Morgunblaðið - 05.11.1995, Page 1
SÍDRIFINN FORD MONDEO MEÐ SPÓL VÖRN -
CONCEPT1 í NÝJUM B ÚNINGI - ÍSLENSK SMÍÐIÁ
VÖRUGÁMI - ÓDÝRARIFJÖLNOTABÍLAR í VÆNDUM
Sölumenn
bifreiöaumboðanna
& annast útvegun
lánsins á 15 mínútum
Glitnir hf’
DÓTTURFYRIRTÆKI ÍSLANDSBANKA
1995
SJOVADlluAlMENNAR
Legacy lækk
ar í verði
INGVAR Helgason hf., um-
boðsaðiii Subaru, hefur
lækkað verðið á Subaru
Legacy. Stallbakurinn bein-
skipti lækkar úr 2.158.000 kr. í
2.038.000 kr. og langbakurinn
beinskipti lækkar úr 2.254.000 kr. í
2.134.000. Þessi lækkun er tilkomin
vegna hagstæðra samninga við Subaru.
Sala hefur gengið vel á Legacy á þessu
ári. Fyrstu níu mánuði ársins voru
nýskráðir 148 Subaru Legacy bílar.
Legacy er fjórhjóladrifinn og bein-
skipti bíllinn með háu og lágu drifí sem
ekki er að finna í öðrum fjórhjóladrifn-
um langbökum. Hann er með rafdrifnar
rúður, samlæsingu og 2,0 1 vél, 115
hestafla. ■
TRABANT bílar þóttu ekki
merkilegir í eina tíð. Nú
keppast efnameiri Þjóð-
verjar um að eignast slíka
gripi og hlaða þá alls kyns
aukaútbúnaði eða lengja þá
upp í límúsínustærð, eins
og Þjóðverjinn Hans Erpel
sem á bílinn hér að ofan.
Trabantklúbbar skjóta upp kollinum
TRABANT klúbbar hafa sprottið upp eins og gorkúlur í
Þýskalandi eftir að Vestur- og Austur-Þýskaland sameinuð-
ust 1989. í fyrstu voru klúbbarnir einskorðaðir við Vestur-
Þýskaland þar sem efnameiri Þjóðveijar keyptu Tra-
banta og skreyttu þá með alls kyns útbúnaði
og græjum. Núna eru klúbbarnir einnig
í fyrrum austantjaldslöndunum.
Trabantinn hér að ofan er af
límúsínugerð og er í eigu
Hans Erpels frá Berlín sem
varði öllum helgum heils árs
til þess að smíða þessa bleiku
20 feta löngu límúsínu. Erpel
skipti út 26 hestafla Trabant
vélinni og setti í staðinn í bílinn
VW vél. Límúsínan vegur 1.540
kg en venjulegur Trabbi var
aðeins um 700 kg. 68 manns
eru í Trabant klúbbnum í Berlín
en llklega er límúsína Erpels sérstæð-
asti bíllinn í klúbbnum. ■
Honda Passport til íslands
Bíllinn er afar kraftmikill og
hefur þétta og góða vinnslu. Hann
er þó ekki búinn til fjallaferða því
hann er á lágum dekkjum og óupp-
hækkaður og dálítið upp á banda-
ríska mátann. Mælaborðið ér frem-
ur hefðbundið og ekki mikið í það
lagt en rýmið að innan er afar
gott. Passport er spennandi val-
kostur því auðvelt á að vera hækka
bílinn upp og setja undir hann nýja
barða, ef mönnum sýnist svo.
Bíllinn er til sölu og kostar um
þijár milljónir króna. Geir Gunnars-
son forstjóri segir að framhald
geti orðið á innflutningi á notuðum
bílum af Honda gerð. „Hvers vegna
skyldum við ekki fleyta ijómann
ofan af þessum markaði í stað
þess að láta aðra um það? Við selj-
um hvort eð er notaða bíla. Við
getum þó boðið upp á þjónustu
fyrir þessa bíla hérna,“ sagði Geir.
SAGT var frá nýjum jeppa Honda
á þessum síðum fyrir nokkru sem
frumkynntur var í Japan fyrir
skemmstu. Fyrsti jeppinn af Honda
gerð, smíðaður af Isuzu í Banda-
ríkjunum, er hins vegar kominn til
landsins en hann er í eigu Honda
á íslandi. Honda Passport heitir
hann og er af árgerð 1994.
Kraftmikill bíll
Honda Passport er með háu og
lágu drifl og 2,2 lítra, V6 vél sem
skilar 174 hestöflum. Hann er rúm-
góður að innan og með rafdrifnum
rúðum, samlæsingum, skriðstilli,
sóllúgu, loftkælingu, þjófavamar-
kerfí, vökvastýri og flestu öðru sem
prýðir vel búna bfla.
IIHM
OGVIS
IÁNAR ÞÉR
Með Bílaláni VÍS geturþú keypt nýjan
eða notaðan bíl á staðgœiðsluverði.