Morgunblaðið - 20.10.1995, Blaðsíða 4
t
Ragnar og
Olafur
áfram með
Keflavík
VÍÐIR í Gardi hefur átt í við-
ræðum við Óla Þór Magnús-
son, knattspyrnumann úr
Keflavík, um að hann taki að
sér þjálfun hjá félaginu, en
hann hefur ekki gefið ákveðið
svar ennþá. Keflvíkingar hafa
endurnýjað samninga við aiia
leikmenn sína og þar með
talda Ragnar Margeirsson og
Ólaf Gottskálksson, en orð-
rómur var uppi um að þeir
væru á förum frá félaginu.
Þriggja leikja
bann fyrir
gróft brot
JULIAN Dicks, bakvörður
West Ham, var í gær dæmdur
í þriggja leikja bann fyrir að
hafa að yfirlögðu ráði traðkað
á höfði John Spencers, mið-
heija Chelsea, í leik liðanna
11. september, sem Chelsea
vann 3:1. Sauma varð átta spor
f höfuð Spencers til að loka
skurði sem hann fékk, en
Spencer var búinn að skora tvö
mörk þegar hann yfirgaf völl-
inn. Dómarinn Robbie Hart
bókaði Dicks, en rak hann ekki
af velli þar sem hann sá ekki
brotið nægilega vel. Dicks hef-
ur þótt grófur leikmaður —
hann hefur verið bókaður 54
sinnum á keppnisferli sinum'
og niu sinnum hefur hann ver-
ið rekinn af leikvelli.
Kristinn
dæmir í Evr-
ópukeppni
lands iða
KRISTINN Albertsson körfu-
knattleiksdómari úr Breiða-
bliki mun dæma leik Englands
og Þýskalands í Evrópukeppni
landsliða, en leikurinn fer fer
fram í Englandi 12. nóvember.
Kristinn er nýkominn frá
Frakklandi þar sem hann
dæmdi tvo leiki i Evrópu-
keppni félagsliða þannig að
hann hefur nóg að gera í dóm-
gæslunni á vegum FIBA. Þetta
er í fyrsta sinn sem FIBA út-
hlutar íslenskum dómara leik
í Evrópukeppni landsliða og
er mikill fengur fyrir Kristinn
og íslenska dómarastétt.
Real Madrid
gegn
Houston?
EVRÓPUMEISTARAR Real
Madrid unnu, 99:71, England’s
Sheffield Sharks á fyrsta
kvöldi McDonald’s körfuknatt-
leiksmötsins, sem hófst f Lond-
on í gærkvöldi. Real Mardrid
er talið líklegt til að leika úr-
slitaleikinn gegn Houston Roc-
kets á sunnudaginn — liðið
mætir Bologna frá Ítalíu í und-
anúrslitum í kvöld, en ítalska
liðið lagði Maccabi Tel Aviv frá
ísrael í gærkvöldi 112:103.
Houston Rockets mætir Perth
Wildcats frá Ástralíu i hinum
undanúrslitaleiknum.
EVERTON varð að láta sér
nægja jafntefli, 0:0, gegn Fey-
enoord í Evrópukeppni bikar-
hafa f gærkvöldi á Goodison
Park. Eftir þessi úrslit er talið
næsta vfst að Feyenoord komist
áfram f 16-liða úrslitin. Leik-
menn Everton lifa þó fvoninni
að þeir eigi eftir að upplifa sælu-
kvöld í Rotterdam, eins og leik-
menn tiðsins gerðu 1985, þegar
þeir tryggðu sér sigur f Evrópu-
keppni bikarhafa með þvf að
leggja Rapid Vín að velli f úrslita-
leik.
Evertonliðið lék í gærkvöldi einn
sinn besta leik síðan Joe Royle
gerði breytingar á byijunarliði sínu
og leikaðferð, en þeir náðu ekki að
nýta sér það — fundu ekki leiðina
að netamöskvunum. Neville South-
all, eini leikmaðurinn sem er eftir
af Evrópumeistaraliðinu 1985, sýndi
frábæra markvörslu — þegar hann
varði skot frá Michael Obiku, Gio-
vanni Van Bronckhorst, Rob Witsc-
hge og Rob Maas.
Leikmenn Everton fengu einnig
fjölmörg góð marktækifæri — t.d.
fékk Paul Rideout tækifæri til að
koma Mersey-liðinu yfír eftir aðeins
sjö mín. Það var Anders Limpar sem
gerði mestan usla í vörn Feyenoord
og þrátt fyrir mörg gullin tækifæri
gekk ekkert hjá Everton í leiðinni
að marki, en þegar tvær mín. voru
til leiksloka var Rideout nær búinn
að tryggja heimamönnum sigur —
skalli frá honum fór rétt framhjá.
„Það er ekki öll nótt úti, ég hef
trú á því að við getum klárað dæmið
— það eru góðir möguleikar. Fey-
enord tefldi fram sínu sterkasta liði,
en við lékum án Daniel Amokachi
og Andy Hinchcliffe," sagði Joe Ro-
yle, framkvæmdastjóri Everton. Arie
Haan, þjálfari Feeyenoord, kom
mönnum á óvart fyrir leikinn þegar
hann setti út hollenska landsliðs-
manninn Orlando Trustfull og Pól-
veijann Tomasz Iwan fyrir tvo tán-
inga George Boateng og Giovanni
Van Bronckhorst. „Við náðum ekki
að sýna það besta sem hollensk
knattspyma getur boðið uppá, en við
eigum eftir að gera það — og við
förum áfram,“ sagði Haan.
Ein sókn hjá Celtic
Youri Djorkaeff náði að bijóta .
vamarmúr Celtic niður þegar fímmt-
án mín. vom til leiksloka á Parc des
Princes í París og tryggja París St.
Germain sigur, 1:0. Franska liðið var
látlaust í sókn allan tímann, en náðu
aðeins að skora eitt mark. Djorkaeff
átti stangarskot níu mín. áður en
hann skoraði. Aðeins einn leikmaður
á vellinum gat tekið því rólega; mark-
vörður Parísarliðsins Bemard Lama,
sem stöðvaði léttilega einu hættulegu
sókn Celtic í leiknum — á 36. mín.
Martin Dahlin skoraði tvö mörk
fyrir Mönchengladbach, sem lagði
AEK Aþenu að velli, 4:1. Þýska liðið
gerði út um leikinn með þremur
mörkum á sextán mín. kafla í seinni
hálfleik.
Reuter
ULRICH Van Gobbel, lelkmaður Feyenoord, er hér búlnn að leika á Paul Rldeout hjá Everton.
Nayim rekinn af leikvelli
Nayim, hetja Real Zaragoza frá
úrslitaleik Evrópukeppni bikarhafa í
maí sl. — fyrram leikmaður Tott-
enham, sem skoraði sigurmarkið,
2:1, fyrir Zaragoza af 50 m færi,
var rekinn af Ieikvelli þegar liðið
lagði FC Briigge á heimavelli. Hann
var rekinn af leikvelli eftir að hafa
fengið að sjá sitt annað gula spjald
í leiknum. Santiago Aragon skoraði
fyrir heimamenn úr vítaspymu á 28.
mín. og aðeins sex mín. seinna var
knötturinn aftur kominn í mark Belg-
íumanna; Daniel Garcia Dani skoraði
2:0. Lorenzo Staelens svaraði fyrir
gestina á 72. mín., eða stuttu eftir
að Nayim var rekinn af leikvelli,
þannig að hann getur ekki Ieikið með
í seinni leik liðanna.
Panna fékk skell
Þau úrslit sem komu mest á óvart
í gærkvöldi var sigur Halmstad, 3:0,
yfir Parma, sem vann keppnina 1993
og tapaði úrslitaleik gegn Arsenal
1994, 0:1, í Kaupmannahöfn. Sænski
landsliðsmaðurinn Niklas Gud-
mundsson skoraði tvö mörk fyrir
sænska liðið og Robert Andersson
bætti því þriðja við. Aðeins 9.000
áhorfendur sáu leikinn, sem spilaður
var í Gautaborg, 150 km fyrir norð-
an Halmstad. Astæðan fyrir því var
að ekki var leikið á leikvellinum í
Halmstad er verkfall ríkisstarfs-
manna.
Sporting Lissabon, sem vann Evr-
ópukeppni bikarhafa 1964, lagði Vín-
arliðið Rapid, 2:0, með mörkum frá
Sa Pinto og Paulo Alves.
■ Úrslit / C2
KNATTSPYRNA
Evertonmenn lifa
enn í voninni