Morgunblaðið - 28.05.1995, Page 1

Morgunblaðið - 28.05.1995, Page 1
ÍSLENDINGAR íÖÐRU SÆTIíÞOLAKSTRIVÉLHJÓLA - ÖKULEIKNIÁ STRÆTISVÖGNUM - REYNSLUAKSTUR Á FORD ESCORTCLX—BELTAGRAFA FRÁKOMATSU- KIA CREDOS Toyota Celica aðallega fyrir hraðakstur MEÐAL bíla á afmælissýningu hjá Toyota-umboðinu nú um helgina er hinn nýi Celica GT-Four eins og hann heitir fullu nafni en þessi nýja Celica kom fram í fyrra og hefur verið í framleiðslu í ár. Þetta er feikna snaggaralegur fólksbíll með 242 hestafla vél, sítengdu aldrifi og sérlega rásfastur eins og kom í ljós þegar tekið var vel í hann í byrjun vikunnar. Þetta er aðallega leikfang og talsverð fjárfesting eða rúmar 3,9 milljónir króna en hann er líka fullkomlega nothæfur sem fjögurra manna bíll þótt aftursætin séu ekki beinlínis rúmgóð. Toyota Celica er rennilegur bíll og straumlínulagaður, framendinn og farþegarýmið með mjög boga- dregnar línur. Útlitið segir það bein- línis að hér sé á ferð hraðaksturs- bíll. Á ávölum framendanum grípa fjórar skemmtilegar luktir einna mesta athygli og undir þeim sam- gróinn stuðari með fleiri luktum og að ofan lagar vélarhlífin.sig að því sem undir henni er. Afturendinn er stuttur með vindskeið að sjálfsögðu og síðan hvílir bfllinn á 16 þuml- unga felgum sem gerir hann verk- legan og sterklegan. Að innan er Celica þannig úr garði gerður að þar nýtur ökumaður sín og þannig um hnútana búið að akstur verður eintóm ánægja. Sætið er fjölstillanlegt og hæð stýrishjóls má einnig breyta, gírstöng er stutt, hún vel staðsett, stutt á milli gíra, mælaborð allstórt og greinilegt, út- sýni gott en þó minnst um aftur- rúðu. Helsti gallinn er að „bensínfót- urinn" leggst stundum óþægilega við miðjustokkinn. Aftursætin eru ekki mjög merki- leg en þó geta fullorðnir látið sig hafa það að sitja þar í stuttan tíma en þau eru vel boðleg smáfólkinu, þeim sem ekki eru mikið hærri í loftinu en 1,30-1,40. Farangursrými er heldur ekki ógnarstórt, rúmir 200 lítrar. Celica getur samt hentað sem fjölskyldubíll því það er ágætt að umgangast hann en er að vísu tveggja hurða. CELICA vegur 1.480 kg og er 242 hestafla forþjöppuvélin 6,1 sekúndu að knýja hann úr kyrrstöðu í 100 km hraða. Snerpa og rásfesta Vélin er tveggja lítra, fjögurra strokka, 16 ventla og 242 hestafla með forþjöppu (turbo) og feikilega snögg. Hún er 6,1 sek. að ná bílnum í 100 km hraða og hámarkshraðinn er 245 km/klst. Fimm gíra hand- skiptingin er lipur og sítengt aldrif- ið á sinn þátt í traustu veggripi. Allt þetta samanlagt leggur grunn- inn að því sem segja má að sé höf- uðtilgangur Toyota Celica GT-Four: Snerpa, rásfesta, lipurð og hraði. Þar við bætast atriði eins og öryggi í hemlalæsivöm og líknarbelg, þæg- indi í rafknúnum speglastillingum og rúðuvindum, samlæsingu, út- varpi með geislaspilara. Celica er virkilega skemmtilegur bíll í akstri, býður beinlínis uppá hraðakstur. Þar er átt við snerpuna í viðbragðinu og hvað má leggja á bflinn á krókóttum vegum án þess að verið sé að tqja um að fara yfir hraðamörk. Það er hins vegar hættulega auðvelt og sé til dæmis ekið rösklega af stað á grænu ljósi er komið í hraðamörk nánast eftir fáa metra í fyrsta gír! í bæjarakstri þarf varla að nota annað en fyrsta og annan gír og á þjóðvegi verður fimmti gír naumast notaður. Vega- hljóð verður fullmikið þegar ferða- hraða er náð. Við framúrakstur kemur best í ljós hversu snöggur bíllinn er í viðbragði og er hægt að skjótast framúr á mjög stuttum köflum sem ekki væri reynandi á viðbragðsminni bílum án þess að skapa hættu. Celica er sem sagt geysi skemmti- legur gripur, sérhannaður fyrir öku- gleði og veitir notendum eintóma ánægju. Verðið er kr. 3.950.000 og í kaupbæti fá menn ómæida athygli. ■ jt. Morgunblaðið/Rax TOYOTA Celica aldrifssportbíll er með rennilegri bílum og trúlega þeim hraðskreiðari sem fást hérlendis. Hann er til sýnis hjá Toyota-umboðinu um helinga. ÞANNIG er um hnútana búið inni í bílnum að akstur verður eintóm ánægja.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.