Morgunblaðið - 22.08.1995, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 22.08.1995, Blaðsíða 26
26 C ÞRIÐJUDAGUR 22. ÁGÚST 1995 MORGUNBLAÐIÐ MmSBLAÐ SlliJlv\l>lR ■ SÖLUUMBOÐ - Áður en fasteignasala er heimilt að bjóða eign til sölu, ber honum að hafa sérstakt söluumboð frá eiganda og skal það vera á stöðluðu formi sem dómsmálaráðuneytið staðfestir. Eigandi eignar og fasteignasali staðfesta ákvæði söluumboðsins með undirritun sinni á það. Allar breytingar á söluumboði skulu vera skrifleg- ar. í söluumboði skal eftirfar- andi koma fram: ■ TILHÖGUN SÖLU - Koma skal fram, hvort eignin er í einkasölu eða almennri sölu, svo og hver söluþóknun er. Sé eign sett í einkasölu, skuldbindur eigandi eignarinnar sig til þess að bjóða eignina aðeins til sölu hjá einum fasteignasala og á hann rétt til umsaminnar sölu- þóknunar úr hendi seljanda, jafnvel þótt eignin sé seld ann- ars staðar. Einkasala á einnig við, þegar eignin er boðin fram í makaskiptum. - Sé eign í al- mennri sölu má bjóða hana til sölu hjá fleiri fasteignasölum en einum. Söluþóknun greiðist þeim fasteignasala, sem selur eignina. ■ AUGLÝSINGAR - Aðilar skulu semja um hvort og hvern- ig eign sé auglýst, þ.e. á venju- legan hátt í eindálki eða með sérauglýsingu. Fyrsta venjulega auglýsing í eindálki er á kostnað fasteignasalans en auglýsinga- kostnaður skal síðan greiddur mánaðarlega skv. gjaldskrá dagblaðs. 011 þjónusta fast- eignasala þ.m.t. auglýsing er virðisaukaskattsskyld. ■ GILDISTÍMI - Tilgreina skal hve lengi söluumboðið gild- ir. Umboðið er uppsegjanlegt af beggja hálfu með 30 daga fyrirvara. Sé einkaumboði breytt í almennt umboð gildir 30 daga fresturinn einnig. ■ GREIÐSLUSTAÐUR KAUPVERÐS - Algengast er að kaupandi greiði afborganir skv. kaupsamningi inn á banka- reikning seljanda og skal hann tilgreindur í söluumboði. ■ ÖFLUN GAGNA/SÖLU- YFIRLIT - Áður en eignin er boðin til sölu, verður að útbúa söluyfírlit yfír hana. Seljandi skal leggja fram upplýsingar um eignina, en í mörgum tilvik- um getur fasteignasali veitt aðstoð við útvegun þeirra skjala sem nauðsynleg eru. Fyrir þá þjónustu þarf að greiða, auk beins útlagðs kostnaðar fast- eignasalans við útvegun skjal- anna. í þessum tilgangi þarf eftirfarandi skjöl: ■ VEÐBÓKARVOTTORÐ- Þau kosta nú 800 kr. og fást hjá sýslumannsembættum. Opnunartíminn er yfirleitt milli kl. 10.00 og 15.00. Áveðbókar- vottorði sést hvaða skuldir (veð- bönd) hvíla á eigninni og hvaða þinglýstar kvaðir eru á henni. ■ GREIÐSLUR - Hér er átt við kvittanir allra áhvílandi lána, jafnt þeirra sem eiga að fylgja eigninni og þeirra, sem á að aflýsa. ■ FASTEIGNAMAT - Hér er um að ræða matsseðil, sem Fasteignamat ríkisins sendir öll- um fasteignaeigendum í upp- hafi árs og menn nota m.a. við gerð skattframtals. Fasteigna- mat ríkisins er til húsa að Borg- artúni 21, Reykjavík sími 614211. Opiðvirkadaga kl. 9.00-18.00 ______jf______ Félag Fasteignasala FASTEIGNASALA • AUSTURSTRÆTI 18 • EYMUNDSSON HUSINU S. 511 3030 Haukur Geir Garðarsson, viðskiptafræðingur Guðmundur Valdimarsson, sölumaður Óli Anfonsson, sölumaður Gunnar Jóhann Birgisson, hdl Sigurbjöm Magnússon, hdl/lögg. fasteignasali FAX 511 3535 VANTAR EIGNIR ÁSKRÁ. HRINGIÐ STRAX! ÞJONUSTUIBUÐIR Gullsmári — Kóp. Fullb. 2ja herb. íbúðir í nýju lyftuh. fyrir eldri borgara. Stutt í alla þjónustu. EINB., PARH. OG RAÐHUS Hjallaland Vorum að fá í sölu 220 fm endaraðhús á tveim- ur hæðum auk bílsk. 5 svefnherb. Laust fljótl. Verð 13,8 millj. Austurbrún — skipti Fallegt og vandað 211 fm raðh. á tveimur hæðum ásamt bílsk. á þessum vinsæla stað. Parket, marmari. Laust strax. Lyklar á skrifst. Móaflöt — Gbæ Fallegt og vel umgengið 130 fm endaraðh. á einni hæð ásamt tvöf. bílsk. Arinn. Góður garður. Hiti í plani. Verð 12,6 millj. Ákv. sala. Furubyggð — Mos. Nýl. vandað parh. á tveímur hæðum ásamt risi og bilsk. MjÖg vandaðar innr. Parket. Sólskóíí. Áhv. 7,7 mifij. husbr. Bein sala eða skipti á ódýrari eign. Verð 11,4 míílj. Dverghamrar Glæsil. einb. á sjávarlóð, tvær hæðir með innb. tvöf. bílsk. samt. 283 fm. Húsið er sérstakl. vandað m.a. eldhinnr., innihurðir og skápar úr mahogny. Fallegt útsýni. Skipti ath. á ódýr- ari eign. Áhv. 10 millj. góð langt. lán. V. 19,8 m. Reynilundur — Gbæ Glæsil. 256 fm einbhús á einni hæð m. góðum innb. tvöf. bílskúr. Stórar stofur, arinstofa, 4 svefnh. Parket. Um 30 fm sólskáli meö heitum potti. Eign fyrir vandláta. Verð 19,0 millj. Depluhólar — tvíbýli Vorum að fá í sölu á frábærum útsýnisstað við Depluhóla tveggja íbúða hús samt. 240 fm. Stærri íb. er 4ra-5 herb. og sú minni 2ja-3ja herb. Innb. bflsk. Suður- og vesturverönd. Heitur pottur. Bein sala eða skipti á ódýrari eign. Verð aðeins 16,5 millj. Hafnarfjörður — skipti Vorum að fá í einkasölu glæsil. raðh. á tveim- ur hæðum með mögul. á séríb. á jarðh. Vönd- uð innr. og gólfefni. Skipti ath. á ódýrarí. Álfholt - Hf. Nýtt raðhús á tveimur hæðum 176 fm m. innb. bflsk. Vandað eldh. Áhv. 6,1 millj. húsbr. Hagst. verð 10,9 millj. Hveragerði Gott einb. á einni hæð ásamt bflsk. og i mögul. á sóríb. á jarðh. Hesthús, gróð- urhús og sundlaug. Myndir og nánari uppl. ó skrifst. Mosfellsbær — laust Fallegt einb. á einni hæð ásamt. tvöföldum 52 fm. bflskúr. Stofa, borðst., 3-4 svefnh. Eldh. með nýjum innr. og tækjum. Arinn. Nýtt þak. Fallegur suðurgarður. Laust. Bein sala eða skipti á ód. eign. Laust strax. Lyklar hjá Fram- tíðinni. V. 12,0 m. HÆÐIR í Hlíðunum — skipti Mjög falleg og mikið endurn. hæð ásamt bflsk. í góðu fjórb. Nýl. eldh. og baðh. Parket. Áhv. 2,4 millj. byggsj. Bein sala eða skipti á 2ja- 3ja herb. íb. Verð 8,9 millj. Fannafold Stór sérhæð á tveimur hæðum í tvíbýlish. ásamt innb. bflsk., samtals 280 fm. Sérinng. á jarðhæð. Mjög góð staðetn. Verð 12,9 millj. 4RA-6 HERB. Vesturbær Góð 5 herb. íb. á efstu hæð í fjölb. sem er nýviðg. og máluð. Stofa, 4 svefnherb. Áhv. byggsj. 3 millj. Hagstætt verð 6,9 millj. Keilugrandi — laus Falleg 4ra-5 herb. á 3. hæð í góðu fjölb. Áhv. góð langtlán. Laus strax. Dúfnahólar — útsýni Mjög falleg og rúmg. 103 fm íb. ofarl. í lyftuh. með frábæru útsýni. Parket. Hús nýl. tekið í gegn að utan og yfirb. svalir. Laus fljótl. Eiðistorg Falleg 4ra-5 herb. íb. á 1. hæð í fjölb. 126 fm. Skiptist í stofur og 2 herb. á 1. hæð og ein- staklíb. í kj. u. íb. Verð 9,3 millj. Kjarrhólmi Falleg 4ra herb. íb. á 3. hæð í góðu nýl. viö- gerðu fjölb. Þvhús í íb. Verð 7,4 millj. Ugluhólar — laus Góð 4ra herb. íb. á 2. hæð í litlu fjölb. Bflsk. Skipti mögul. á 2ja-3ja herb. Hagstæð lán. Vesturberg Falleg 4ra herb. íb. á 1. hæö í fjölb. Nýl. eldh- innr. Nýl. parket. Þvherb. í íb. Verð 6,9 millj. Hraunbær — lán Falleg 4ra herb. íb. á 3. hæð í fjölbýli. Parket. Áhv. 4,9 millj. góð iangtl. lán. Verð 7,4 millj. Hafnarfjörður — bílskúr Rúmg. 126 fm endaíb. á 1. hæð með sér suðurverönd. Stofa, borðstofa, 4 svefnh. Bflskúr Verð 8,4 mí((j. Efstaland — gott verð Góð 4ra herb. íb. á 3. hæð í litlu fjölb. Hús nýl. viðg. og málað. Mjög hagst. verð aðeins 6,9 millj. Flétturimi — ný Glæsil. ný 4ra herb. íb. á jarðh. í litlu fjölb. Gegnheilt eikarparket á gólfum. Flísar á baði. Laus. Lyklar hjá Framtíðinni. Verð 8,6 millj. Engihjalli — laus Falleg 4ra herb. íb. ofarl. í lyftuh. Stórar suð- ursv. Fráb. útsýni. Hús nýl. yfirfarið og málað. Laus strax. Verð 6,9 millj. 3JA HERB. Norðurmýri Góð 3ja herb. íb. í kj. í fjórb. Rúmg. herb. Áhv. 3,6 millj. hagst. langtlán. Verð 5,9 millj. Vesturberg Góð 80 fm íb. á 3. hæð. Gott útsýni. Parket. Stutt í skóla og sund. Áhv. hagst. lán 3,2 millj. Verð 6,4 millj. Bólstaðarhli'ð - lau Mjög góð 93 fm 3ja herb. i s i. í góðu málað á kostn, seljanda i sumar. Laus strax. Lundarbrekka — laus Góð 3ja herb. íb. á 2. hæð m. sérinng. af svölum. Parket. Áhv. 3,0 millj. Verð 6,5 millj. Laugavegur — laus Vorum að fá í sölu fallega 3ja herb. íb. mikið endurn. á 2. hæð í steinh. Parket. Laus strax. Verð aðeins 5.350 þús. Lyngmóar — Gbæ Glæsil. 3ja herb. íb. á 3. hæð í litlu fjölb. Innb. bflsk. Verö 8,4 millj. Skólavörðuholt Mjög falleg og björt 3ja herb. íb. á efstu hæð í góðu steinh. íb. er nær öll nýl. endurn. Stór- ar suöursv. Verð 7,9 millj. Garðabær - laus Glaesíl. og rúmg. 3ja herb. ib. afarl. i lyftuh. Þvherb. í 1b. Merbau-park et. Út- sýni. Húsvörður. Laus. Verð 8,5 millj. Þórsgata Stórglæsil. 3ja herb. íb. á 2. hæð í góðu steinh. íb. er öll endurn. að innan á vandaðan hátt. Verð 7,9 millj. Ásbraut — Kóp. Góð 3ja herb. íb. á 2. hæð í fjölb. Laus strax. Verð 6,2 millj. Álfholt - Hf. Glæsil. ný 92 fm 3ja herb. íb. á jarðhæð í nýju 4ra-íb. fjölb. Suðurverönd. Parket. Þvherb. í íb. Verð 7,7 millj. Vesturbær — laus Góð 2ja herb. íb. á jarðh. í suður í 6-íb. húsi. Endurn. rafm. Laus strax. Ákv. sala. Fellsmúli — laus 2ja herb. íb. á jarðh. í „Hreyfilsblokkinni". Laus strax. Lyklar hjá Framtíðinni. Verð 3,9 millj. Garðabær — lækkað verð Falleg 2ja herb. íb. á jarðh. m. sérinng. Sérupp- hitað bflastæði. Rólegur og góður staður. Áhv. 3,2 millj. langtímalán. Laus strax. Verð aðeins 5,2 millj. Vesturbær — Byggsjlán Falleg 2ja herb. suðuríb. á 3. hæð í nýl. húsi ásamt bflskýli. Áhv. 3,3 millj. byggsj. rík. Verð 5,4 millj. Skólavörðuholt — laus Góð 2ja-3ja herb. íb. á 1. hæð í tvíb. m. sérinng. Góð staðs. Laus strax. Lyklar hjá Framtíðinni. Verð aðeins 3.950 þús. Hrafnhólar — laus 2ja herb. íb. á efstu hæð í lyftuh. Fráb. út- sýni. Suðaustursv. íb. er nýl. standsett. Laus strax. Lyklar á skrifst. Verð 4,3 millj. Engihjalli — góð íb. Falleg 63 fm íb. ofarl. í lyftuh. Hús nýtekið í gegn að utan og málað. Mjög fallegt útsýni. Verð 5,4 millj. Keilugrandi — bflskýli Falleg 2ja herb. íb. á 3. hæð í nýviðgerðu og máluðu húsi. Stæði í bflskýli. Parket. Suð- ursv. Verð aðeins 5,9 millj. Suðurgata - Rvk 2ja herb. 60 fm íb. á 3. hæð. Mikil lofthæð. Miklir mögul. Verð aðeins 4,7 millj. I SM1ÐUM Bakkasmári 173 fm parhús. Afh. fokh. innan, frág. utan. Verð 8.750 þús. Garðhús — raðhús Endaraðh. á tveimur hæðum ásamt bflsk. Verð aðeins 7,9 millj. Lindarsmári. 3ja, 4ra og 5-6 herb. íb. tilb. u. trév. í nýju 3ja hæða fjölb. Hafnarfjörður. 2ja, 3ja og'4ra-5 herb. íbúðir tilb. u. trév. Sérinng. ATVINNUHUSNÆÐI Krókháls Til sölu 430 fm á jarðhæð (skrifst./lager- húsn.). Góðar innkeyrsludyr. Getur selst í tvennu lagi. Laust fljótl. ■ FASTEIGNAGJÖLD - Sveitarfélög eða gjaldheimtur senda seðil með álagningu fast- eignagjalda í upphafi árs og er hann yfirleitt jafnframt greiðsluseðill fyrir fyrsta gjald- daga fasteignagjalda ár hvert. Kvittanir þarf vegna greiðslu fasteignagjaldanna. ■ BRUNABÓTAMATS- VOTTORÐ - Vottorðin fást hjá því tryggingafélagi, sem eignin er þrunatryggð hjá. Vott- orðin eru ókeypis. Einnig þarf kvittanir um greiðslu brunaið- gjalda. Sé eign í Reykjavík brunatryggð hjá Húsatrygging- um Reykjavíkur eru brunaið- gjöld innheimt með fasteigna- gjöldum o g þá duga kvittanir vegna þeirra. Annars þarf kvitt- anir viðkomandi tryggingarfé- lags. ■ HÚSSJÓÐUR - Hér er um að ræða yfirlit yfir stöðu hús- sjóðs ogyfirlýsingu húsfélags um væntanlegar eða yfirstand- andi framkvæmdir. Formaður eða gjaldkeri húsfélagsins þarf að útfylla sérstakt eyðublað Félags fasteignasala í þessu skyni. ■ AFSAL - Afsal fyrir eign þarf að liggja fyrir. Ef afsalið er glatað, er hægt að fá ljósrit af því hjá viðkomandi sýslu- mannsembætti og kostar það nú kr. 100. Afsalið er nauðsyn- legt, því að það er eignarheim- ildin fyrir fasteigninni og þar kemur fram lýsing á henni. ■ KAUPSAMNINGUR - Ef iagt er fram ljósrit afsals, er ekki nauðsynlegt að leggja fram ljósrit kaupsamnings. Það er því aðeins nauðsynlegt í þeim tilvik- um, að ekki hafí fengist afsal frá fyrri eiganda eða því ekki enn verið þinglýst. ■ EIGNASKIPTASAMN- INGUR - Eignaskiptasamn- ingur er nauðsynlegur, því að í honum eiga að koma fram eign- arhlutdeild í húsi og lóð og hvernig afnotum af sameign og lóð er háttað. ■ UMBOÐ - Ef eigandi ann- ast ekki sjálfur sölu eignarinn- ar, þarf umboðsmaður að leggja fram umboð, þar sem eigandi veitir honum umboð til þess fyrir sína hönd að undirrita öll skjöl vegna sölu eignarinnar. ■ YFIRLÝSINGAR - Ef sér- stakar kvaðir eru á eigninni s. s. forkaupsréttur, umferðarrétt- ur, viðbyggingarréttur o. fl. þarf að leggja fram skjöl þar að lútandi. Ljósrit af slíkum skjölum fást yfirleitt hjá við- komandi fógetaembætti. ■ TEIKNINGAR - Leggja þarf fram samþykktar teikning- ar af eigninni. Hér er um að ræða svokallaðar byggingar- nefndarteikningar. Vanti þær má fá ljósrit af þeim hjá bygg- ingarfulltrúa. ■ FASTEIGNASALAR - í mörgum tilvikum mun fast- eignasalinn geta veitt aðstoð við útvegun þeirra skjala, sem að framan greinir. Fyrir þá þjón- ustu þarf þá að greiða sam- kvæmt Viðmiðunargjaldskrá Félags fasteignasala auk beins útlagðs kostnaðar fasteignasal- ans við útvegun skjalanna. KAUPE\DIIR ■ ÞINGLÝSING - Nauðsyn- legt er að þinglýsa kaupsamn- ingi strax hjá viðkomandi sýslu- mannsembætti. Það er mikil- vægt öryggisatriði. Á kaup- samninga v/eigna í Hafnarfirði þarf áritun bæjaryfirvalda áður en þeim er þinglýst. ■ GREIÐSLUR - Inna skal allar greiðslur af hendi á gjald- daga. Seljanda er heimilt að reikna dráttarvexti strax frá gjalddaga. Hér gildir ekki 15 daga greiðslufrestur. ■ LÁNAYFIRTAKA - Til- kynna ber lánveitendum um yfírtöku lána. Ef Byggingar- sjóðslán er yfirtekið, skal greiða fyrstu afborgun hjá Veðdeild Landsbanka íslands, Suður- landsbraut 24, Reykjavík ogtil- kynna skuldaraskipti um leið. ■ LÁNTÖKUR - Skynsam- legt er að gefa sér góðan tíma fyrir lántökur. Það getur verið tímafrekt að afla tilskilinna gagna s. s. veðbókarvottorðs, brunabótsmats og veðleyfa. ■ AFSAL - Tilkynning um eigendaskipti frá Fasteignamati ríkisins verður að fylgja afsali, sem fer í þinglýsingu. Ef skjöl, sem þinglýsa á, hafa verið und- irrituð samkvæmt umboði, verð- ur umboðið einnig að fylgja með til þinglýsingar. Ef eign er háð ákvæðum laga um byggingars- amvinnufélög, þarf áritun bygg- ingarsamvinnufélagsins á afsal fyrir þinglýsingu þess og víða utan Reykjavíkur þarf áritun bæjar/sveitarfélags einnig á af- sal fyrir þinglýsingu þess. ■ SAMÞYKKIMAKA - Sam- þykki maka þinglýsts eiganda þarf fyrir sölu og veðsetningu fasteignar, ef fjölskyldan býr í eigninni. ■ GALLAR - Ef leyndir gall- ar á eigninni koma í ljós eftir afhendingu, ber að tilkynna selj- anda slíkt strax. Að öðrum kosti getur kaupandi fyrirgert hugs- anlegum bótarétti sakir tómlæt- is. GJALDTAKA ■ ÞINGLÝSING - Þinglýs- ingargjald hvers þinglýst skjals er nú l.ÖOO kr. ■ STIMPILGJALD - Það greiðir kaupandi af kaupsamn- ingum og afsölum um leið og þau eru lögð inn til þinglýsing- ar. Ef kaupsamningi er þing- lýst, þarf ekki að greiða stimpil- gjald af afsalinu. Stimpilgjald kaupsamnings eða afsals er 0,4% af fasteignamati húss og lóðar, þ. e. 4.000 kr. af hverri milljón. ■ STIMPILSEKTIR - Stimp- ilskyld skjöl, sem ekki eru stimpluð innan 2ja mánaða frá útgáfudegi, fá á sig stimpilsekt. Hún er 10% af stimpilgjaldi fyr- ir hveija byijaða viku. Sektin fer þó aldrei yfir 50%.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.