Morgunblaðið - 19.04.1995, Page 2

Morgunblaðið - 19.04.1995, Page 2
2 B MIÐVIKUDAGUR 19. APRÍL 1995 MORGUNBLAÐIÐ ÍÞRÓTTIR ENDASPRETTURINN AÐ ENGLANDSMEISTARATITLINUM S T A Ð A N Lið L U J T Mörk Stig Blackburn 38 25 8 5 76:34 83 Man. United 38 23 9 6 70:24 78 Nott. Forest 39 20 10 9 67:40 70 Liverpool 37 19 10 8 61:30 67 Newcastle 38 19 10 9 61:41 67 LIÐ í HÆTTU - TVÖ FALLA Chelsea 38 11 13 14 43:50 46 Coventry 38 11 13 14 39:56 46 Aston Villa 38 10 13 15 47:53 43 Everton 37 10 13 14 40:48 43 West Ham 37 11 9 17 38:46 42 Crystal Palace 36 10 12 14 27:36 42 Norwich 39 10 12 17 34:49 42 LIÐ SEM ERU FALLIN Leicester 39 5 9 25 40:77 24 Ipswich 38 6 6 26 33:86 24 Leikirnir sem eftir eru: Blackburn Crystal Palace (H) 20. apríl West Ham (Ú) 30. april Newcastle (H) 8. maí Liverpool (Ú) 14. maí Manchester Utd. Coventry (Ú) 1. maí Sheffield Wed. (H) 7.maí Southampton (H) 10. maí WestHam (Ú) 14. maí ■ BIRGIR Sigurðsson, línumaður úr Víkingi, lék sinn 100. landsleik gegn Japan í Smáranum og bætti síðan um betur á ísafirði. ■ ÞORBERGUR Aðalsteinsson, landsliðsþjálfari, hefur fækkað um þrjá leikmenn í landsliðshóp sínum. Þeir leikmenn sem féllu úr hópnum, eru: Jason Ólafsson, Bjarni Frostason og Birgir Sigurðsson. ■ SIGURÐUR Sveinsson og Héð- inn Gilsson mættu á ný á æfingu meðjandsliðinu í gærkvöldi. ■ ÁTJÁN leikmenn fara með landsliðinu til Danmerkur í vik- unni. Þorbergur Aðalsteinsson mun tilkynna endanlegan sextán manna HM-hóp 6. maí. ■ MAGNÚS Jónsson hefur verið ráðinn aðstoðarmaður Bjarna Jó- hannssonar, þjálfara 1. deildarliðs Breiðabliks í knattspymu. ■ ARNAR Grétarsson og Rast- islav Lazorik skoruðu fyrir Breiðablik, sem vann þýska liðið SF Rietkingen, 2:1, í æfingaleik. ■ STEINUNN Annasdóttir, móðir Ástu S. Halldórsdóttur, skíðakonu og Friðgeirs Halldórs- sonar, fijálsíþróttakappa, var heið- ursgestur á landsleik íslands og Japans á ísafirði sl. fimmtudag. Steinunn gerði garðinn frægan með íslenska kvennalandsliðinu og sem leikmaður ÍBÍ árið 1959. ■ ÞÓRHALLUR Örn Hinriks- son, unglingalandsliðsmaður úr KA, hefur gengið frá félagaskiptum yfir í Breiðablik. Þess má geta að faðir hans lék einnig með Kópa- vogsliðinu á sínum tíma. ■ ÞORSTEINN Þorsteinsson varnarmaður úr KR, hefur gengið til liðs við Fylki, sem leikur í 2. deild. Þorsteinn lék 4 leiki með KR í 1. deildinni í fyrra. ■ SIGURÐUR Örn Jónsson, unglingalandsliðsmaður sem lék með HK í 2. deild í fyrra, hefur ákveðið að snúa aftur í Vesturbæ- inn og leika með KR næsta sumar. ■ ÞORRI Ólafsson, leikmaður úr ÍR, hefur gengið frá félagaskiptum yfir í Víking. Þorri lék 16 leiki með ÍR í 2. deild í fyrra og skoraði í þeim fjögur mörk. ■ TRUDE Gimle, norska skíða- konan sem keppti á alþjóðlegu stigamótum SKI (Icelandair Cup), sleit krossbönd í hné er hún krækti fyrir stöng í fyrra stórsviginu á Dalvík á föstudaginn langa. Hún gat því ekki keppt síðari daginn og fór heim til Noregs á hækjum. AÐSTAÐA Sumarið hefst á morgun sam- kvæmt viðurkenndum al- manökum. Sunnlendingar trúa því vonandi, enda er grasið tekið að grænka á suðvesturhorninu. Knattspyrnumenn eru þar löngu komnir á fúlla ferð í undir- búningi sínum fyrir aivöruna, íslands- mótið, sem hefst í lok maí og kylfingar meira að segja farnir að arka um suma velli. Mér segir hins vegar svo hugur að margir aðrir landsmenn, t.d. Norðlendingar, séu ekki jafn trú- aðir á að sumarið sé á næsta leyti. Undirritaður hefur dvalist í höf- uðstað Norðurlands síðustu daga, og m.a. keyrt fram á knatt- spyrnumenn við æfingar á „gamla, góða“ Sanavellinum, sem enn eitt árið bjargar því sem bjargað verður — en ísilagður malarvöllur fýrir opnu hafi, þar sem blés hressilega í æfmgaleik í fyrradag, er ekki boðleg aðstaða skömmu fyrir íslandsmót. Akureyrskir knattspymumenn sameinuðust lengi vel undir merki íþróttabandalags Akureyrar. Sumarið 1974 féll ÍBA í 2. deild og eftir að það lá ljóst fyrir var ákveðið að breyta til; að framveg- Í8 yrði keppt í nafni félaganna tveggja í bænum, Þórs og KA. Þau hófu bæði keppni í 3. deild, sem þá var neðsta deild íslands- mótsins, sumarið 1975 og komust strax upp í 2. deild. Sumarið eft- ir fór Þór upp í 1. deild, og KA sumarið eftir. Síðan hafa Akur- eyringar alltaf átt lið í 1. deild, annað hvort eða bæði liðin, að sumrinu 1980 undanskildu. Það setur ákveðinn svip á deiidarkeppnina að lið frá höfuð- stað Norðurlands sé meðal þátt- takenda, að mati þess er þetta skrifar, og Akureyrarliðanna verður eflaust sárt saknað í sum- ar. Norðlendingar eiga reyndar fulltrúa í 1. deild nú, lið Leifturs á Ólafsfirði, og er það sannarlega vel. Aðstæður á Ólafsfirði til vetraræfinga eru ekki góðar, frekar en annars staðar á Norður- landi, en sem betur fer fyrir Leift- ursmenn hafa nánast allir leik- menn, og þjálfarinn, verið búsett- ir á höfuðborgarsvæðinu í vetur. Þegar KA varð íslandsmeistari 1989 voru nokkrir leikmanna liðsins einnig búsettir syðra vet- urinn áður og það hafði greinilega áhrif. Knattspyrnumenn á Norður- landi hljóta að halda áfram að dragast aftur úr leikmönnum á suðvesturhominu, þar til aðstað- an lagast. Akureyringar þurfa ekki að kvarta yfir hásumarið því aðalleikvangur bæjarins er einn besti grasvöilur landsins, en á undirbúningstímanum eru þeir ekki öfundsverðir. Ætli þeir sér að ná árangri í framtíðinni verður að skjóta yfir þá skjólshúsi með einhveijum hætti. Skapti Hallgrímsson Akureyrskir knatt- spyrnumenn geta ekki talist öfundsverðir Hvernig leið ÖNNll G. EINARSPÓTTUR fyriríiða HK í úrslitaleiknum gegn Víkingi? Með háan hita í byrjun leiks ANNA G. Einarsdóttir, fyrirliði íslandsmeistara HK i blaki byrj- aði að æfa ellefu ára gömul þegar hún villtist inn á æfingu hjá HK, eftir að Albert Valdimarsson núverandi formaður blak- deildar félagsins kynnti íþróttina f skólanum. Síðan þá, hafa leiðir Önnu, Alberts og HK verið óaðskiljanlegar. Hún er 22 ára og leiddi lið sitt til sigurs í íslandsmóti kvenna í fyrsta skipti nú um páskana. Hún bjó fyrstu árin á Grenivík en flutti síðan í Kópavoginn tíu ára gömul þar sem hún hefur alið manninn síðan. Anna er stúdent frá Menntaskólanum í Kópa- vogi, stefnir á frekara nám en hún er ekki endanlega búin að gera upp hug sinn í þeim efnum. Anna, sem er fyrirliði og upp- spilari HK, hefur átt gott tímabil í vetur og sennilega sitt besta frá upphafi Eftjr og margir eru sam- Guömundur H. mála því að hún sé Þorsteinsson besti uppspilarinn í kvennablakinu í dag. Anna segist ekki muna ná- kvæmlega hvenær hún byijaði í blakinu en segist vera búin að vera í íþróttinni í a.m.k. ellefu ár en hún byijaði að æfa með meistara- flokki aðeins fimmtán ára gömul. Hún segist sjálf hafa lítið spilað með í upphafi og var aðallega áhorfandi í fyrstu, en mikið vatn hefur runnið til sjávar síðan. „Við stelpurnar í HK trúum þessu ekki ennþá að við höfum unnið íslandsmeistaratitilinn í fyrsta skipti. Fólk út í bæ er stöð- ugt að senda okkur heillaskeyti og blómin streyma að — þetta er búið að vera alveg frábært. Úrslita- keppnin var annars mjög söguleg hjá okkur og við höfum lent með leikmenn í meiðslum og veikindum en samt náð að standa uppréttar. Særún Jóhannsdóttir, þjálfari okk- ar, hamraði á því strax í haust að við værum með gott lið og skyldum stefna á toppinn. í úrslitakeppninni fengum við sjálfstraust en við vor- um þó alltaf „skíthræddar" við ÍS og Víking og töldum að við ættum litla möguleika. Allavega trúði því enginn að við myndum hafa neitt í þessi lið að gera en annað kom á daginn, sérstaklega eftir að við unnum ÍS í undanúrslitum.“ - Hvað flaug í gegmim hugann þegar þú spilaðir síðasta boltanum í fjórðu hrinunni? „Ég var alveg á taugum og gleymdi því meira að segja að ég væri veik, en ég var með bullandi hita og mældist með rúmlega þrjá- tíu og níu stig þegar leikurinn byijaði og í lokin var ég að hugsa um að Iáta skipta mér útaf þar sem mér var orðið verulega óglatt, sennilega hefur hitinn hækkað eitt- hvað í ieiknum sjálfum. Ég spilaði bara út á kantinn og Elva Rut kláraði dæmið sem betur fer í lok- Morgunblaðið/Jón Svavarsson ANNA G. Einarsdóttir, fyrirliði íslandsmeistara HK f blaki. in því ég hefði ekki staðið lengur í lappirnar. Við vorum líka svo stressaðar í lokin að við vissum ekki einu sinni að leikurinn væri búinn, og við erum enn að pæla í því hvernig leikurinn endaði. Við tókum allt í einu eftir því að dómar- inn krosslagði hendur til merkis um að leikurinn væri búinn og þá sagði Særún: ha!, er þetta búið?“ - Ertu besti uppspilarinn í kvennablakinu í dag? „Ég verð víst að viðurkenna það núna eftir að titillinn er í höfn en sennilega er ég með töfrafingur. Ég hef þurft að æfa mikið en geri jafnframt engar fingurslagsæfing- ar í vinnunni. þjálfarnir hafa einn- ig mikið að segja en í seinni tíð hefur Særún sennilega gert mest fyrir liðið, allavega hvað sálfræð- ina varðar. Beggi uppspilari í karl- aliðinu hefur líka sagt mér til og það hefur hjálpað mér mikið." - Hver eru helstu áhugamálin? „Ég stunda ekki neina aðra íþrótt en blakið. Ég fylgist hins vegar náið með öðrum greinum í gegnum sjónvarp og blöð. Ætli vinnan að baki íslandsmeistaratitl- inum standi ekki upp úr á áhuga- sviðinu hingað til þar sem allur frítími minn hefur farið í að æfa og vonandi verða þeir fleiri á næstu árum.“ - Hvernig er að vera í landslið- inu? „Maður getur ekki annað en verið ánægður með að vera valin í landsliðið. Þar fær maður tæki- færi á að spila við aðrar þjóðir og það er alveg nauðsynlegt. Ég fór með liðinu til San Marínó í fyrra og þar lentum við í þriðja sæti. Ég er hins vegar ekki sátt við að við þurfum sjálfar að greiða 40 þúsund krónur til að fjármagna ferðina á Smáþjóðaleikana í Lux- emborg nú í vor. Þetta hefst þó því maður á góða að.“

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.