Morgunblaðið - 28.05.1995, Side 2

Morgunblaðið - 28.05.1995, Side 2
2 C SUNNUDAGUR 28. MAÍ 1995 MORGUNBLAÐIÐ + í öðru sæti í þolakstri ó vélhjóli í Pembrey ÞORSTEINN Marel kemur á undan út úr einni beygjunni. Hliðar- skriðsæfingar á torfæruiy'ólum komu að góðum notum í keppn- inni í Pembrey. Svipaður meðalaldur bíla á íslandi og Noregi MEÐALALDUR á norskum bílum er 10,2 ár, þremur árum hærri en í Slóveníu og Norðmenn og Svíar eiga bíla sína lengur en nokkur önnur Evrópuþjóð áður en þeir eru unnir í brotajárn, eða sautján ár, sjö árum lengur en Frakkar og Hollendingar. Meðalaldur bíla á ís- iandi var í árslok 1994 10 ár og meðaldur fólksbíla 8,4 ár og hefur bílafloti landsmanna verið að eldast síðustu ár því í árslok 1993 var meðalaldur íslenskra bíla 9,7 ár, þar af fólksbílar að meðaltali 8 ára gamlir. Fáir með hvarfakúta Upplýsingadeild norska Umferð- arráðsins hefur tekið saman talna- upplýsingar sem leiða m.a. í ljós að aðeins 22% norskra bíla eru búnir hvarfakútum, sem skilja skaðlegustu lofttegundimar úr út- blæstri bíla, en í Svíþjóð em 44% bfla með þessum búnaði og 75% í Sviss. í Noregi var í fyrra einn nýskráður bíll á hvem 51 lands- mann og aðeins í Finnlandi og Grikklandi vom fleiri um hvem nýskráðan bíl, eða 75 og 95. í Þýskalandi og Sviss var einn nýskráður bíll í fyrra á hvetja 25 landsmenn. Elantra skutbíll HYUNDAI Elantra skutbfll, sá fyrsti frá suður-kóresku verksmiðj- unum, er væntanlegur á markað á næsta ári. A kóreskum markaði heitir bíllinn Nextone. Útfærslan sem verður framleidd til útflutnings verður búin 1,6 lítra og 1,8 lítra, 16 ventla vélum. Ford 2000 FORD mun íjölga undirtegundum um 16 á næstu fimm ámm og auka framleiðslu á þeim 32 gerðum sem fyrirtækið framleiðir nú um 50%. Samhliða því dregur fýrirtækið úr þeim fjölda vélagerða sem það framleiðir um 30%. Þessar aðgerðir em liður í endurskipulagningu Ford sem nefnd er Ford 2000. Alex Trot- man, stjómarformaður Ford, sagði að aðgerðirnar leiddu til aukins fjöl- breytileika í framleiðslulínunni og nokkur milljarða dollara spamað í hönnunar- og framleiðslukostnað. Trotman sagði að þorri nýju bíl- anna, t.a.m. allir smábflarnir og lúxusbílarnir, yrðu einnig fram- leiddir með stýrið hægra megin til sölu í Japan. Örbíllinn smíðaöur í Bandaríkj- unum? MICRO Compact Car AG, sam- starfsfyrirtæki Mercedes-Benz og Swatch úraframleiðandans um smíði tveggja sæta örbílsins Smart, íhuga nú að setja einnig upp verksmiðjur í Bandaríkjunum. Framleiðsla á bíln- um hefst í Evrópu í árslok 1997 og verður smíðaður í 200 þúsund ein- tökum á ári. Ef markaðsrannsóknir í Bandaríkjunum benda til þess að fýsilegt verði að setja hann á mark- að þar verða 100 þúsund bílar fram- leiddir þar árlega. ■ ÍSLENDINGAR lentu í öðru sæti í þolkeppni í véihjólaakstri á helsta móti áhugamanna í greininni eftir að hafa leitt keppnina mestalla. Keppnin fór fram á Pembrey braut- inni í Wales 8. maí sl. Ekið var stans- laust í sex klukkustundir og stefndi í íslenskan sigur þar til bilun varð í vélhjóli þeirra. Þorsteinn Marel var einn íslensku keppendanna og segir hann að nú sé stefnan sett á keppn- ina í Snetterton brautinni í Eng- landi, þar sem íslenska liðið hafnaði { fimmta sæti í fyrra. Þetta er í annað sinn sem þeir félagar, Þorsteinn Marel, sem er betur þekktur sem Steini Tótu, Karl Gunnarsson og Unnar Már Magnús- son, taka þátt í móti af þessu tagi. Þorsteinn Marel sagði að undirbún- ingur hefði staðið yfir í tæpt eitt ár, eða allt frá mótinu í Snetterton í fýrra. Mikil vinna fór í að fá styrkt- araðila því þáttakan á mótinu kost- aði um hálfa milljón kr. og á endan- um tók Pepsi þá félaga upp á ar- mana. Æfíngar fóru fram á götuhjól- um á götum borgarinnar en mest var æft á torfæruhjólum og gerði keppn- isliðið sér ferð til Landmannalauga, Veiðivatna og fleiri staða. Þorsteinn Marel sagði að æfingar á torfæru- hjólunum hefðu skilað sér vel því þar reynir mikið á líkamlegt atgerfi og hliðarskrið á hjólunum. 110 hestafla hjól Keppnisliðið keppir á einu vélhjóli og leigðu þeir félagar hjól af Bretan- um Rob Simms, sem gerir út hjói í kappakstur. Hjólið var af gerðinni Honda CBR 600 cc og kostaði 200 þúsund kr. að leigja það fyrir sex klukkustunda keppni. A milli 600-700 þúsund kr. kostar að útbúa hjól af þessari gerð fyrir þolakstur- skeppni því það þarf að þola illa meðferð og að vera ekið á útopnu í sex tíma. Vélinni er breytt en í upp- runalegri gerð skilar hún 87 hestöfl- um en eftir breytingu 110 hestöflum. Einnig er skipt um fjöðrunar- og hemlabúnað í hjólinu en samkvæmt reglunum má ekki skipta um grind. Álagið er mikið á hjólið og allir hlut- ar þess sjóðhitna. Þorsteinn Marel sagði að brautin í Pembrey væri með mun brattari beygjum en brautin í Snetterton og þar væri mun minni meðalhraði. Meðalhraði í Pembrey er á milli 120-130 km á klst. Aðeins einn stutt- ur kafli er beinn en annars er hjólið alltaf á hliðinni í beygjum og gefst því lítill tími til að hvíla sig á milli átaka. Keppt er í fjórum flokkum eftir stærð hjóls. Stærstu hjólin voru með 900 cc vél og sagði Þorsteinn Marel að þau hefðu ekki hentað vel í þessa keppni þar sem þau hefðu verið of þung. „Við keyrðum hraðar en þau þótt þau hafi verið mun kraftmeiri. Mesti meðalhraðinn var í okkar flokki, 120-130 km á klst,“ sagði Þorsteinn Marel, en á beina kaflanum var meðalhraðinn nálægt 220 km á klst. Skipt var um ökumann á klukkutíma fresti, fyllt á bensíntank- inn og farið yfír hemla og annan útbúnað. í fyrsta sætl fyrstu 150 hringlna Þorsteinn Marel byijaði keppnina og ákváðu þeir félagar að keyra hratt fyrsta klukkutímann meðan allt væri nýtt og ferskt á hjólinu. Hann varð fjórði upp úr startinu og eftir sautján hringi var hann í þriðja sæti og í öðru sæti eftir 23 hringi. Á 41. hring náði Þorsteinn Marel fyrsta sætinu og skipti hann við Unnar Má eftir 50 hringi, þá í 1. sæti og með tveggja mínútna forskot á næstu keppendur. í þann mund féll einn keppenda af hjóli sínu á brautinni og var hann fluttur brákaður á fæti á slysadeild. íslenska liðið ákvað að halda þessu tveggja mínútna forskoti og miða sinn hraða við hraða keppendanna í öðru sæti til þess að hlífa hjólinu og dekkjunum. Liðið hélt 1. sæti og gekk allt eins og í sögu næstu 40 hringi, eða fram að 95. hring, en þá féll Unnar Már af hjólinu. Marðist hann á höndum og olnboga en gat haldið áfram keppni. Var þá skipt um ökumann Karl tók við. Þegar hann var á 140. hring komu í ljós afleiðingamar af falli Unnars Más. Sprungur höfðu komið í hljóðkútinn sem er úr trefjaefni og sprakk hann. Samkvæmt reglum keppninnar má ekki aka með ónýtan hljóðkút og urðu þeir því að gera við kútinn. Þorsteinn Marel tók þá við og var íslenska liðið þá ennþá í 1. sæti. Hann keyrði eina átta hringi, eða þar til hljóðkúturinn sprakk aftur. Þá hafði tekist að hafa upp á nýjum hljóðkút á hjólið og var skipt um í snatri. Við þessar ófarir tapaði liðið niður átta mínútum og missti enska Iiðið fímm mínútum fram úr sér. Á síðustu hringjunum tókst íslending- unum að vinna til baka tvær mínútur ÖÐRU sæti fagnað í þolakstursk eiginkona Rob Simms, Rob Simms BÚIÐ að fylla tankinn og Unnar Mi þrátt fyrir að hjólið væri farið að daprast, dekkin slitin og hemlarnir. Hafnaði liðið í 2. sæti, ók 296 hringi á sex klukkustundum, þremur hringjum minna en ensku sigurveg- ararnir. Að meðaltali tók 1,10 mínútur að «mús as ftY t\ Kia Credos í Seoul KOMATSU DASH-6 er ný kynslóð belta- gröfu frá Ko- matsu KIA Motors í Suður:Kóreu frumsýndu nýjan fólksbíl, Credos, á fyrstu alþjóðlegu bílasýn- ingunni í Seoul í síðustu viku. Bíllinn verður einkum ætlaður fyrir Bandaríkjamarkað og er í svipuðum stærðarflokki og Toyota Camry og Mitsubishi Galant. Hann er væntanlegur á markað í Bandaríkjunum 1997, en ekki er vit- að enn hvort hann verður framleiddur fyrir Evrópubúa. Credos verður með 1,8 lítra, fjög- urra strokka Kia-vél sem skilar 137 hestöflum. Einnig er Kia að þróa nýja V6-vél fyrir bílinn. Hyundai sýndi nýja gerð af Elantra sem kom fyrst á markað í Suður-Kóreu í mars sl. undir nafninu Avante. Einnig sýndi Hyundai langbaksútfærslu af El- antra sem kemur á markað eystra í ágústmánuði en varla til útflutnings fyrr en á næsta ári. Langbaksútfærslan verður fáanleg með þremur vélastærðum, 1,61,1,81 og 2,01 Beta-vélum, 16 ventla með tveimur yfirliggjandi knastásum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.