Morgunblaðið - 11.10.1995, Side 1
SÉRBLAÐ UM SJÁVARÚTVEG
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS MIÐVIKUDAGUR 11. OKTÓBER 1995
Samherji íhugar kaup í
þýzku útgerðinni DFFU
TEKNAR hafa verið
upp samningaviðræður
milli Samheija hf. og
eigenda þýzka útgerð-
arfyrirtæksins Deutsc-.
he Fischfang Union
GmbH & Co. í Cuxhav-
en um þátttöku Samheija í hinu þýzka fyrirtæki. Viðræðurnar eru vel á veg
komnar og reiknað er með því að þeim ljúki í byijun næsta mánaðar.
DFFU með veiðiheimildir
í Barentshafi, við
Grænland og í Norðursjó
4 Aflayfirlit og
staðsetning fiski-
skipanna
Markaðsmál
0 Heimsafli jókst
en framboð af
neyslufiski hefur
minnkað
Greinar
7 Sveinbjörn Jóns-
son og Valdimar
Samúelsson
Núverandi eigendur DFFU eru Fisk-
markaðurinn í Cuxhaven, Cuxhaven-
borg, Frozen Fish International GmbH
(áður Nordsee Deutsche Hochseefisch-
erei) og Nordstern Lebensmittel.
Þrfr verksmiðjutogarar
og einn á ísfiski
Fyrirtækið á nú og rekur þijá verk-
smiðjutogara og eitt skip, sem gert er
út á ísfiskveiðar. Rekstur DFFU hefur
gengið erfiðlega undanfarin ár og hef-
ur það leitt til þess að félagið hefur
þurft að fækka starfsfólki og selja
skip, nú síðast verksmiðjutogarann
Hannover, sem seldur var til Namibíu,
en hann liggur á Akureyri vegna breyt-
inga. Hin skipin þijú eru systurskip
hans.
Reksturinn endurskipulagður
Fyrirhugað er að endurskipuleggja
rekstur DFFU með þátttöku Samheija
og nýta til þess íslenzka þekkingu á
svið veiða og vinnslu um borð. Reiknað
er með því að fjórir verksmiðjutogarar
verði í rekstri. Félagið hefur veiðiheim-
ildir í Barentshafi, við Grænland og í
Norðursjó. Þar er um að ræða fiskiteg-
undir eins og þorsk, ufsa, síld og makr-
íl. Ef samningar munu takast, verður
hlutur Samheija í félaginu umtalsverð-
ur.
Samherji gerir nú út 10 fiskiskip
Forsenda þess að Samheiji taki þátt
í rekstri fyrirtækisins er sú, að breyt-
ingar verði á starfsmannahaldi og nú-
verandi atvinnustarfsemi DFFU í landi
verði skilin frá útgerð fyrirtækisins.
Gert er ráð fyrir að fyrirtækið verði
áfram rekið áfram frá Cuxhaven.
Samheiji hf. gerir nú 9 fiskiskip og
á auk þess togarann Akraberg í sam-
vinnu við færeyskt útgerðarfýrirtæki.
Aflaheimildir Samheija innan íslenzku
lögsögunnar er tæp 14.000 þorskígild-
istonn, sá þriðji stærsti. Auk þess hef-
ur Samheiji heimildir í Barensthafí í
gegn um hina færeysku samvinnu.
SÍLDIIM KOMIN TIL EYJA
• SÍLDARVINNSLA er kominn á
fullt skrið hjá Vinnslustöðinni í
Eyjum. 1000 tonn höfðu boristtil
vinnslu í gærmorgun og í gær-
kvöldi var von á Kap með 500 tonn
til löndunar. Tveir bátar, ísleifur
og Kap, sjá Vinnsiustöðinni fyrir
síld til vinnslu. ísfélagið hefur enn
ekki hafið síldarvinnslu en reiknað
er með að síldarbátar ísfélagsins
haldi til veiða upp úr 20. október.
Viðar Elíasson, framleiðslustjóri
Vinnslustöðvarinnar, sagði í sam-
tali við Verið að síldin sem borist
hefði væri væn og góð til vinnslu.
Hún væri flökuð og fryst og færi
afurðin á Evrópumarkað. Hann
sagði að markaður væri ágætur
en verðin væru lág þar sem um
hörð samkeppni væri við framleið-
endur frá öðrum löndum á síldar-
mörkuðunum. Viðar sagði að síidin
væri lyftistöng fyrir atvinnulifið í
Eyjum og vinnsla hennar héldi
uppi atvinnu yfir haustmánuðina.
Iflá þeim ijöigaði starfsfólki um
20% þegar síldarvinnslan hæfist
og væri undirstaða þess að fyrir-
tækið gætu haidið rekstrinum
gangandi áþessum árstíma. „Mér
finnst oft vera vanmetið hversu
gífurlega mikilvæg síldin er fyrir
Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson
lífið hér í Eyjum þvi það er nokkuð
Jjóst að ef vinnsla á henni væri
ekki til staðar mætti negla fyrir
gluggana í frystihúsunum fram
yfir áramót og allt atvinnulif hér
lægi í láginni,“ sagði Viðar.
Fréttir
25% meiri
þorskafli
• ÞORSKAFLI af íslands-
miðum i september síðast-
liðnum varð alls um 12.100
tonn, sem er um 2.500 tonn-
um meira en í sama mánuði
í fyrra. Aukning er um 25%.
Það eru fyrst og fremst
togara og bátar, sem auka
afla sinn frá þvi í fyrra, en
þorskafli smábáta er svip-
aður nú og í fyrra. Auk
þessa veiddust um 16.200
tonn af þorski í Smugunni í
september./2
Gott í
Smugunni
• VEIÐI í Smugunni í Bar-
entshafi hefur verið frekar
treg síðustu vikur en um
helgina glæddist veiðin
nokkuð, að sögn Arna
Bjarnasonar, stýrimanns á
Akureyrinni EA. Akureyrin
hefur verið við veiðar í
Smugunni síðustu þrjár vik-
ur og sagði Árni að aflinn
síðustu þijá sólarhringa
hefði verið álíka mikil eða
meiri en alla dagana á und-
an./4
Pólverjar
í erfiðleikum
• PÓLSKU úthafsveiðifyr-
irtækin eiga nú í miklum
erfiðleikum eftir að lokað
var á veiðar í Smugunni í
Okhotskhafi. Þau mega
hins vegar veiða innan rúss-
nesku efnahagslögsögunn-
ar gegn gjaldi og á því hafa
þau lítil ráð. Pólsku fyrir-
tækin þrjú, sem um ræðir,
Gryf, Odra og Dalmor,
veiddu mikið af Alaskaufsa
í Okhotsksmugunni en nú
mega skipin 28, sem þau
gera út á þesu svæði, aðeins
veiða 75.000 tonn innan
rússnesku lögsögunnar./6
Marel sækir
á í Noregi
• MAREL hefur samið um
sölu á átta flokkurum fyrir
saltfisk og heilagfiski til
fiskvinnslufyrirtækja í Nor-
egi fyrir um 40 milljónir
króna samtals. Smugudeil-
an hefur haft lítil sem eng-
in áhrif á markaðsstöðu
fyrirtækisins í Noregi og
stefnt er að metári í sölu á
fiskvinnslubúnaði upp á
rúmar 300 milljónir króna
til Noregs./8
Markaðir
Bretar borða
mikið af rækju
• BRETLAND er mikilvæg-
asti markaðurinn fyrir kald-
sjávarækju héðan frá Is-
landi. Á Bretlandi er tölu-
verð hefð fyrir neyzlu kald-
sjávarrækju, endar er
neyzla á henni um 55% af
allri rækju neyzlu í landinu.
Hlýsjávarrækjan var lengi
helzti keppinauturinn og jók
hún verulega hlut sinn, þeg-
ar verð á kaldsjávarrækju
náði hámarki fyrit tæpum
áratug. Kaupendur snéru
sér þá að ódýrari hlýsjávar-
rækju og hefur reynzt erfitt
að vinna kaldsjávarrækj-
unni sinn fyrr sess á ný.
Bækjan mest
í smásölunni
Neysla og sala á
kaldsjávarrækju í
Bretlandi
• KALDSJÁVARRÆKJAN
selst mest í smásölu í Bret-
landi og eru stórmarkaðir
þar framarlega í flokki. Um
fjórðungur rækjunnar er
seldur í heildsölu til veit-
ingahúsa og stofnana. Sam-
lokur og tilbúnir réttir vega
einnig þungt í neyzlu-
mynstrinu, en þá leið fer um
fimmtungur rækjunnar ofan
í brezka maga. Bretland
verður vafalítið áfram mjög
mikilvægur markaður fyrir
pillaða kaldsjávarrækju
héðan, en einnig er nú veru-
lega sótt inn á markaðinn í
Þýzkalandi./6