Morgunblaðið - 13.10.1995, Síða 8
8 B FÖSTUDAGUR 13. OKTÓBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
FERÐALÖG
Beðið um áhættuf jármagn til
uppbyggingar í ferðapjðnustu
Vestmannaeyjum. Morgunblaðid.
RÚMLEGA 160 manns tóku
þátt í Ferðamálaráðstefnu
Ferðamálaráðs íslands sem var
haldin í Vestmannaeyjum 5. og
6. október. Þar voru fjörlegar
umræður um þau málefni er
ferðaþjónustuna varða og voru
ályktanir um ýmis efni sam-
þykkt í lok ráðstefnunnar. Þá
voru flutt erindi um fjárfesting-
ar í ferðaþjónustu og umhverf-
ismál og umhverfisverðlaun
Ferðamálaráðs afhent í fyrsta
skipti. Þau féllu í hlut félags-
búsins í Vigur við ísafjarðar-
djúp.
Birgir Þorgilsson, ferðamála-
stjóri, setti ráðstefnuna sem
haldin var í Hvítasunnukirkjunni í
Eyjum. Birgir fjallaði í ræðu sinni
um gildi og mikilvægi ferðaþjónustu
og sagði að enginn einstaklingur
hefði gert jafn mikið fyrir íslenska
ferðaþjónustu og frú Vigdís Finn-
bogadóttir, forseti íslands, Færði
hann henni sérstakar þakkir fyrir
hennar framlag til þessara mála og
tóku ráðstefnugestir undir það með
dynjandi lófataki.
Ferðaþjónustufyrírtæki á
verðbréfamarkað
Guðjón Hjörleifsson, bæjarstjóri,
ávarpaði ráðstefnuna og sagði að
vaxtabroddurinn í atvinnulífinu í
Vestmannaeyjum fælist í ferðaþjón-
ustu. Því vildu bæjaryfirvöld fylgja
eftir og hefðu ráðið til starfa at-
vinnu- og ferðamálafulltrúa og eins
hefði verið samið við einstaklinga í
Alþjóðlegir peimavimr
International Pen Friends útvegar þér
a.m.k. jafnáidra pénnavini frá ýmsuní
löndum, sem skrifa á ensku. Samskonar
þjónusta á þýsku, frönsku, spænsku og
portúgolsku. * ; /V
I.P.F., pósthólf 4276, 124 Reykjavík,
sími 881 -8181. [.
HALLDÓR Blöndal, samgönguráðherra,
kynnti skipun starfshóps til að móta til-
lögur að stefnumörkun í ferðaþjónustu.
Eyjum um rekstur upplýsingamið-
stöðvar fyrir ferðamenn.
Stefán Halldórsson, framkvæmda-
stjóri Verðbréfaþings íslands, flutti
erindi um hvað þyrfti til að vekja
áhuga fjárfesta á ferðaþjónustu.
Hann sagði það sitt mat að ferða-
þjónustufyrirtæki ættu erindi á verð-
bréfamarkað, en ýmislegt kæmi í veg
fyrir að fjárfestar hefðu áhuga á
greininni. Þeir byggðu ákvarðanir
sínar mikið á opinberum upplýsing-
um, svo sem ársreikningum og
rekstraráætlunum en ferðaþjónustu-
fyrirtæki veittu flest mjög litlar upp-
lýsingar um starfsemi sína.
Stefán sagði að eignarhald fyrir-
tækja í ferðaþjónustu og rýr arðsemi
þeirra fældi fjárfesta frá auk þess
sem smæð fyrirtækja í greininni
hindraði aðgengi að verðbréfamark-
aði og drægi úr hreyfanleika verða-
bréfa. Hann nefndi að gjörbreyta
þyrfti afstöðu til upplýsingamiðlunar
og gera þyrfti breytingar á eignar-
haldi og stjórnun fyrirtækja í grein-
inni til að almennir fjárfestar gætu
átt samleið með hagsmunafjárfest-
um. Vinna þyrfti að samruna fyrir-
tækja í greininni og horfur þyrftu
að vera á að fjárfestingar
í ferðaþjónustu skiluðu
arði til að glæða áhuga
fjárfesta.
Aðgangseyrlr á
ferðamannastöðum?
í erindi Ólafar Arnar
Haraldssonar, formanns
umhverfismálanefndar
Alþingis, um umhverfis-
mál tengd ferðaþjónustu
kom fram að móta þyrfti
framtíðarstefnu í þessum
málum. Ólafur Öm sagði
að hið opinbera þyrfti á
næstu árum að leggja
fram fé til að bæta um-
hverfí og aðkomu á fjöl-
sóttustu ferðamanna-
stöðum landsins. Hann
varpaði fram hugmynd um gjaldtöku
'í formi aðgangseyris á ferðamanna-
stöðum, en taldi hana víða erfiða og
óframkvæmanlega.
Að framsöguerindum loknum voru
umræður og fyrirspumir til frum-
mælenda, en að því loknu hófst vinna
í málefnahópum sem ráðstefnugestir
skiptu sér í. Um kvöldið yai1 síðan
uppákoma í boði Eyjamanna þar sem
farið var með alla ráðstefnugesti á
bátum í Klettsvík þar sem kveiktur
var varðeldur og bornar fram veiting-
ar. Ný framleiðsla Vinnslustöðvar-
innar í Eyjum á fískréttum var uppi-
staðan í matnum sem fram var bor-
inn, en auk þess var boðið upp á
úteyjalamb. Árni Johnsen og hljóm-
sveitin Hálft í hvoru tóku síðan lagið
með ráðstefnugestum í Klettsvíkinni
áður en haldið var um borð í Herjólf
við Básaskersbryggjuna í Eyjum þar
sem ráðstefnugestir snæddu reyktan
iunda og viðeigandi meðlæti.
„ísland yngst landa, land í
sköpun"
Á síðari degi ráðstefnunnar flutti
Halldór Blöndal, samgönguráðherra,
ávarp þar sem hann Ijallaði um mik-
Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson
Á laugardagskvöldið var farið með alla ráðstefnugesti á bátum
í Klettsvík þar sem kveiktur var varðeldur og voru bornar fram
veitingar í boði Eyjamanna.
ilvægi ferðaþjónustunnar. Hann
sagði að ferðaþjónustan væri á upp-
leið sem atvinnugrein og nefndi því
til stuðnings að á síðasta ári hefði
greinin skilað 11% af gjaldeyristekj-
um þjóðarinnar á móti 6% fyrir 10
árum og þannig haslað
sér völl sem atvinnu-
vegur sem kæmi næst
á eftir sjávarútveginum
við öflun gjaldeyris-
tekna. Halldór sagði að
íslendingar þyrftu að
fínna sér vígorð sem
festist í minni þeirra
sem ná ætti til og varp-
aði fram hugmynd; „Is-
land yngst landa, land
í sköpun."
Við lok ráðstefnunn-
ar voru afgreiddar
ályktanir og niðurstöð-
ur starfshópa ráðstefn-
unnar. Meðal annars
kom fram ályktun um
fjárfestingu í ferðaþjónustú þar sem
skorað var á stjómvöld og lánastofn-
anir að veita áhættufjármagni til
uppbyggingar á afþreyingu og nýj-
ungum í ferðaþjónustu.
Gera atvinnugreinina sýnilegri
í íslenskum fjölmiðlum
Samþykkt var að hvetja stjóm
ferðamálaráðs og ferðamálastjóra til
að ígrunda hvernig gera megi at-
vinnugreinina sýnilegri í íslenskiim
fjölmiðlum og bent var sérstaklega
á hversu litla eftirtekt íjölmiðlar
sýndu ráðstefnunni miðað við sam-
bærilegar samkomur hjá öðrum at-
vinnuvegum þjóðarinnar. Þá var
samþykkt að skora á samgönguráð-
herra að efla þátt
ferðaþjónustunnar í
starfi ráðuneytis síns
og lagt til að sérstök
ferðamáladeild yrði
stofnuð innan sam-
gönguráðuneytisins.
Ráðstefnan sam-
þykkti að leita álits
umboðsmanns Alþing- r
is vegna vanskila ríkis-
ins á 10% af árlegri
vörusölu Fríhafnarinn-
ar í Keflavík, sem
renna á til Ferðamála-
ráðs. Einnig var sam-
þykkt að lögð væri
áhersla á að yfirvöld
gættu ýtrustu varkárni
í ákvarðanatöku í virkjana- og stór-
iðjumálum og mótmælti ráðstefnan
fyrirhuguðum virkjanaframkvæmd-
um norðan Vatnajökuls vegna þeirra
ótvíræðu hagsmuna íslenskrar
ferðaþjónustu sem fælust í óspilltri
náttúru.
í lok ráðstefnunnar bauð vest-
mannaeyjabær ráðstefnugestum til
kvöldverðar og lauk þar með vel
heppnaðri ferðamálaráðstefnu
Ferðamálaráðs íslands 1995. ■
Ráðstefnan sam-
þykkti að leita
álits umboös-
manns Alþingis
vegna vanskila
ríkisins á 10% af
árlegri vörusölu
Fríhafnarinnar í
Keflavík, sem
renna á til Ferða-
málaráðs.
konur
þurfa járn
Járn er nauðsynlegt m. a. fyrir blóðið, vöðvana
og heilann. Það er sérstaklega mikilvægt fyrir konur
og börn í vexti. Þar sem þörf er á nægu C-vítamíni
til að járnið nýtist, er C-vítamín í okkar járni.
Járntöflur eru fáanlegar í mörgu formi og nýtist
líkamanum misvel. Ferrus Succinate nýtist betur
en flest annað járn og veldur minni truflun í
meltingarfærum. Þess vegna er
Ferrus Succinate í járni Heilsu. [ || v
ISlhEilsuhusið
Kringlunni & Skólavörðustlg
GULI MIÐINN TRYGGIR GÆÐIN!
Ferðamenn a sloðum furfeðia
FERÐAÞJONUSTA bænda er
þátttakandi í samstarfi nokkurra
þjóða undir yfirskriftinni „Routes
to the Roots“ sem á íslensku
mætti útleggja sem „Leiðir til
rótanna.“ Markmið þessa sam-
starfs er að bjóða afkomendur
innflytjenda frá Evrópu til
Bandaríkjanna velkomna á slóðir
forfeðranna og hefur verkefnið
verið styrkt af Evrópusamband-
inu.
Samstarfíð var kynnt á fundi
sem haldinn var í New York í
síðustu viku. Þar kom meðal ann-
Ferðafélag íslands
Helgina 14.-15. október verður
farið í haustferð í óbyggðir. Lagt
verður af stað kl. 8 á laugardags-
morgun og gist í sæluhúsi Ferðafé-
lagsins aðfararnótt sunnudags.
Laugardaginn 14. október kl.
10.30 verður farið í haustgöngu
Hornstrandafara. Gengið verður á
Selfjall og niður með Ingólfsfjalii
að Efstalandi í Olfusi. Kvöldverður
og skemmtun í Básnum að lokinni
göngu. Skollertríóið kyndir undir
söng göngufólks. Þáttaka er ekki
eingöngu bundin við Hornstrand-
arfara Ferðafélagsins.
Sunnudaginn 15. október verða
tvær gönguferðir á Hengilssvæð-
inu. Kl. 10.30 verður gengið á
Hengil og niður í Dyradal. Kl. 13
verður ijölskylduganga um Hestvík
ars fram í máli Johns Jordan,
yfirmanns ferðamáladeildar
ESB, að „Routes to the Roots“
væri besta verkefnið sem í gangi
væri innan deildarinnar. Lofaði
Jordan áframhaldandi stuðningi
Evrópusambandsins.
Á fundinum kom einnig fram
loforð talsmanna Ferðamálaráðs
Bandaríkjanna þess efnis að þeir
tækju að sér dreifíngu á fyrsta
sameiginlega bæklingnum sem
gerður hefur verið um verkefnið.
I Bandaríkjunum einum verður
honum dreift í 180 þúsund ein-
og Nesjahraun, ekið um Nesjavalla-
veg. Brottför í ferðirnar er frá
BSÍ, austanmegin og Mörkinni 6.
tökum í fyrstu umferð, en í bækl-
ingnum er að finna kynningu á
öllum löndum sem taka þátt í
samstarfinu. Auk íslands er þar
um að ræða Grikkland, Holland,
Noreg, Bretland, Þýskaland og
írland. Á næstunni er gert ráð
fýrir að Ítalía, Finnland, Pólland,
Slóvenía og Ungveijaland bætist
í hópinn.
Stjórn verkefnisins „Routes to
the Roots“ skipa 5 manns og á
ísland þar fulltrúa, Þórdísi
Eiríksdóttur. ■
Útivist
Sunnudaginn 15. október verður
genginn annar áfangi raðgöngunn-
ar forn frægðarsetur. í þetta skipti
verða Bessastaðir heimsóttir en lagt
verður af stað frá BSÍ kl. 10.30.
Guðmundur Ólafsson, fornleifa-
fræðingur, fræðir göngufólk um
uppgröftinn á Bessastöðum og Ein-
ar Laxnes, sagnfræðingur, rifjar
upp sögu staðarins. Gengin verður
gömul þjóðleið að þingstaðnum í
Kópavogi og víst að margt fróðlegt
mun bera á góma í ferðinni.
Helgina 14.-15. október verður
farið í helgarferð þar sem gengið
verður yfír Fimmvörðuháls og gist
í skála Útivistar á hálsinum. Farið
verður af stað á laugardagsmorgun
kl. 8. Fararstjóri verður Gunnar
Hólm Hjálmarsson. ■