Morgunblaðið - 13.10.1995, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 13.10.1995, Qupperneq 6
6 B FÖSTUDAGUR 13. ÓKTÓBER 1995 MORGUNBLAÐIÐ ínr og Skitar í maikaössókn FERÐAMÁLAYFIRVÖLD á írlandi og í Skotlandi fengu nýlega tals- verðar ijárhæðir til kynningar- starfs. Verður það bundið við Bret- landseyjar til að byija með, en af frásögn ritsins Travel weekly að dæma má gera ráð fyrir markaðs- sókn í Evrópu á næstu árum. Bæði Skotar og írar vilja lengja ferðamannatímabilið og auk þess finnst írum kominn tími til að breyta ímynd landsins. Travel we- ekly hafði eftir Endu Kenny, írska ferðamálaráðherranum, að 25 ára saga hryðjuverka á Irlandi hefði haft afar slæm áhrif á þróun og vöxt írskrar ferðaþjónustu. Ferðamálayfirvöld á íriandi fengu tvær milljónir punda, eða jafnvirði rúmlega 200 milljónir króna, til kynningarstarfs. Mikiil áhugi mun vera á að kynna fegurð írlands að hausti og einnig sveitir landsins. Sitthvað á tllboði Skoska ferðamálaráðið hefur ákveðið að veija jafnvirði 130 millj- óna króna til kynningar á „gullnu hausti í Skotlandi," átaki, sem fyrst og fremst er ætlað að teygja ferða- mannatímabilið fram á vetur. Auk þess hafa ýmsir hagsmunahópar tekið höndum saman og lagt jafn- virði 20 milljóna króna í sjóð, sem notaður verður til kynninga í tengsl- um við átak ferðamálaráðs. Á haustmánuðum verður ýmislegt á tilboði vegna kynningarinnar. ■ Bændaferð til írlands BÆNDASAMTÖKIN efna til sérstakrar bændaferðar til vesturstrandar_ írlands 7.-12. nóvember nk. í upphafí ferðar verður gist í tvær nætur í Dyflinni. Þaðan verður farið þvert yfir írland til Galway og gist þar í þijár nætur. í Galwáy verða verða fjár- bændur meðal annars heim- sóttir o g afkoma þeirra skoðuð. írar eru stærstu útflytjendur kindakjöts í Evrópu og þvi væntanlega fróðlegt fyrir ís- lenska bændur að kynnast við- horfum írskra starfsbræðra sinna og fá svar við nokkrum spumingum svo sem um slát- urkostnað, framleiðslukostnað, hvaða styrki írskir íjárbændur fái o.fl. Bunratty kastali verður skoðaður og farið þar í miðald- arveislu. Einnig verður komið til Limerick og ýmsir aðrir athyglisverðir staðir skoðaðir eftir þvi sem tími leyfir. Allar nánari upplýsingar um bændaferðina er hægt að fá hjá Bændasamtökunum. g FERÐALÖG Þar er friður huytak en ekki raunverulei Það er vandi að vera ferðamaður í Jerúsalem. Það er vegna þess að á þessu litla landsvæði búa tvær ólíkar þjóðir og önnur er herraþjóð- in. í fyrstu er erfitt að átta sig á hver er hvað. Hver er gyðingur og hver er arabi? Það er eins gott að vita það. Þú heilsar ekki gyðingi með kveðju upp á arabísku og öfugt. Meðan maður kann ekki að greina þessar tvær þjóðir í sundur er eins gott að heilsa upp á íslensku; góðan dag, gott kvöld. Enginn hefur verið grýttur fyrir það. En málin skýrast fljótlega í þess- ari fjölbreyttu mannlífsflóm. Það er svo margt sem aðgreinir þessar tvær þjóðir. Það eru arabar sem búa í austurhluta borgarinnar, þar sem götuljós eru óþekkt, húsin lágreist og ljót og sorpið liggur í haugum meðfram götunum. Þeir eru niðurl- útu karlmennimir, sem vinna verka- mannavinnu og þjóna þér til borðs á veitingahúsunum. Númeraplötur bílanna þeirra eru bláar. Bláar og gular númeraplötur ísraelar búa í vesturhluta borgar- innar, sem sker sig ekki úr hvaða stórborg sem er í heiminum, með upplýstum strætum og stórverslun- um. Þeir eru karlmennimir sem gegna ábyrgðarstöðum og finnast þeir ekki þurfa að afsaka tilvem sína. Bílana þeirra þekkir þú á gulu númeraplötunum. Það er á þennan hátt sem þessar tvær þjóðir búa saman í landinu helga. Heimsbyggð- in hefur fylgst með hvemig sú sam- búð hefur verið þrautaganga í marga áratugi. Ég bý í austurhluta Jerúsalem, er gestur Sigurbjargar Söebech, starfsmanns Rauða krossins í Pa- lestínu. Út uni stofugluggann blasir við stóri kirkjugarðurinn þar sem auðugir amerískir gyðingar kaupa sér gröf fyrir sex þúsund banda- ríkjadollara. Þeir voru ef til vill ekki reiðubúnir að lifa iífinu í land- inu helga, við óhelgar aðstæður, en tryggja sér á þennan hátt sinn eign- arhluta í þessu landi, sem þeir töldu sig hafa óskipt- an rétt til. Þekktlr fyrlr gestrisnl En þeir em sprelllifandi, arabísku nágrannarnir, sem sitja í görðum sínum fyrir framan húsin í hverfinu. Ara- bar eru þekktir fyrir gestrisni, það er erfitt að komast óséður inn í húsið, alltaf em einhveijir tilbúnir til þess að bjóða upp á tebolla. Gamli maðurinn í næsta húsi hefur sínar eigin hugmyndir um helförina og atburði heimsstyij- aldarinnar síðari. Segist aldrei hafa trúað lygum og áróðri um fjöldamorð á gyðingum. Einhveijir hafi eflaust verið drepnir, en þá væri hægt að telja í tugum. Dráp á milljónum væri hrein og klár lygi, sögð í þeim tilgangi einum að réttlæta landnám gyðinga. Það er gaman að ræða við gamla manninn, en óneitan- lega setur hitinn í garðinum strik í reikninginn. Kófsveittar í 35 stiga hita sitjum við huldar klæðum frá toppi til tá- ar. Inni í hverfum araba þurfa konur að hylja líkamann vel af trúarlegum ástæðum, fötin þurfa að ná niður fyrir hné og olnboga. Karlmennirnir spóka sig léttklæddir í sólinni, klæddir stutt- buxum einum fata. íslensklr frlöarsinnar Við ökum kappklæddar í bíl um borgina. Við bíðum þess með óþreyju að komast inn í vesturhlutann þar sem engar velsæmisregl- ur gilda um klæðnað. ísraelskir hermenn vakta umferðina yfir borgarmörkin. Þegar við nálgumst varðhliðið tökum við niður sólgler- augun, setjum upp sólskyggnið í framglugganum, kveikjum ljósið inni í bílnum og drögum upp vegabréfin. Saklausar konur, með enga hryðjuverkamenn eða sprengjur í för, íslenskir friðarsinnar. Bfll Rauða krossins er merktur hvítum númeraplötum, sem veitir ökumanni og farþegum nokkuð fjálsan aðgang að öllum borgar- og landshlutum. Og hér förum við auðveldlega í gegn. Það sama gildir um bílana með gulu númerin; en þeir blámerktu geta þurft að bíða í langan tíma eftir merki um að halda áfram, eru oftar en ekki skoðaðir nákvæmri skoðun og tafðir á allan hugsanlegan hátt. Hræddlr vlö konu undir stýrl Umferðin í þessari borg er ótrúleg, ökumenn virðast fara eftir einhverjum óskráðum lögum, sem ekkert eiga skylt við umferðar- reglur. Ég dáist að Sigurbjörgu, sem lætur sig hafa það að vera þátttakandi í þessari bijálsemi, meðan ég sit við hlið hennar með fótinn rígnegldan á ímyndaðri bremsu. Hún segir tvennt hjálpa sér í umferðinni; að tala háum rómi við aðra bflstjóra, þótt þeir heyri ekki í henni, og sú staðreynd að þeir verða hræddir þegar þeir sjá konu undir stýri, en það er sjaldgæf sjón á þessum slóðum. Það eitt að komast lifandi og ósködduð úr þessari umferð sannfær- ir mig um það að ég sé raunverulega stödd í landi kraftaverkanna. Að koma inn í gömlu borgina í Jerúsalem er eins og að stökkva inn í gömlu Biblíusögukennslubókina úr bamaskólanum. Það er undarleg tilfinning að ganga eftir Via Dolorosa, leiðinni sem Jesú gekk til Golgata. Fólkið, sem gengur þessa götu núna, á líklega ERMARSUNDSGONGIH Barist fyrir afnámi tollfriálsiar sölu FORSVARSMENN „Eurotunnel" eða Ermarsundsganganna, nýjustu samgönguleiðarinnar milli Parísar og Lundúna, hófu í síðasta mánuði aðra tilraun til að fá söluá tollfijáls- um vamingi bannaða. Áður höfðu enskir dómstólar hafnað beiðni þeirra um bann við slfkri sölu um borð í breskum feijum. Núna beina þeir spjótum sínum að franska flutningafyrirtækinu SNAT og reka málið fyrir dómstól- um í París, enda stefna þeir að því að hindra sölu þeim megin gang- anna. Málið var tekið' upp um leið og talsmenn Ermarsundsganganna höfðu óopinberlega viðurkennt að hafa tapað baráttu sinni fyrir að öll tollfijáls sala yrði bönnuð sumar- ið 1999. Aftur á móti neita þeir að tjá sig um málið opinberlega fyrr en Evrópusambandið gefur út yfir- lýsingu um hvort slík sala verði lýst ólögleg eða ekki. Fyrirhugað er að lög um afnám tollfijálsrar sölu alls staðar i Evrópu taki gildi í júní 1999. „Einum og óstuddum tekst okkur ekki að vinna að framgangi málsins. Við verðum að vera raunsæir. Engum dettur í hug að ríkisstjórnin leggi bann við tollfijálsri sölu á næstunni eingöngu okkar vegna. Þótt við höldum áfram að láta í okkur heyra og upplýsa að hneykslanlegir peningahagsmun- ir ráði ferðinni, nægir það ekki til að eitthvað verði aðhafst," var haft eftir einum stjórnanda Ermarsunds- ganganna í Travel Weekly nýverið. Tollfrjáls sala í ferjum og flugvélum Sala tollfijáls vamings er leyfð um borð í feijum og flugvélum og ERMARSUNDSGÖNGIN - Fyrir tæpu ári fór fyrsta lestin frá Wat- erloo-stöðinni í Lundúnum gegnum Ermarsundsgöngin til Parísar. því finnst forsvarsmönnum Evrópu- gangnanna þeir beri skarðan hlut frá borði. Þegar Le Shuttle-neðan- sjávarlestimar vom framleiddar var ekki gert ráð fyrir slíkri sölu um borð vegna myndunar innri mark- aðar ESB árið 1993. Forsvarsmenn Ermarsundsgang- anna em líka óhressir með að ráð- herraráð Evrópusambandsins hefur framlengt leyfi flugfélaga og feiju- ‘ félaga á sölu tollfijáls varnings. Þeir telja félögin hagnast um 173 milljónir punda, eða um 17,3 millj- arða íkr. árlega á sölunni. Gríðarlegir fjárhagserfiðleikar blasa við í rekstri Ermarsunds- ganganna. Bankarnir hafa hliðrað til meðan stjórnendur leita leiða til að finna lausn á skuldastöðunni. Skuldin er um 8 milljarðar punda, eða um 800 milljarðar íkr., og hafa bankarnir veitt tímabundinn frest á umsömdum afborgunum, tveimur milljónum punda á dag, sem fyrir- tækinu var orðið um megn að standa í skilum með. Nú hefur fengist 18 mánaða frestur til að semja við 225 banka um skuldirn- ar. ■

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.