Morgunblaðið - 01.06.1995, Side 8
Morgunblaðið/Golli
ÁSGEIR Elíasson, landsliðsþjálfari íslands í knattspyrnu, fyrir utan Scandlc Crown hótellð f Stokkhólmi í gær.
Getum jafnvel fagnað sigri
-segirÁsgeirElíasson, landsliðsþjálfari. ÓlafurAdolfsson
leikurvið hlið Guðna Bergssonarog Kristjáns Jónssonar
ÁSGEIR Elíasson landsliðsþjálfari tilkynnti í gær að það verð-
ur Ólafur Adolfsson sem leikur aftast með Guðna Bergssyni
og Kristjáni Jónssyni. „Ólafur er mjög sterkur skallamaður
og þar sem Svfarnir eru sterkir í Ipftinu í hornspyrnum og
aukaspyrnum, ákvað ég að tefla Ólafi fram. Þá er einnig gott
að hafa Ólaf þegar við fáum hornspyrnur og aukaspyrnur,"
sagði Ásgeir Elfasson í viðtali við Morgunblaðið eftir æfingu
landsliðsins í Vásby í gærmorgun.
Asgéir tilkynnti landsliðsmönn-
um sínum hvaða ellefu leik-
menn myndu byija leikinn gegn
Svfum, en þeir eru:
SigmundurÓ. Birkir Kristinsson,
Steinarsson Fram, Guðni Bergs-
skritarfnT son, Bolton, Kristján
Stokkhólmi Jónsson, Fram, Ól-
afur Adolfsson, Akranesi, Þorvald-
ur Örlygsson, Stoke, Hlynur Stef-
ánsson, Örebro, Arnór Guðjohnsen,
Örebro, Sigurður Jónsson, Akra-
nesi, Rúnar Kristinsson, Örgryte,
Amar Gunnlaugsson, Niimberg og
Eyjólfur Sverrisson, Besiktas.
„Miðjan er mjög sterkur hlekkur
í sænska liðinu og þá em þeir með
stórhættulega sóknarieikmenn, sem
við verðum að hafa gætur á — leik-
menn sem em fljótir og geta fengið
langa sendingar í gegn. Þess vegna
verðum við að vera í góðu standi
aftast og miðjunni. Allt liðið verður
að vinna vel saman — veijast þegar
við emm ekki með knöttinn og
reyna síðan ef möguleiki gefst að
sækja hratt. Annars væri það mjög
gott fyrir okkur ef við fengjum frið
til að halda knattinum, þegar gefst
ekki tækifæri til að sækja hratt,“
sagði Ásgeir.
-Reiknarðu með mikilum látum
í byijun leiksins?
„Já, ég reikna með því. Ég reikna
með að Svíar muni pressa okkur
alveg inn í vítateig hjá okkur —
verða framarlega, þar sem þeir
verða að vinna þennan leik. Þeir
vita eins og við sjálfír, að við emm
kannski ekki með bestu spymu-
mennina okkar aftast í vörninni,
þannig að þeir muna ömgglega
gefa okkur lítinn tíma til að leika
knettinum fram á miðjuna. Okkar
sóknarleikur byggist á því hvað við
getum sent góða bolta fram á miðj-
una og hvað lengi við getum haldið
þeim þar.“
-Að öllu eðlilegu eiga Svfar að
fara með sigur afhólmi hér f Stokk-
hólmi, er það ekki?
„Auðvitað hljóta líklegustu úr-
slitin að vera sigur Svía, þar sem
þeir leika heima, en það má ekki
gleyma því að þeir era í vandræðum
þar sem margir lykilmenn þeirra
leika ekki með. Pressan verður mik-
il á Svíum og þeir gætu opnað sig
þessvegna. Ef við leikum góðan og
heilsteiptan leik út í gegn og höldum
einbeitingu allan leikinn, þá eigum
við ágætan möguleika í leiknum —
að ná jafntefli eða jafnvel að fagna
sigri. Raunhæft horft á málið, þá
verðum við að telja þá líklegri til
að vinna leikinn," sagði Ásgeir.
Ásgeir tilkynnti ekki landsliðs-
mönnum í gær, hvaða tveir leik-
menn verða ekki með af þeim átján
sem em hér. „Ég hef haft þetta
þannig að ég sting því að þeim
tveimur mönnum sem hvíla. Þetta
er einn hópur, eitt lið og svo eru
það tveir leikmenn sem eiga ekki
möguleika á að fara inná í leiknum.
Ég tilkynni þeim tveimur leikmönn-
um það í rólegheitunum á morgun
[í dag]. Mér finnst best að hafa það
þannig og einnig strákunum."
Arnar undir hnífinn
ARNAR Gunnlaugsson, sóknar-
leikmaður landsliðsins, verður
að fara undir hnífinn fljótlega
eftir landsleikinn gegn Ungverj-
um á Laugardalsvellinum. „Það
að er |jóst að ég verð að fara í
uppskurð eftir síðasta leik
NUmberg, sem er helgina eftir
leikinn gegn Ungveijum,“ sagði
Arnar, sem verður skorinn upp
á Islandi. Skorið verður á utan-
verða leggina, þar sem sina- og
vöðvaþrengsli era. „Ég reikna
með að það taki fjórar til fimm
vikur að jafna sig eftir aðgerð-
ina,“ sagði Araar, en í fyrstu
var talið að hann væri með bein-
himnubólgu. Amar hefur átt við
þessi þrálátu meiðsli að stríða
frá áramótum — varð t.d. að
fara af leikvelli í leikhléi gegn
Chilemönnum í Chile, þar sem
hann stífnaði allur upp á leggj-
unum og gat varla hlaupið. „Það
er undarlegt að þetta skuli ekki
uppgvötvast fyrr en hér í Sví-
þjóð, þar sem ég hef verið þjá
læknum í Þýskalandi, sem töldu
þetta beinhimnubólgu. Læknir-
inn hér þurfti ekki annað en
skoða mig í tvær mínútur, til
að finna út hvað væri að,“ sagði
Amar.
KNATTSPYRNA
Evrópukeppni U-21
Enntapa
piltamir
Jón
Gunnlaugsson
skrifar
frá Sundsvall
Islendingar máttu sætta sig við
1:0 tap gegn Svíum í Evrópu-
keppni U-21s árs liða í knattspymu
en leikurinn fór
fram í Sundsvall í
Svíþjóð í gærkvöldi.
íslendingar fengu
vítaspymu um miðj-
an fyrri hálfleik, en markvörður
Svía varði og síðan skomðu heima-
menn á 54. mínútu. Leikurinn var
ekki sérlega góður. en einkenndist
af mikilli baráttu og sigur Svía var
sanngjam.
Svíar vom ákveðnir strax í byij-
un og þegar á þriðju mínútu fengu
þeir ágætt færi en Ámi Gautur
varði vel. Eftir stundarfjórðung áttu
þeir þramuskot yfir mark íslands
en á 20. mínútu var Pálma bragðið
innan teigs. Kári Steinn tók vítið
en markvörður Svía varði vel.
í seinni hálfleik vom Svíar ávallt
sterkari og þá fengu þeir þijú góð
færi en gerðu aðeins eitt mark. Það
kom eftir hornspymu, skallað var
frá marki en boltinn barst aftur inn
í teig og Niklas Skoog gat ekki
annað en skorað þar sem hann var
í dauðafæri við fjærstöng.
íslendingar sóttu stíft undir lokin
án þess að skapa sér góð færi og
gagnsóknir Svía skiluðu ekki ár-
angri.
Ami Gautur stóð sig vel í mark-
inu og varnarmennirnir vörðust vel
en miðvallarspilið var ekki nógu
markvisst og Islendingar áttu í vök
að veijast. Rútur Snorrason stóð
sig vel á vinstra vængnum í fyrsta
landsleik sínum en aðrir geta gert
betur.
„Ég er ekki sáttur við úrslitin,“
sagði Hörður Helgason, þjálfari
liðsins, við Morgunblaðið. „Ég vildi
fá mörk og við fengum gullið tæki-
færi en markvörður Svía gerði vel
að veija vítið. Reyndar töluðum við
um fyrir leikinn að ef við fengjum
víti ætti Eiður Smári að taka það
en þegar til kom treysti hann sér
ekki til þess.“
Hörður var samt ánægður með
spilið og baráttuna en fannst súrt
að tapa. „Við spiluðum vel vamar-
lega en það vantaði brodd í sóknina
því sendingar framiðjunni vom ekki
nógu góðar. í svona leikjum er ekki
hægt að búast við mörgum mark-
tækifærum en það verður að nýta
þau þegar þau koma. Það tókst
ekki og því fór sem fór.“
Svíþjóð - ísland 1:0
Sundsvall f Svlþjóð, Evrópukeppni U-21s
árs liða í knattspymu, miðvikudaginn 31.
maí 1995.
Aðstæður: Völlurinn góður og um 18 stiga
hiti.
Mark Svfþjóðar: Niklas Skoog (54.).
Gult spjald: Hermann Hreiðarsson (72.)
fyrir brot.
Rautt spjald: Enginn.
Dómari: Vladimir Ovtchinnikov frá Rúss-
landi var góður.
Áhorfendur: 4.455.
Svíþjóð: Klaes Green - Mathias Thylander,
Teddy Lucic, Ola Nilsson, Sebastian Hen-
riksson - Jesper Jung, Magnus Pehrson,
Jens Gustavsson, Matthias Johansson -
Eric Wahlstedt, Niklas Skoog.
fsland: Árni Gautur Arason - Sturlaugur
Haraldsson, Óskar Hrafn Þorvaldsson, Pét-
ur Marteinsson, Hermann Hreiðarsson -
Auðun Helgason, Pálmi Haraldsson (fvar
Bjarklind 77.), Lárus Orri Sigurðsson -
Kári Steinn Reynisson (Tryggvi Guðmunds-
son 64.), Eiður Smári Guðjohnsen, Rútur
Snorrason.
StaAan í 3. riðli
Ungverjaland.........4 4 0 0 6:2 12
Svíþjóð..............6 3 1 2 8:3 10
Tyrkland.............5 2 2 1 7:3 8
Sviss................5 1 1 3 3:10 4
ísland...............4 0 0 4 1:7 0
VIKINGALOTTO: 1 14 22 23 37 39 + 24 36 42