Morgunblaðið - 08.04.1995, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ
MENNING/LISTIR
LAUGARDAGUR 8. APRÍL 1995 D 3
Sungið til
dýrðar drottni
Páskatónar
óma víða
TÓNLIST fær jafnan byr undir báða
vængi í dymbilviku og um páska.
Trúartónlist, gítartónlist, barokk-
tónlist, sinfóníutónlist og sviðsett
kórverk eru meðal þess sem verður
á boðstólum á höfuðborgarsvæðinu
fram yfir hátíðir. Unnendur þessa
listforms bera því ekki skarðan hlut
frá borði að þessu sinni fremur en
endranær.
Tónlistarskólinn í Reykjavík
gengst fyrir tónleikum í Listasafni
Sigurjóns Ólafssonar sunnudaginn
9. apríl klukkan 17, en þá þreytir
Málfríður Konráðsdóttir, semballeik-
ari, burtfararpróf frá skólanum. Á
efnisskránni eru verk eftir Fresco-
baldi, Rameau, Leif Þórarinsson og
J.S. Bach. Meðleikarar í sónötu eftir
Bach eru Ragnheiður Haraldsdóttir,
blokkflautuleikari, og Ömólfur
Kristjánsson sem leikur á barokks-
elló.
Burtfarartónleikar í
Listasafni íslands
Tónlistarskólinn í Reykjavík lætur
reyndar ekki þar við sitja heldur
efnir til annarra tónleika mánudag-
inn 10. apríl klukkan 20.30. Þá verð-
ur vettvangurinn Listasafn íslands
og eru tónleikarnir burtfararpróf
Helgu Steinunnar Torfadóttur, fiðlu-
leikara, frá skólanum. Mun hún
flytja verk eftir Mozart, Prokoffiev,
Vivaldi, Sarasate og Franck. Krist-
inn Örn Kristinsson, píanóleikari,
Guðrún Óskarsdóttir, semballeikari,
og strengjasveit nemenda úr Tónlist-
arskólanum í Reykjavík.-flhdir stjóm
Marks Reedmans, munu leggja
Helgu Steinunni lið í listasafninu.
Sama kvöld munu sextíu dönsk
ungmenni í hljómsveitin DUSIKA
(De Unges Symfoniorkester í Keben-
havns amt) haida tónleika í Ráðhúsi
Reykjavíkur klukkan 20 og miðviku-
daginn 12. apríl berst leikurinn yfir
í Norræna húsið. Allt eru þetta nem-
endur sem eru komnir vel á veg í
tónlistarnámi og á efnisskránni eru
verk eftir Mozart, Nielsen og Saint-
Saéns. Aðalstjórnandi hljómsveitar-
innar er Svend Kragelund.
Trúarleg tónlist í
Víðistaðakirlqu
Trúarlegri tónlist vex jafnan fisk-
ur um hrygg í dymbilviku og um
páska. Miðvikudagskvöldið 12. apríl
klukkan 20 standa Þórunn Guð-
mundsdótir sópran, Kristinn Örn
Kristinsson, píanóleikari, og Eydís
Franzdóttir, óbóleikari, fyrir tónleik-
um í Víðistaðakirkju þar sem slík
tónlist verður sett í öndvegi. Flutt
verða verk eftir Vaughan-Williams,
Barber, Jón Leifs og Johannes
Brahms.
Mikið verður um dýrðir í Lang-
holtskirkju um hátíðirnar. Á skírdag,
fimmtudaginn 13. apríl, verður Jó-
hannesarpassían eftir J.S. Bach
nefnilega sviðsett af kór Langholts-
kirkju þremur mínútum eftir sólset-
ur, eða klukkan 21. Flutningurinn
verður síðan endurtekinn á föstu-
daginn langa og laugardaginn 15.
apríl á sama tíma. Stjórnandi kórsins
er Jón Stefánssont David Greenall
sviðsetur verkið, Árni Baldvinsson
annast lýsingu og Hulda Kristín
Magnúsdóttir sér um búninga.
Páskabarokk í Kópavogi
Kópavogsbær lætur ekki sitt eftir
liggja og laugardaginn fyrir páska
verður efnt til páskabarokk-tónleika
í Listasafni Kópavogs. Hefjast þeir
að líkindum klukkan 16. Christine
Lecoin, semballeikari, kemur gagn-
gert frá Frakklandi til að spila á
„Býr íslendingur hér“ boðið til Þýskalands
„ÞAÐ ER eðlilegt að hugsa um trúarlega tónlist á þessum árstíma
og syngja til dýrðar drottni," segir Þórunn Guðmundsdóttir sópran sem
mun ásamt Kristni Erni Kristinssyni píanóleikara og Eydísi Franzdótt-
ur óbóleikara flytja tónlist eftir Ralph Vaughan-Williams, Samuel
Barber, Jón Leifs og Johannes Brahms á tónleikum í Víðistaðakirkju
miðvikudaginn 12. apríl klukkan 20.
Dauðinn rauði þráðurinn
Þórunn segir að dauðinn sé
rauði þráðurinn í efnisskránni.
Nokkuð sem hún hafí reyndar
ekki uppgötvað fyrr en eftir á.
„Dauðinn birtist í margvíslegum
myndum í textunum. Dauði, ég
óttast eigi afl þitt né valdið gilt,
segir í einum sálma Hallgríms.
Þá er talað um dauða Krists á
krossinum, hinn bitra dauða sem
er erfíður þegar fólk er í blóma
lífsins og hinn milda líknardauða."
Þórunn stundaði tónlistamám
við Tónlistarskólann í Kópavogi
og síðar við Tónlistarskólann í
Reykjavík. Þaðan lauk hún blás-
arakennaraprófí, einleikaraprófi á
þverflautu og burtfararprófí í
söng. Eftir það hélt hún til fram-
haldsnáms í Bandaríkjunum þar
sem hún lauk bachelor- og mast-
ers-prófi frá Tónlistarskólanum í
Bloomington, Indiana.
Eftir að Þórunn kom heim frá
námi hefur hún haldið fjölda tón-
leika, bæði með píanóleikumm og
í kammerhópum. Hún hefur einnig
komið fram sem einsöngvari með
Kammersveit Reykjavíkur og
ýmsum kómm. Hún starfar nú
sem tónlistarkennari og sem út-
gáfustjóri hjá íslenskri tónverk-
amiðstöð.
Fátíð samsetning
Þórunn hyggst hita upp á tón-
leikunum með því að syngja ne-
grasáimana Weepin’ Mary og So-
metimes I feel like a Motherless
Child í útsetningu H.T. Burleigh.
Hún mun einnig flytja verkið
Ten Blake Songs eftir Ralph
Vaughan-Williams sem er ein-
göngu samið fyrir söng og óbó en
sú samsetning er harla fátíð í tón-
list. „Mér fínnst þetta skemmtilegt
innlegg sem brýtur upp þetta liefð-
bundna form.“
Verkið eftir Samuel Barber
kallast Söngvar einsetumanna og
er samið við texta munkanna sem
áður var getið. Þómnn segir að
þar kenni ýmissa grasa; sumir
textanna séu afar hátíðlegir og
einkennist af miklum trúarákafa
en aðrir séu mun veraldlegri og
jafnvel skrifaðir út á spássíu á
handritum. Nefnir hún einn sem
dæmi og ber hann yfírskriftina
Fjöllyndi: „Ég veit ekki hjá hveij-
um Edan mun sofa, en ég veit að
fagra Edan mun ekki sofa ein.“
Jón Leifs í uppáhaldi
Fjórir alvarlegir söngvar eftir
Johannes Brahms em einnig á
efnisskránni og kveður þar við
annan tón en Þómnn segir að
Brahms sé rómantískastur tón-
skáldanna íjögurra.
Söngkonan hefur mikið dálæti
á Jóni Leifs og flytur lög eftir
hann á fiestum tónleikum sem hún
kemur fram á. Að þessu sinni tek-
ur hún fyrir þt'jú kirkjulög sem
samin em við sálma Hallgríms
Péturssonar: Vertu Guð faðir fað-
ir minn, Upp, upp mín sál og allt
mitt geð og Állt eins og blómstrið
eina. „Maður hugsar ekki alltaf
um síðastnefnda sálminn sem tón-
leikalag og þar að auki er lagið
hans Jóns ekki það sem notað er
oftast. Textinn er hins vegar mjög
fallegur og þarf ekki eingöngu að
vera sunginn við jarðarfarir.“
Þómnni verður tíðrætt um
sálma Hallgríms sem hún segir
að endurspegli hátíðleika pásk-
anna. Einn þeirra kveður hún
ákaflega vel til þess fallinn að lýsa
tilgangi tónleikanna í Víðistaða-
kirkju:
Ó Jesús gef þinn anda mér,
allt svo verði til dýrðar þér
upp teiknað, sungið, sagt og téð
síðan þess aðrir njóti með.
Segir frá Islendingi í út-
rýmingarbúðum nasista
Að sögn Þórunnar
er af nógu trúarlegu
efni að taka og því
hægt að halda fjölda
tónleika. Þremenning-
arnir munu þó einkum
einbeita sér að efni frá
19. og 20. öld að þessu
sinni. Reyndar era
margir textanna mun
eldri og eiga meðal
annars rætur að rekja
til Biblíunnar auk þess
að vera sóttir í smiðju
Hallgríms Pétursson-
ar, Williams Blakes og
munka. sem vom uppi
á 8.-12. öld.
Morgunblaðið/Halldór
JÓHANNESARPASSÍAN eftir J.S. Bach verður sviðsett af kór Langholtskirkju þremur mínútum
eftir sólsetur, eða klukkan 21 á skírdag.
tónleikunum en auk hennar mun
Marta Guðrún Halldórsdóttir sópran
verða í sviðsljósinu. Aðrir listamenn
sem koma fram em Örnólfur Kjart-
ansson á barokkselló og Guðrún
Birgisdóttir og Martial Nardeau á
flautur. Fluttar verða Bach- og
Hándel-aríur, sálmar og hljóðfæra-
tónlist.
Allt verður með kyrrum kjörum
fram til klukkan 20.30 þriðjudaginn
18. apríl en þá mun gítarleikur Spán-
verjans Manuels Babilonis óma um
Áskirkju. Þessi margverðlaunaði
listamaður mun eingöngu spila
spænska tónlist en á efnisskránni
eru verk eftir Sor, Tarrega, Turina,
Asincio, Albeniz og Fortea.
Miðvikudaginn 19. apríl stendur
valið síðan á milli burtfarartónleika
frá Tónlistarskólanum í Reykjavík
sem haldnir verða í íslensku óper-
unni og söngtónleika í Gerðubergi.
Á þeim fyrrnefndu leika Sigurður
Bjarki Gunnarsson á selló og Kryst-
yna Cortes á píanó en á hinum síð-
arnefndu koma fram Magnea Tóm-
asdóttir sópran og Mario Ramon
Garciá, píanóleikari. Góða skemmt-
un!
ÍSLENSKA leikhúsinu hefur verið
boðið með sýninguna „Býr íslend-
ingur hér“ til Berlínar í lok þessa
mánaðar í tengslum við minningar-
dagskrá, sem standa mun yfir út
þetta ár í tilefni af því að 50 ár
eru nú liðin frá frelsun fanganna
í Sachsenhausen-útrýmingarbúð-
unum illræmdu. Leikritið verður
flutt þrisvar, þann 24. apríl í Max-
im Gorki leikhúsinu og síðan 26.
og 27. apríl í Kulturbrauerei menn-
ingarmiðstöðinni. Leikgerð er eftir
Þórarin Eyfjörð. Ingimundi Sigfús-
syni, sendiherra í Bonn, hefur verið
boðið að flytja ávarp við upphaf
sýningar.
„Býr íslendingur hér“ er leikgerð
unnin upp úr samnefndri bók Garð-
ars Sverrissonar, þar sem birtast
endurminningar Leifs Muller, ís-
lendings sem lenti í útrýmingarbúð-
um nasista í seinni heimsstyrjöld-
inni, en þessar fyrrum fangabúðir,
skammt fyrír utan Berlín, hafa nú
verið gerðar að safni. í leikgerðinni
er Leifur staddur á læknastofu og
segir þar frá atburðarásinni, sem
leiddi til handtöku hans í Noregi
og frá fangavistinni, fyrst í Noregi
og síðar í Þýskalandi.
Að sögn Guðna Bragasonar,
sendiráðsritara í Bonn, eru tildrög-
in þau að forstöðukona safnsins í
Sachsenhausen, Sylvia Nickel,
hafði spurnir af leikritinu og sýndi
áhuga á að fá leikhópinn til Þýska-
PÉTUR Einarsson í hlutverki
Leifs Muller.
lands í tengslum við minningardag-
skrána enda er saga íslenskra fórn-
arlamba nasismans lítt þekkt þar
í landi. „Ég held að það sé í raun
mjög merkilegt'að Þjóðverjar snúi
sér til okkar íslendinga og hafí
áhuga á því að sýna þetta verk og
sér í lagi er þetta mjög virðingar-
vert framtak fyrir minn-
ingu Leifs.“
Leikstjórinn Þórarinn
EyQörð segir boðið vera
mikinn heiður þegar litið
er til þess að íslenska leik-
húsið sé lítill leikhópur
atvinnumanna, sem nýtur
engra fastra rekstrar-
styrkja. Styrkir til farar-
innar koma einkum frá
ráðuneyti vísinda, rann-
sókna og menningar í
Brandenburg. Auk þess
hefur íslenska mennta-
málaráðuneytið og Bók-
menntakynningarsjðður
stutt við verkefnið. Að
undanförnu hefur verið
unnið að þýðingu verksins
yfír á þýsku og eru æfíng-
ar á nýju tungumáli nú
langt komnar.
Pétur Einarsson fer
með hlutverk Leifs, en
lækninn leikur Halldór
Björnsson. Hljóðmynd er
eftir Hilmar Öm Hilmars-
son, ljósahönnuður er Elf-
ar Bjarnason og leikmynd
gerði Gunnar Borgarsson. Leikritið
var frumsýnt hér á landi haustið
1993 og var sýnt í Tjarnarbíói allt
það leikár. Verkið hlaut mjög lof-
samlega gagnrýni og var sýnt við
góða aðsókn. Hópurinn fór einnig
með verkið í leikferð hérlendis sl.
haust.
Morgunblaðið/Sverrir
ÞÓRUNN Guðmundsdóttir, Kristinn
Orn Kristinsson og Eydís Franzdóttir
efna til trúarlegra tónleika í Víðistaða-
kirkju miðvikudaginn 12. apríl.