Morgunblaðið - 08.04.1995, Síða 6
6 D LAUGARDAGUR 8. APRÍL 1995
MORGUNBLAÐIÐ
MENNING/LISTIR
Næstum því
sagnfræði
FRÁ æfingu í Tjarnarbíói.
LEIKXIST
Ilugleikur í
Tjarnarbíói
FÁFNISMENN
Höfundur texta og tónlistar: Armann
Guðmundsson, Hjördís Hjartardóttir,
Sævar Sigurgeirsson, Þorgeir
Tryggvason. Leikstjóri Jón St. Krist-
jánsson. Frumsýning 1. mars 1995.
HINAR íslensku frelsishetjur 19.
aldar eru efniviðurinn í þessari nýj-
ustu framleiðslu Hugleiks. Og að
sjálfsögðu lifa hetjurnar og hrærast
í Kaupmannahöfn, þar sem þær eru
ýmist verðandi eða fyrrverandi
námsmenn og skáld - ja - allavega
drykkfelldar.
Eins og sæmir góðri sagnfræði
eru hetjurnar karlkyns og halda að
mestu leyti til á ölstofu Jómfrú Ols-
en og móður hennar og kjá framan
í léttklæddar stúlkur. Þeir skulda
henni allir stórfé, slátraranum líka,
leigusölum sínum einnig. Allir nema
Benedikt Eígjilsson, sem býr við þá
ógæfu að eiga nóg af peningum og
miklu meira en það. Ennfremur end-
urgeldur stúlkan sem hann elskar
ást hans og það gengur allt upp.
Því miður fyrir aumingja drenginn,
því hann þráir að verða skáld. Hann
reynir eins og hann getur að lenda
í ógæfu til að finna skáldneistann
en því miður, ógæfan er ekki hans
hlutskipti í lífinu.
Hann hangir á kránni ásamt Gísla
Hallgrímssyni sem er stúdent - og
skáld, drekkur mikið, hrasar í stiga
og missir annan fótinn, hrasar aftur
í stiga og .... Tómasi Pjeturssyni,
stúdent sem ferðast alla leið suður
til Rómar, Baldri Konráðssyni sem
fellur í síkið. Flestir dagar byija á
fréttum af því hver féll í síkið síðastl-
iðna nótt.
í borginni er líka Guðrún Jóns-
dóttir frá fjalli, óhemju dugleg bar-
áttukona fyrir sjálfstæði íslendinga
sem alltaf er að reyna að virkja stúd-
entana - með aðferðum sem minna
á nútímalegar baráttuaðferðir alla-
balla - svona stormur í vatnsglasi;
slagverksáherslur í málflutningi og
hnefinn á lofti, rétt eins og þá hríf-
ist með kóngar og prestar.
Svo koma tveir grænjaxlar frá
íslandi, stúdentinn Þorleifur Torfa-
son, sem er greinilega mjög efnileg-
ur og áhugasamur námsmaður en
verður það á að leita uppi merkilega
landa sína á krá sem er orðin viðáttu-
fræg uppi á íslandi og sveitastúlkan
Þórhildur Eínarsdóttir sem er til
Hafnar komin til að læra kvenlegar
dyggðir á fínum hússtjórnarskóla og
þarf ekki að leita lengra eftir náms-
stað. Báðum þessum ungviðum er
tekið opnum örmum á þessari krá
þar sem allt iðar af lífi og fjöri,
menn lepja mjöð, fá skáldlegan inn-
blástur, halla sér að þrýstnum stúlk-
um, flýja slátrarann, hugsa heim,
elska og þjást. Og þegar Tómas Pjet-
ursson kemur frá henni Rómu, hefur
hann meðferðis eina hugmynd og
hún er að setja upp sjónleik sem
byggir á Litlu stúlkunni með eldspýt-
urnar eftir félaga þeirra stúdentanna
á kránni sem kallaður er Hosi og
er tætingslegt ævintýraskáld. Þór-
hildur á að leika litlu stúlkuna og
byijar strax að æfa sig að kveikja
á eldspýtum - og svo hefst sjónleik-
ur, en tekur að sjálfsögðu á sig mjög
sjálfstæða mynd og endar í sagn-
fræðinni, næstum því eins og við
þekkjum hana.
Fáfnismenn eru sagnfræðin,
næstum því eins og við þekkjum
hana, frá upphafí til enda og hefur
aðeins verið stiklað á stóru hér. Eins
og fyrri verk Hugleiks er hér um
aldeilis makalausan samsetning að
ræða, sem er stórskemmtilegur.
Textinn er fyndinn, orðaleikir mjög
vel heppnaðir. Það er stuðst við
kennileiti í sagnfræðinni, það er að
segja sögur af því sem fréttist af
athöfnum sjálfstæðisbaráttumanna
íslensku þjóðarinnar í Kaupmanna-
höfn á seinustu öld; atburðum er
flækt saman og ofnar utan um þá
ýkjur og skáldað í óteljandi eyður.
Ég held að óhætt sé að segja að
þetta sé ein viðamesta sýning Hug-
leiks til þessa. Bæði er verkið mikið
að burðum - og mannmargt - auk
þess sem mikið hefur verið lagt í
leikmynd, sem er heilmikið þrekvirki
og á Ámi Baldvinsson heiðurinn af
henni, ásamt lýsingu. Ég verð að
segja eins og er að hvom tveggja
er sérlega vel heppnað og hefði ég
ekki trúað því að óreyndu að hægt
væri að koma svo miklu fyrirtæki á
þetta litla svið í Tjarnarbíói.
Búningar hannaðir af Vilborgu
Valgarðsdóttur vom líka skemmti-
lega útfærðir, hæfílega ýktir þótt
þeir fylgdu í meginatriðum tísku
Islendinga eins og hún virðist hafa
verið á seinustu öld; lopaleg hér,
heldrimannaleg þar, nema hjá kon-
unum. Þær em í þjónustubúningum.
Þeir era ólíkir eftir því hvers konar
þjónustu stúlkumar stunda.
I hlutverkum stúdentanna Bene-
dikts, Gísla og Tómasar em gamal-
kunnir Hugleiksmenn; Sævar Sig-
urgeirsson, Þorgeir Tryggvason og
Rúnar Lund. Ámi Friðriksson leikur
Baldur og litla grænjaxlinn Þorleif
leikur V. Kári Heiðdal. Þeir áttu
allir skemmtilegan leik, em orðnir
árans öruggir á sviði og textameð-
ferð og raddbeiting er orðin harla
góð.
Aðra íslendinga; Guðrúnu frá
Fjalli, Þórhildi litlu, Þóm nokkra
Bjarnadóttur, Eggjert Sigurðsson og
íngjibjörgu Stephensen, konu hans,
leika Fanney Sigurðardóttir, Silja
Björk Ólafsdóttir, María Pálsdóttir,
Ármann Guðmundsson og Anní G.
Hágen. Leikur þeirra var sömuleiðis
mjög góður, utan það að Fanney
flaskaði heldur oft á texta og Anní
var heldur ýkt, sérstaklega hvað
raddbeitingu varðar. Hins vegar
fékk ég ekki séð annað en að ný-
græðingurinn í hópnum, Silja Björk
Olafsdóttir, sé hörkuleikaraefni og
er óhætt að segja að hún hafí stolið
senunni.
Á kránni ráða ríkjum hin fremur
fullorðna danska, jómfrú Olsen og
móðir hennar sem leiknar em af
Huldu Hákonardóttur og Hjördísi
Hjartardóttur, og svo em þar þjón-
ustumar Gitte, Helle og Mette;
mömmustelpur og heimspekingar
þegar minnst varir. Þetta er litríkur
hópur og leikurinn ansans ári góður
hjá þeim öllum. Það sama má segja
um slátrarann Kartland, Barböra
dóttur hans og Ekkjufrú Flagermus-
en sem leikin em af Gunnari Hall-
dóri Gunnarssyni, Fríðu B. Andersen
og Unni Guttormsdóttur.
Þetta er með alskemmtilegustu
sýningum Hugleiks og finnst mér
þetta verk vera þeirra þéttasta til
þessa. Það er vel haldið utan um
efnið; lítið gert af því að stökkva
út og suður og fannst mér helst
Stútungasaga vera svipað vel skrif-
uð hjá þeim. Kvöldstundin með Hug-
leiksmönnum var virkilega ánægju-
leg í þetta sinn og ætti helst enginn
að láta sýninguna framhjá sér fara
- það er svo gott að hlæja.
Súsanna Svavarsdóttir
Signrður Þórðarson tón-
skáld - 100 ára minning
í DAG, 8. apríl, em liðin 100 ár frá
fæðingu Sigurðar Þórðarsonar tón-
skálds, stofnanda Karlakórs
Reykjavíkur. Hann fæddist 8. apríl
1895 á Gerðhömmm í Dýrafirði.
18 ára að aldri settist hann í Versl-
unarskólann í Reykjavík og lauk
þaðan prófi árið 1915. Meðan á því
námi stóð stundaði hann einnig tón-
listamám og lærði m.a. á harmon-
íum hjá Páli ísólfssyni. Árið 1916
hélt hann til framhaldsnáms í tón-
list í Leipzig í Þýskalandi ásamt
Páli ísólfssyni og Jóni Leifs. Fjár-
hagurinn leyfði þó ekki lengri dvöl
ytra en tvö ár. Að þeim ámm lokn-
um stundaði Sigurður ýmis skrif-
stofustörf í Reykjavík, m.a. var
hann Iengi skriftofustjóri Ríkisút-
varpsins og einnig vann hann við
tónlistarkennslu, stjómaði kómm
og hóf að semja sönglög.
Það var síðan 1926 að hann
stofnaði Karlakór Reykjavíkur
ásamt 36 félögum sínum. Frá þeim
tíma var saga Sigurðar Þórðarsonar
og Karlakórs Reykjavíkur samofin
hvor annarri í 36 ár. Frá árinu
1926 til 1962 var Sigurður stjóm-
andi kórsins. í dag em enn starf-
andi sjö söngmenn í karlakórnum,
sem sungu undir stjóm Sigurðar.
Vandvirkni og einstök nostur-
semi vom aðalsmerki hans sem
Karlakór Reykjavíkur
hefur alla tíð lagt sig
fram um að halda merki
Sigurðar Þórðarsonar á
lofti. Bjarni Reynars-
son minnist stofnandans.
söngstjóra. Hann gerði miklar kröf-
ur til sjálfs sín og ætlaðist til þess
að aðrir gerðu hið sama. Hann var
einstaklega næmur á samspil ljóðs
og lags og lagði mikla áherslu á
að þetta samspil kæmi skýrt fram
í túlkun kórsins. Það er þessi söng-
hefð sem Sigurður Þórðarson mót-
aði og krafan um vandaðan og
hljómmikinn söng sem hefur verið
aðalsmerki Karlakórs Reykjavíkur
frá fyrri tíð.
Sigurður fór með karlakórinn í
sex utanlandsferðir beggja vegna
Atlantshafsins, m.a. í langar tón-
leikaferðir um Bandaríkin og
Kanada 1946 og 1960. Enginn ís-
lenskur kór hefur verið ötulli en
Karlalór Reykjavíkur að kynna ís-
lenska tónlistarmenningu á erlendri
gmnd. Karlakór Reykjavíkur hefur
alla tíð lagt sig fram um að halda
merki Sigurðar Þórðarsonar á lofti.
Lög eftir hann hafa jafnan verið á
söngskrá kórsins og lagið: „ísland,
ísland ég vil syngja!“ er sungið í
hvert sinn sem kórinn kemur fram.
Karlakór Reykjavíkur á Sigurði
Þórðarsyni ævarandi þakkarskuld
að gjalda.
A árlegum vortónleikum kórsins
23. til 19. apríl nk. í Víðistaða- og
Langholtskirkju heiðrar Karlakór
Reykjavíkur minningu Sigurðar
Þórðarsonar með því að syngja
nokkur af kunnustu lögum hans.
Einsöngvari á tónleikunum verður
Sigrún Hjálmtýs-
dóttir.
Þá er í undirbún-
ingi að gefa út
geislaplötu með
söng kórsins frá
upphafi, en kórinn
verður 70 ára á
næsta ári. Á þeim
geisladiskum verða
að sjálfsögðu upp-
tökur af söng kórs-
ins undir stjóm Sig-
urðar. Kórinn er nú
að leggja lokahönd
á gerð geisladisks,
þar sem stórsöngv-
aramir Kristinn
Sigmundsson go
Kristján Jóhannsson syngja með
kómum. Þar flytur Kristján Jó-
hannsson m.a. með kómum Iag Sig-
urðar Þórðarsonar: „Sjá dagar
koma“.
Sigurður Þórðarson tónskáld lést
27. október 1968. Kona Sigurðar,
Áslaug Sveinsdóttir, lifír mann sinn
í hárri elli.
Blessuð sé. minning Sigurðar
Þórðarsonar.
Höfundur erformaður Karlakórs
Reykjavíkur.
MENNING/
LISTIR
NÆSTU VIKU
MYIMDLIST
Kjarvalsstaðir
Studio Granda, ísl. abstraktlist og Tómas
Magnússon ti! 7. maí.
Asmundarsafn
Samsýn. á verkum Ásmundar Sveinss. og
Jóhannesar S. Kjarval til 14. maí.
Safn Ásgríms Jónssonar
Vatnslitam. Ásgríms til 7. maí.
Listhúsið Laugardal
Listakl. Þrír pennar sýna.
Mokka
Ijósm.sýa Bob Flanagan til 22. aprfl.
Galleri Glúmur
Pekka og Áse Dommemes sýna 19. aprfl
kl. 16-18.
Gerðuberg
Pétur Ö. Friðriksson sýnir til 23. aprfl.
Hafnarborg
Textílfélagið sýnir til 17. aprít
Gallerí Stöðalakot
Sveinbjörg Hallgrimsd. sýnir til 17. apríl
Gallerí llmbra
Þórdís Elín Jóelsdóttir sýnir.
Við Hamarinn
Sigtryggur Baldursson sýnir til 9 apríl.
Listhús 39
Jean-Yves Courageux sýnir til 17. aprfl.
Gallerí Birgis Andréssonar
Ólafur Lárusson sýnir til 27. apríl.
Norræna húsið
Samsýning Ijögurra myndlistarmanna til
23. apríl.
Gallerí Sævars Karls
Páskasýn. 29 listamanna.
Gerðarsafn
Sýning Elíasar Halldórssonar til 20. aprfl.
Kiríkjuhvoil, Akranesi
Sjöfii Haraldsdóttir sýiúr til 9. aprfl.
Gallerf Greip
Aðalheiður Valgeirsd. sýir til 9. aprfl.
TONLIST
Laugardagiu- 8. apríl
Lúðrasv. Svanur með tónl. i Fella- og
Hólakirkju kl. 16. Karlakórinn Þrestir í
Víðistaðakirkju kl. 17. Norskt jazz-tríó á
veitingah. Hominu kl. 21.
Sunnudagur 9. apríl
Gullaldardægurlögin í Kaffileikhúsinu kl.
21. Nýi Músíkskólinn með tónl. á
Kringlukránni kl. 16. Burtfararpróf Mál-
fríðar Konráðsd. í Listasafni Sigudóns
kl. 17.
Mánudagur 10. aprfl
Danska hljómsv. Dusika á tónl. í Ráðhús-
inu kl. 20. Burtfararpróf Helgu Steinunn-
ar Torfadóttur I Listasafni íslands kl.
20.30.
Miðvikudagur 12. apríl
Óperutónl. Með Diddú og Kristjáni í
íþróttahúsi KA, Akureyri kl. 19. Danska
hljómsv. Dusika I Norræna húsinu kl. 20.
Emil og Anna Sigga með tónl. í sal Frí-
múrara, ísafirði kl. 20.30.
LEIKLIST
Þjóðleikhúsið
West Side Story lau. 8. aprfl, sun.
Taktu lagið, Lóa! lau. 8. apríl, sun.
Snædrottningin sun. 9. apríl kl. 14.
Lofthræddi Óminn hann Örvar lau. 8.
aprfl kl. 15.
Dóttirinn, bóndinn og slaghörpuleikarinn
þri. 11. apríl.
Borgarleikhúsið
Leynimelur 13 aukasýng. lau. 8. apríl.
Framtíðardraugar aukasýn. sun. 9. apríl.
tslenska óperan
La Traviata lau. 8. aprfl.
Kaffileikhúsið
Sápa tvö lau. 8. apríl.
Þá mun engin skuggi vera til mán. 10.
apríl.
Leikfélag Akureyrar
Djöflaeyjan lau. 8. apríl kl. 17, mið. kl.
20.30, fím. ki. 20.30., fös. kl. 00, Iau.
kl. 20.30.
Möguleikhúsið
Astarsaga úr fjöllunum lau. 8. aprfl kl. 14.
Hugleikur
Fáfnismenn lau. 8. apríl kl. 16, sun. kl.
20.30, mið. kl. 20.30.
Leikfélag Selfoss
íslandsklukkan sun. 9. apríl, mið.
Bangsímon lau. 8. arpfl, sun.
Stúentaleikhúsið
Beygluð ást sun. 9. apríl, þri.
Leikfélag Kópavogs
A gægjum sun. 9. apríl.
LISTAKLUBBUR
Leikhúskjallarinn
Vísnakvöld mán. kl. 20.30.
KVIKMYNDIR
MÍR
Fangaeyjan sun. kl. 16.
Norræna húsið
Múminálfamir sun. kl. 14.
Umsjónarmenn listastofnana og sýn-
ingarsala!
Upplýsingar um listviðburði sem óskað
er eftir að birtar verði í þessum dálki
verða að hafa borist bréflega fyrir kl.
16. á miðvikudögum merktar: Morgun-
blaðið, menning/listir, Kringlunni 1, 103
Rvik. Myndsendir: 91-691181.