyrir leikinn að hann væri hrifínn af því hvernig ég ræki knöttinn „dribbled“. Það var gaman að heyra þetta frá hon- um. En aðalatriðið er að við erum aftur í Evrópukeppni," sagði Mac- Manaman. ■ ROY Evans, framkvæmdastjóri Liverpool sem hefur verið 30 ár á Anfield, vann fyrsta bikarinn eftir 14 mánuði í starfí fram- kvæmdastjóra. „MacManaman hefur gert gæfumuninn í mörgum leikjum liðsins í vetur. Við trúðum því fyrir tímabilið að við gætum náð Evrópusæti, þó svo að margir hafí ekki trúða því,“ sagði Evans. ■ IAN Rush, fyrirliði Liverpool, varð á laugardaginn fyrstur til að fagna fímm sigrum á Wembley. ■ ALAN Sherer skoraði annað mark Blackburn gegn Everton og var það 34. mark hans fyrir félagið á tímabilinu. Hann og Chris Sutton hafa nú gert samtals 54 mörk fyrir félagið í vetur. Sutton gerði fyrra mark liðsins á laugar- dag eftir aðeins 13 sekúnur og er það nýtt met í ensku úrvalsdeild- inni. ■ ALEX Ferguson, fram- kvæmdastjóri Man. United, var ekki ánægður með leik liðsins gegn Leeds, 0:0. „Nú er það aðeins Blackburn sem getur kastað meistaratitlinum frá sér. Úrslit leiksins voru mikil vonbrigði fyrir okkur,“ sagði Ferguson. United hefur ekki náð að skora mark í þremur af síðustu fjórum leikjum sínum. Tíu leikmenn Tenerife lögðu Barcelona BARCELONA mátti þola tap, 1:2, á Tenerife, þar sem heimamenn léku tíu nær allan leikinn og Hol- lendingurinn Ronald Koeman mis- notaði vítaspyrnu áður en Julio Llorente skoraði sigurmark Tene- rife. „Við fengum tækifæri til að færast nær Real Madrid, en eftir þetta eru möguleikar okkar litlir á að verja meistaratitlinn," sagði Koeman. Real Madrid gerði jafn- tefli við Compostela. Marcelo Ojeda, markvörður Tenerifa var rekinn af leikvelli á tuttugustu mín. og tók varamarkvörðurinn Jose Buljubasich, stöðu hans og vann sér það til frægðar að veija vítaspyrnu Koemans, sem hafði ekki misnotað vítaspyrnu í vetur, skorað úr sex spymum. „Það er oft þannig, að lið sem missa leik- mann af leikvelli tvíeflast. Þeir léku betur tíu,“ sagði Koeman. Amor skoraði fyrst fyrir Barcel- Blackburn nálgast meistaratitilinn Skorað eftir sextánsek. Madur leiksins á Wem STEVE McManaman átti frábæran leik með Liverpool gegn Bolton bæði mörk Mersey-llðsins. Hér sést hann með deildarbikarinn og s útnefndur maður leiksins. Guðni Bergsson fyrstur íslendinga til að leika bikarúrslitaleik á Wembley — lagði upp mark Boltons STEVE McManaman var heldur betur í essinu sínu á Wembley, þegar Liverpool lagði Guðna Bergsson og félaga hans hjá Bol- ton, 2:1, í úrslitafeik deildarbikarkeppninnar. McManaman skor- aði bæði mörk Mersey-liðsins — bæði eftir mikinn einleik, þar sem hann splúndraði vörn Bolton. Guðni kom inná sem varamað- ur og hafði ekki verið inná vellinum nema í eina mín., þegar hann lagði upp mark Bolton. Guðni varð fyrstur íslendinga til að leika bikarúrslitaleik á Wembley. Þetta var fyrsti titill Liverpool síð- an liðíð vann bikarkeppnina á Wembley 1992 og fyrsti titill félags- ins undir stjóm framkvæmdastjórans Roy Evans. Sigurinn gefur Liverpool rétt til að leika í UEFA-keppninni næsta keppnistímabil. McManaman, sem er 23 ára, opnaði leikinn með fallegu marki á 37. mín., eftir að hann hafði einieikið með knöttinn tuttugu metra — hann lék fyrst á Alan Stubbs, fyrirliða Bolton, áður en hann lék á Scott Green og sendi knöttinn framhjá Keith Branagan, markverði. Seinna markið kom á 68. mín., þegar hann braust í gegnum vöm Bolton frá vinstri, sendi knött- inn síðan framhjá Branagan — knött- urinn hafnaði út við fjærstöng. Aðeins mínútu síðar náð Bolton að minnka muninn. Guðni Bergsson, sem var nýkominn inná, átti send- ingu fyrir mark Liverpool frá hægri kanti — knötturinn barst aftur til hans og skallaði Guðni þá knöttinn inn í vítateig Liverpool, þar sem Finn- inn Mixu Paatelainen skallaði knött- inn áfram til Alan Thompson, sem skoraði glæsilegt mark. Þess má geta að leikmenn Bolton vom ekki langt frá því að skora tvö mörk áður en Liverpool skoraði sitt fyrsta. Ian Rush, fyrirliði Liverpool, var ánægður eftir að hann tók við bikam- um. „Þetta var dagur Steve McMana- man, sem skoraði tvö frábær mörk — hann var stórkostlegur." BLACKBURN nálgast meist- aratitilinn í Englandi óðfluga, eftir að liðið lagði Everton að velli, 2:1, en Manchester Un- ited mátti sætta sig við jafn- tefli, 0:0, gegn Leeds á Old Trafford. Blackburn er komið með fimm stiga forskot á Un- ited og á einn leik til góða. Chris Sutton vann það afrek að skora mark fyrir Blackburn eftir aðeins sextán sek., sem er met — gamla metið átti John Spencer hjá Chelsea, sem náði eitt sinn að skora mark eftir nítján sek. Everton lék án fimm lykilmanna, sem voru í leikbanni — þar af markahrókarnir Duncan Ferguson og Paul Rideout. Það var sannkölluð óskabyrjun sem Black- bum fékk á Goodison Park, því að eftir sjö mírt. var Alan Shearer búinn að bæta öðru marki við. Það virðist nú fátt geta komið í veg fyrir að meistaratitillinn hafni í Blackburn. Manchester United fékk Leeds í heimsókn og mátti sætta sig við jafntefli, þrátt fyrir nær látlausa sókn þeirra að marki Leeds, sem lék grimman vamarleik. „Ég tel að eini möguleiki okkar á að halda meistaratitlinum, sé að leikmenn Blackburn gefí hann frá sér,“ sagði Alex Ferguson, framkvæmdastjóri Manchester-liðsins. Fyrirliði liðs- ins, Steve Bruce, lék ekki með, þar sem hann er í tveggja leikja banni og þá var Andrei Kanchelskis meiddur. Leikmenn Leeds fengu einnig góð marktækifæri í leiknum og varð Peter Schmeichel þá að taka á honum stóra sínum í marki United. Matthew Le Tissier var í miklu stuði þegar Tottenham kom í heim- sókn á The Dell — hann skoraði tvö mörk og var maðurinn á bak við sigur Dýrlinganna, 4:3. Þetta var aðeins þriðji ósigur Tottenham í síðustu 25 leikjum liðsins. John Hartson, miðherji Arsenal, var sagður hafa skorað þrjú mörk á aðeins níu mín. þegar Arsenal vann Norwich 5:1. Þetta var aðeins í annað sinn sem Arsenal skorar meira en þijú mörk í síðustu 37 deildar- og bikarleikjum sínum. Hartson var hins vegar ekki sam- mála því að hann hefði skorað þijú mörk — ég skoraði fyrsta og þriðja markið, en annað markið á Lee Dixon. Hann sendi knöttinn fyrir markið, ég reyndi að spyrna í knöttinn, en tókst það ekki. Það er að sjálfsögðu skemmtilegt að skora þrennu á aðeins þrettán mín- útum, en ég get .ekki eignað mér mark, þegar ég kom ekki við knött- inn,“ sagði Hartson. Sheffield Wednesday mátti þola sitt stærsta tap á heimavelli í 128 ára sögu félagsins þegar leikmenn Nottingham Forest komu í heim- sókn — skoruðu sjö mörk, 1:7. Stan Collymore, sem Aston Villa bauð sex millj. punda í á dögunum, skoraði tvö mörk og það gerði einn- ig Hollendingurinn Bryan Roy. Trevor Francis, framkvæmdastjóri Sheff. Wed., sem var eitt sinn leik- maður hjá Forest og skoraði sigur- mark (1:0) liðsins í úrslitaleik Evr- ópukeppni meistaraliða gegn Malmö FF 1979, sagði að Forest- liðið hafi leikið frábærlega. „Þetta er tvímælalaust ein besta liðsheild sem ég hef séð síðan ég gerðist ,framkvæmdastjóri,“ sagði Francis. Þrír leikmenn Nantes fengu að sjá rautt N ANTES hélt sigurgöngu sinni áfram um helgina, þegar liðið lék sinn 31. leik í röð án taps, gerði jafntefli 1:1 við Lens. Leikurinn var söguiegur fyrir það að þrír leikmenn Nantes voru reknir af leikvelli og einn leikmaður Lens. Dómarinn Patrick Colombo byrjaði á því að senda Frederic Dehu, Lens og Japhet N’Doram, Nantes í sturtu — síðan fékk Christian Karembeu, Nantes, að sjá rauða spjaldið á 50. mín. fyrir að slá leikmann Lens í höfuðið og undir lok leiksins fékk Reynald Pedros, Nantes, reisupassann, fyrir sína aðra bókun. Nantes er með örugga forustu í Frakk- landi og fyrsti meistaratitill liðsins í 12 ár er í sjónmáli. ■ JUPP Heynckes sagði upp störfum sem þjálfari Eintracht Frankfurt á sunnudag, eða tveim- ur dögum eftir 3:0 tapið gegn Schalke. Hann tók við liðinu fyrir aðeins níu mánuðum og ætlaði að gera það af meistara, en er nú aðeins í 13. sæti. Félagið sam- þykkti uppsögn þjálfarans þó svo að hann ætti eftir eitt ár af samn- ingnum. Heynckes, sem gerði Bayern Miinchen að meistara 1989 og 1990, var hjá Athletic Bilbao áður en hann réðist til Frankfurt. Reuter JOHN Hartson skoraði tvö mörk fyrir Arsenal

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.