Morgunblaðið - 12.10.1995, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 12.10.1995, Qupperneq 1
 1995 FIMMTUDAGUR 12. OKTOBER BLAÐ KNATTSPYRNA Ferguson í fangelsi SKOSKI landsliðsmaðurinn hjá Everton Duncan Ferguson var í gær dæmdur til þriggja mánaða fangelsisvistar fyrir að skalla varnarmanninn John McStay hjá Raith Rovers í apríl 1994, en þá lék Ferguson með Glasgow Rangers. Hann var dæmdur til þriggja mánaða fangelsisvistar í maí í fyrra en áfrýjaði, en dómarinn í máli hans féllst ekki á rök hans og sagði í gær að dómur undirréttar stæði óbreyttur. Ferguson hóf afplánun strax eftir að úrskurður lá fyrir í gær og losnar því ekki úr fangelsi fyrr en um miðjan janúar. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem hinn 23 ára gamli sóknarmaður fær dóm því þegar umrædd- ur atburður gerðist hafði hann fjórum sinnum verið dæmdur og var á skilorði og „þriggja mánaða fangelsi er hæfileg refsing og ætti að vera öðrum til varnaðar,“ sagði dómarinn. Talsmaður Fergusons segir að hann sætti sig við dóminn og ekki verði áfrýjað aftur. „Hann fellst á að svona hegðun sé ósæmileg en fannst dómurinn heldur harður og því var áfrýjað," sagði talsmaður hans. Forráðamenn Everton taka í sama streng og segja dóminn allt of strang- an. % Tyrkneski þjálfarinn trylltist TYRKNESKI þjálfarinn, Terim Fatih, var fokiU- ur eftir leikinn og vildi ekki ræða við blaðamann Morgunblaðsins. Þess í stað rauk hann til Ás- geirs Eliassonar landsliðsþjálfara íslands sem þakkaði honum fyrir leikinn eins og siður er hjá flestum þjóðum. Eftir að Ásgeir hafði tekið í hönd hans jós Tyrkinn úr skálum reiði sinnar á mjög bjagaðri ensku og eitt af því fáa sem hann sagði voru blótsyrði sem ekki eru prenthæf. Astæða þessa mun vera að í síðari hálfleik fór hann út að hliðarlínu og kallaði ókvæðisorð til Arnórs Guðjohnsen sem svaraði honum. „Það er auðvitað númer eitt að þegar maður er að spila fótbolta þá eiga stjórnarmenn eða þjálfari hins liðsins ekki að koma út að hliðarlínu til að skamma mótheijana. Ég sagði honum ósköp rólega að setjast niður,“ sagði Amór um atvikið. Fljótlega bættust fleiri Tyrkir í hópinn til að hella sér yfir Ásgeir og Gústaf Björnsson aðstoð- arþjálfara og enn fuku fúkyrðin, en Islending- amir héldu ró sinni þrátt fyrir óheyrilegan dóna- skap blóðheitra Tyrkja. Gústaf reyndi að benda þjálfaranum á að Arnór hefði verið að reyna að leika knattspyrnu og það væri ekki til siðs að þjálfarar og forráðamenn móthetjanna væm að skipta sér af hinu liðinu. En engu tauti var komandi við þjálfarann sem var gjörsamlega ófáanlegur til að veita viðtal. Jafntefli í síð- asta heima- leik Ásgeirs ÍSLENDINGAR og Tyrkir gerðu markalaust jafntefli í 3. riðli Evrópu- keppninnar á Laugardalsvelli. Þetta var síðasti heimaleikur liðsins undir stjórn Ásgeirs Elíassonar, en það á einn leik eftir í riðlinum — gegn Ungveijum í Búdapest í næsta mán- uði. Að ofan er Arnór Guðjohnsen í baráttu við þijá varnarmenn tyrk- neska liðsins í gærkvöldi, en þetta var 60. landsleikur Arnórs. Þijú þús- und og ellefu manns greiddu að- gangseyri í gærkvöldi og lifðu sig vel inn í leikinn, a.m.k. þeir sem eru hér til hliðar. ■ Markalaust / D2 Morgunblaðið/RAX Morgunblaðið/Þorkell SKVASS Kim Magnús til Mónakó KIM Magnús, íslandsmeistarinn í skvassi, heldur til Mónakó á sunnu- daginn þar sem hann tekur þátt í Meistaramóti meistaranna í Evr- ópu, en þangað er boðið öllum landsmeisturum karla og kvenna. Mótið fer fram dagana 18. til 22. október og sagðist Kim Magnús vonast til að sér gengi vel. Mótshaldarar halda öllum kepp- endum uppi á meðan mótið stendur þannig að Kim Magnús þarf bara að koma sér á staðinn. Hann er nýkominn heim frá Danmörku þar sem hann æfði með landsliði Dana i þrjár vikur og sáu Danirnir um fæði og gistingu fyrir Kim. EM LANDSUÐA: RÚSSAR OG SPÁNVERJAR ÖRUGGIR í ÚRSLITAKEPPNINA / D4

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.