Morgunblaðið - 19.04.1995, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 19.04.1995, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. APRÍL 1995 B 3 ÍÞRÓTTIR HANDKNATTLEIKUR Morgunblaðið/Halldór Sveinbjömsson EINAR Gunnar Sigurðsson skorar í fyrsta landslfeiknum á ísafirði. íslenskur sigur í fyrsta landsleiknum á ísafirði „JAPANIR létu ekki plata sig tvisvar í röð og léku vörnina af miklu meiri skynsemi en í fyrri leiknum. Við lékum að vísu ekki eins vel í þessum leik og þeim fyrri, en við höfðum sigur," sagði Þorbergur Aðalsteinsson, landsliðsþjálfari, eftir sigurleik gegn Japan 23:18 ífyrsta landsleiknum sem hefur verið leikinn á ísafirði, fimmtudaginn 13. apríl. Leikur liðanna var ekki mikið fyrir augað. Lítið um leikflétt- ur en oft á tíðum sáust þó falleg mörk. Það var Ijóst Frá Guöjóni strax á upphafsmín- Þorsteinssyni útunum að Japanir áísafíröi ætluðu ekki að láta valta yfir sig eins og gerðist í fyrri leik liðanna í Smáranum á miðvikudagskvöld. íslenska liðið var ávallt á undan og gerði fyrsta markið en Japanir voru aldrei langt undan. Mestur munur í hálfleiknum var fjögur mörk, 8:4, þegar um tuttugu mínút- ur voru liðnar af leiknum en munur- inn i hálfleik var aðeins tvö mörk, 12:10. Japnir héldu áfram að saxa á forskot íslands í seinni hálfleik og náðu einu sinni að jafna, 14:14, en síðan ekki söguna meir . Vörn íslenska liðsins var góð og áttu Japanir í hinum mesta basli með að koma boltanum framhjá henni. Það var fyrst og fremst stór- leikur Nakayama sem hélt gestun- um inni í leiknum og eins skynsam- leg vörn þar sem þeir komu vel út á móti skyttum íslenska liðsins. Sóknarnýting íslenska liðsins var ekki nægilega góð, það missti bolt- ann allt of oft, en sigurinn var þó nokkuð öruggur. Bjarni Frostason var skásti leik- maður íslenska liðsins og eins varði Hashimoto í liði Japans mjög vel. En besti leikmaður vallarins var hins vegar Japaninn Nakayama. „Við erum búnir að keyra stíft á æfingum að undanförnu og því var þetta kannski erfiðara fyrir vikið,“ sagði Valdimar Grímsson, fyrirliði íslenska liðsins. „Við spiluðum ekki okkar bolta, en við unnum þrátt fyrir að spila á hálfum hraða. Nú er bara að vinna að því að bæta okkur enn frekar fram að HM,“ sagði Valdimar sem var markahæst- ur eins og í fyrri leiknum. SKIÐI Ólafur tvö- faldur meistari í sjöunda sinn Olafur Björnsson frá Ólafsfirði varð tvöfaldur íslandsmeist- ari í skíðaíþróttum um helgina er hann sigraði í stökki og norrænni tvíkeppni. Keppnin átti upphaflega að fara fram samhliða Skíðamóti íslands á ísafirði, en ákveðið að var að færa þessar greinar til Ólafs- fjarðar þar sem allir keppendurnir eru frá Ölafsfirði og stökkpallur þar til staðar. Þetta var í sjöunda sinn sem Ólafur fagnar tvöföldum sigri á landsmóti. Ólafur átti tvö lengstu stökk keppninnar, 44 metra og 42,5 metra. Hann hlaut samtals 231,7 stig. Magnús Þorgeirsson varð ann- ar með 40,5 metra og 41 metra og hlaut samtals 216 stig. Þorvaldur Jónsson, betur þekktur sem mark- vörður Leiftursmanna, varð síðan þriðji með tvö stökk upp á 38,5 metra og samtals 208,1 stig. í norrænni tvíkeppni er keppt í stökki og göngu og ræður saman- lagður árangur úr báðum greinun- um úrslitum. Gengnir voru 10 km með hefðbundinni aðferð og var Ólafur fremstur þeirra sem tóku þátt í tvíkeppninni. Hann gekk á 39,04 mín. Faðir hans, Björn Þór Ólafsson, varð annar í tvíkeppninni og Sigurður Sigurgeirsson þriðji. Morgunblaðið/Svavar Magnússon ÓLAFUR Björnsson hampar hér íslandsblkarnum fyrlr slgur í stökki. Honum á hægri hönd er Magnús Þorgeirsson sem varft annar og Þorvaldur Jónsson til vinstri sem varft þriftji. KNATTSPYRNA ÞORVALDUR Örlygsson kom Stoke úr fallhættu. Þorvaldur gerði sigurmark Stoke orvaldur Örlygsson skoraði sig- urmark Stoke á útivelli gegn Swindon í 0:1 sigri 1. deild ensku knattspyrnunnar á mánudaginn. Stoke sigraði einnig í leik sínum gegn Bristol City, 2:1, sl. laugardag og er nú úr fallhættu. Þorvaldur og Lárus Orri Sigurðsson léku báða leikina um páskahelgina. Þorvaldur skoraði markið gegn Swindon á 35. mínútu leiksins. „Eg var með boltann fyrir framan víta- teiginn og ákvað að skjóta — hitti hann vel og hann endaði í mark- horninu fjær. Við vorum mun betri í fyrri hálfleik, enda lékum við þá undan sterkum vindi. Þeir voru meira með boltann í síðari hálfleik en náðu ekki að ógna marki okkar að neinu gagni. Það má segja að við höfum verið heppnir í leiknum gegn Bristol City því við gerðum sigurmarkið á síðustu mínútu leiks- ins. Með þessum sigrum um helgina erum við sloppnir við fall og því þungu fargi létt af leikmönnum," sagði Þorvaldur. Þetta voru fyrstu leikir Þorvaldar eftir að hafa misst af þremur leikj- um vegna meiðsla. Hann sagði að framtíð sín væri enn óráðin, en hann væri staðráðinn í að fara frá Stoke. „Það er því mikilvægt að standa sig vel í þeim fimm leikjum sem við eigum eftir,“ sagði Þorvald- ur sem hélt til Chile með íslenska landsliðinu í gærkvöldi. Reykjavíkurmótíð EIS 1995 ^ Miðvikudagur 19. apríl kl. 20.00 myiHir - j Gervigrasi5 Laugardal

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.