Morgunblaðið - 30.05.1995, Blaðsíða 7
6 B ÞRIÐJUDAGUR 30. MAÍ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
KNATTSPYRNA
Skagamenn tóku öll
þvjú stigin í Keflavík
Morgunblaðið/Bjöm Blöndal
Fundur er settur
ÓLAFUR Þórðarson, fyrlrliði Skagamanna, á hér eitthvað
vantalað við Gísla dómara Guðmundsson ó laugardaglnn.
Sigurður Jónsson, félagl Ólafs og Keflvíklngurlnn Marko
Tanaslc vlrðast og hafa eitthvað tll málanna að leggja.
ÍSLANDSMEISTARAR Skaga-
manna kræktu sér í þrjú dýr-
mæt stig ítitilvörn sinni þegar
þeir léku gegn Keflvíkingum í
Keflavík á laugardaginn og
hafa nú sigrað í báðum leikj-
um sínum. Leikur liðanna var
ekki í háum gæðaflokki og í
hreinskilni sagt var fátt sem
gladdi augað. Aðeins eitt
mark var skorað í leiknum og
var þar að verki varnarmaður-
inn sterki Ólafur Adolfsson í
upphafi síðari hálfleiks.
Skagamenn voru betri aðilinn
í fyrri hálfleik og réðu þeir
lengstum gangi mála án þess þó
að skapa sér nein
verulega hættuleg
Blöndal marktækifæri.
skrifar frá Næst því að skora
Keflavik voru þó heima-
menn því Kjartan
Einarsson var hársbreidd frá því
að setja mark á síðustu mínútum
fyrri hálfleiks, en hann skallaði
boltann framhjá úr sannkölluðu
dauðafæri.
Síðari hálfleikur var keimlíkur
þeim fyrri þar til að Skagamenn
náðu að setja markið en eftir það
lögðu þeir allt í að halda fengnum
hlut. Keflvíkingar reyndu þá hvað
þeir gátu til að jafna, en vörn
Skagamanna var vandanum vaxin
og heimamenn náðu aldrei að
koma sér upp neinum afgerandi
færum.
OB d| Skagamenn fengu
■ I aukaspymu á hægra
vítateigshomi. Haraldur Ing-
ólfsson sendi boltann inn í víta-
teig Keflvíkinga, að nærstöng-
inni, þar sem hinn stóri og
stæðiiegi Ólafur Adolfsson
var fyrir og hann skallaði bolt-
ann I löngum boga í homið ijær
án þess að vamarmenn Kefla-
víkur eða Ólafur Gottskálksson
markvörður fengju nokkuð að
gert. Óvænt og sérkennilegt
mark.
„Ósáttur við að tapa“
„ÉG er ekki alveg sáttur við hvernig mínir menn léku, það vantaði
allan hreyfanleika svo eitthvað sé sagt. Það hafa verið mikið um
meiðsli hjá leikmönnum í liðinu og ég hef trú á að við munum gera
betur næst. Annars var þetta ekkert annað en jafnteflisleikur og
því er ég ósáttur við að tapa,“ sagði Ingi Björn Albertsson þjálfari
Keflvíkinga.
„Það eina sem ég er ánægður með eru stigin, við áttum i miklum
erfiðleikum í fyrri hálfleik og ég er langt frá því að vera ánægður
með hvemig við lékum í dag,“ sagði Logi Ólafsson, þjálfari Skagam-
ana.
Morgunblaðið/Bjöm Gíslason
Hetjan á loft
ÁSMUNDUR Haraldsson, hetja KR-lnga á Ólafsflrðl, var bor-
Inn af velll á háhestl af Mihajlo Blberclc eftlr lelklnn — Ás-
mundur gerðl jöfnunarmarkið og fiskaðl síðan vítaspyrnu á
lokasekúndunum sem Blbercic skoraðl úr.
Morgunblaðið/Júlíus
Gamlir félagar úr Eyjum
FRIÐRIK Sæbjörnsson úr ÍBV og Nökkvi Sveinsson úr Fram
berjast um knöttinn á Valbjarnarvelllnum. Báölr leikmennirn-
ir eru frá Eyjum en Nökkvl klæðist Frampeysunni í sumar.
Fyrsti markalausi leikurinn í deildinni í sumar
„Viðunandi úrslit
fyrir bæði lið“
FRAMARAR fengu sitt fyrsta
stig á íslandsmótinu þegar lið-
ið gerði markalaust jafntefli við
ÍBV á Valbjarnarvellinum. ÍBV
var lengst af betri aðilinn í
leiknum en bæði lið fengu
marktækifæri sem þau ekki
nýttu. Niðurstaðan var því
markalaust jafntefli, það fyrsta
í 1. deildinni í sumar.
að var allt annað að sjá til liðs-
ins heldur en í fyrsta leiknum
[gegn Leiftri] og það var ákveðin
viðvörun til okkar að
Frosti 719 skylíium fá á
Eiðsson okkur flögur mörk í
skrifar þeim leik. Vömin
var mun betri í þess-
um leik og greinilegt er að við erum
að fá sjálfstraustið aftur,“ sagði
Steinar Guðgeirsson, fyrirliði Fram.
Framarar voru mjög þungir fram-
an af leiknum og Eyjamenn yfírleitt
alltaf á undan á boltann. Eyjamenn
fengu tvö opin marktækifæri á
fyrstu tuttugu mínútunum, Rútur
Snorrason, Ivar Bjarklind og
Tryggvi Guðmundsson byggðu upp
sókn vinstra megin sem lauk með
skoti Leifs Geirs sem Birkir varði
og sömu lyktir urðu eftir að Leifur
komst einn innfyrir vömina eftir að
Framvörnin hafði opnast illa.
Eyjamenn réðu ferðinni
Framarar komu betur inn í leikinn
í síðari hálfleiknum þó að Eyjamenn
hafi sem fyrr ráðið ferðinni á miðj-
unni en bæði lið fengu upplögð
marktækfæri. Ríkharður Daðason,
fékk góð færi í þrígang sem nýttust
ekki, eitt fór í stöng en Friðrik Frið-
riksson var vel á verði í hin skiptin.
ÍBV náði að byggja upp fjölda mark-
tækifæra þó þau hafí ekki verið jafn
opin. Miðað við færi má því segja
að úrslitin séu kannski ekki ósann-
gjörn en ÍBV var betra liðið á vellin-
um og mun jafnara. Nokkrir leik-
menn Fram eru greinilega ekki enn
komnir í gang og ekki var mikið
um spil hjá liðinu, feilsendingarnar
voru allt of margar til þess að það
tækist. Vömin var sterkasti hluti
Framliðsins í leiknum og Ríkharður
Daðason vann vel í framlínunni,
oftast án nokkurrar hjálpar frá sam-
herjum sínum.
Ekki nógu ákveðnir
„Við vomm ekki nógu ákveðnir
upp við markið og ætli nýtingin hjá
okkur sé ekki svipuð og í síðasta
leik. Samt sem áður var jafnteflið
viðunandi úrslit fyrir bæði liðin því
bæði gátu þau gert út um leikinn,“
sagði Ingi Sigurðsson, leikmaður
IBV. Lið Eyjamanna var frískt, sér-
staklega framan af fyrri háifleikn-
um og höfðu undirtökin á miðjunni
mest allan hluta leiksins. Hins vegar
var sóknarleikurinn full einhæfur,
stundum var engu líkara en leik-
menn ætluðu að spila knettinum inn
í markið, - í stað þess hefði líklega
verið árangursríkara að reyna oftar
skot frá vítateignum.
+
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 30. MAÍ 1995 B 7
KNATTSPYRNA
Ásmundur hetja KR
Kom inná sem varamaðurfimm mín. lyrir leikslok, skoraði jöfnunarmark
KR og fiskaði vítaspyrnu, sem tryggði KR-ingum sigur á Olafsfirði 1:2
ÁSMUNDUR Haraldsson var
svo sannarlega hetja KR þegar
lið hans vann Leiftur í Ólafs-
firði um helgina 2-1. Ásmundur
vermdi varamannabekkinn þar
til á 85. mínútu er hann kom
inná, aðeins tveimur mínútum
síðar gerði hann fyrra mark KR
og svo var brotið á honum inn-
an teigs í lok leiksins og dæmt
víti sem Mihajlo Bibercic skor-
aði úr. Óneitanlega góð inná-
skipting hjá Guðjóni Þórðar-
syni, þjálfara KR.
Eg er dauðfeginn að fara með
öll stigin suður, úr þessum
erfiða leik. Við áttum að skora fyrr
í leiknum en úr því
sem komið var,
Bríksson stóðu strákarnir sig
skrífar vel að halda áfram
á fullu eftir að við
fengum á okkur mark og gera tvö
mörk og þar með út um leikinn.
Það er ljóst að máttarvöldin hafa
ekki snúið við okkur baki eins og
ég var farinn að halda um tíma,
sagði Guðjón Þórðarson, þjálfari
KR við Morgunblaðið eftir leikinn,
og var að vonum himinsæll með
uþpskeruna.
Það var greinilegt í upphafí leiks-
ins að hvorugt liðið myndi gefa neitt
eftir og að leikið yrði fast til sigurs.
Fyrri hálfleikurinn var ágætlega
leikinn en þó var lítið um marktæki-
færi, því sterkar vamir beggja liða
vom fastar fyrir og hleyptu mótheij-
unum ekki lengra en upp að teig.
Það voru KR-ingar sem fengu þau
færi sem talandi var um en hvorugu
liðinu tókst að skora fyrir hlé.
í síðari hálfleik voru færin hins-
vegar mun fleiri og voru heima-
menn aðgansharðari í upphafí hálf-
leiksins og féllu þrjú mjög góð færi
þeim í skaut og verða þeir að telj-
ast klaufar að hafa ekki. skorað
a.m.k. eitt mark. Á 65. mínútu
gerðu KR-ingar harða hríð að marki
Leifturs og var mikill darraðardans
inn í teig sem endaði með því að
bjargað var á marklínu og þaðan
fór knötturinn í hom og er óhætt
að segja að hurðin fræga hafí marg-
oft skollið nærri hælum í þessari
sókn. Það var svo á 77. mínútu sem
Leiftur gerði mark sitt og var þar
Sverrir Sverrisson á ferðinni er
hann skallaði í netið af stuttu færi.
Tíu mínútum síðar jafnaði svo Ás-
mundur Haraldsson með fallegu
langskoti og þremur mínútum síðar
var Ásmundur aftur á ferðinni,
komst inn í teig Leifturs og féll við
og dæmdi Sæmundur Víglundson
dómari umsvifalaust vítaspyrnu.
Mörgum þótti dómurinn orka tví-
mælis, en Sæmundur var ekki í
vafa. Úr vítinu skoraði Mihajlo Bir-
bercic af öryggi.
Leikurinn var í heildina skemmti-
legur á að horfa og jafn. Bæði liðin
hefðu átt að geta sigrað í leiknum,
miðað við hvemig hann gekk fyrir
sig, og hefði jafntefli verið sann-
gjömustu úrslitin, en það vom
KR-ingar sem voru sterkari á enda-
sprettinum og náðu að krækja í öll
stigin eftirsóttu. „Þetta var mjög
erfiður leikur og sárt að tapa honum
undir lokin. Strákarnir hörfuðu eft-
ir að við skoruðum og virtist sem
þá skorti sjálfsöryggið til þess að
klára leikinn, sem við höfðum alla
burði til,“ sagði Óskar Ingimundar-
son þjálfari Leifturs að leikslokum.
Hjá Leiftri var Júlíus Tryggvason
mjög sterkur í vörninni og Páll
Guðmundsson var sívinnandi á
miðjunni. Vörnin og miðjan var
sterk en framlínan var bitlaus mest-
an hluta leiksins. Hjá KR var vöm-
in einnig góð svo og miðjan en fram-
línan hafði sig lítið í frammi og
mátti sín lítils gegn sterkri vöm
Leifturs. Bestir KR-inga var Heim-
ir Guðjónsson og einnig átti Hilmar
Bjömsson góða spretti. Ekki má
gleyma Ásmundi Haraldssyni sem
kom inná í lok leiksins og var mað-
urinn sem skóp sigur KR.
1B^\Leiftur sótti upp hægri vænginn, á 77. mínútu, Pétur Jóns-
■ Wson sendi fyrir fyrir en barst boltinn út á vinstri kantinn.
Páll Guðmundsson sendi rakleiðis til baka fyrir markið þar sem Sverr-
ir Sverrisson stðkk manna hæst og skallaði í glæsilega netið.
1B 4| Ásmundur Haraldsson fékk knöttinn á vinstri vængnum,
■ 1 lék f átt að vítateig Leifturs og skaut þrumuskoti af 20
metra færa yfír Þorvald sem hafði hætt sér of framarlega. Þetta
mark kom á 87. mínútu.
1B*%Ásmundur Haraldsson fékk knöttinn rétt fyrir utan teig
■ áLivinstra megin á 90. mínútu, lék inn í teiginn þar sem hann
féll við og dæmt var víti. Mihajlo Bibercic skoraði af öryggi úr vítinu
í hægra homið.
FOI_K
■ MJÖG mikill snjór er í Ólafsfirði
og knattspymuvöllurinn sem vin í
eyðimörk í öllum snjónum í firðinum.
Ástæðan fyrir því hvað völlurinn er
góður er sú að hann er upphitaður
og því fljótur að taka við sér á vorin.
■ MARGIR leikmanna Leifturs eru
á suðurlandinu yfir veturinn og kom
stór hluti liðsins til Ólafsfjarðar í
fyrsta skipti í vor nú í síðustu viku
eftir leikinn við Fram.
■ LEIKMENN Leifturs höfðu
ekki fengið að æfa á velli sínum
fyrir leikinn og því vom þeir að stíga
á hann í fyrsta skipti á þessu sumri
í leiknum við KR.
■ GUÐMUNDUR Benediktsson
var ekki með KR en hann er meidd-
ur. Guðmundur kom þó til Ólafs-
fjarðar og fylgdist með sínum
mönnum. Guðjón Þórðarson þjálf-
ari sagðist vona að Guðmundur
yrði til í slaginn í næsta Ieik.
■ ÁHORFENDUR vom ekki
ánægðir með frammistöðu Sæ-
mundar Víglundssonar dómara og
þá sérstaklega fór vítaspymudómur
hans í lok leiksins fyrir bijóstið á
þeim. Ólafsfirðingar vom þó
ákveðnir í að verða liði sínu ekki til
skammar eftir leik og í stað orða
klöppuðu þeir óspart fyrir Sæmundi
þegar hann gekk til klefa síns, en
það var ljóst að það var ekki vegna
ánægju þeirra sem þeir klöppuðu.
Morgunblaðið/Björn Gíslason
Kristinn kom með boltann
KRISTINN Björnsson skíðakapplnn kunnl frá Ólafsfirðl, kom með
boltann í leikinn — að sjálfsögðu á skíðum. Hann gat rennt sér frá
skíðasvæði Ólafsfirðinga og niður að knattspyrnuvelllnum án vand-
ræða, en völlurinn er sem vin í eyðlmörk, svo mlkili snjór er í bænum.
T~
Rauðu spjöldin
gáfú leiknum lit
FH-ingar deila efsta sætinu með
Skagamönnum í 1. deild karla
í knattspymu, em með sex stig að
ggggg tveimur umferðum
Steinbór loknum, en þeir
Guðbjartsson sýndu enga snilldar-
skrifar takta í 2:0 sigri gegn
Grindvíkingum í
Kaplakrika á laugardag. Reyndar var
leikurinn mjög slakur og þó heima-
menn væm tveimur fleiri allan seinni
hálfleik og gott betur tókst þeim
ekki að nýta liðsmuninn.
Grindvíkingurinn Milan Jankovic
gerði sig sekan um algjör byijenda-
mistök þegar hann stöðvaði boltann
viljandi með hendi á 18. mínútu. Hann
var staddur á eigin vallarhelmingi rétt
innan miðlínu, engin hætta sem slík
en samt greip þessi öflugi miðvörður
til fyrmefnds ráðs og var réttilega
vikið af velli. Tómas Ingi Tómasson
lét sér þetta ekki að kenningu verða
heldur endurtók leikinn á marklínu 25
mínútum síðar, fékk að líta rauða
spjaldið og FH-ingar fengu vítaspymu
sem Hörður Magnússon skoraði úr.
Skömmu eftir hlé gerði Þorsteinn
Guðjónsson sjálfsmark og þar við sat.
FH-ingar vora ákveðnari til að
byija með og það litla sem sást af
spili var þeirra. Grindvíkingar hlupu
og börðust en reyndu ekki að byggja
markvisst upp og vom ósannfær-
andi. Eftir fyrri brottvikninguna
komust þeir samt meira inn í leikinn
og voru síst verri en seinni brottvikn-
ingin gerði vonir þeirra að engu.
Engu að síður vora þeir óheppnir að
fá annað markið á sig og vörnin stóð
sig vel í seinni hálfleik.
Tveimur færri ætluðu Grindvík-
ingar greinilega að hugsa fyrst og
fremst um að veijast en treysta síðan
á gagnsóknir. Vamarmennimir með
Þorstein Jónsson í fararbroddi sinntu
varnarhlutverkinu með sóma en
sendingarnar stóðu yfirleitt ekki und-
ir nafni. Þetta var nauðvörn og í
flestum tilvikum bara sparkað frá
en einn maður frammi gat lítið gert
umvafinn mótheijum. Samt sem áður
komu Grindvíkingar boltanum tvisv-
ar í net FH. í fyrra skiptið skoraði
Tómas Ingi en dæmd rangstaða og
undir lokin var um brot að ræða.
Það em sprækir piltar í FH-liðinu
og þeir áttu seinni hálfleik en tveim-
ur fleiri gerðu þeir þau mistök að
sækja stöðugt upp miðjuna í stað
þess að nota kantana. Fyrir bragðið
tókst þeim ekki að opna vörnina og
lítil sem engin hætta skapaðist nema
eftir fyrirgjafir utan af kanti. Hörður
Magnússon fékk besta tækifærið
tæpum stundarfjórðungi fyrir leiks-
lok en skaut í slá úr opnu færi eftir
hornspyrnu.
FH-ingar geta örugglega meira
en þeir voru á sama gönguhraðanum
allan tímann og nýttu ekki yfirburð-
ina. Það var helst Hallsteinn Arnar-
son sem reyndi að skapa eitthvað en
hann var alltaf að og mjög dugleg-
ur. Vamarmennirnir áttu náðugan
dag en Hörður var hættulegur
frammi.
Það verður að sækja til að skora
og sigra til að fá stig en það átti
ekki fyrir Grindvíkingum að liggja
að þessu sinni. Hins vegar fá þeir
plús fyrir öflugan vamarleik í seinni
hálfleik þar sem nafnarnir Þorsteinn
Jónsson og Guðjónsson létu ekkert
fram hjá sér fara en sá síðar nefndi
var óheppinn að skora í eigið mark.
Rauðu spjöldin reyndust dýrkeypt en
þegar á heildina er litið var það eini
liturinn sem setti mark sitt á leikinn.
B^^Ólafur H. Kristjáns-
■ ^#son tók homspyrnu
frá hægri á 48. mínútu. Boltinn
virtist á leið í fjærhornið uppi
en Tómas Ingi Tómasson varði
með hendi og réttilega dæmd
vítaspyrna. Hörður Magnússon
tók spyrnuna og skoraði af ör-
yggi í hornið niðri á 44. mínútu,
hægra megin við Hauk Braga-
son.
■ #\FH-ingar sóttu upp
■ Vrniiðjuna gegn vindi,
Hallsteinn Arnarson gaf fram
. og til hægri á Níels Dungal sem
sendi fyrir markið. Boltinn fór
í Grindvíkinginn Þorstein Guð-
jónsson og af honum í markið
á 49. mínútu. Klaufalegt.