Morgunblaðið - 28.10.1995, Side 1
• Skáld lífs og vonar/2
• 28. október 1918/4
• Svanasöngur/8
MENNING
LISTIR
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS LAUGARDAGUR 28. OKTÓBER 1995
BLAÐ
BRYNHILDUR með bréfpoka á höfði í niðurlægingu sinni,
ræðir við Gunnar sem klæddur er í flagaraföt.
Ragnarök með
öðru sniði
Grammophone-
verðlaun veitt
MAXIM Vengerov og Mstislav Rostropovitsj.
TÆKNILEG mistök sneru sýn-
ingu á umdeildri uppfærslu Kon-
unglegu óperunnar í London á
Ragnarökum úr Niflungahring
Wagners upp í farsa á dögunum.
Vegna tæknilegra mistaka logaði
ekki á eldi sem átti að gleypa „lík“
Sigurðar Fáfnisbana. Þá komst
valkyrjan Brynhildur „ósködduð"
frá því að ganga í dauðann með
Sigurði, þar sem ekki logaði neinn
eldur. Ahorfendur brugðust æfir
við þessu spennufalli á hápunkti
sýningarinnar og var baulað á
Peter Jones, leikstjóra, þegar
hann sté á svið í lokin.
Þetta var þó langt í frá það
eina sem fundið var að sýning-
unni, því uppsetning Niflunga-
hringsins hefur í heild verið afar
umdeild. Á frumsýningum ann-
arra ópera úr Hringnum hafa
ævinlega einhverjir áhorfenda
baulað á söngvara og stjórnendur
í lok sýningar. Ragnarök eru eng-
in undantekning; Sigurður Fáfn-
isbani spókar sig í hólkvíðum
pokabuxum, með lítinn bakpoka
og kaskeiti í stað huliðshjálms.
Þegar fóstbræðralag er svarið,
er það gert með sprautum. Til
að tákna niðurlægingu Brynhild-
ar í öðrum þætti, ber hún bréf-
poka á höfði en er hún dregur
Sigurð á tálar minnir hún helst á
Mae West.
Yfirmenn óperunnar í Covent
Garden, þar sem sýningar fara
fram, kippa sér ekki upp við
gagnrýnina, kveðast hæstánægðir
með.hana enda er nær uppselt á
allar sýningar.
Verðlaun breska
tónlistartímaritsins
Grammophone eru ein
helstu verðlaun í heimi
hinnar klassíku tónlistar
og unnendur hennar
bíða þeirra jafnan með
óþreyju. Fiðluleikarinn
snjalli Maxim Vengerov
frá Rússlandi stendur
uppi með pálmann
í höndunum að
þessu sinni.
BRESKA tímaritið
Grammophone kynnti í
síðasta tölublaði niður-
stöðuna í vali gagnrýn-
enda blaðsins, sem skipta tugum,
á plötum ársins, en verðlaun
Grammophone eru ein helstu verð-
laun í heimi klassískrar tónlistar.
Að þessu sinni var valin plata með
hinum unga rússneska fiðluleikara
Maxim Vengerov þar sem hann
flytur fiðlukonserta eftir Prókofíef
og Sjostakovitsj með Sinfóníu-
hljómsveit Lundúna undir stjórn
Mstislavs Rostropovitsj, en í skýr-
ingum með valinu segir að Veng-
erov takist að setja mark sitt á
konsertana, sem ævinlega hafi
verið nátengdir listaleik Davids
Oistrakhs.
Eftirtaldar útgáfur hlutu verð-
laun:
Leikin barrokktónlist: Átta són-
ötur fyrir fiðlu og fylgirödd og
fleiri verk eýtir Heinrich Ignatz
Biber sem Hamonia Mundi gefur
út. Flytjendur eru félagar í
Romanesca tríóinu.
Sungin barokktónlist: Mótettur
eftir Rameau sem Erato gefur út.
Flytjendur eru Les Arts Florisants
undir stjórn Williams Christies.
Kammertónlist: Píanókvintettar
eftir Gustav Fauré sem Hyperion
gefur út. Flytjendur eru Domus
kvartettinn og fiðluleikarinn Anth-
ony Marwood.
Kórverk: Stabat Mater og fleiri
kórverk eftir Szymanowski sem
EMI gefur út, en hún hlaut reynd-
ar einnig verðlaun fyrir bestu upp-
töku. Flytjendur eru einsöngvar-
amir Elzbieta Szmytka, Florence
Quivar, John Garrison, John Conn-
ell og kór og hljómsveit Birming-
ham borgar undir stjórn Simons
Rattles.
Samtímatónlist: Konsertar fyrir
fiðlu og hljómsveit, hnéfiðlu og
hljómsveit og píanó og hljómsveit
eftir Gyorgy Ligeti sem Deutsche
Grammophon gefur út. Flytjendur
eru Saschko Gawriloff, Jean-Guih-
en Queyras og Pierre-Laurent
Aimard með Ensemble InterCon-
temporain undir stjóm Pierre Bo-
ulez.
Miðaldatónlist: Messur eftir
Fayrfax og fleiri kórverk sem ASV
Gaudeamus gefur út. Flytjendur
eru Cardinall’s Musick sönghópur-
inn undir stjórn Andrews Carwo-
ods.
Miðaldaópera: Arthur konungur
eftir Henry Purcell sem Erato
gefur út. Flytjendur era Véronique
Gens, Claron McFadden, Sandrine
Piau, Susannah Waters, Mark
Padmore, Iain Paton, Jonathan
Best, Petteri Salomaa, Francoix
Bazola-Minori og Les Arts Flor-
isants undir stjóm Williams
Christies.
Söguleg upptaka, leikin: Níunda
sinfónía Beethovens, upptaka frá
1954 sem Tahra gefur út. Flytj-
endur eru einsöngvararnir Elisa-
beth Schwarzkopf, Elsa Cavelti,
Ernst Haefliger og Otto Edelmann
með kór og fílharmóníusveit Luc-
erne hátíðarinnar undir stjórn
Wilhelms Furtwánglers.
Söguleg upptaka, sungin: L’en-
fant et les sortileges eftir Maurice
Ravel sem Testament gefur út,
fyrsta upptaka óperunnar, gerð
1948. Einsöngvarar eru fjölmarg-
ir, en hljómsveitin er Þjóðarhljóm-
sveit franska útvarpsins undir
stjórn Ernest Bours.
Einleiksverk: Píanóverk eftir
Chopin sem Sony Classical gefur
út. Murray Perahia leikur.
Söngleikjatónlist: I wish it so,
sönglög eftir ýmsa höfunda, þar á
meðal Stephen Sondheim, Kurt
Weill og Leonard Bemstein sem
Elektra Nonesuch gefur út. Dawn
Upshaw syngur og Eric Stem leik-
ur á píanó.
Ópera: Trolius og Cressida eftir
Walton sem Chandos gefur út.
Einsöngvarar eru meðal annars
Judith Howarth, Arthur Davies,
Clive Bailey og Nigel Robson, sem
syngja með Norður-ensku fíl-
harmóníuhljómsveitinni. Richard
Hickox stjórnar.
Hljómsveitarverk: Kammersin-
fónía, Erwartung og tilbrigði fyrir
hljómsveit eftir Schoenberg sem
EMI gefur út. Simon Rattle stjóm-
ar hljómsveit Birmingham borgar,
en einsöngvari er Phyllis Bryn-Jul-
son.
Einsöngur: An die Musik eftir
Schubert sem Deutsche Grammo-
phon gefur út. Welski baritóninn
Bryn Terfel syngur, Martin Mart-
ineau leikur á píanó.
Þess má svo geta að besta
myndband var valið myndband
með myndskeiðum frá tónleikum
ýmissa heimsþekktra stjórnenda,
listamaður ársins var valinn tón-
skáldið og stjórnandinn Pierre
Boulez, sem fagnar sjötugsafmæli
sínu á árinu, sérstaka viðurkenn-
ingu fékk Decca útgáfan fyrir út-
gáfuröð sína Entartete Musik, sem
helguð er tónlist sem nasistar
bönnuðu sem úrkynjaða, tónskáld-
ið Michael Tippett hlaut viður-
kenningu fyrir ævistarf sitt og
metsöluplata ársins var upptaka
frá tónleikum tenóranna þriggja,
Carreras, Domingos og Pavarottis
frá Los Angeles í júlí 1994, en hún
seldist í hálfri áttundu milljón ein-
taka.
Saumað til
framtíðar
Liv Reidun er norsk listakona
sem ferðast á milli landa og
sýnir gjörninga. Hér sést hún
í Nýlistasafninu að sauma út
barnamyndir í karlmannsföt-
um. Gjörningurinn á að flytja
boðskap til framtíðar. Munu
jafnréttismál vera meginum-
fjöllunarefnið en föt Liv eiga
að gefa skýra vísbendingu
um það. Liv gerði ekki boð á
undan sér heldur datt óvænt
inn í safnið. Hún mun vera
farin af landi brott.
Morgunblaðið/Ásdís