Morgunblaðið - 23.06.1995, Blaðsíða 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
1995
JR|0r$uttMa$>fö
■ FÖSTUDAGUR 23. JÚNÍ
BLAD
KNATTSPYRNA
Morgunblaðið/Sigfús G. Guðmundsson
Morgunblaðið/Sigurgeir
ÞORBERGUR með Stefáni Agnarssyni, for-
manniÞórs, sem sér um rekstur handbolta-
iiðs ÍBV, eftlr undirskrift samnlngsins.
Þorbergur
þjálfar IBV
ÞORBERGUR Aðalsteinsson, fyrrum landsliðsþjálfari
í handknattleik, skrifaði í gær undir eins árs samning
við íþróttabandalag Vestmannaeyja, um þjálfun 1.
deildarliðs ÍBV. „Það er gaman að vera kominn hing-
að á ný,“ sagði Þorbergur, sem byrjar þjálfun 10.
júlí. „Við munum halda öllum leikmönnum sem léku
með liðinu í fyrra og stefnum að því að ná í alla „lund-
ana“ sem eru uppi á landi," sagði Þorbergur og átti
hann þá við Eyjamenn sem leika nú með öðrum lið-
um, leikmenn eins og Sigmar Þröst Óskarsson, KA,
Björgvin Rúnarsson, Selfossi, Guðfinn Kristmannsson,
ÍR, Hlyn Jóhannsson, HK, Hugin Egilsson, Gróttu og
Víkingana Hinrik Bjarnason og Helga Bragason.
Þorbergur mun einnig vinna að sérverkefnum fyrir
Vinnslustöðina hf., við að markaðsetja vörur fyrirtæk-
isins á innanlandsmarkaði.
Ince til Inter
ENSKI landsliðsmaðurinn Pául Ince, einn besti leik-
maður ensku meistaranna Manchester United síðustu
árin, samdi í gær til þriggja ára við ítalska félagið
Inter í Mílanó. Samningurinn var undirritaður í Manc-
hester. Ekkert var gefið upp varðandi fjárhagslið
samningsins, en skv. fréttum greiðir ítalska félagið
sjö milljónir punda fyrir leikmanninn — andvirði um
707 milljóna króna — og í Independent fyrir helgina
sagði að hann fengi 40.000 pund í vikulaun; andvirði
rúmlega fjögurra milljóna króna.
Ince er 27 ára. Hann hóf ferilinn hjá West Ham
en var keyptur til Manchester United 1989 fyrir ein
milljón punda. Með félaginu hefur hann tvívegis fagn-
að sigri í ensku bikarkeppninni og tvisvar orðið ensk-
ur meistari — í fyrra og hitteðfyrra. Hann er fastur
maður í enska landsliðinu.
Einar á ferðina
EINAR Vilhjálmsson, íslandsmethafi í spjótkasti, tek-
ur þátt i Meistaramóti íslands, sem fer fram á Laugar-
dalsvellinum um helgina. Metkast Einars er 86,80
m, sett á Laugardalsvellinum 30. ágúst 1992. Það eru
liðnir tíu mánuðir síðan Einar keppti síðast í spjót-
kasti — í Bikarkeppni FRÍ í ágúst í fyrra í Laugardaln-
um og kastaði hann spjótinu þá 71,40 m.
Einar, sem hefur átt yið þrálát meiðsli að striða
undanfarin ár, hefur æft vel að undanfömu og sett
stefnuna á Ólympíuleikana í Atlanta 1996. Hann kem-
ur örugglega til með að veita Sigurði Einarssyni harða
keppni — Sigurður hefur kastað lengst 77,10 m í ár.
Hann fór með sigur af hólmi síðast þegar þeir kepptu,
í bikarkeppninni fyrir tæplega ári — kastaði 74,76 m.
IA vann KR ítoppslagnum og Eyjamenn burstuðu FH-inga
„Skaginn að stinga af“
Markahá-
tíð í Eyjum
EYJAMENN voru í miklum ham
í gærkvöldi þegar þeir tóku á
móti FH í 5. umferð Islandsmóts-
ins í knattspyrnu. Þeir slógu upp
veislu og sigruðu með sex mörk-
um gegn þremur. Leifur Geir
Hafsteinsson átti stórleik og fór
fremstur í flokki samherja sinna
og skoraði tvö mörk eins og og
Rútur Snorrason. Hér fagna þeir
einu marka sinna úr veislunni,
f.v. Leifur Geir Hafsteinsson,
Hermann Hreiðarsson, Rútur
Snorrason, Ingi Sigurðsson og
Dragon Manojlovic.
■ Leikirnir / C2
Islandsmeistarar ÍA hafa sex stiga
forystu á KR-inga, sem eru í
öðru sæti, eftir signr á Vesturbæ-
jarliðinu, 2:0 á Akranesi í gær-
kvöldi í 1. deild karla í knatt-
spyrnu. Sigurinn var öruggur.
^Þetta var aldrei nógu gott og
við komum seint og illa inní leik-
inn. Veðrið spilaði eitthvað inní en
samt eiga menn að reyna að spila
fótbolta og veðrið var jafnvont fyr-
ir þá,“ sagði Guðjón Þórðarson
þjálfari KR-inga eftir leikinn.
„Mér finnst að leikmenn geti
meira en ná ekki að einbeita sér
að litlu hlutunum og klára þá.
Skagamenn spiluðu alveg eins og
ég átti von á, beita löngum sending-
um og pressa, vinna mikið uppúr
hornum og innköstum og eru stór-
hættulegir með það. Við ætluðum
að gera það sem þarf á þessa menn,
að halda boltanum í liðinu og spila
niðri og færa eftir því, en það gekk
ekki. Við fengum að vísu tvö til
þrjú færi en þeir fengu líka fullt
af þeim í fyrri hálfleik. Það virtist
ekki vera samheldni til að vinna í
leiknum," bætti Guðjón við og virt-
ist ekki mjög bjartsýnn á gæfu
sinna manna: „Ég hef ekki mikla
ástæðu til að vera bjartsýnn og Ijóst
að Skaginn er að stinga af. Það sem
bíður okkar er að beijast á hæl og
hnakka til að reyna að hanga í
öðru sætinu í deildinni og halda
Því. Ég held að það sé alveg ljóst
að Skagamenn sigla fulla ferð og
fara seglum þöndum,“ sagði Guðjón
Þórðarson, þjálfari KR.
„Þetta var ljúfur sigur og náttúr-
lega mikilvægur 6 stiga leikur og
spuming um hvort við ætluðum að
hleypa þeim upp að okkur eða skilja
þá eftir 6 stigum á eftir. Nú er þetta
orðið þannig að það þarf mikið að
gerast til a'ð til þetta lið nái okkur,“
sagði Logi Ólafsson, þjálfari Skaga-
manna, eftir sigurinn á KR. „Hlut-
imir sem við lögðum upp fyrir þenn-
an leik gengu bærilega upp og við
ætluðum að stoppa ákveðið mál i
þeirra leik. Það er hvemig þeir spila
með tvo útiliggjandi kantmenn og
eru duglegir að komast á bak við
vömina og okkur tókst að koma í
veg fyrir það. Það spilar ekkert lið
betur en andstæðingurinn leyfír
þannig að ég held að þetta hafi ver-
ið eðlilegur leikur af okkar hálfu.“
I öðrum leikjum kvöldins sigruðu
Eyjamenh FH-inga 6:3, Leiftur sigr-
aði Val 2:1 og Grindavík og Fram
gerðu jafntefli, 2:2.
HESTAR: LÍNUR FARNAR AÐ SKÝRAST Á ÚRTÖKUMÓTINU FYRIR HM/C4