Morgunblaðið - 18.08.1995, Blaðsíða 1
LÆGSTA VIRÐ
BILALEIGUBILA
I EVROPUI
Spánn fr.
Bretland
Danmörk
Frakkland
Holland
Noregur
Portúgal
Sviss
Þýskaland
Innifalifi i verfii er: kaskótryagina, lekkun sjálfsábyrgfiar,
trygging f. stuld og aíla sfafibundna skatta.
kr/vika
13.200
13.020
18.900
19.900
17.700
28.900
13.060
16.660
15.260
Sérmerktir
Flugleiðagripir
í NÝJUSTU Flugleiðafréttum
er sagt frá því að þeir sem hafa
áhuga á geti keypt ýmsa muni
og hluti sem eru merktir flugfé-
laginu eins og tíðkast hjá ýms-
um erlendum flugfélögum. Eru
það meðal annars mittistöskur,
nafnspjaldaveski, T-boiir,
skjalatöskur og fleira.
Vala Jónsdóttir í auglýsinga-
eftirliti Flugleiða hefur umsjón
með þessari litlu búð. Hún sagði
aðspurð að vegna plássleysis
yrðu þessar vörur ekki seldar
um borð í vélunum að minnsta
kosti ekki í nánustu framtíð en
hins vegar gætu menn keypt
þetta hjá henni.
Yms flugfélög hafa lista yfir
vörur, sérmerkta viðkomandi
flugfélagi, svo sem ýmsar tösk-
ur, boli og fleira. Farþegar geta
síðan fyllt út kauplista og vör-
urnar eru sendar þeim heim.
Meðal þeirra er t.d.
Austrían Airíines
sem hefur afar
litskrúðugar
vörur á sín-
um lista og
er dtjúg
sala í
þeim í
flugferð-
um. ■
Líf og fjör
á götumarkaði í
Kringlunni
ÞAÐ var handagangur í öskj-
unni þegar götumarkaðurinn í
Kringlunni opnaði í gær enda
er hægt að gera reyfarakaup
ef fólk vill leggja á sig að leita
í örtröðinni. Þeir sem Daglegt
líf gaf sig á tal við sögðust
skemmta sér konunglega og
gaman væri að gramsa og
skoða sem flest.
Margir foreldrar voru með
börnum sínum, hinum væntan-
legu nemendum grunnskóla að
kaupa töskur og hvers kyns
skóladót. Þarna voru til sölu
skólatöskur á fimm hundruð
kall, strokleður á tíkall og
pennaveski á fimmtíu krónur.
Einnig gátu viðskiptavinir
gert góð kaup á alls konar
fatnaði og má nefna að bómull-
arnáttkjólar á stelpur eru á tvö
hundruð, „leggings" á þrjú
hundruð, dúkar á tvö hundruð
krónur og svo framvegis.
Götumarkaðurinn heldur
áfram í dag og honum lýkur á
morgun, laugardag, kl. 18. ■
Aætlunarferðir
um ferdamanna-
staði næsta sumar
NÆSTA sumar hefjast áætlunarferðir um
helstu ferðamannastaði í Reykjavík á vegum
Kynnisferða. Að sögn Kristjáns Jónssonar,
frkvstj. er þetta reynt í tilraunaskyni en ef
vel gengur má búast við að slíkar ferðir verði
á hverju sumri og jafnvel einnig á öðrum árs-
timum ef ástæða þykir til. Áætlunarleiðin er
enn ekki fuilmótuð en að sögn Helgu Maríu
Bragadóttur, rekstrarhagfræðings á Árbæjar-
safni, sem átti hugmyndina verður hún látin
ráðast af áhuga ferðamannanna; Meðal lík-
Iegra viðkomustaða eru Perlan, Árbæjarsafn,
Kjarvalsstaðir, Höfði, Þjóðminjasafnið og fleiri
vinsælir ferðamannastaðir en miðstöð ferð-
anna verður í Lækjargötu. Ráðgert er að
hringferð taki um U/2 kist. og að tveir vagnar
verði í förum.
Svipaðar ferðir tíðkast í helstu borgum
Evrópu og Bandaríkjanna og hafa verið _að
ryðja sér til rúms að sögn Helgu Maríu. „Ég
held að þetta sé ekki síður hentugt hér, sér-
staklega með tilliti til veðráttunnar," segir
Helga María. Hún telur að söfn, ferðaþjónustu-
fyrirtæki og verslanir á viðkomustöðunum
muni njóta mjög góðs af. E.t.v. mun afsláttar-
kort fylgja farmiðanum svo sem er erlendis í
slíkum ferðum.
Helga María hefur unnið að undirbúningi
þessarar hugmyndar síðan í vor en síðustu
vikur hefur hugmyndin verið rædd á fundum
með Önnu Margréti Guðjónsdóttur, nýráðnum
ferðamálafulltrúa Reykjavíkur, Kristjáni Jóns-
syni, frkvstj. og fulltrúum safna. í haust og
vetur verður safnað upplýsingum um heppileg-
ustu viðkomustaði í þessum ferðum. ■
Fólk 17-24 ára
á aðild að þriðjungi slysa
Á SÍÐASTA ári slösuðust eða létust 1.485 einstaklingar í umferðinni hér-
lendis en það er 2,3% aukning frá árinu áður.
Fólk á aldrinum 17-24 ára átti í um þriðjungi tilvika aðild að slysum
árið 1994. Þessi sami aldurshópur er líka með hæst hlutfall þegar aldurs-
dreifing alvarlegra slasaðra eða látinna í umferðinni er skoðuð. Alls 310
ungmenni á aldrinum 17-20 ára slösuðust í umferð-
inni sl. ár sem er um 19%. Sem fyrr látast hlut-
fallslega flestir á aldrinum 17-20 ára. Alls létust
97 á þeim aldri á árunum 1972-1994 sem er að
meðaltali 24 úr hverjum aldursárgangi. Þetta
kemur fram í skýrslu Umferðarráðs um umferð-
arslys á íslandi árið 1994 en upplýsingar um
umferðarslys fær Umferðarráð hjá lögreglu.
Hins vegar er dánartíðni í umferðarslysum
mjög lág hér á lándi og sé skoðuð dánartala
látinna í umferðinni í alþjóðasamtökum umferðar-
ráða deila íslendingar næst neðsta sæti með Norð-
mönnum en dánartalan er lægst í Kína. Flest umferðar-
slys áttu sér stað í júlí á síðastliðnu ári eða alls 188 talsins.
Samkvæmt könnun Umferðarráðs urðu flest slysin á föstudögum
og hæst var tíðnin milli klukkan 15 og 16 á daginn og síðan milli klukk-
an 17 og 18. ■
, ÞAÐER FOLLT AF KALKI
IES3UNNI. M3ÖLKIN ER BARA
MIKLU BRA6ÐBETRIS
M%/
ISLENSKIR TANNFRÆÐINGAR