Morgunblaðið - 19.04.1995, Qupperneq 5
+
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 19. APRÍL1995 B 5
Reuter
elkjum á þremur dögum. Hér á
I uann, 0:4.
íbum
anchester United
Elliott jafnaði fyrir heimamenn á
30. mín. og aðeins mín. seinna skor-
aði Ghanamaðurinn Anthony Yebo-
ah sigurmark gestanna — hans tí-
unda mark síðan hann kom frá
Frankfurt í janúar.
Liverpool lagði Leicester að velli
á Anfield Road, 2:0. Robbie Fowler
skoraði fyrra markið — hans 31.
fyrir Liverpool í vetur og gamla
brýnið Ian Rush bætti öðru við.
Mike Whitlow hjá Leicester var rek-
inn af leikvelli á 71. mín., eftir að
hafa fengið að sjá sitt annað gula
spjald.
Matthew Le Tissier og Ian Magil-
ton skoruðu fyrir Dýrlinganna frá
Southampton gegn Wimbledon, 2:0.
tryggði
is sigur
átta leikjum, eða síðan olíujöfurinn
Massimo Moratti keypti félagið á
dögunum.
AC Milan lék án fyrirliðans
Franco Baresi, sem var í leikbanni,
og þá voru þeir Marcel Desailly og
Marco Simone hvíldir fyrir Evrópu-
leik gegn París St. Germain á morg-
un. Þeir Christian Panucci og Dejan
Savicevic áttu báðir skot sem höfn-
uðu á tréverkinu á marki Inter.
Parma var heppið að sleppa með
markalaust jafntefli gegn Foggia,
0:0. Argentínumaðurinn Abel Balbo
skoraði sitt sautjánda mark fyrir
Roma, sem vann Brescia 3:0.
Paul Gascoigne lék annan leik
sinn með Lazíó, sem tapaði fyrir
Padova, 0:2. Fiorentina vann stór-
sigur, 4:0, á Napolí. Argentínumað-
urinn Gabriel Batistuta skoraði sitt
21. mark og hefur hann skorað
fimmtíu mörk fyrir Fiorentina.
Papin vill aftur
til Marseille
FRANSKI landsliðsmaðurinn Jean-
Pierre Papin, sem leikur með Bayem
Miinchen, vill fara aftur til Frakklands
og leika með Marseille. „Ég vil leika með
Marseille, jafnvel þó að liðið leiki i ann-
ari deild,“ sagði Papin í viðtali við
franska knattspyrnublaðið France Foot-
ballí gær. Papin, sem er 81 árs, lék með
Marseille 1986-92, en þá fór hann til AC
Miian og til Bayem fyrir þetta keppnis-
tímabil.
Arsenal leikur
íKína
ARSENAL mun fara til Kina og ieika
þar í Peking gegn Guo An 16. maí. Lið-
ið er vei þekkt í Peking, þar sem borg-
arbúar horfa vikulega á leiki úr ensku
knattspyraunni. Önnur lið frá Evrópu
em á leið til Kína. AC Milan mun leika
I Guangzhou.
Creaney kjálka-
brotinn í nætur-
klúbbi
GERRY Creaney, miðheiji Portsmouth,
var fluttur á sjúkrahús á föstudaginn
ianga - kjálkabrotinn eftir átök í nætur-
klúbbi. Creaney var að halda upp á 25
ára afmæli sitt í Southsea. Þess má geta
að Mark Chamberlain, fyrmm iandsliðs-
maður Englands, sem ieikur með Brig-
hton, meiddist, þegar hann reyndi að
stöðva slagsmálin.
Laudrup hafnar
boði frá Barcelona
DANSKI landsliðsmaðurinn Brian
Laudmp hefur enn á ný hafnað tilboði
frá Barcelona — ætlar að vera áfram
hjá Glasgow Rangers. „Það er mikill
heiður fyrir mig að fá tilboð frá liði eins
og Barcelona, en ég sagði forráðamönn-
um liðsins að ég væri ánægður í Skot-
landi.“ Miklar líkur eru á að Laudrup
verði fyrsti útlendingurinn í Skotlandi,
sem verður útnefndur leikmaður ársins
bæði af leikmönnum og fréttamönnum.
Þess má geta að Rangers hefur mikinn
hug á að styrkja lið sitt fyrir næsta
keppnistímabil — og hafa þeir Dennis
Bergkamp hjá Inter Mílanó og Jesper
Blomqvist hjá IFK Gautaborg verið orð-
aðir við liðið.
Milutinovic hættur
sem þjálfari
Bandaríkjanna
BORA Milutinovic, landsliðsþjálfari
Bandaríkjanna, hefur sagjstarfi sínu
lausu. Bora, sem hefur verið landsliðs-
þjálfari Mexíkó, Kosta Ríka og Banda-
ríkjanna, sagði í sjónvarpsviðtali að hann
væri ekki inni í framtíðaráætlun banda-
ríska liðsins.
Sjöunda árið í röð
hjá Rangers
LEIKMENN Glasgow Rangers fögnuðu
sínum sjöunda meistaratitli í röð án þess
að spyrna i knött á laugardaginn fyrir
páska. Ástæðan fyrir þvi var að Celtic,
eina liðið sem gat ógnað Rangers, mátti
þola tap, 0:2, fyrir Aberdeen. Leikmenn
Rangers fögnuðu meistaranafnbótinni
eftir að þeir lögðu Hibs að velli, 3:1, á
sunnudag.
Fjorir leikmenn
reknir af leikvelli
FJÓRIR leikmenn Honduras voru reknir
af leikvelli á heimsmeistarkeppni ungl-
ingalandsliða, þegar Honduras tapaði,
1:7, fyrir HoUandi. Þegar einn leikmaður
Honduras meiddist og aðeins sex voru
eftir á vellinum á 77. mín., flautaði dóm-
arinn leikinn af. Mikil harka hefur verið
í keppninni og hafa alls fimmtán leik-
menn fengið að sjá rauða spjaldið.
_________BLAK______
HK-stúlkur meist
arar í fyrsta sinn
ÞAÐ var hreinn úrslitaleikur í Víkinni á laugardaginn þegar Víkings-
stúlkur mættu HK ífimmta leik liðanna um íslandsmeistaratitilinn
í blaki kvenna. Leikurinn varð fjórar hrinur og var í heildina mjög
jafn, enúrslitin fengust eftir 111 mínútna leik þar sem úrslitin
réðust á æsispennandi Iqkakafla ffjórðu hrinunni sem endaði 17:16
og kvennalið HKfagnaði íslandsmeistaratitlinum ífyrsta skipti.
Islandsmeistaratitlarnir í karla- og kvennaflokki enduðu því báðir
í Kópavoginum þetta árið en það er jafnframt ífyrsta skipti sem
að slíkt gerist í flokkaíþrótt í meistaraflokkum í bæjarfélaginu.
að var hart barist frá fyrstu
mínútu og greinilegt var að
hvorugt liðið ætlaði að gefa eftir.
■■■■■ Víkingsstúlkur bytj-
Guömundur uðu betur og mörðu
Helgi sigur í fyrstu hrin-
Þorsteinsson Unni, 15:13, eftir að
skrifar hafa náð nokkuð
góðu forskoti strax í upphafi en það
var einmitt einkenni leiksins að það
virtist ekki skipta máli að ná góðu
forskoti því keppnisskapið var til
staðar hjá báðum liðum. Eftir skellinn
í fyrstu hrinunni var eins og taktur-
inn breyttist í HK-liðinu og spennan
færi úr leikmönnum liðsins. Árangur-
inn lét heldur ekki á sér standa því
HK liðið vann aðra hrinuna með sama
mun, 15:13 og það var nokkuð sem
Víkingsliðið mátti ekki við eins og
kom í ljós i framhaldinu.
Baráttan og viljinn til að krækja
í titilinn tók við í þriðju og fjórðu
hrinunni og það var sama hvar grip-
ið var niður í leikinn, gífurleg vinnsla
var í gólfinu og mikið var um nauð-
varnir á báða bóga, nokkuð sem
gladdi augað og undirstrikaði að leik-
menn sýndu oft mun meira en á
venjulegum degi. HK-stúlkur náðu
samt sínum besta kafla í þriðju hrin-
unni, og skelltu Víkingsstúlkum,
15:8, nokkuð óvænt miðað við það
sem á undan var gengið en Víkings-
stúlkur áttu í erfiðleikum með að
klára sóknimar eins og áður í leikjum
liðanna.
Úrslitahrinan var vægast sagt
„köflótt" og tók ótrúlegri kúvendingu
í lokin eftir að HK-liðið hafði náð
afgerandi forskoti, 14:10 og nánast
virtist formsatriði fyrir þær að
tiyggja sér titilinn en leikreynt Vík-
ingslið var ekki á sama máli. Með
öguðum leik eins og þeirra er venjan
náðu Víkingsstúlkur að kroppa inn
stig og stig, allt þar til þær jöfnuðu
í lok hrinunnar og komust yfir með
ótrúlegum kafla þar sem Bima Halls-
dóttir fór á kostum, en hún hreinlega
hamraði allt í gólfíð HK-megin þar
sem taugaveiklunin var komin í spil-
ið. Víkingsliðið fór mikinn á þessum
kafla, sérstaklega með tilliti til þess
að þær misstu Oddnýju Erlendsdóttur
kantsmassara útaf í bytjun hrinunnar
þegar hún sneri sig illa eftir lendingu
úr hávöm. Spennan magnaðist og
það leit illa út á tímabili fyrir HK-lið-
ið sem var við það að missa tökin á
leiknum, en heilladísirnar vom svo
sannarlega með Kópavogsliðinu, því
Víkingsliðið gerði hver mistökin af
öðmm, sérstaklega eftir að hafa kom-
ist yfír 16:15 og tvær uppgjafir fóm
forgörðum. HK-stúlkur vom ekki
lengi að nýta sér það því þær innsigl-
uðu sætan sigur sinn með minnsta
mun, 17:16, og titilinn var þeirra.
Liðsheildin var sterk hjá HK en
Anna G. Einarsdóttir uppspilari liðs-
ins sem hefur tekið stórstígum fram-
föram lék vel í þessum leik eins og
í fleiram í úrslitakeppninni. Elín Guð-
mundsdóttir og Elva Rut Helgadóttir
áttu ágæta spretti inn á milli og sér-
staklega náði Elva sér á strik seinni-
part leiksins. Ragnhildur Einarsdóttir
lék vel á miðjunni og átti mikilvægar
hávarnir á réttum augnablikum,
nokkuð sem mætti sjást meira af í
kvennablakinu.
Víkingsliðið átti sína möguleika í
þessum leik sérstaklega ef þær hefðu
komist í oddahrinuna þá hefði aldrei
verið hægt að spá fyrir um úrslitin,
en Björg Erlingsdóttir uppspilari hef-
ur oft leikið betur, uppspilið var á
tíðum of lágt og eins vantaði meiri
kraft í sóknimar því lágvömin hjá
HK varði gólfið mjög vel.
Það vekur athygli að HK-liðið var
óskrifað blað fyrir þessa úrslita-
keppni en liðið hefur fylgt Víkings-
stúlkum eins og skugginn í vetur.
Víkingur vann deildina með yfírburð-
um, en liðið bar skarðan hlut frá
borði í lokin annað árið í röð. HK-lið-
ið hefur hins vegar vaxið hratt, sér-
staklega í úrslitakeppninni þar sem
leikmenn liðsins hafa spmngið út og
það hlýtur að vera mikill sigur fyrir
gamla Víkingsleikmanninn og núver-
andi þjálfara HK, Særúnu Jóhanns-
dóttur, sem er að þreyja fmmraun
sína sem þjálfari.
, Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Islandsmeistarar HKfrá vinstri: Elva Rut Helgadóttir, Sigurbjörg Lúövíksdóttir, SigríðurT. Elríks-
dóttlr, Dagný Baldvinsdóttlr, Heiðbjört Gylfadóttir, Ragnhildur Einarsdóttir, Anna G. Einarsdóttir,
Elín Guðmundsdóttlr, Særún Jóhannsdóttir og Albert H.N. Valdimarsson, formaður blakdeildar HK.
Hvernig skyldi sambúðin vera?
KARL Sigurðsson, þolfimimað-
ur, og þjálfari kvennaliðs Vík-
ings bjó við einkennilega aðstöðu
í sjálfum úrslitaleikjunum um
íslandsmeistaratitilinn í blaki
kvenna. Hann er unnusti Heið-
bjartar Gylfadóttur leikmanns
með HK, og menn hafa verið að
velta því fyrir sér hvernig sam-
komulagið hafi verið á meðan á
sjálfri úrslitakeppninni stóð, en
Víkingur og HK þurftu að leika
fimm leiki. HK-stúlkur hömpuðu
íslandsbikarnum í fyrsta skipti
nú um helgina en Karl bar þó
ekki skarðan hlut frá borði þar
sem eiginkona kom heim með
gullið sem var nokkur sárabót,
eða hvað?
„Það er erfitt að svara þessu,
en ég er ánægður HK-vegna þar
sem maður er sjálfur uppalinn i
HK, þó hefði ég að sjálfssögðu
viljað vinnatitilinn sjálfur. Ég
og Heiða höfum passað að ræða
leikina ekki saman inni á heimil-
inu, bara svona rétt í bílnum á
leiðinni heim. Það mistókst að
veiða upp úr henni leikkerfin í
svefni! Hún þykist ráða á heimil-
inu núna eftir að þær unnu titil-
inn og maður verður að vera
þægur og blíður í einhvern tíma,
allavega þar til bikarinn vinnst
á laugardaginn," sagði Karl, en
Víkingur og HK mætast þá aftur
— í úrslitaleik bikarkeppni Blak-
sambandsins.