Morgunblaðið - 15.10.1995, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 15. OKTÓBER 1995 C 3
Um tengingu og
drátt öícutækia
TALSVERÐUR misbrestur virðist á
því hvernig og yfirhöfuð hvort öku-
menn fá vitneskju um reglur og
reglugerðir sem settar eru fyrir okk-
ur vegfarendur að fara eftir. Hér
kemur kynning á einni reglugerð
sem sett var árið 1992 og fjallar um
tengingu og drátt ökutækja.
Hér áður fyrr voru ekki eins skýr-
ar reglur um tengingu og drátt og
nú eru í gildi. Þannig var ekki gert
ráð fyrir því að tengibúnaður væri
sérbúnaður sem sérstaklega væri
tilgreindur í skráningarvottorði. Nú
eru hins vegar í gildi reglur sem
kveða á um að það er óheimilt að
nota ökutæki til að draga eftirvagn
nema það sé skráð til slíkrar notk-
unar. Það þýðir með öðrum orðign
að dráttarbúnaðurinn, beislið,
dráttarkúlan og raftengið eiga
að vera af viðurkenndri gerð
og samþykkt af skoðunaraði-
lanum. Slíkur búnaður er skráð-
ur sem sérbúnaður í skráning-
arskírteini. Allir sjá nauðsyn
þess að slíkur búnaður í notkun
sé í fullkomnu lagi og uppfylli
öryggiskröfur. í reglugerðinni
koma fram upplýsingar um
Ijósabúnað á eftirvagni og
tengitæki og þær má endur-
segja í þeim orðum að eftir-
vagnar og tengitæki, sem notuð
eru í almennri umferð, eiga að
vera með stöðu-, hemla- og
stefnuljósum og einnig í flestum
tilfellum með númeraljósum.
Þegar ökutæki er dregið
með taug má hraðinn
vera mestur 30 km á
klst og hámarksbil milli
ökutækjanna má mest
vera 5 metrar
á því að kaupa eitt viðbótarskrán-
ingarnúmer til að setja aftan á kerr-
una sína og ber þá kerran sama
númer og bíllinn sem dregur. Þó ber
að geta þess að ef kerran er 750
kg að heildarþyngd eða meira þá
er hún skráningarskyld og önnur og
Númer á flestum kerrum
í reglugerðinni er sagt frá
því í 3. grein að: „Skyggi öku-
tæki (eftirvagn eða tengitæki)
sem ekki er skráð á skráningar-
merki bifreiðar sem það er tengt
við, skal vera skráningarmerki á
ökutækinu sem er dregið.“ Þetta
þýðir það með öðrum orðum að sá
sem dregur kerru á eftir sér, sem
gerir það að verkum að aðrir vegfar-
endur sjá ekki á númerið á bílnum
hans er að bijóta ákvæði reglugerð-
ar þessarar og þar með umferðarlag-
anna. Til að leysa þetta vandamál
eiga þeir sem eiga bílar sem eru
með viðurkenndan tengibúnað rétt
ÞEIR sem eiga bílar með viðurkenndum
tengibúnaði eiga rétt á því að kaupa
eitt viðbótarskráningarnúmer til að
setja aftan á kerruna sína.
ítarlegri ákvæði gilda. Af sjálfu leið-
ir að það þarf númersljós til að lýsa
á númer aftan á kerru sem dregin
er á eftir ökutæki hvort sem kerran
er skráningarskyld eður ei.
Hámarkshraði í drætti
Þegar dregið er með taug má
hraðinn vera mestur 30 km á klst
en ef dregið er með stöng eða öðrum
viðurkenndum búnaði _ má hann
mestur vera 50 km klst. í reglugerð-
inni segir einnig að ef dregið er með
taug megi hámarksbilið milli öku-
tækjanna vera mest 5 metrar og það
eigi að merkja taug með rauðri eða
gulri veifu ef hún er lengri en 3
metrar. Þá er að finna í reglugerð-
inni ákvæði um það að ökutæki
megi ekki draga þyngra ökutæki en
það er hannað til að draga. Sömu-
leiðis er kveðið á um að bifreið með
heildarþyngd allt að 3500 kg eða
minni má ekki draga hemlalaust
ökutæki (eins og eftirvagn) sem er
þyngra en helmingur af eigin þyngd
ökutækisins sem dregur, Lítið og
létt ökutæki, t.d. lítinn fólksbíll með
1400 kg heildarþyngd og 800 kg
eigin þyngd, má ekki nota til að
draga hemlalausan eftirvagn (t.d.
vélsleða- eða- hestakerru), sem
er þyngri en helmingur af eigin
þyngd bílsins þ.e. 400 kg. Þegar
eftirvagninn er búinn hemlum
gilda lítið eitt aðrar reglur.
Ósiöur og lögbrot
En víkjum aðeins að öðru
atriði sem mér er næst að halda
að sé séríslenskt. Oft má sjá til
ferða ökumanna sem fest hafa
bíla sína saman með spotta og
síðan er báðum bílunum ekið
fýrir vélarafli en sá aftari þá
óskráður. Er þetta leyfilegt?
Svarið við því er neitandi. í
skilningi umferðarlaganna á sér
stað akstur beggja ökutækj-
anna þó svo þau séu fest saman
með spotta og akstur óskráðra
skráningarskyldra ökutækja er
bannaður nema við sérstakar
aðstæður. Það sem verið er að
gera með því að hnýta spottann
á milli er væntanlega það í flest-
um tilfellum að ökumaður skráða
ökutækisins (þess sem er búið núm-
erum) er með tryggingum á bíl sín-
um að ábyrgjast óskráð ökutæki
hvað varðar bætur fyrir hugsanlegt
tjón. Hér er ekki um drátt að ræða
og athæfi sem þetta orkar mjög tví-
mælis og lögreglu ber að taka á slík-
um brotum og kæra ökumenn sem
gerast á þann hátt brotlegir. ■
Eiríkur Hreinn Helgason er
kennarí í Lögregluskóla ríkisins.
3ja lítra Opel Corsa
OPEL kynnti á bílasýningunni í
Frankfurt framlag sitt í óformlegri
samkeppni allra helstu bílaframleið-
enda í Evrópu um svokallaðan
þriggja lítra bíl. Þriggja lítra bíll á
að komast 100 km leið á þremur
lítrum af eldsneyti. Opel segir að
frumgerðin af 3ja lítra Opel Corsa
Eco 3 komist 100 km á 3,4 lítrum
af dísilolíu og nái 3ja lítra markinu
með því að bílnum sé ekið á jöfnum
90 km hraða á klst. Eco 3 er með
dísilvél með forþjöppu og beinni
innspýtingu. Bíllinn er gerður að
mestu úr léttum efnum sem enn
sem komið er þykja ekki hagkvæm
til notkunar í fjöldaframleidda bíla.
í raun réttri á þriggja lítra bíll
að komast þessa leið á þremur lítr-
um á ýmsum aksturshraða, svoköll-
uðum „Euromix" sem er staðall þar
sem líkt er eftir raunverulegu akst-
urslagi ökumanna.
OPEL Corsa Eco 3
ÞAÐ fer ekki mikið fyrir dísilvél-
inni sem er með beinni inn-
spýtingu og forþjöppu.
Fleiri á lefAinni
Með Opel Corsa Eco 3 frumgerð-
inni hefur Opel slegist í hóp með
öðrum stórum bílaframleiðendum í
Þýskalandi sem ætla að framleiða
neyslugranna bíla. Mercedes-Benz
hefur t.a.m. sagt að ein útfærslan
í A-línunni sem kemur á markað
1997 verði 3ja lítra bíll og
Volkswagen hefur sömuleiðis lýst
því yfir að slíkur bíll verði smíðaður
í verksmiðjum VW.
BMW hefur gefið til kynna að
3ja lítra bíllinn komi frá dótturfyrir-
tækinu Rover í Englandi árið 2000
en Rover hefur víðtæka reynslu af
framleiðslu smábíla.
SÆTISÁKLÆÐI og. innrétt-
ing er óvenjuleg.
ÚR verksmiðju Renault V.I. í Bouthéon.
200 þúsund gírkassar
í Bouthéon
VERKSMIÐJA Renault V.I., þar
sem framleiddir eru B9 og B18 gír-
kassar í flutningabíla, var opnuð
árið 1970. Hún er staðsett í Bouthé-
on í Loire-dal og veitir nálægt 450
manns vinnu. Nýlega var 200 þús-
undasti gírkassinn framleiddur í
verksmiðjunni. íslenskir blaðamenn
áttu þess kost á dögunum að litast
um í þessari sérhæfðu og tækni-
væddu verksmiðju.
Auk þessara tveggja gerða af
gírkössum eru framleiddir í Bouthé-
on G4 gírkassarnir sem eru 5,6 eða
9 gíra og gerðir fyrir 850 Nm átak
að hámarki. Fyrsti B9 gírkassinn
með 9 gírum fyrir 310 hestöfl leit
dagsins ljós í árslok 1979. B18, 18
gíra útgáfan, var síðan smíðaður
1984 fyrir 340-370 hestöfl.
Lægri bilanatíðni
Á þeim 15 árum sem verksmiðj-
an hefur verið starfrækt hefur
B9-B18 gírkassinn verið þróaður
til að vinna með 10 og 12 lítra
vélum og V8 og E9 Mack-vélum,
en Repault á Mack í Bandaríkjun-
um. Árið 1986 var fyrsta ACS-
kerfið, (sjálfvirk kúpling), smíðáð
í verksmiðjunni og 1992 kom TBV-
kerfið á markað sem er tölvustýrð-
ur gírkassi. 1993 náðist sá áfangi
að B9-B18 gírkassinn náði 2.000
Nm átaki. í Bouthéon eru nú fram-
leiddir gírkassar fyrir að allt að
530 hestöfl og 2.250 Nm átak.
Afkastageta vörubifreiða er sí-
fellt að aukast og meðalkeyrsla
þeirra hefur aukist frá 80 þúsund
km á ári í 120 þúsund km á ári.
Áreiðanleiki vörubifreiða hefur auk-
ist á síðustu árum og bilanatíðni
minnkað og það á jafnt við B9-B18
gírkassana. Tvöfalt gæðaeftirlit er
í verksmiðjunni í Bouthéon og áður
en gírkassarnir fara út úr henni
fara þeir í gegnum ítarlega prófun.
í verksmiðjunni er hægt að fylgj-
ast með því hvernig hráefnið, stál
og ál, verður að fínrenndum tann-
hjólum á fjölmörgum sérhæfðum
vinnustöðvum verksmiðjunnar.
Renault hóf að nota ál í gírkassa
sína á þessu ári og með notkun
þess léttist B18 gírkassinn um 100
kg og er hann einna léttasti gírkass-
inn á markaðnum, 300 kg. Renault
hefur að meðaltali varið 40 milljón-
um franka á ári í fjárfestingar síð-
astliðin tíu ár. Frá 1992 hafa verið
keyptar 30 nýjar vélar til framleiðsl-
unnar og má þar nefna sveigjanlegt
færiband til framleiðslu á gírköss-
um, vélvæðingu við málun gírkass-
anna við lok framleiðslustigsins,
fræsivélar og rennibekki til fram-
leiðslu á drifum og tannhjólum,
uppsetningar til stillinga á áhöldum
og vélvæddum þrívíddármælum til
að auka gæðin. ■
TILBOÐ
ÓSKAST
í Honda Passport LX, 4W/D, árgerð '94 (ekinn 14 þús.
mílur), GeoTracker, 4x4, árgerð '93 (ekinn 12 þús.
mílur), Ford ExplorerXL, 4x4, árgerð '91 (breyttur),
Buick Skylark árgerð '91 og aðrar bifreiðar, er verða
sýndar á Grensásvegi 9 þriðjudaginn 17. október
kl. 12-15.
Ennfremur óskast tilboð í Baker gaffallyftara,
rafknúinn, 2000 Ibs.
Tilboðin verða opnuð á sama stað kl. 16.
SALA VARNARLIÐSEIGNA
•c