Morgunblaðið - 02.07.1995, Síða 1
REYNSLUAKSTUR Á PEUGEOT306 SL - KRAFTMIKLIR SPORTBÍL-
AR FRÁ BANDARÍKJUNUM ALKÓHÓLMÆLIR FYRIR ÞÁ ÖKU-
LEYFISSVIPTU — HVERNIG FARNAST FJÖLNOTABÍL UM í EVRÓPU
1995
BLAÐ
ALMENNAR
Kringlunni 5 - sími 569-2500
SUNNUDAGUR 2. JÚLÍ
SAAB 900 S kemur í haust og
kostar frá 1.869 þúsund kr. fimm
dyra billinn.
Saab til
Bílheima
í haust
Tveggja sæta
Tulip rafbílar
PSA (Peugeot og Citroen) telur
að framtíðin liggi í tveggja sæta
rafbílum sem brúi bilið milli al-
menningssamgangna og hefð-
bundinna fólksbíla. Samsteypan
hefur smíðað hugmyndabílinn
Tulip sem er stytting á franska
hugtakinu Transport Urbain Libre
Individuel et Public. í bílnum er
að finna tvær verkfræðilegar nýj-
ungar, þ.e. þráðlausa rafhleðslu
og yfirbyggingu úr frauðkjarna
og trefjagleri. PSA kveðst alvar-
lega íhuga að hefja framleiðslu á
tveggja sæta rafbílum um næstu
aldamót.
Tulip kerfið byggir á neti
hleðslustöðva sem eru upphafs-
og áfangastaður bílsins. Notendur
Tulip yrðu áskrifendur að kerfinu
og hefðu sína eigin fjarstýringu
sem bæði ræsir bílinn og mælir
hleðslu hans í hvert sinn sem hann
er notaður.
Tilraunahleðslustöðvar á
næsta ðrl
A sérstakri móðurstöð yrði öll
þjónusta veitt jafnframt því sem
hún sæi um reikningshald vegna
notenda og viðgerðir á öllum Tulip
bflum. Nýmæli er að hleðsla á
rafgeymum fer fram með þráð-
lausum hætti. Bílnum er einfald-
lega lagt yfir kefli á jörðinni og
segulorka frá keflinu sér um að
hlaða rafgeymana á fjórum
klukkustundum.
PSA hefur líka brotið nýtt blað
í efnisnotkun í Tulip bflana. Ráð-
gert er að bíllinn, sem er 2,13 m
að lengd, verði smíðaður úr efnum
sem einna helst þekkjast í bátum.
Ytra byrðið verður úr tveimur lög-
um af trefjagleri styrkt með einu
lagi af frauðkjarna og innra byrð-
ið aftur með tveimur lögum af
trefjagleri. Yfirbyggingin verður
því samsett úr fjórum lögum sem
eru límd saman. Með þessari bygg-
ingaraðgerð segir PSA að bíllinn
þoli 87% meira högg en samsvar-
andi bíll úr stáli.
Ráðgert er að settar verði
upp tilraunahleðslustöðvar í
Tours í Frakklandi á næsta
ári og notast verður við raf-
útfærslur af Peugeot 106
og Citroén AX. Líklegt
þykir að mikill kostnaður
og flókið ferli við upp-
setningu hleðslustöðva
verði til þess að í upp-
hafi Tulip-áætlunarinn-
ar verði eingöngu reistar
hleðslustöðvar á afmörk-
uðum svæðum í borgum.
TULIP er lítill og lágur en hagkvæmur og umhverfisvænn. Innanrým-
ið er engu líkt og bíllinn rúmar tvo fullorðna.
leysi Explorer af hólmi.
MARKAÐSRANNSÓKNIR hafa hafist í
Bretlandi vegna hugsanlegrar smíði á
Jaguar jeppa sem gengur undir vinnu-
heitinu LUX. Hópi Jaguar eigenda voru
sýndar tölvuunnar myndir af þremur
útfærslum af jeppa, aUt frá Ford Explor-
er með Jaguar merkinu til mun róttæk-
ori hugmynda, svipuðum þeim sem
greint var frá á þessum síðum í febrúar
síðastliðnum. Eigendunum var sagt að
bðlinn yrði smíðaður í verksmiðjum
Ford í Bandaríkjunum og yrði að mestu
hyggður á bandarfskri fyrirmynd,
þ.e.a.s. jeppa framleiddum af Ford.
Kjörorðið sem kynnt var fyrir Jaguar
eigendum var „Byggður af Ford en fín-
pússaður af Jaguar“. Viðbrögð eru sögð
hafa verið blendin. Markaðskönnun var
einnig gerð meðal breskra eigenda
dýrra jeppa eins og Range Rover og
Mitsubishi Shogun. Nýlega var gerð
svipuð könnun meðal Jaguar eigenda
og jeppaeigenda í Bandaríkjunum en
þeim voru sýnd leirlikön af hugsanlegum
útfærslum. Jeppaáætlun Jaguar er eink-
um tilkomin vegna mikillar sölu á jepp-
um um allan heim, en þó aðallega í
Bandarílgunum. Núverandi áætiun
gengur út á það að nýr Jaguar jeppi
leysi af hólmi Ford Explorer, en Jagu-
ar, hið fornfræga enska bílamerki, er
sem kunnugt er að stærstum hluta í eigu
Ford. Yfirbyggingin yrði þó önnur og
líklegt þykir að bíllinn yrði með loftp-
úðafjöðrun. Vél og drif kæmi hins vegar
úr hillum Ford. Ráðgert er að bíUinn
komi á markað 1998.
FYRSTU Saab bílarnir sem hingað
koma til lands eftir að Bílheimar
hf. fengu umboð fyrir merkinu
koma til landsins í september. Bíl-
amir, sem er af árgerð 1996, verða
á verði frá 1,869 þúsund kr. til
2.875 þúsund kr.
Verðblllð mllljón
Saab 900 með 2,0 lítra, sextán
ventla vél kostar frá 1.869 þúsund
kr. kr. Staðalbúnaður í bílnum er
m.a. líknarbelgur, ABS-heml-
alæsivöm og rafdrifnar rúður. 900
S bíllinn, sem er enn betur búinn
kostar'1.989 þúsund kr., 900 SE
með 2,0 lítra vél með forþjöppu
kostar 2.465 þúsund kr. Saab
9000 CX 2,0 kostar 2.275 þúsund
en með LPT forþjöppu kostar hann
2.337 þúsund kr. Saab 9000 með
2,3 lítra vél kostar 2.875 þúsund
kr. Oll þessi verð em miðuð við
fimm dyra bíla.