Morgunblaðið - 01.11.1995, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 1. NÓVEMBER 1995 C 7
FRÉTTIR
Ljósmynd: Leó
EIGENDUR Gunnvarar á 20 ára afmæli félagsins, 1975, f.v. Jóhann Júlíusson, Margrét Leós, Þórð-
ur Júlíusson, Bára Iljaltadóttir, Jón B. Jónsson og Helga Engilbertsdóttir.
Réttu mér bara höndina
FJÖRUTÍU ár eru liðin frá því út-
gerðarfélagið Gunnvör hf. á Isafirði
var stofnað. Félagið gerir út frysth
togarann Júlíus Geirmundsson ÍS
270, á íshúsfélag ísfirðinga hf. og
hlut í fleiri sjávarútvegsfyrirtækjum
og þjónustufyrirtækjum. Gunnvör
er umsvifamesta fyrirtæki á Vest-
fjörðum og eitt af stærri sjávarút-
vegsfyrirtækjum landsins þegar
dótturfélög eru talin með.
í tilefni afmælisins hefur Rúnar
Helgi Vignisson tekið saman sögu
fyrirtækisins í riti sem nefnist
Gunnvör í 40 ár. Stjórnendur fé-
lagsins afhentu skipveijum söguna
á dögunum.
Útgerð í öldudal
Á árinu 1955 hafði útgerð á
ísafirði og raunar Vestfjörðum öll-
um dregist mjög saman og allt virt-
ist stefna í voða fyrir bæjarfélag
sem byggði afkomu sína einkum á
sjávarfangi. í riti Rúnars Helga,
sem frásögn þessi byggist á, kemur
fram að við þessar aðstæður spruttu
upp tvö ný útgerðarfélög sem áttu
eftir að hafa víðtæk áhrif á atvinnu-
líf á ísafirði. Annað þeirra var
Gunnvör hf. sem stofnuð var 7.
október 1955 af þrennum ísfirskum
hjónum, Jóhanni Júlíussyni og Mar-
gréti Leós, Jóni B. Jónssyni og
Helgu Engilbertsdóttur og Þórði
Júlíussyni og Báru Hjaltadóttur.
Fljótlega var ráðist I að láta
smíða bát. Jóhann Júlíusson, fram-
kvæmdastjóri félagsins, fór á fund
Marsellíusar Bernharðssonar skipa-
smiðs og í afmælisritinu segist hon-
um svo frá þeirri ferð: „Ég fer yfir
til Marsellíusar og spyr hann að því
hvort hann vilji byggja fyrir okkur
bát. Já, hann segir: „Þú ert fyrstur
í þessari röð.“ Það var þar með
ákveðið að hann byggði fyrir okkur
skip. Þá spurði ég hann hvort við
ættum ekki að skrifa samning eða
eitthvað í þá veruna. „Nei, nei,“
sagði hann, „réttu mér bara hend-
ina.'þá er það allt í lagi.“
Báturinn fékk nafnið Gunnvör
og var afhentur í ársbyijun 1956.
Reyndist hún happafleyta. Gunnvör
var vanalega gerð út á síld á sumr-
in og línu á veturna. Hún var ævin-
lega með aflahæstu bátum á ísafirði
og þar með á Vestíjörðum. Jón B.
Jónsson var skipstjóri frá upphafi
og þar til skipið var selt árið 1966,
nema á árunum 1961-62 er Vignir
sonur hans var með skipið.
Árið 1961 samdi Gunnvör hf. við
skipasmíðastöðina í Flekkefjord í
Noregi um smíði tæplega 160 smá-
lesta stálskips sem hlaut nafnið
Guðrún Jónsdóttir og kom til lands-
ins í árslok 1962. Skipið reyndist
vel og markaði upphaf nýrrar stál-
skipaaldar vestra.
„Eins og sleglð sé í hausinn"
í afmælisritinu lýsir Jóhann Júl-
íusson aðdragandanum að því að
næsta skip var keypt en það varð
fyrsti Júlíus Geirmundsson: „Einu
sinni er ég á leið niður í slipp. Þeg-
ar ég kem á móts við verslun Jóns
Þórólfssonar er eins og slegið sé í
hausinn á mér. Ég sný við. Þá dett-
ur mér það í hug — ég var nú ekk-
ert búinn að tala við stjórnina —
að við verðum að fá okkur nýtt
skip. Svo ég fer bara beint upp
eftir aftur og
hringi í Gunnar
Friðriksson [í
Vélasölunni] og
spyr hann
hvernig standi
hjá honum með
skip á næst-
unni. Þá var
maður nú orð-
inn nokkuð boru-
brattur, ég var
ekki einu sinni
búinn að tala við
bankastjórann.
Hann segir að
það standi svo
að hann sé með
sex skip í smíð-
um og við getum
fengið eitt, en
ekki það fyrsta
af því að jarlinn
á Þingeyri, hann
Rögnvaldur, sé
búinn að panta
skip. En við get-
um fengið ann-
að. Svo ég segi
við Gunnar: Þú mátt ábyggilega
skrifa okkur á með annað skipið."
Júlíus var 268 smálestir og kom
til ísafjarðar í mars 1967. Hann
var gerður út á línu og síld fyrst í
stað, en eftir að síldin brást fór
hann á togveiðar í stað þess að
reyna fyrir sér í Norðursjó eins og
margir síldarbátarnir gerðu. Það
telur Jóhann Júlíusson að hafi verið
happ þeirra Gunnvararmanna. Nú
þurfti ekki að skvera skipin nema
einu sinni á ári og aldrei hlé á veið-
um. Segir Jóhann að þarna fyrst
hafi myndast ein-
hver sjóður til að
fleyta sér á.
Vignir Jónsson
var skipstjóri á'
Júlíusi Geir-
mundssyni fyrstu
mánuðina, eins
og á Guðrúnu
Jónsdóttur áður,
en síðan tók Her-
mann Skúlason
við skipinu.
Fyrsti
nýsmíðaðl
skuttogarl
Vestfirðinga
Ekki liðu mörg
ár þangað til að
farið var að huga
að stækkun.
Vestfirskir út-
gerðarmenn
sömdu um smíði
fimm skuttogara
í Noregi og kom
fyrsta skipið í
hlut Gunnvarar
hf. Júlíus. og Guðrún voru seld til
að fjármagna kaupin. Nýr Júlíus
Geirmundsson var 407 lestir að
stærð. Kom hann til heimahafnar
í desember 1972 og var fyrsti ný-
smíðaði skuttogari Vestfirðinga. Sú
nýlunda var tekin upp með skipinu
að allur fiskur var ísaður í kassa
um borð og batnaði þá meðferð á
fiskinum til muna, auk þess sem
hagræði jókst. Var Júlíus fyrsti ís-
lenski togarinn sem þannig var
búinn. Fleiri nýjungar voru í skip-
inu, eins og til dæmis sérstök tromla
fyrir flotvörpu. Júlíus reyndist mik-
• ið aflaskip og í hönd fór góðæri hjá
útgerðinni.
Skipið var endurnýjað 1979 með
tæplega 500 rúmlesta skipi með
sama nafni sem einnig var smíðað
í Flekkefjord. Sá Júlíus var í eigu
Gunnvarar hf. í áratug og ævinlega
í hópi aflahæstu togara landsins.
Strax á sínu fyrsta heila veiðiári,
1980, náði hann mesta afla sem
nokkurt skipa félagsins hefur náð
fyrr eða síðar, 6.456 tonnum.
Gunnvör hf. gerir nú út þriðja
skuttogarann. A árinu 1987 var
samið um smíði hans í Póllandi. Á
smíðatímanum var ákveðið að gera
hann að flakafrystitogara. ,Júlíus
Geirmundsson kom til heimahafnar
1989 og var fyrsta eiginlega verk-
smiðjuskip Vestfirðinga. Rekstur
skipsins hefur gengið ágætlega. Vel
hefur aflast þrátt fyrir skertan
kvóta enda hefur skipið jafnhliða
stundað úthafsveiðar á Reykjanes-
hrygg og í Smugunni. Utgerðin
hefur undanfarin ár greitt ein al-
hæstu meðallaun í landinu. Her-
mann Skúlason var skipstjóri fram
að árslokum 1993 en nú er Gunnar
Arnórsson tekinn við skipstjóm.
Umsvifamesta fyrlrtækl á
Vestfjörðum
Gunnvör hf. keypti hlut í íshúsfé-
lagi ísfirðinga hf. á árinu 1957 í
félagi við fleiri ísfirsk útgerðarfé-
lög. Síðar jókst hlutur útgerðarinn-
ar í 35% og hún varð aðaleigandi
félagsins ásamt Hrönn hf., útgerð-
arfélagi Guðbjargar, sem átti jafn-
stóran hlut. Hrönn eignaðist hrein-
an meirihluta árið 1991 eftir kaup
á hlutabréfum bæjarsjóðs og fleiri
bréfum en fyrir rúmu ári keypti
Gunnvör hlut Hrannar og á nú 99%
hlutabréfa í íshúsfélaginu. Af því
leiðir að Gunnvör hf. er nú orðið
umsvifamesta fyrirtæki á Vest-
fjörðum þegar dótturfyrirtækin eru
talin með og telst reyndar stórt á
landsvísu, enda er Ishúsfélagið í
hópi stærstu sjávarútvegsfyrir-
tækja landsins.
Gunnvör hf. er enn í eigu sömu
fjölskyldna og stofnuðu útgerðina
fyrir fjörutíu árum en synir stofn-
endanna eru teknir við stjórn þess.
Kristján G. Jóhannsson er fram-
kvæmdastjóri og í stjórn eru Vignir
Jónsson og Jón Ólafur Þórðarson,
auk Magnúsar Reynis Guðmunds-
sonar stjórnarformanns.
Morgunblaðið/Snorri Snorrason
FRYSTITOGARINN Júlíus Geirmundsson ÍS 270.
Venus væntanlegur heim
eftir miklar endurbætur
AÆTLAÐ er að frystitog-
arinn Venus komi til lands-
ins í næsta mánuði, að
lengt um níu metra sijgn Kristjáns Loft88onar,
• ° framkvæmdastjora Hvals
hf. Þá er eftir vinna við togarann í 4-5 vikur í Hafnarfirði. Hann
hefur verið í viðgerð og endurnýjun í Póllandi, eftir að hann varð eldi
að bráð í fyrra.
Skipið meðal annars
um níu metra
„Eftir brunann varð að rífa úr
togaranum allar innréttingar,“
segir Kristján. Hann segir að skip-
ið hafí verið lengt um níu metra,
vinnsludekkið hækkað og innréttað
hafí verið upp á nýtt. Þá hafí það
verið sandblásið að innan og utan,
skipt hafi verið um gír við aðalvél-
ina, fest hafi verið kaup á nýrri
ljósavél og nýr skrúfubúnaður ver-
ið tekinn í notkun.
Þegar komið verður með togar-
ann í Hafnarfjörð verður unnið að
frekari framkvæmdum við skipið.
Marel hf. útvegar og sér um upp-
setningu á öllu því sem tilheyrir
vinnsludekkinu, þ.e. flökunarvél-
um, færiböndum, blóðgunarkörum,
snyrtiborðum o.s.frv. Þá verða
frystitæki frá Kværner Fodema í
Noregi sótt á leiðinni heim og
gengið verður frá þeim í Hafnar-
firði.
Heildarkostnaður við fram-
kvæmdirnar verður um 450
milljónir, en heildartjónið sem varð
á skipinu í eldsvoðanum í fyrra var
um 200 milljónir. Kristján segir
að áætlað sé að hann verði tilbúinn
í kringum áramótin og fari þá strax
á veiðar.
Um ástæðuna fyrir stækkun
togarans segir Kristján: „Að hluta
til er verið að vinna upp rými sem
fór í meltutanka, sem settir voru
í togarann 1986. Ætlunin var að
þeir tækju við úrgangi og mikið
rými fór undir þá á besta stað í
lestinni. Síðan höfum við siglt með
þá tóma, enda tómt mál að tala
um að standa í þessu. Enginn vill
borga fyrir þetta og menn lenda
jafnvel í vandræðum með að losna
við þetta. Lengingin á meðal ann-
ars að vega upp á móti þessu.“
BÁTAR-SKÍP
Kvóti
Kvótamiðlun og markaður alla daga
Látið skrá kvótann hjá okkur. Höfum ávallt
kaupendur og leigjendur að öllum tegundum
kvóta. Áralöng reynsla, þekking og þjónusta.
Skipasalan Bátar og búnaður,
Kvótamiðlun, sími 565-2554
og símbréf 552-6726.
TILKYNNINGAR
Fiskiðnarfélagar
Munið aðalfund Fiskiðnar laugardaginn 4.
nóvember kl. 18.00 í Síðumúla 11 (Stélið),
Reykjavík.
Upplýsingar í símum 483 3702, Ævar og
555 0005, Óskar.
Fiskiðn,
fagfélag fiskiðnaðarins.
----------------------------------------1