Morgunblaðið - 07.11.1995, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 07.11.1995, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ KNATTSPYRNA ÞRIÐJUDAGUR 7. NÓVEMBER 1995 B 3 Newcastle hafði heppnina með sér NEWCASTLE hafði heldur betur heppnina með sér á St. James’ Park, þar sem liðið náði að tryggja sér sigur, 2:1, gegn Liverpo- ol með marki Steve Watson á 89. mín. Newcastle hefur náð fimm stiga forskoti á Manchester United, sem varð að sætta sig við tap, 1:0, gegn Arsenal á Highbury, þar sem Hollendingurinn Dennis Bergkamp skoraði sigurmark Arsenal, sem vann sinn fyrsta sigur á United ífimm ár. Þetta var fyrsta tap hins unga liðs United í ellefu leikjum, eða síðan á fyrsta keppnisdeginum á tímabilinu. Bayern .. m ..■■■■■ tapaði Leikmenn Frankfurt gerðu sér lítið fyrir og skutu Bæjara af toppnum með stórsigri í Frankfurt, 4:1, og það nýttu Frá leikmenn meistara- Jóni Halldóri liðs Dortmund sér — Garöarssyni lögðu Dusseldorf að ÍÞýskalandi velli, 3:0, og hafa hreiðrað um sig í efsta sæti, sem þeir voru í nær allt síðastliðið keppnistímabil. Frá því er sagt í þýskum fjölmiðlum að leikmenn Bayem sjái um það sjálfir að halda spennu í deildarkeppninni, með því að tapa óvænt gegn liðum sem hafa leikið illa í deildinni. Frankfurt hafði ekki fagnað sigri í sex leikjum í röð fyrir leikinn gegn Bayern. Þýsku landsliðsmennirnir Manfred Binz og Matthias Hagner skoruðu báðir tvö mörk fyrir Frankfurt gegn Bayern Miinchen, sem lék án mið- vallarspilarans Mehmet Scholl og varnarmannsins Oliver Kreuzer, sem era báðir meiddir. Leikmenn Frankfurt, sem hafa aðeins unnið tvo leiki af ellefu, náðu góðum tök- um á leiknum og réðu Bæjarar ekki við þá. Skellur Bayern er stór, sérstaklega þar sem leikmenn Frankfurt léku aðeins tíu .síðustu 26 mín. leiksins, eða eftir að Króat- inn Ivica Mornar var rekinn af leik- velli á 64. mín. fyrir brot á Christ- ian Ziege. Varnarmaðurinn Binz átti stór- leik með Frankfurt og skoraði mörk sín á 28. og 86. mín., en Hagner skoraði fyrsta mark liðsins á sjöttu mín. og bætti öðra við á 74. mín. Varnarmaðurinn Thomas Helmer skoraði mark Bæjara á 51. mín. „Ég vissi það fyrir leikinn að leikmenn Frankfurt myndu leika vel gegn okkur. Við fengum tækifæri til að snúa leiknum okkur í hag eftir að við skoruðum mark okkar, en náð- um því ekki,“ sagði Otto Rehhagel, þjálfari Bayern. Leikmenn Bayern voru lélegir, seinir á miðjunni með knöttinn, þannig að varnarmenn Frankfurt áttu ekki í erfiðleikum með að loka Jiirgen Klinsmann af. Sérfræðingar í Þýskalandi segja að ekkert nýtt hafi komið fram í leikj- um Bayern í vetur — engin ný lína, sem menn vonuðust eftir. Lið Dortmund er komið á fulla ferð — lagði Dússeldorf örugglega að velli, 3:0, með mörkum frá Carst- en Wolters, Heiko Herrlich og Pat- rik Berger. Dortmundarar hafa leikið níu leiki í röð án þess að tapa. Svíinn Martin Dahlin skoraði þrjú mörk fyrir Gladbach, þegar liðið lagði Schalke 4:1. Landi hans Pett- ersson, sem var keyptur frá Malmö FF á dögunum, kom inná sem vara- maður og skoraði mark í sínum fyrsta leik — eftir aðeins fjórtán mín. við mikinn fögnuð áhorfenda. Þrír sænskir landsliðsmenn — allir frá Malmö, leika með liðinu. Meðal áhorfenda í Newcastle var Terry Venables, lands- liðsþjálfari Englands, og leikmenn Liverpool sýndu honum hvernig knattspyrnan er leikin best í Eng- landi, en heppnin var ekki með þeim. Eftir að hafa yfirspilað leik- menn Newcastle, urðu þeir að sætta sig við tap. Watson skoraði markið eftir að David James hafði varið skot frá Robert Lee, en hélt ekki knettinum, sem fór til Watsons. Les Ferdinand skoraði fyrst fyrir Newcastle á annarri mín. leiksins, hans sautjánda mark á keppnis- tímabilinu — fjórtánda í úrvalsdeild- inni. Hann setti met — hefur skorað í öllum sjö heimaleikjum Newcastle. Gamla brýnið Ian Rush jafnaði, 1:1, AC Milan fékk óskabyrjun gegn Giovanni Trapattoni og læri- sveinum hans hjá Cagliari í ít- ölsku 1. deildinni um helgina. Mörk frá Paolo Di Canio og Gianluigi Lentini, sem komu inn í liðið fyrir George Weah fyrir Liverpool með skoti af stuttu færi á tíundu mín. Manchester City vann sinn fyrsta sigur á képpnistímabilinu — 1:0 gegn Guðna Bargssyni og félögum hans hjá Bolton. Nicky Summerbee skoraði markið á elleftu mín. Þetta var fyrsta mark City í sex leikjum og aðeins það fjórða í deildinni í vetur. Matthew Le Tissier lék sinn fyrsta leik á The Dell eftir að hann skrifaði undir nýjan eins árs samn- ing við Dýrlingana frá Southampt- on — hann hélt upp á daginn þegar hann skoraði seinna mark þeirra úr aukaspyrnu og Southampton fagnaði sigri, 2:0, á QPR. Þetta var fyrsta mark hans síðan hann skor- og Roberto Baggio, sem voru meiddir, komu liðinu í 2:0 eftir aðeins fimmtán mín. og þegar upp var staðið hafði Milan sig- ur 3:2 á heimavelli sínum, San Siro. Fiorentina náði að stöðva fimmtán leikja sigurgöngu Lazio með 2:0 sigri. Argentínu- maðurinn Gabriel Batistuta, sem lék sinn 100. deildarleik á Ítalíu, skoraði bæði mörkin gegn Lazíó, sem tapaði sínum fyrsta leik í Flórenz síðan 1989. Di Canio skoraði fyrsta mark AC Milan á níundu mín., fékk knöttinn eftir að Valerio Fiori náði ekki að halda skoti Dejans Savicevic. Sex mín. síðar var Lent- ini búinn að bæta öðru marki við með skalla. Belgíumaðurinn Luis Oliveira svaraði fyrir Cagliari, fljót- lega eftir leikhlé skoraði Marco Simone þriðja mark AC Milan. Lokaorðið átti Oliveira, sem skoraði annað mark gestanna úr víta- spyrnu. Fabio Cannavaro og Gianfranco Zola tryggðu Parma sigur, 2:0, gegn Cremonese. Zola skoraði mark sitt með skoti beint úr aukaspyrnu og hefur hann skorað þijú mörk á þann hátt í tveimur leikjum. aði þrennu gegn Nottingham Forest á fyrsta leikdegi deildarinnar um miðjan ágúst. David Bardsley hjá QPR var rekinn af leikvelli á 76. mín., eftir brot á Neil Heaney. Meistarar Blackburn máttu þola enn eitt tapið, þegar þeir heimsóttu Everton á Goodison Park. Graham Stuart skoraði sigurmark, 1:0, heimamanna og tryggði þeim fyrsta sigur í úrvalsdeildinni síðan í ágúst. Everton sótti mikið í leiknum — Tim Flowers, markvörður Black- burn, átti stórleik og kom í veg fyrir að að heimamenn bættu mörk- um við. Aftur á móti hafði Neville Southall, markvörður Everton, lítið sem ekkert að gera. Þtjátíu manna sambahljómsveit lék þegar Brasilíumaðurinn Juninho lék sinn fyrsta leik með Middlesbro- ugh — gegn Leeds. Heimamenn réðu gangi leiksins í fyrri hálfleik og átti Juninho marga góða spretti. Norðmaðurinn Fjortoft skoraði mark heimamanna, en Brian Deane jafnaði, 1:1, fyrir Leeds. Juventus mátti þola skell, 1:0, í Udinese. Alessandro Del Piero, hinn ungi leikmaður Juventus, hafði ekki heppnina með sér í byijun, þegar aukaspyrna hans hafnaði á stöng- inni á marki Udinese og fljótlega í seinni hálfieik varð Angelo Peruzzi, markvörður Juventus, að yfirgefa völlinn er hann tognaði í maga- vöðva. Þjóðveijinn O'iver Bierhoff skoraði sigurmark heimamanna á 74. mín. — hans sjöunda mark á tímabilinu. Gömlu landsliðsmarkverðirnir Walter Zenga hjá Sampdoría og Gianluca Pagliuca hjá Inter Mílanó, voru heldur betur í sviðsljósinu þeg- ar liðin gerðu jafntefli, 0:0, í Genúa. Leikmenn Sampdoría voru aðeins tíu í 65 mín., eftir að fyrirliði liðs- ins, Roberto Mancini, var sendur af leikvelli, eftir að hafa lent í úti- stöðum við dómarann — Mancini vildi fá vítaspyrnu þegar hann féll við í árekstri við Pagliuca markvörð. .Suður-Ameríkumennirnir Daniel Fonseca, Uruguay, og Abel Balbo, Argentínu, skoruðu mörk Róma, 2:0, gegn Padova á Ólympíuleik- vanginum í Róm. ■ Úrslit / B6 ■ Staðan / B6 Schuster ekki velkom- inn hjá Leverkusen „SVO lengi sem ég er þjálfari hér, mun Bernd Schuster ekki æfa og leika með liðinu," sagði Erich Ribbeck, þjálfari Bayer Leverkusen, en hann setti Schuster út úr iiðinu fyrir leik gegn Hamburger á f östudaginn. Fyrir leikinn kusu leikmenn um það hver ætti að vera fyrirliði liðsins — Schuster, sem hefur verið fyrirliði, fékk ekkert atkvæði, en Rudi Völler þrettán. Ástæðan fyrir því að Schuster var settur út, er að hann hefur höfðað mál gegn félaginu vegna ummæla framkvæmdastjórans Reimer . Calmund, sem sagði að Schuster væri lélegri varnarmaður en Ieikmenn í 3. deild. Schuster var ekki ánægður og fór í mál, en það er í fyrsta skipti í þýsku knattspymusögunni að leikmað- ur fer I mál við félag sem hann leikur með. Þrátt fyrir að búið sé að segja að hann sé ekki lengur velkom- inn hjá félaginu, segist Schuster, sem á tvö ár eftir af samn- ingi sínum, ætla að koma á æfingu á morgun. „Ég trúi því ekki að hann mæti — leikmenn koma ekki til með að ræða við hann,“ sagði Ribbeck. Reuter ARGENTÍNUMAÐURINN Gabrlel Batlstuta (t.h.) skoraðl bæðl mörk Fiorentína, sem stöðvaðl sigurgöngu Lazíó. Jose Antonio Chamot nær ekki að stöðva hann. Oskabyijun AC Milan McCoist skoraði tvö ALLY McCoist skoraði bæði mörk Glasgow Rangers, sem lagði Falkirk að velli, 2:0, í skosku úrvalsdeildinni. Paul Gascoigne lék ekki með Rangers vegna meiðsla. Walter Smith, framkvæmda- stjóri Rangers, sagði að sig- urinn hafi verið sætur, eftir slæman leik gegn Juventus í vikunni. Loksins bikar eftir 111 ár ÞAÐ þótti vel við hæfi að Roddy McKenzie, markvörð- ur, Stenhousemuir, tæki á móti deildarbikamum á McDirmid Park í Perth, eftir að liðið hafði lagt Dundee United að velli, 5:4, í víta- spyrnukeppni. McKenzie var helja liðsins, sem vann sinn fyrsta bikar í 111 ára sögu þess. Stenhousemuir leikur í 2. deild en Dundee Utd. í 1. deild. Aftur tap hjá Metz LEIKMENN Metz, sem höfðu verið á mikilli sigur- braut, máttu þola sitt annað tap í röð þegar þeir léku gegn Bastia á Korsíku og þar með misstu þeir af efsta sæt- inu í frönsku 1. deildinni til París St. Germain, sem stöðvaði sigurgöngu Metz á dögunum. Það var Anton Drobnjak, markahæsti leik- maðurinn I Frakklandi, sem skoraði sigurmark Bastia þegar tvær min. voru til leiksloka. París St. Germain lagði Nice að velli, 3:2, og skaust á toppinn. Atletico Madrid held- ur sínu striki ATLETICO Madrid heldur sínu striki á Spáni — lagði Real Zaragoza að velli, 0:1, í miklum baráttuleik í Zaragoza. Diego Simeone skoraði markið. Heimamenn gerðu oft harða hríð að marki Atletico, en markvörð- urinn Jose Molina sá til þess að þeir skoruðu ekki. Rúm- eninn Gheorghe Popescu skoraði tvö mörk fyrir Barc- elona, sem vann Salamanca, 4:1. Michael Laudrup skoraði eitt mark fyrir Real Madrid, sem vann Real Sociedad 3:2 og eru meistararnir nú í sjötta sæti, ellefu stigum á eftir nágrannaliðinu At- letico. Sigurganga Ajax stöðvuð EINDHOVEN stöðvaði sigurgöngu Ajax í Hollandi, með því að ná jafntefli, 1:1, á Ólympíuleikvanginum í Amsterdam. Ajax hafði unn- ið tólf leiki í röð fyrir leik- inn. Brasilíumaðurinn Ron- aldo skoraði á undan fyrir Eindhoven á 32. mín., en þremur mín. seinna var Nígeríumaðurinn Nwankwo Kanu búinn að svara fyrir Ajax. 45 þús. áhorfendur sáu Edwin van der Sar, mark- vörð Ajax, bjarga nokkrum sinnum meistaralega og koma í veg fyrir fyrsta tap liðsins.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.