Morgunblaðið - 27.05.1995, Page 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
pttirgiiwibilaíiilíi
1995
LAUGARDAGUR 25. MAÍ
BLAÐ
HANDKNATTLEIKUR
Duranona skrifaði undir hjá KA
Kúbumaðurinn Julian Duranona
skrifaði í fyrradag undir eins árs
samning við bikarmeistara KA frá
Akureyri. „Ég vona bara að hann muni
styrkja lið okkar og get ekki annað er
verið mjög ánægður með að fá hann,“
sagði Alfreð Gíslason þjálfari KA.
Duranona er 29 ára, tveggja metra
hár og mun spila allar útistöður hjá KA.
Hann flúði Kúbu á síðasta ári og hefur
haldið til í Argentínu. Duranona kom
til lands um miðja riðlakeppni heims-
meistarakeppninnar og hélt beint til
Akureyrar. Alfreð segir að líkamsstyrk-
ur Duranona sé í góðu lagi en einnig
greinilegt að hann hefur ekki spilað
handbolta í hálft ár að minnsta kosti.
Bikarmeistararnir hafa misst nokkra
leikmenn, Valdimar Grímsson er sem
kunnugt er farinn til Selfoss og Þor-
valdur Þorvaldsson heldur til Danmerk-
ur í nám. Ekki er enn ljóst hvort Valur
Arnarson muni áfram vera í herbúðum
KA en Erlingur Kristjánsson verður þar
áfram.
Ekki liggja fyrir fleiri félagsskipti
yfir í raðir KA-mann en að sögn Al-
freðs leikur hann sjálfur ekki með KA
næsta keppnistímabil en sagði: „það
er best að segja sem minnst."
Júlíus
lék fing-
urbrotinn
á HM
Júlíus Jónasson handknattleiks-
maður lék með brotinn þumal-
fingur alla heimsmeistarakeppn-
ina. Þetta uppgötvaðist við
myndatöku að keppninni lokinni.
Júlíus brotnaði sem kunnugt er á
þumalfingri sl. haust og hafði að
fullu náð sér þegar hann fékk
högg á fingurinn á Bikuben mót-
inu í handknattleik tíu dögum
fyrir HM. Var þá talið að um
slæma tognun væri að ræða. Fékk
hann spelku til að hlífa fingrinum
og lék þannig einn leik í Dan-
mörku, tvo leiki hér heima_ gegn
Austurríki og loks á HM. „Ég var
sprautaður fyrir leiki á HM en
fann það á milli að mér skánaði
ekkert og að keppni lokinni fór ég
í myndatökur ogþá sást að fingur-
inn var brotinn á sama stað og
sl. haust. Það á ekki að vera
hægt að leika brotinn,“ sagði Júl-
íus í samtali við Morgunblaðið í
gær. „Fingurinn var skrúfaður
saman með tveimur skrúfum sem
verða þar áfram. Síðan verð ég í
gipsi í tvær vikur og í aðrar þijár
í spelku þannig að ég verð klár í
slaginn þegar undirbúningurinn
hefst hjá Gummersbach í ágúst-
byrjun." Júlíus á eftir eitt ár af
samningi sínum við þýska félagið,
en hann heldur af landi brott
ásamt fjölskyldu sinni eftir viku.
ÞORBJÖRN Jensson hefur náð frábærum árangrl hjá Val.
Þorbjöm lands-
liðsþjálfari?
orbjöm Jensson, þjálfari íslandsmeistara
Vals, er efstur á óskalista Handknatt-
leikssambands íslands í stöðu landsliðsþjálf-
ara, samkvæmt áræðanlegum heimildum
Morgunblaðsins. Þorbjörn hitti stjórn HSI í
gær og átti með henni tveggja klukkustunda
fund. Samkvæmt heimildum blaðsins var
Þorbirni boðið að taka við landsliðinu en
hann vildi umhugsunarfrest og var hann
veittur fram á sunnudag.
Fyrsta verkefni nýs landsliðsþjálfara
verður að undirbúa og velja landsliðið fyrir
riðlakeppni Evrópumóts landsliða næsta
haust. Island mætir Rúmenum ytra í fyrsta
leik 26. september.
Sigurjón lék undir
pari í Flóríta
SIGURJÓN Arnarson, kylfingur úr GK, heldur
áfram keppni á Tommy Armound-golfröð
atvinnumanna. Haim lék undir pari á tveggja
daga móti á Deer Island-xetimum. Par vallarins
er 72 — Sigurjón kom inn á 72 höggum og 71
höggi, samtals 143 höggum og hafnaði í 10. sæti.
Sigurvegarinn lék á 135 höggum. Völlurinn er
ipjög erfiður — 6.700 stiku Iangur, með tjarnir
á öllum brautum
Romario verður frá
í sex vikur
BRASILÍUMAÐURINN Romario verður frá
keppni í sex vikur, þar sem hann meiddist á hné
í leik með Flamengo gegn Gremio, 2:1. Þessi
sókndjarfi leikmaður mun því ekki leika með
landsliði Brasilíu í fjögurra þjóða móti f Eng-
landi í júní, þar sem landslið Englands, Brasilíu,
Japans og Svíþjóðar.
Paul Ince og Tony
Adams ekki með
Englandi
PAUL Ince, Manehester United, og Tony Adams,
fyrirliði Arsenal, leika ekki með Englandingum á
fjðgurra þjóða mótinu, þar sem þeir eru meiddir.
Terry Venables, landsliðseinvaldur Englands, hef-
ur valið nýja leikmenn í stað þeirra í landsliðshóp
sinn. David Unsworth, varnarleikmaður Everton,
21 árs leikmaður sem hefur ekki leikið landsleik,
tekur sæti Adams og Liverpool-leikmaðurtinn
Jamie Redknapp tekur stöðu Ince. Aðrir í landsl-
iðshópnum eru Tim Flowers, Ian Walker, Warren
Barton, Gary Neville, Gary Pallister, John Scales,
Graeme Le Saux, Stuart Pearce, Darren Ander-
ton, David Batty, David Platt, Paul Gascoigne,
John Barnes, Steve McManaman, Nick Barmby,
Peter Beardsley, Alan Shearer, Stan Collymore,
Andy Cole, Teddy Sheringham.
Breytingar framund-
an hjá AC Milan
EFTIR tap AC Milan gegn Ajax er talið að mikl-
ir breytingar séu framundan hjá liðinu. Fyrirlið-
inn og varnarmaðurinn Franco Baresi, Roberto
Donadoni, miðvallarspilari og sóknarleikmaður-
inn Daniele Massaro eru nefndir, sem leikmenn
sem líklega verði ekki í liðinu næsta keppnistíma-
bil. AC Milan tapaði úrslitaleiknum gegn Ajax
og missti ítalska meistaratitilinn til Juventus.
Nýja „ AC Milan“ verður með leikmenn eins og
Líberíumanniim George Weah, sem hefur verið
keyptur frá París St Germain. Paolo Maldini mun
örugglega taka við fyrirliðastððu Baresi, 35 ára.
Meiðsli hrjá lands-
liðsmenn Svía
SVÍAR hafa átti í töluverðum vandræðum með
að manna landshópinn sem mætir íslendingum
í Stokkhólmi á fimmtudagskvöld vegna meiðsla
lykilmanna. Enn eitt áfallið var í vikunni er Jan
Eriksson, miðvörður AIK og landsliðsins, togn-
aði á læri í bikarúrslita leik AIK gegn Halmstad
og verður því ekki með. Talið er óvíst að Tomas
Brolin og Martin Dhalin geti leikið vegna
meiðsla. Tommy Svensson, landsliðsþjálfari
bætti tveimur í hópinn í gær; Dik Litmann, fram-
heija AIK, sem er 28 ára og hefur ekki leikið
landsleik og Jesper Mattson, miðverði Halmstad.
Nánast uppselt á
Rásunda-völlinn
LEIKUR Svía og í slendinga á fimmtudag fer
fram á Rásunda-leikvanginum í Stokkliólmi, en
það er heimavöllur AIK. Leikvangurinn tekur
um 30 þúsund áhorfendur og var nánast orðið
uppselt á leikinn í gær. Leikurinn verður ekki
sýndur beint í sænska sjónvarpinu, en hann verð-
ur sýndur í heild tveimur tímum eftir leik. Leik-
urinn verður hins vegar sýndur í beinni útsend-
ingu RÚV hér á landi og hefst hann kl. 17.00
að íslenskum tíma.
KIMATTSPYRIMA: BLIKASTÚLKUM SPAÐ MEISTARAHTU / B2