Morgunblaðið - 15.10.1995, Blaðsíða 1
UM TENGINGU OG DRÁTT ÖKUTÆKJA - 200ÞÚSUND
GÍRKASSAR ÍBOUTHÉON — FORD TRANSITKOMINN AFTUR
TIL ÍSLANDS - DAEWOO BÝÐUR VEL ÍBRETLANDI
Tigra kemur í lok
október
BÍLHEIMAR hf., umboðsaðili Opel flytur inn fyrsta
bílinn af Tigra gerð í endaðan október. Tigra er lítill
sportbíll sem var frumsýndur á bílasýningunni í Frank-
furt 1993. Hann verður líklega á verði frá 1.650.000
kr., þ.e. bíllinn með 1,4 lítra, 90 hestafla véliinni.
Tigra fæst einnig með 1,6 lítra, 101 hestafla vél.
Bílheimar taka inn Tigra með 1,4 lítra vélinni
sem er að öðru leyti mjög vel búinn, m.a. með
ABS-hemlalæsivörn og líknarbelg í stýri.
Þá verður í fyrsta sinn boðin til sölu Opel
Frontera jeppa í nýju húsnæði Bílheima á Sævar-
höfða. Grunngerð, fernra dyra bílsins verður á
3-3,1 milljón kr. Hann er búinn 2,4 lítra bensín-
vél, 136 hestöfl. ■
OPEL
Tigra.
EITTHVAÐ í þessa
veru mun nýr Jaguar
X400 líta út.
Jaguarsmíðar
minni bíl
BÍLAFRAMLEIÐENDUR sem hafa
byggt sitt orðspor og ímynd á fram-
leiðslu stórra eðalbíla þar sem ekkert
er til sparað í tækni og hráefni eru
einn af öðrum að snúa við blaðinu
og gerast alþýðlegri. Eins og kunn-
ugt er hyggst Mercedes-Benz setja á
markað byltingarkenndan smábíl,
svokallaða A-línu, árið 1997 og er
auk þess í samstarfi við svissneska
úraframleiðandann Swatch um fram-
leiðslu á örbílnum Swatchmobile. Nú
berast fregnir af því að Jaguar háfi
hafíð undirbúning á hönnun á bíl í
milliflokki, X400, sem kemur fyrst á
markað árið 2001 sem 2002 árgerð.
Þetta yrði minnsti bíll sem Jaguar
hefur smíðað. Áður hefur verið sagt
frá áformum Jaguar um smíði á
jeppa, X500, í Bandaríkjunum sem
kemur á markað síðla árs 2000.
Jaguar er í samstarfi við
Lincoln/Mercury og
Ford í Evrópu um hönnun á X400
sem verður lítill afturhjóladrifínn bíll.
Kunnugir segja að tilgangurinn
með smíði X400 sé afar einfaldur.
Jaguar þarfnist sölubíls sem er einu
númeri minni en X200, sem verður
smíðaður í Castle Bromwich í Eng-
landi og keppir á sama markaði og
5-lína BMW. Ford í Evrópu vantar
bíl sem gæti leyst Scorpio af hólmi
og Lincoln/Mercury væri akkur í því
að fá alveg nýjan bíl til að keppa við
Acura, Infiniti og Lexus í Bandaríkj-
unum.
Líklegt þykir að bíllinn verði búinn
V6 og V8 vélum. Áætlanir gera ráð
fyrir 100 þúsund bíla sölu á ári. ■
Jepplingur
frá Honda
HONDA hefur sett á mark-
að í Japan CR-V, nýjan
smájeppa, (jeppling), sem
ætlað er að keppa við við
Toyota RAV4. Þetta er
fyrsti jeppinn sem Honda
smíðar upp á eigin spýtur.
Honda ráðgerir að selja 3
þúsund CR-V á mánuði.
BílUnn er með nýrri gerð
fjórhjóladrifsbúnaðar og
nýrri tveggja lítra, neyslu-
grannri vél.
BIIiNJN
OG VIS
[ANAR ÞER
Með Bílaláni VÍS getur þú keypt nýjan
eða notaðan bíl á staðgreiðsluverði.