Morgunblaðið - 02.11.1995, Síða 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
1995
2$)$ rguttft Ja&tt)
■ FIMMTUDAGUR 2. NÓVEMBER
BLAÐ
Guðni fær að
leika 90 mín.
gegn Leicester
GUÐNI Berg'sson, fyrirliði landsliðsins í knatt-
spyrau, hefur fengið „grænt ljós“ frá Ásgeiri
Elíassyni landsliðsþjálfara um að hann leiki með
Bolton deildarbikarleik gegn Leicester á mið-
vikudaginn og komi síðan á eftir landsliðinu til
Búdapest í Ungveijalandi á fimmtudag. „Það var
mikill þrýstingur frá Bolton um að við gæfum
Guðna eftir í leikinn. Það varð ofan á að Guðni
fær að leika leikinn, en ef hann verður fram-
lengdur verður Guðni ekki ekki í framlenging-
unni. Boiton fær þvi níutíu mínútur til að gera
út um leikinn með Guðna," sagði Ásgeir. Guðni
átti upphaflega að koma til móts við Iandsliðshóp-
inn í Ámsterdam á þriðjudaginn, en hópurinn
æfir þar áður en haldið verður til Ungveijalands
á miðvikudag.
* y.
Morgunblaðið/Sverrir
ÞORBJÖRN BROSTI BREITT
ÍSLENDINGAR unnu frækilegan slgur á Rússum, 20:18, í fyrrl leik liðanna í undankeppni Evrópukeppninnar í handknattlelk í íþróttahúsinu Kaplakrika í gær-
kvöldi. Þorbjörn Jensson þjálfarl og leikmenn brostu breltt eftir lelklnn og þökkuðu áhorfendum stuðnlnginn. Þetta var fyrstl sigur Islendlnga á Rússum í stórmóti.
Axelhætt-
urmeðKR
Það er allt hægt
í handboltanum
Axel Nikulásson, þjálfari
meistaraflokks KR í
körfuknattleik, hætti störfum
eftir leikinn gegn Breiðabliki í
úrvalsdeildinni í fyrrakvöld.
Axel vildi ekki gefa neina sér-
staka ástæðu fyrir brotthlaupi
sínu, en sagði að það hafi verið
samkomulag milli hans og
stjórnar körfuknattleiksdeildar
félagsins að hann hætti störf-
um. Báðir aðilar hafí verið
óánægðir með gengi liðsins það
sem af er keppni á íslandsmót-
inu. „Staðan er einfaldlega sú
að ég er ekki lengur þjálfari
KR-inga. Þetta var niðurstaðan
og hún er vonandi KR-ingum
til heilla," sagði Axel.
KR-ingar eru í efsta sæti
B-riðils með 12 stig eftir níu
leiki og því skýtur það kannski
skökku við að þjálfari liðsins
skuli vera látinn hætta störfum
út af slöku gengi liðsins. Sófus
Guðjónsson, formaður körfu-
knattleiksdeildar KR, sagði að
ekki væri enn búið að ákveða
hver tæki við liðinu en það
myndi skýrast fljótlega, að
öðru leyti vildi hann ekki tjá
sig um málið.
essi sigur sýnir okkur að það
er allt hægt í handboltanum
og ekkert tapað fyrirfram. Leikur-
inn var kannski ekki mikið fyrir
augað en það er fyrst og fremst
sigurinn sem skiptir máli,“ sagði
Geir Sveinsson, fyrirliði íslenska
landsliðsins, eftir sigurinn á Rúss-
um, 20:18, í Evrópukeppninni í
Kaplakrika í gærkvöldi. Geir var
að leika 100. leik sinn sem fyrirliði
liðsins. „Það var ánægjulegt að
sigra í þessum tímamótaleik og ég
kem til með að minnast hans í ell-
inni,“ sagði fyrirliðinn og brosti.
Geir sagði að leikurinn hefði fyrst
og fremst unnist á frábærri vörn
og góðri markvörslu. „Við náðum
mjög vel saman í vöminni og bökk-
uðum hver annan vel upp. Þegar
einn missti leikmann var annar
mættur til hjálpar og jafnvel sá
þriðji ef því var að skipta. Mark-
varslan hjá Guðmundi var einnig
góð,“ sagði Geir.
„Við tókum ákveðna áhættu með
því að hafa undirbúninginn mjög
stuttan fyrir leikinn, aðeins þijár
æfingar. Við skoðuðum sigurleik
Króata gegn Rússum hér á HM í
vor og reyndum að leggja okkar
leik upp svipað varnarlega og það
gekk upp,“ sagði Geir. Um dóm-
gæsluna sagði hann; „Það var
margt skrýtið í dómgæslunni, en
maður hefur nú oft séð það svart-
ara. Þetta er nú einu sinni svona í
þessari íþrótt.Það má segja að við
förum erfíðari leiðina í þessari
keppni. Þegar upp er staðið gæti
markatalan ráðið því hvaða tvö lið
komast áfram. Þessi sigur var því
mjög mikilvægur fyrir okkur og í
reynd algjört lífsspursmál að sigra.
Annars er þetta ekki búið enn því
við eigum þijá erfiða leiki eftir,
gegn Rússum í Moskvu á sunnudag
og síðan tvo leiki við Pólveija. En
þessi sigur setur óneitanlega pressu
á Rússa að standa sig í leikjunum
gegn Rúmenum.“
KNATTSPYRNA: LAZORIK GENGINN TIL LIÐS VIÐ LEIFTURSMENN / D8