Morgunblaðið - 26.08.1995, Síða 2
2 D LAUGARDAGUR 26. ÁGÚST 1995
MORGUNBLAÐIÐ
ÍÞRÓTTIR
Evrópukeppnin
Meistaradeildin
A-riðill:
Panathinaikos (Grikklandi),_ Nantes (Frakklandi), FC Porto
(Portúgal), Dynamo Kiev (Úkraínu).
B-riðill:
Spartak Moscow (Rússlandi), Legia Warsaw (Póllandi), Rosen-
borg (Noregi), Blackbum Rovers (Englandi).
C-riðilI:
Glasgow Rangers (Skotlandi), Borussia Dortmund (Þýska-
landi), Juventus (Ítalíu), Steaua Bucharest (Rúmeníu).
D-riðill:
Femencvaros (Ungverjalandi), Ajax Amsterdam (Hollandi),
Real Madrid (Spáni), Grasshoppers Ziirich (Sviss).
Evrópukeppni bikarhafa
Leika á 14. og 28. september.
Dag Liepaja (Lettlandi) - Feyenoord (Hollandi)
Club Briigge (Belgíu) - Shaktyor Donetsk (Úkraínu)
Dynamo Batumi (Georgíu) - Celtic (Skotlandi)
Hradec Kralpve (Tékklandi) - FC Copenhagen (Danmörku)
Lokomotiv Sofia (Búlgariu) - Halmstads BK (Svíþjóð)
Reykjavik (ÍSLANDI) - Everton (Englandi)
Inter Bratislava (Slóvakiu)'- Real Zaragoza (Spáni)
Rapid Vienna (Austurríki) - Petrolul Ploiesti (Rúmeníu)
Molde FK (Noregi) - Paris St Germain (Frakklandi)
Dynamo Moscow (Rússlandi) - Ararat (Armeníu)
AEK Athens (Grikklandi) - Sion (Sviss)
Bomssia M’gladbach (Þýskalandi) - FC Sileks (Makedóníu)
FC Teuta (Albaníu) - Parma (Ítalíu)
Zalgiris (Litháen) - Trabzonspor (Tyrklandi)
Sporting Lisbon (Portúgal) - Maccabi Haifa (Israel)
Deportivo Coruna (Spáni) - Apoel Nicosia (Kýpur)
UEFA-keppnin
Leika á 12. og 26. september.
Olympiakos Piraeus (Grikklandi) - Maribor Branik (Slóveníu)
Barcelona (Spáni) - Hapoel Beer Cheva (ísrael)
Lazio (Ítalíu) - Omonia Nicosia (Kýpur)
Strasbourg (Frakklandi) - Ujpest Budapest (Ungveijalandi)
AC Milan (Ítalíu) - Zaaglelbie Lubin (Póllandi)
Bordeaux (Frakklandi) - Vardar (Makedóníu)
Vitoria SC (Portúgal) - Standard Liege (Belgíu)
Fenerbahce (Tyrklandi) - Real Betis (Spáni)
Rotor Volgograd (Rússlandi) - Manchester Únited (Englandi)
MyPa-47 (Finnlandi) - PSV Eindhoven (Hollandi)
Lens (Frakklandi) - Beggen (Lúxemborg)
Sparta Prague (Tékklandi) - Silkeborg (Danmörku)
Lierse (Belgíu) - Benfica (Portúgal)
Neuchatel (Sviss) - Roma (Ítalíu)
Botve Plovdiv (Búlgaríu) - Sevilla (Spáni)
Roda Jc Kerkade (Hollandi) - Olimpija (Slóveníu)
Bayem Munich (Þýskalandi) - Lokomotiv Moscow (Rússlandi)
Austria Memphis (Austurríki) - Dinamo Minsk (H-Rússlandi)
Malmo (Svíþjóð) - Nottingham Forest (Englandi)
Chernomorests Odessa (Ukraínu) - Widzew Lodz (Póllandi)
Monaco (Frakklandi) - Leeds United (Englandi)
Brondby (Danmörku) - Lillestroem (Noregi)
Raitli Rovers (Skotlandi) - Akranes (ÍSLANDI)
Slavia Prague (Tékklandi) - Freiburg (Þýskalandi)
Slovan Bratislava (Slóvakíu) - Kaiserlautern (Þýskalandi)
Intemationale (Italíu) - Lugano (Sviss)
Farense (Portúgal) - Lyon (Frakklandi)
Levski Sofia (Búlgaríu) Aalst (Belgíu)
Werder Bremen (Þýskalandi) - Glenavon (N-Irlandi)
Stavanger (Noregi) - Auxerre (Frakklandi)
Spartak Vladikavkaz (Rússlandi) - Liverpool
Zimbm Chisinau (Moldavíu) - RAG Riga (Lettlandi)
UM HELGINA
KNATTSPYRNA
LAUGARDAGUR:
1. deild kvenna:
Valsvöllur: Valur-ÍBV....................14
2. deild karla:
Þróttarvöllur: Þróttur - Stjarnan........14
3. deild karla:
Selfossvöllur: Selfoss - Dalvík..........14
■Knattspymudeild UMF Selfoss á 40 ára afmæli
á þessu ári, var stofnuð 15. desember 1955, og
ætlar í því tilefni að bjóða öllum velunnurum deild-
arinnar til kaffisamsætis í Selinu að leik loknum.
Úrslitakeppni
4. deildar karla:
Fyrri leikirnir í átta liða úrslitum.
Ármannsvöllur: Léttir - Grótta..............14
Sandgerðisvöllur: Reynir - Tindastóll.......14
Siglufjarðarvöllur: KS - KVA................14
Hornarfjarðarvöllur: Sindri - Ármann........14
SUNNUDA GUR: _
Bikarkeppni KSÍ
Úrslitaleikur.
Laugardalsvöllur: KR - Fram.................14
KÖRFUKNATTLEIKUR
Hraðmót Vals heldur áfram í dag og á morgun, en
í því taka þátt tíu úrvalsdeildarlið.
HANDKNATTLEIKUR
Ársþingi HSÍ, sem vera átti um miðjan septem-
ber, hefur verið frestað til laugardagsins 30. sept-
ember vegna ófyrirséðra aðstæðna.
Barátta á Laugardalsvelli
Morgunblaðið’/Gunnlaugur Rögnvaldsson
FYRIRLIÐI KR, Þormóður Egilsson reynir hér að koma knettinum í átt að marki Fram en Joslp Dulic er til varnar.
Birklr Kristinsson, helsta hindrun KR-lnga að mati þjálfara Vesturbæinga, er við öllu búlnn í markinu og aðrlr
leimenn, bæði Framarar og KR-ingar, fylgjast spenntir með framvindu mála.
Ekkert nema sigur
BIKARÚRSLITALEIKUR KR og Fram verður á Laugardalsvelli á morgun og
hefst leikurinn klukkan 14. Að venju ertalsvert umstang í kringum úrslitaleik-
inn og liðin bregða út af vana sínu hvað undirbúning varðar. Allt er lagt undir
í þessum eina leik, það er aðeins annað liðið sem sigrar og hvorugt liðið fær
annað tækifæri. Sigur géfur sæti í Evrópukeppni bikarhafa að ári, en þar eru
KR-ingar núna.
ormóður Egilsson fyrirliði KR er leikja-
hæsti leikmaður KR og hefur spilað
þrjá bikarúrslitaleiki. „Það er alls ekki kom-
in mikil spenna í mann fyrir leikinn en
blaðamannafundurinn á föstudaginn kveikti
þó eitthvað í manni,“ sagði Þormóður.
„Framarar koma eflaust með sama hugarf-
ari og við til leiks - ekkert nema sigur -
enda skiptir þessi eini leikur öllu máli og
aðeins eitt lið sem stendur uppi sem sigur-
vegari. Það verður allt lagt undir í bikarleik-
inn og hann gefur sæti í Evrópukeppninni
að ári og því mjög mikilvægur. Það verður
alls ekki hægt að halda aftur af sér í bikar-
leiknum vegna næsta Evrópuleiks okkar,“
sagði fyrirliðinn.
Hann sagðist ekki fínna mikið fyrir því
að Vesturbæingar þrýstu á sigur en fyrst
liðið væri komið þetta langt vildi fólkið að
þeir ynnu leikinn.
Spurður um hvort atvikið í fyrri leikn-
um gegn Fram, þegar KR-ingar spiluðu
knettinum áfram eftir innkast en Framm-
arar áttu von á að fá hann sendan til sín,
sagði Þormóður að mikið hefði verið fjall-
að um atvikið en hann ekki orðið fyrir
miklum ákúrum fyrir það, nema í síðari
leiknum gegn Fram. Það væri hinsvegar
ekki útilokað að hann fengi sendan tóninn
úr stúkunni en yrði þá bara að leiða það
hjá sér.
Undirbúningur
liðanna ólíkur
Lokaundirbúningur liðanna síðasta daginn er tals-
vert ólíkur. KR-ingar fara á létta æfingu í dag
en halda síðan á Hótel Örk í Hveragerði þar sem
þeir dvelja fram að leik og mæta beint í Laugardal-
inn. Framarar ætla hinsvegar að fara að Laugar-
vatni í dag, spila golf og skella sér síðan á kvik-
myndahús í Reykjavík en svo halda menn til síns
heima. „Við viljum að menn sofi í sínum rúmum
og truflunin verði sem minnst. Það var gert 1989
og skilaði góðum arði,“ sagði Magnús Jónsson þjálf-
ari Fram.
En það eru fleiri sem undirbúa sig en leikmenn
því stuðningsmennirnir ætla líka að hittast fyrir
leik. Framarar mæta á Kringlukránna em KR-ingar
verða á Eiðistorgi, þaðan sem rútuferðir verða á
leikinn.
Slæmur tími
fyrir okkur
Steinar Guðgeirsson fyrirliði
Fram segir að bikarúrslitaleik-
urinn komi á slæmum tíma þar sem
liðið á í erfíðri fallbaráttu. „Það er
náttúrlega spenna í kringum þennan
leikenda er bikarúrslitaleikur stærsti
leikur sumarsins. í þeim leik er allt
eða ekkert en hjá okkur er deildar-
keppnin númer eitt, tvö og þijú og
við erum því í erfiðri aðstöðu og bi-
karleikurinn því á erfiðum tíma.
Menn eru að hugsa um deildina þar
sem við eigum í harðri fallbaráttu
og þurfum því að rífa okkur upp úr
lægðinni," sagði Steinar. „Við verð-
um að taka bikarinn því það hjálpar
í deildinni, eflir sjálfstraustið, og
menn vita þá hvemig er að vinna.
Þó að okkur hafí verið spáð ofarlega
og við vonast eftir því, verðum við
að gera okkur grein fyrir að við erum
í slæmum málum en spáin truflaði
okkur samt ekki. Fundurinn sem
haldinn var með leikmönnum virkaði
vel á okkur, menn vöknuðu og sáu
hvernig komið er fyrir liðinu."
Þróttarvöllur
Þróttur - Stjarnan
laugardaginn 26. ágúst kl. 14.
Nær Stjarnan aö tryggja sér 1. deildar sætiö
eða koma þeir kærulausir í þennan leik?
Stuðningsmenn Þróttar eru hvattir til að mæta.
Spennan að magnast
Spennan er að hlaðast upp hjá
manni, hún er að magnast,"
sagði Magnús Jónsson þjálfari
Fram. „Ég mun ekki tilkynna liðið
fyrr en á laugardaginn en ég býst
við að við spilum svipað og við höf-
um gert í síðustu leikjum í deildinni
því þar hefur orðið merkjanleg
framför," bætti Magnús við en
hann, Kristinn Rúnar Jónsson að-
stoðarþjálfari og Ólafur Helgi Árna-
son formaður knattspyrnudeildar
Fram héldu fund með hverjum og
einum leikmanni liðsins fyrir
skömmu og gerðu mönnum grein
fyrir stöðunni í deildinni.
Magnús segir að sigur í bikar-
leiknum sé mjög mikilvægur fyrir
félagið því nauðsynlegt sé að kom-
ast á stall eftir sumarið. Einnig sé
ljóst að félög sem komast í Evrópu-
keppni nái miklu forskoti, ekki síst
peningalega og sigur sé einnig
nauðsynlegur til að fylgja á eftir í
deildinni. Peningalega geti Evrópu-
keppni einnig haft áhrif á manna-
breytingar.
Én á Magnús von á að stuðnings-
menn Fram mæti vel á völlinn? „Þó
ekki hafi gengið vel í deildinni hef
ég trú á að menn ijölmenni og hvet
fólk til þess, því bikarkeppni er allt
annar handleggur en deildarkeppni
og oft ekkert samræmi á frammi-
stöðu liða í bikar- og deildarleikj-
um,“ sagði Magnús.