Morgunblaðið - 19.04.1995, Síða 8

Morgunblaðið - 19.04.1995, Síða 8
Uttim KORFUKNATTLEIKUR Boston nálg- úrslita- keppnina Orlando tryggði sér sigur í Austurdeildinni BOSTON Celtics færðist skrefi nær úrslitakeppni NBA-deildar- innar með sigri gegn New Jersey Nets, 98:96, á mánudaginn. Ekki þótti boðið upp á áferðarfallegan körfuknattleik eða skemmtilegan, en „það skiptir ekki máli — þetta var sigur,“ sagði Dino Radja, sem gerði 16 stig fyrir Boston. Miami Heat, sem sigraði Orlando um helgina, missti hins vegar endanlega af sæti í úrslitakeppninni er liðið tapaði heima gegn Michael Jordan og félögum í Chicago Bulls, 98:93. Leikur Boston og New Jers- ey var spennandi. Celtics hafði mest 17 stiga forskot, í öðrum leik- hluta, en andstæðingarnir voru stað- ráðnir í að gefast ekki upp og voru nálægt sigri. Vörn New Jersey var góð og leikmenn Boston náðu ekki að skora síðustu 2,47 mínúturnar. Chris Morris freistaði þess að tryggja New Jersey sigur er tvær sekúndur voru eftir, en hitti ekki úr þriggja stiga skoti. Boston þarf nú aðeins einn sigur til viðbótar til að komst sem síðasta lið úr Austur- deild í úrslitakeppnina. Sex leikmanna Celtics gerðu tíu stig eða meira. „Fyrir mánuði hefð- um við örugglega tapað þessum leik en nú reynum við að hjálpa hver öðrum. Við gerum mistök en vinnum hver fyrir annan nú orðið,“ sagði Radja. Armon Gilliam gerði 25 stig og tók 15 fráköst fyrir Celtics. P.J. Brown skoraði 19 stig og tók 17 fráköst fyrir New Jersey. Michael Jordan lék vel er Chicago sigraði Miami Heat á útivelli, 98:93. Hann gerði 31 stig, þar af 22 í seinni hálfleik. Scottie Pippen gerði 17 stig fyrir Chicago, sem hefur sigrað í 10 af síðustu 11 ieikjum og í 11 af 14 síðan Jordan hóf að leika á ný. Glæsilegur árangur Obradovics SERBINN Zeljko Obradovic, sem er við stjórnvölinn hjá Real Madrid, hefur náð einstökum ár- angri sem þjálfari. Real er þriðja félagið sem hann gerir að Evr- ópumeistara á aðeins þremur árum, og hefur aldrei tapað í úrslitaleik keppninnar. I fyrra þjálfaði hann Joventut frá Badal- ona og nær því bikarnum í ár frá Katalóníu til höfuðborgarinnar, Madrid. Þetta var hins vegar annað árið í röð sem Olympiakos tapar í úrslitum, í bæði skiptin gegn spænsku félagi og áðurnefndur Zeljko Obradovic lagði á ráðin , gegn þeim nú eins og í fyrra. Þjálfari Olympiakos, Grikkinn Yiannis Ioannidis, var nú að stjórna liði í fimmta skipti í úr- slitakeppni fjögurra bestu liða álfunnar, en hann hefur aldrei náð að fagna meistaratitli. Nýliðinn Khalid Reeves skoraði 27 stig fyrir Miami, sem er persónu- legt met og Kevin Willis gerði 18, auk þess sem hann tók 15 fráköst. Glen Rice, sem skoraði 56 stig fyrir Orlando á laugardag, gerði aðeins 12 stig að þessu sinni — hitti úr 6 af 18 skotum utan af velli. Það var enginn annar en Michael Jordan sem lék gegn honum í vörninni. „Ég ætlaði mér að koma í veg fyrir að Glen kæmist á flug í kvöld og tel það hafa tekist bærilega," sagði Jordan á eftir. Rice gerði ekki fyrstu stig sín fyrr um um miðjan þriðja leikhluta! Shaquille O’Neal gerði 34 stig og tók 12 fráköst og Anfernee Hardaway skoraði 16 stig og átti 12 stoðsendingar er Orlando Magic sigraði Washington Bullets á heima- velli, 111:100. Orlando tryggði sér þar með endanlega sigur í Austur- deildinni. Orlando hafði verið í svo- litlum öldudal; liðið hefur tapað 14 af síðustu 18 leikjum á útivelli og þetta var aðeins annar sigur liðsins í síðustu sex Ieikjum, en nú er sigur í Austurdeild sem sagt í höfn og þar með ljóst að liðið nýtur heimavallar- ins fram yfir andstæðingana í úr- slitakeppni deildarinnar. Þess má geta að O’Neal gerði 38 stig og tók 16 fráköst er Or- lando tapaði fyrir Miami Heat á laugardag. Horace Grant gerði þá 21 stig fyrir Orlando og Nick And- erson skoraði 20. Þetta var fyrsti leikur Andersons síðan 5. apríl, er hann fékk heilahristing í leik gegn Detroit. Vin Baker skoraði 28 stig og tók 13 fráköst er Milwaukee Bucks sigr- aði New York Knicks á útivelli, 99-93. Glenn Robinson gerði 27 stig fyrir félagið, en Anthony Mason Reutcr LINDSEY Hunter hjá Detroft Plstons sæklr að körfu Charlotte Hornet — Alonzo Mourn- Ing er tll varnar og nær að verja skotlð. gerði 17 stig fyrir Knicks, tók níu fráköst og átti sjö stoðsendingar. þetta var fjórði leikur Knicks á fímm dögum. Liðið er í öðru sæti Austurdeildar — hefur tveggja leikja forskot á Indiana. Hakeem Olajuwon gerði 30 stig og tók níu fráköst og Clyde Drexler bætti við 23 stigum, tók sjö fráköst og átti sex stoðsendingar er meistarar Houston Rockets sigruðu Los Angeles Clippers á heimavelli, 121:111. Þetta var þriðji sigur liðsins í röð en jafnframt fjórða tap Clippers í röð. Greg Sutton var í byrjunarliði Charlotte Hornets í stað Muggsy Bogues, sem er meiddur, er liðið sigraði lið Philadelphia 76ers á útivelli, 101:90. Hann þakkaði fyrir sig með því að skora mest liðsmanna Charlotte, 16 stig. Þetta var sjöundi sigur liðsins í níu leikjum og er Charlotte nú aðeins einum sigri á eftir Indiana, sem er efst í miðriðlinum. Nýliðinn Sharone Wright var stiga- hæstur í liði Philadelphia með 22 stig. Rice „sjóðandi heit- ur“ gegn Orlando GLEN Rice, leikmaður Miami Heat, var „sjóð- andi heitur“ eins og körfuknattleiksmenn orða það, er lið hans sigraði Orlando Magic á laugar- daginn, 123:117. Rice var nánast óstöðvandi og gerði 56 stig, sem er það besta sem leikmaður hefur gert í NBA í vetur. Þar af gerði hann 19 stig I fjórða og síðasta leikhluta. Rice hitti úr 20 af 27 skotum utan af velli, þar af úr sjö af átta 3ja stiga skotum. Michael Jordan, sem snéri nýlega aftur í lið Chicago Bulls, átti stigametið í NBA í vetur — skoraði 55 stig í New York 28. mars, fljótlega eftir að hann hóf að leika aftur. Rice hafði mest gert 46 stig I leik fyrir Miami. Það var líkega gegn Orlando Magic, 1992. Sögulegt hjá Buck Williams BUCK Williams, leikmaður Portland gerði 10 stig og tók 11 fráköst í sigri Portland gegn Seattle á útivelli á mánudaginn. Hann varð þar með áttuudi leikmaðurinn í sögu NBA-deiIdar- innar til að skora 5.000 stig og ná jafnframt 12.000 fráköstum. Williams þurfti að ná fimm fráköstum í þessum leik til að ná takmarkinu. Chambers sá tuttugasti til að gera 20.000 stig TOM Chambers gerði 15 stig fyrir Utah, er lið- ið burstaði LA Clippers, 105:83, um helgina. Hann varð var með tuttugasti leikmaður NBA- deildarinnar til að ná því að gera 20 þúsund stig. Þess má geta að þetta var 56. sigur Utah á keppnistimabilinu, sem er met — liðið hefur aldrei sigrað í jafn mörgum leikjum á einum vetri. Barkley í banni CHARLES Barkley lék ekki með Phoenix er liðið sigraði LA Lakers 119:114 á sunnudag. Hann var settur í eins leiks bann eftir að hafa fengið ákveðinn fjölda refsistiga. Dan Majerle gerði 28 stig, þar af 18 í síðasta leikhluta, fyr- ir Phoenix. Dominique Wilkins gerði 26 stig fyrir Boston Celtics er Úðið sigraði Detroit Pistons, 129:104 á sunnudag. Grant Hill gerði 31 stig fyrir Detro- it. Joe Dumars, sem er næst stigahæstur hjá Detroit í vetur, var ekki með vegna meiðsla I hnjám. Chicago í stuði CHICAGO burstaði New York Knicks, 111:90, á heimavelli á sunnudaginn. Liðið sýndi þar sannarlega hvað í því býr, og það án þess að stjarnan Michael Jordan léki eins og hann get- ur best. Scottie Pippen skoraði 29 stig, þar af 25 í fyrri hálfleik, tók átta fráköst og „stal“ knettinum átta sinnum. Jordan, sem gerði 55 stig gegn Knicks í New York fyrir tveimur og hálfri viku, lét 28 stig duga að þessu sinni og Toni Kukoc gerði 20. „Ef menn fylgjast með okkur sjá þeir að við erum hættulegt lið,“ sagði Jordan eftir sigur- inn. „Mér líkar vel að vera talinn hættulegur — sérstaklega þar sem úrslitakeppnin nálgast. Við höfum ekki leikið 'betur saman en í dag, síðan ég kom aftur." New York hafði sigrað í fimm leikjum í röð fyrir viðureignina gegn Chicago. Cluirles Smith gerði 22 stig í leiknum og Patrick Ewing var með 17. Hann tók átta fráköst. Real Madrid Evrópumeistari Real Madrid frá Spáni varð Evr- ópumeistari í körfuknattleik á fímmtudaginn var. Spænska stór- veldið sigraði Olympiakos frá Grikklandi í úrslitaleiknum, 73:61, og varð þar með Evrópumeistari í fyrsta skipti í 15 ár. Stærð og kraft- ur Litháans frábæra Arvidas Sa- bonis í liði Real gerði gæfumuninn í lejknum. Urslit Evrópukeppni meistaraliða fóru að þessu sinni fram í Zaragoza á Spáni. Fyrirkomulagið er þannig að fjögur bestu liðin eftir riðla- keppni koma saman á einum stað, dregið er um það hveijir mætast í undanúrslitum og sigurliðin eigast síðan við um meistaratignina. Real sigraði Limoges frá Frakklandi í undanúrslitum og Olympiakos sigraði annað grískt stórveldi, Panathinaikos. Þess má geta að Panathinaikos varð í þriðja sæti í keppninni, sigraði Limoges með 14 stiga mun, 91:77, í viðureign tapliðanna. Vonir Olympiakos um að verða fyrst grískra liða til að verða Evr- ópumeistari í körfuknattleik urðu enn að engu. Sabonis var Grikkjun- um erfiður ljár í þúfu, skoraði 23 stig, og hinum megin tókst leik- mönnum spænska liðsins það ætl- unarverk sitt að halda Eddie John- son í skefjum, en hann hefur verið iðnastur leikmanna gríska félagsins að skora í vetur. Bandaríkjamaður- inn Johnson náði hins vegar aðeins að setja níu stig að þessu sinni og þar sem félagar hans náðu ekki að taka við hlutverki skyttunnar fór sem fór. „Okkur tókst að taka Johnson nánast alveg úr umferð, og þegar það var ljóst höfðum við leyst flest þau vandamál sem við þurftum að glíma við,“ sagði Obradovic, þjálf- ari Real. „Madrid lék vel í báðum leikjum og ég held liðið hafi átt skilið að vinna bikarinn," sagði Iannoidis, þjálfari Olympiakos.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.