Morgunblaðið - 13.04.1995, Blaðsíða 4
KORFUKNATTLEIKUR
Herbert Amarson ný-
liði ársins og sá besti
HERBERT Arnarson úr ÍR var í
gærkvöldi valinn besti leikmað-
ur úrvalsdeildarinnar í körfu-
knattleik og einnig besti nýlið-
inn. Þetta var kunngjört á loka-
hófi KKÍ sem fram fór í Stapan-
um í gær. Anna Maria Sveins-
dóttir úr Keflavík var valinn
best í 1. deild kvenna og Erla
Reynisdóttir, einnig úr Keflavík,
besti nýliðinn í deildinni.
Þetta er í annað sinn sem nýliði
ársins er jafnframt valinn
besti leikmaður deildarinnar, því
þegar Valsmaðurinn Magnús Matt-
híasson kom heim úr námi í Banda-
ríkjunum var hlaut hann báða titl-
ana. Herbert lék mjög vel í hinu
skemmtilega liði ÍR í vetur og var
á lista þeirra bestu í flestum atrið-
um leiksins og á toppnum yfir að
Stela boltum af mótheijunum og
hlaut hann einnig viðurkenningu
fyrir það. Herbert var einnig með
bestu vítanýtingu allra í úrvals-
deildinni.
Rétt er að taka fram að það eru
leikmenn deildarinnar sem hafa
atkvæðisrétt og menn þurftu að
skila atkvæðaseðlum sínum áður
en úrslitakeppnin hófst. Körfu-
knattleikssambandið ákvað því að
velja bestu leikmenn úrslitakeppn-
innar og í karlaflokki varð Teitur
Örlygsson úr Njarðvík fyrir valinu
og í kvennaflokki PennÍ Peppas úr
Breiðabliki.
Anna María Sveinsdóttir úr
Keflavík hefur lengi verið í sviðs-
Ijósinu og oft verið valin best og
það kom því ekki á óvart að hún
yrði fyrir valinu að þessu sinni.
Hún var einnig með bestu vitanýt-
ingu allra í kvennaflokki og var
verðlaunuð fyrir það.
Erla Reynisdóttir er ein hinna
ungu og efnilegu stúlkna úr Kefla-
vík sem leikið hafa vel í vetur. Hún
var valinn besti nýliðinn í deildirini
að þessu sinni og hlaut einnig verð-
laun fyrir að vera með bestu 3ja
stiga nýtinguna, en í karlaflokki
var Guðjón Skúlason úr Grindavík
með bestu 3ja stiga nýtinguna.
Keflvíkingar komu víða við sögu
því Lenear Bums úr Keflavík var
valinn besti erlendi leikmaðurinn,
Sigurður Ingimundarson besti
þjálfarinn í kvennadeildinni, en
hann þjálfar lið Keflavíkur og dóm-
arar ársins koma einnig úr Kefla-
vík. Kristinn Óskarsson var valinn
besti dómari ársins, eins og í fyrra,
og Þorgeir Jón Júlíusson tók mest-
um framförum á tímabilinu.
Tómas Holton þjálfari Borgnes-
inga var valinn besti þjálfarinn í
úrvalsdeildinni og hann átti einnig
flestar stoðsendingar í úrvalsdeild-
inni í vetur. Linda Stefánsdóttir
úr ÍR átti hins vegar flestar stoð-
sendingar í 1. deild kvenna auk
þess sem hún var iðnust allra við
að stela knettinum af mótherjum
sínum.
Kristinn Friðriksson úr Þór var
stigahæstur í úrvalsdeildinni í vetur
og hjá stúlkunum var það Penni
Peppas í Breiðabliki. Félagi Krist-
ins hjá Þór, Sandy Anderson, tók
flest fráköst í vetur og hjá stúlkun-
um var það Kristín Magnúsdóttir
úr Tindastóli.
John Rhodes, þjálfari og leik-
maður ÍR, varði flest skot í deild-
inni í vetur en hjá stúlkunum var
það Hafdís Helgaddóttir úr ÍS sem
varði flest skot.
Lið ársins, NIKE-liðið, var einnig
valið, bæði hjá körlum og konum.
í NIKE-lið kvenna vom valdar
Björg Hafsteindóttir og Anna Mar-
ía Sveinsdóttir úr Keflavík, Helga
Þorvalsdóttir úr KR, Linda Stefáns-
dóttir úr ÍR og Anna Dís Svein-
björnsdóttir úr Grindavík.
NIKE-lið karla er þannig skipað:
Guðmundur Bragason úr Grinda-
vík, Herbert Arnarson úr ÍR, Teitur
Örlygsson úr Njarðvík, Falur Harð-
arson úr KR og Kristinn Friðriks-
son úr Þór.
HERBERT Arnarson var vallnn besti leikmaöur úrvalsdelldar-
innar, hann var jafnframt besti nýllðlnn, stal knettlnum oftast
og var bestur á vítalínunnl. Hér er hann aö skora eina af fjöl-
mörgum körfum sínum í vetur. Féagli hans hjá ÍR, John Rho-
des er til vlnstri, en hann varði flest skot í delldlnni.
LENEAR Burns úr Keflavík
var valinn besti erlendi lelk-
maðurinn í delldlnnl —
sterkur baeðl í sókn og vöm.
ANNA María Svelnsdóttir
úr Keflavfk var velln best í
fyrstu deild kvenna og var
Ifka sterkust á vítalínunni.
ERLA Reynisdóttlr úr Kefla-
vík er besti nýllðt deildarlnn-
ar og hún nýttl þrlggja stlga
skot sfn best allra.
Sigurganga
Spurs rofin
í Portland
Þ AR kom að því að San Antonio
Spurs tapaði leik, en liðið hafði
sigrað í 15 leikjum í röð þegar
það tapaði fyrir Portland Traii
Blazers, 71:91. Clifford Robinson
gerði 23 stig og Otis Thorpe gerði
16 fyrir Portland. David Robinson
gerði 21 stig fyrir Spurs og tók
auk þess 12 fráköst. Það dugði
þó skammt þvi leikmenn Spurs
hittu aðeins úr 31% skota sinna
utan af velli. Spurs hefur aldrei
skorað eins Utið í leik. „Við vorm
slakir og gerðum mikið af mistök-
um. Það var í rauninni sama hvað
við reyndum, það gekk ekki upp,“
sagði Robinson eftir leikinn.
Það var mikið skorað í Houston
þegar Dallas kom þangað í heim-
sókn. Tvíframlegngja þurfti til að
fá fram úrslit, en á endanum vann
Dallas 156:147. Aðeins 303 stig í
einum leik! Jason Kidd náði þre-
faldri tvenni í þriðja sinn á einni
viku og virðist piltur nú í miklum
ham. Hann skoraði 38 stig, þar
af átta þriggja stiga körfur, átti
10 stoðsendingar og tók 11 frá-
köst.
Dallas var 12 stigum undir í
fjórða leikhluta en náði að jafna
en í fyrri framlengingunni náði
liðið átta stiga forystu en nú tókst
heimamönnum að jafna. Jamal
Mashburn gerði 42 stig fyrir Dall-
as en Clyde Drexler gerði 29 stig
fyrir Rockets, tók auk þess 11
fráköst og átti 11 stoðsendingar.
Þreföld tvennaa hjá honum.
„Ég hef aldrei séð annað eins,“
sagði Dick Motta þjálfari Ma-
vericks. „Við náðum að vinna upp
11 stiga forystu síðustu mínútuna,
komumst átta stigum yfir í fram-
lengingunni en þeim tókst að
jafna. Þetta var ótrúlegt," sagði
hann og Rudy Tomjanovieh, þjálf-
ari Rockets tók í sama streng.
„Þetta er alveg örugglega einn
furðulegasti leikur sem ég hef
séð,“ sagði hann.
Vin Baker setti persónulegt met
er hann gerði 31 stig, tók 12 frá-
köst og átti 9 stoðsendingar fyrir
Bucks er liðið vann Detroit
114:109 í framlengingu. Milw-
aukee er nú aðeins einum leik á
eftir Boston og á möguleika á að
komast í úrslitképpnina. Glenn
Robinson gerði 30 stig en Allan
Houston gerði 36 stig fyrir Pistons
og hefur einu sinni áður gert jafn
mörg stig á ferlinum.
Jordan gerði 25 stig og Tony
Kukoc 18 þegar Bulls vann Indi-
ana 96:89. Heimamenn misstu hér
um bil niður 19 stiga forystu en
tókst að bjarga sér frá skömminni
þó Pacers næði tvívegis að minnka
muninn í tvö stig.
O’Neal gerði 30 stig þegar Or-
lando vann Cleveland 107:90 og
hann tók auk þess 18 fráköst.
Tyrone HiII gerði 24 stig fyrir
Cavaliers.
Patrick Ewing gerði 31 stig er
New York vann Miami 112:99 og
var þetta fimmtugast.i sigur
Knicks í vetur og fjórða timabilið
í röð sem Iiðinu tekst að sigra i
svona mörgum leikjum. Þetta er
hins vegar 13. árið í röð sem Pat
Riley þjálfari nær að vinna 50 leiki
eða meira.
KNATTSPYRNA
Hlynur löglegur með Örebro
HLYNUR Birgisson, landsliðsmaður í knattspyrnu úr Þór, er orðinn
löglegur með sænska Kðinu Orebro. Þórsarar samþykktu félagaskiptin
í gær og getur Hlynur því leikið næsta leik með Örebro — annan í
páskum. Hlynur er fjórði leikmaðurinn sem hefur yfirgefið herbúðir
Þórs frá sl. keppnistímabili — Lárus Orri Sigurðsson er farinn til Stoke,
Guðmundur Benediktsson til KR og Júlíus Tryggvason til Leifturs.
Árni Þór Árnason, leikmaður með Þór, sem hefur verið í Kanada
í vetur, mun leika með Þórsliðinu í sumar.
80. VÍÐAVANGSHLAUP ÍR
Allir keppendur fá verðlaunapening
VÍÐAVANGSHLAUP ÍR fer fram á
sumardaginn fyrsta og er það 80.
árið í röð sem hlaupið er haldið. í
tilefni afmælisins fá allir sem ljúka
hlaupinu verðlaunapening.
Hlaupið hefst og lýkur við ráðhús-
ið en hlaupið er kringum 'Tjörnina og
í Hljómskálagarðinum, samtals um
fimm kílómetrar fyrir 16 ára og eldri.
Metþátttaka var í hlaupinu í fyrra
og er gert ráð fyrir enn meiri aukn-
ingu að þessu sinni.
Hlaupið hefst kiukkan 13 en skrán-
ing verður á staðnum frá 11:30 til
12:40. Keppt er í nokkrum aldurs-
flokkum og 13 bikarar verða veittir
vegna sveitakeppni margs konar.
Þannig geta menn keppt fyrir
íþróttafélagið sitt, fyrirtækið, skokk-
klúbbinn, í opnum flokki eða fjöl-
skylduflokki.
Athöfn fer fram í ráðhúsinu að
hlaupi loknu þar sem veitt verða verð-
laun og viðurkenningar.
Þar verður jafnframt sýning á
myndum og öðru fróðlegu úr sögu
Víðavangshlaups ÍR.