Morgunblaðið - 07.11.1995, Síða 4
4 B ÞRIÐJUDAGUR 7. NÓVEMBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
Frábær
skemmtun
- og góður sigur bikarmeistaranna í Grindavík
BIKARMEISTARAR Grindvík-
inga sáu fjölmörgum áhorfend-
um fyrir frábærri skemmtun
þegar þeir lögðu Tindastóls-
menn að velli 97:68 f leik lið-
anna í Grindavík á sunnudags-
kvöld. Norðanmenn fara því
enn einn ganginn norður án
sigurs frá Grindavík en þeir
hafa aldrei náð að sigra í
Grindavík.
Það var gaman að þessum leik.
Liðið hjá okkur er að ná bet-
ur saman og spilar góða vörn. Þá
fellur [Herman] Myers betur inn í
leik liðsins með
Frímann hveijum leik. Núna
Ólafsson náðum við að halda
skrifar frá hraðanum uppi all-
Grindavík an leíkirm í stað
þess að gefa eftir eins og hefur
komið fyrir hjá okkur. Við megum
samt ekki slaka á og það eru erfið-
ir leikir framundan,“ sagði Guð-
mundur Bragason fyrirliði Grind-
víkinga. Hann hrósaði þætti áhorf-
enda í leiknum.
Torrey John kom gestunum yfir
í upphafi og körfur frá Pétri Guð-
mundssyni og Lárusi Degi héldu
þeim yfir. Grindvíkingar komust
yfir 15:9 og um miðjan fyrri hálf-
leikinn komu tvær þriggja stiga
körfur í röð frá Hirti Harðarsyni
og Helga Jónasi sem breyttu stöð-
unni úr 24:18 í 30:18. Torrey John
svaraði með 5 stigum en þá kom
góður kafli hjá Grindvíkingum sem
gerðu 13 stig í röð og munurinn
orðinn 20 stig. Á þessum kafla
léku Grindvíkingar eins og þeir
geta best. Stífa vörn og hraðaupp-
hlaup sem skiluðu yfirleitt stigum.
Við slíkum leik eiga fá lið svar.
Tindastólsmenn skoraði tvær
fyrstu körfurnar í seinni hálfleik
og virtust ekki ætla að gefast upp
fyrr en í fulla hnefana. Það var
þó skammgóður vermir því Helgi
Jónas, sem átti frábæran leik,
svaraði fyrir heimamenn með
tveimur körfum og Hjörtur með
þriggja stiga körfu. Við þetta leyst-
ist leikur gestanna upp og þeir
náðu engan veginn að brúa bilið
sem var á milli liðanna. Helgi Jón-
as átti sem fyrr segir frábæran
leik hjá Grindvíkingum og stal
boltanum hvað eftir annað frá
gestunum, skoraði mikilvægar
körfur og skilaði boltanum vel frá
sér. Herman Myers fellur sífellt
betur inn í leik liðsins í sókninni
og er sterkur varnarmaður. Það
var þó samstaða liðsins í vörninni
sem skóp þennan sigur og þeir
voru fljótir að svara fyrir sig þegar
boltinn vannst. Torrey John var
sá eini af gestunum sem lék af
eðlilegri getu en mátti sín ekki
gegn margnum. Pétur Guðmunds-
son, sem lék með Grindvíkingum
í fyrra, fékk góðar viðtökur hjá
áhorfendum en náði sér ekki á strik
í leiknum. Ómar og Hinrik komust
aldrei í takt við leikinn og munar
um minna.
„Þetta var alveg einstakur leik-
ur. Við náðum okkur aldrei al-
mennilega á strik og settum ekki
einusinni auðveld sniðskot niður.
Grindvíkingar voru fljótir að refsa
okkur og allt fór niður hjá þeim.
Þeir eru með gott lið og eiga eftir
að verða betri í vetur. Þessi vika
er búin að vera erfið hjá okkur og
við höfum þurft að hafa fyrir hlut-
unum í hveijum einasta leik og það
situr í mannskapnum. Það afsakar
þó ekki leikinn í kvöld en þegar
ekki er gert eins og lagt er fyrir,
fer eins og fór í kvöld,“ sagði Páll
Kolbeinsson þjálfari Tindástóls.
Skúli Unnar
Sveinsson
skrifar
Sjöundi sigur Keflvíkinga í röð
Keflvíkingar unnu KR-inga
88:73 á Seltjarnarnesinu á
sunnudaginn í 11. umferð úrvals-
deildarinnar og var
þetta sjöundi sigur
Suðurnesjaliðsins í
röð og virðast Kefl-
víkingar komnir á
góða siglingu. Leikurinn lofaði
góðu í upphafí, var nokkuð hraður
og skemmtilegur og leikmenn
hittu ágætlega. En því miður var
það bara í upphafi því eftir að
KR-ingar sáu að þeir urðu að leika
rólega og af mikilli varkárni til
að eiga einhveija möguleika gegn
Keflvíkingum varð leikurinn leið-
inlegur. KR var yfir fyrstu mínút-
urnar með mjög markvissum sókn-
arleik gegn 3-2 svæðisvörn Kefl-
víkinga. Gestirnir sáu að við svo
búið mátti ekki standa og hófu
að beita í 1-2-2 pressuvöm með
mjög góðum árangri og náðu und-
irtökunum sem þeir héldu allt til
loka.
Kelfvíkingar virkuðu miklu
betri en samt náðu þeir aldrei að
hrista heimamenn af sér og mun-
urinn var lengstum aðeins 7 til
12 stig. En nær komust KR-ingar
ekki og munurinn hefði eflaust
orðið meiri hefðu Keflvíkingar
ekki breytt ágætri vörn sinni úr
fyrri hálfleiknum yfir í maður á
mann snemma í síðari hálfleik.
„Okkur fannst Bow vera að kom-
ast óþarflega mikið inn í leikinn
og settum mann á hann og fórum
í maður á mann vörn,“ sagði Jón
Kr. Gíslason, þjálfari og leikmaður
Keflvíkinga, um þetta.
Vörnin hjá Keflvíkingum var
ágæt, líka í síðari hálfleik, en sókn-
arleikurinn hefði mátt vera mark-
vissari. KR-ingar börðust allan
tímann og þeim gekk vel að koma
boltanum inn í teiginn á Bow, en
fyrir utan voru þeim mislagðar
hendur og mjög margar þriggja
stiga skottilraunir mistókust.
Bow og Hermann Hauksson
áttu báðir góðan leik hjá KR en
aðrir eiga að geta betur. Hjá
Keflavík var Burns sterkur og
þeir Falur og Guðjón áttu ágæta
spretti en í heildina má segja að
þetta hafi verið tiltölulega átaka-
lítill sigur fyrir Keflvíkinga.
Enn einn stórleikur Teits
Wjarðvík sigraði*máttlitla Akur-
nesinga auðveldlega 117:91
í leik liðanna á Skipaskaga, í hálf-
leik var staðan 42:50 fyrir gest-
ina. Njarðvík byij-
aði vel og keyrði
upp hraðann í
leiknum og náði
fljótlega 10 stiga
forystu. Um miðbik fyrri hálfleiks
náðu heimamenn góðum kafla og
minnkuðu muninn í þijú stig,
32:35, en þá skiptu gestirnir um
gír_ og juku forystuna á ný.
í síðari hálfleik komu þeir síðan
mjög ákveðnir til leiks og voru
staðráðnir að hieypa heimámönn-
um ekki eins nærri sér og í fyrri
hálfleiknum. Það gekk eftir, for-
ystan jókst og þegar flautað var
til leiksloka skildu 26 stig liðin,
91:117.
Njarðvíkingar eru geysilega
öflugir um þessar mundir og aðal
liðsins er sterk liðsheild. Fyrir
henni fer hinn „sjóðheiti" Teitur
Orlygsson sem á hvem stórleikinn
á fætur öðrum og nú gerði hann
Gunnlaugur
Jónsson
skrifar frá
Akranesi
ÚRVALSDEILDIN í KÖRFUKNATTLEIK
Barist um stigin
Morgunblaðið/Bjarni
TVEIR stigahæstu leikmenn Keflavíkur og KR eigast við. Lenear Burns skorar yfir Jonathan Bow.
Oruggur
sigur
Hauka
HAUKAR sigruðu Valsmenn örugglega
á Hlíðarenda á sunnudagskvöldið, með
nítján stiga mun, 75:94. Bandartkjamað-
urinn Ronald Bayless lék sinn fyrsta
leik með Val og komst þokkalega frá
honum, gerði 27 stig en virkaði fremur
þungur og þreyttur.
Haukar voru óöruggir í sókninni lengst af
í fyrri hálfleik, hittu frekar illa og gekk
því erfiðlega að hrista Valsmenn af sér.
Valsmenn náðu meira að segja að komast
yfir þegar stutt var til leik-
q hlés, en það stóð ekki lengi
Eiríksson °g Haukar leiddu í hálfleik,
skrifar 37:41.
í síðari hálfleik var aðeins
spurning hversu stór sigurinn yrði. Sóknar-
leikur Valsmanna var ótrúlega einhæfur,
endaði yfirleitt með skotum nýliðans, sem
átti í mesta basli með að hitta þar til um
fimm mínútur voru eftir af hálfleiknum.
Sóknarleikurinn skánaði mikið hjá Haukum,
þó enn væri of mikið um klaufaleg mistök
og klúður úr upplögðum færum.
Sigfús Gizurarson var bestur Hauka, gerði
28 stig, þar af 5 þriggja stiga körfur. Hann
stóð sig líka frábærlega í vörninni, tók t.a.m.
við gæslu Bayless um miðjan fyrri hálfleik
og pakkaði honum algjörlega saman, svo vel
að Torfi Magnússon sá ástæðu til að taka
Bandaríkjamanninn út af undir lok fyrri
hálfleiksins. Pétur Ingvarsson sá annars að
mestu um Bayless í vörninni og sinnti því
ágætlega. Jason Williford stóð einnig fyrir
sínu í vörn og sókn og gerði alls 23 stig.
Hjá Valsmönnum var Bayless stigahæstur
með 27 stig. Það er of snemmt að dæma
um frammistöðu hans, hann var heldur þung-
ur og hittnin ekki nógu góð í þessum leik,
en batni hún er hér kannski á ferðinni sá
maður sem Valsmenn hafa verið að leita að.
Athygli vakti einnig ágæt frammistaða nafn-
anna Bjarka Guðmundssonar og Gústafsson-
ar. Ragnar Þór Jónsson lék ekki með Vals-
mönnum vegna veikinda og munar um
minna.
■ Úrslit / B6
■ Staðan / B6
30 stig. Rondey, Kristinn og Frið-
rik voru einnig sterkir á sunnudag-
inn.
Hjá Skagamönnum var fátt um
fína drætti en Elvar Þórólfsson
átti sennilega sinn besta leik í
vetur. Það vakti furðu að í byijun
síðari hálfleiks gerði hann átta
stig í röð fyrir ÍA og var þá tekinn
útaf og kom ekki meira við sögu
I stigaskorun heimamanna. Bell
skilaði sínum 30 stigum en samt
var eins og hann gæti meira.
Theodór Kr.
Þórðarson
skrifar frá
Borgarnesi
Blikar burstaðir í Borgarnesi
Blikar og Birgir Mikaelsson,
fyrrum þjálfari og leikmaður
Skallagríms, náðu sér alls ekki á
strik í Borgarnesi á
sunnudaginn og
unnu liðsmenn
Skallagríms því
næsta auðveldan
sigur á slöku liði Breiðabliks.
Lokatölur urðu 96:67 en heima-
menn voru mest 34 stigum yfir
um miðjan seinni hálfleikinn.
„Við komum tilbúnir til þessa
leiks eftir að hafa verið á um
klukkustundar löngum fundi þar
sem við vorum að stappa í okkur
stálinu,“ sagði Bragi Magnússon
leikmaður Skallagríms, sem var
„sjóðheitur“ í þessum leik og skor-
aði alls 40 stig. „Það er vonandi
að við höldum áfram á þessari
braut,“ sagði Bragi.
Liðin byijuðu bæði á mikilli
keyrslu og var leikurinn jafn fyrstu
mínúturnar. Heimamenn náðu þó
fljótlega yfirhöndinni og voru þeir
eftir það mun sterkari í vörn og
sókn. Þegar leið á leikinn var sýnt
hvert stefndi og í leikhlé var stað-
an 49:23
Heimamenn héldu uppteknum
hætti í seinni hálfleiknum og kom-
ust mest í 34 stiga forskot undir
miðjan seinni hálfleikinn. En þá
tóku Blikarnir við sér og áttu góð-
an sprett með Michael Thoele í
fararbroddi. Heimamenn tóku
leikinn síðan aftur í sínar hendur
og sigruðu Blikana örugglega með
29 stiga mun.
Liðsheildin hjá Skallagrími var
mjög sterk en Bragi Magnússon
var þó yfirburðamaður í þessum
leik. Hjá Breiðabliki var Michael
Thoele mjög góður í seinni hálf-
leiknum en honum var alveg hald-
ið niðri í þeim fyrri. Einnig var
Halldór Kristmannsson góður. En
Birgir Mikaelsson, fyrrum þjálfari
og leikmaður Skallagríms náði sér
alls ekki á strik í þessum leik.
„Þetta var ekki okkar dagur,
við náðum okkur aldrei á strik,“
sagði Birgir Guðbjörnsson þjálfari
Breiðabliks. „Sóknin var léleg og
við vorum baráttulausir í vörninni.
Þeir tóku fast á okkur og komust
upp með það og við bitum ekki
nógu fast frá okkur og hittum auk
þess illa. Svo er þetta mjög erfiður
heimavöllur og við erum ekki
sterkir á útivelli."
Langþráður
sigur Þórsara
ÞÓRSARAR unnu langþráðan sig-
ur, þegar þeir lögðu ÍR að velli á
Akureyri um helgina, 80:75.
„Menn gáfu sig alla í leikinn og
það gerði útslagið", sagði Jón
Guðmundsson þjálfari Þórs að
leik loknum. „í undanförnum leikj-
um hefur vantað að menn væru
með 100% állan leikinn en það
kom í kvöld og það skóp sigur
okkar, en liðsheildin var mjög
góð. Ef við höldum áfram að leika
svona þá er ég bjartsýnn á fram-
haldið á deildinni," sagði hann.
Þórsarar mættu ákveðnir til leiks og
tóku forystuna í upphafi og leiddu
allan fyrri hálfleikinn. Þegar gengið var
til hálfleiks var staðan
ReynirB. 42:36 Þór í vil. í upphafi
Eiríksson síðari hálfleiks söxuðu
skrífarfrá ÍR-ingar á forskot Þórs-
Akureyrí ara 0g fljótlega varð leik-
urinn mjög jafn en það voru þó gestirn-
ir sem yfirleitt höfðu undirtökin. Þórsar-
ar náðu hinsvegar að komast yfir þegar
um þijár mínútur lifðu af leiknum og
voru lokamínúturnar æsispennandi.
Þórsarar voru sterkari og þegar leikur-
inn var flautaður af var langþráður sig-
ur í höfn 80:75.
Leikurinn í heild var ekki mjög vel
leikinn og var talsvert um mistök á
báða bóga og oft gekk hann karfanna
á milli án þess að menn næðu að koma
knettinum rétta boðleið. Þórsarar byrj-
uðu vel í haust en þeim fataðist flugið
fljótlega og hafa ekki náð að sýna
klærnar fyrr en í leiknum í fyrrakvöld.
Þeirra bestur í leiknum var Birgir Örn
Birgisson sem var að venju sterkur í
vörninni og átti mjög góðan leik í sókn-
inni. Einnig var Kristinn sterkur. Hjá
ÍR bar Herbert Arnarson höfuð og herð-
ar yfir aðra leikmenn en það dugði
ekki til, og mátti lið hans horfa á eftir
dýrmætum stigum í hendur andstæð-
inganna.
ÞRIÐJUDAGUR 7. NÓVEMBER 1995 B 5
EVROPUKEPPNIN I HANDKNATTLEIK
íslendingar þurfa að treysta á að Rússar sigri Rúmena
Lavrov skellti
ílásíMoskvu
RÚSSAR, með markvörðinn
Andrej Lavrov íbroddi fylking-
ar, burstuðu íslendinga með
átta marka mun, 22:14, í síð-
ari leik liðanna í Evrópukeppn-
inni í Moskvu á sunnudaginn.
Þessi úrslit þýða að nú verða
íslendingar að treysta á að
Rússar vinni Rúmena íbáðum
leikjunum ef þeir ætla að eiga
von um að komast í úrslita-
keppnina á Spáni næsta sum-
ar. Lavrov var sá leikmaður
sem var mesta hindrunin fyrir
íslensku strákana. Hann varði
alls 18 skot og þar af 13 í síð-
ari hálfleik en þá gerðu íslend-
ingar aðeins fimm mörk úr 20
sóknum og er langt síðan
sóknarnýting íslenska liðsins
hefur verið jafn léleg í einum
hálfleik, eða 25 prósent.
Islenska liðið byijaði leikinn með
því að Guðmundur Hrafnkels-
son varði vítakast frá Kudinov
og Gunnar Beinteinsson kom lið-
inu í 1:0 og var það
í eina skiptið sem
íslendingar höfðu
forystu í leiknum.
Jafnt var á öllum
tölum upp í 4:4, en þá fór rúss-
neska vélin að síga framúr. Komst
í 6:4 en Valdimar minnkaði mun-
inn í 6:5 og síðan fengu íslensku
strákarnir tvo möguleika til að
jafna. Fyrst átti Dagur misheppn-
aða sendingu og Bergsveinn varði
víti og Júlíus missti boltann í
næstu sókn og Rússar komust í
8:5. Júlíus bætti fyrir mistökin og
gerði sjötta markið og Valdimar
minnkaði muninn í eitt mark úr
víti, 8:7, þegar rúmlega sjö mínút-
ur voru eftir af hálfleiknum. Rúss-
ar gerðu næstu tvö mörk, en í
millitíðinni varði Lavrov vítakast
frá Valdimar. Bjarki kom inn á í
skyttuhlutverkið fyrir Ólaf Stef-
ánsson og gerði tvö falleg mörk á
þriggja mínútna kafla en Rússar
bættu við einu áður en flautað var
til leikhlés, 12:9.
Patrekur skoraði tvö fyrstu
mörk íslands í síðari hálfleik og
Kudinov og Voroniv kvittuðu fyrir
Valur B.
Jónatansson
skrifar frá
Moskvu
GUÐMUNDUR Hrafnkels-
son, var besti leikmaður ís-
lenska liðsins.
Rússa og staðan 14:11 þegar 4
míntur voru liðnar og allt gat
gerst. Þá kom afleitur kafli þar
sem næstu níu sóknir misfórust.
Strákarnir misstu boltann hvað
eftir annað í sókninni og voru auk
þess með ótímabær skot og gerðu
ekki mark í 12 mínútur og staðan
þá orðin 17:11. Ólafur Stefánsson
náði loks að bijóta ísinn eftir
margar misheppnaðar tilraunir og
fjórða markið í hálfleiknum kom
ekki fyrr en fimm mínútur voru
eftir og það gerði Valdimar úr
víti og staðan 19:13. Júlíus gerði
síðasta mark íslands og Kulechov
kvittaði fyrir heimamenn og loka-
staðan 22:14.
Guðmundur Hrafnkelsson var
besti leikmaður íslands en aðrir
náðu sér ekki á strik og léku illa,
sérstaklega sóknarleikinn. Vörnin
stóð sig þokkalega lengst af en
átti það til að opnast upp á gátt
í síðari hálfleik og það nýtti Kulec-
hov sér vel með því að renna sér
inn á línuna og skora eða fiska
vítakast. Sóknin var í molum í síð-
ari hálfleik. Leikmenn voru að
reyna allt of mikið upp á eigin
spýtur, voru staðir og gerðu lítið
til að hjálpa hver öðrum. Geir
Sveinsson fékk lítið til að moða
úr á línunni og gerði ekki mark.
Ekkert var skorað úr hornunum
og aðeins eitt mark af línu, sem
var fyrsta markið í leiknum. Það
er ljóst að Þorbjörn Jensson verður
að taka sóknarleikinn í gjörgæslu
því hann er mikið áhyggjuefni.
Þetta eru þó ekki endalokin fyrir
liðið því það á eftir að leika gegn
Pólveijum og verður að vinna báða
leikina. Svo þarf að treysta á að
Rússar vinni báða leikina við Rúm-
ena. Það er aldrei gott að þurfa
að treysta á aðra en það er eina
von íslenska liðsins í Evrópu-
keppninni að þessu sinni - því
miður.
Rússar voru staðráðnir í að láta
fyrri leikinn í Hafnarfirði ekki
endurtaka sig. Þeir voru grimmir
og spiluðu vörnina mjög vel og
lokuðu flest öllum leiðum að marki
sínu og svo var Lavrov í markinu
til að taka það sem fór í gegn.
Oleg Kulechov var bestur útileik-
manna. Hann lék sem indíáni fyr-
ir framan vörnina og truflaði sókn-
arleik íslands og svo stjórnaði
hann sóknarleiknum og tók af
skarið þegar 'á þurfti að halda.
Það kom ekki að sök þó svo að
Atavin og Grebnev væru ekki með
því ungu strákanir, Pogorelov og
Serikov, fylltu skarð þeirra í vörn-
inni og skiluðu hlutverki sínu vel.
SÓKNAR-
NÝTING
Evrópukeppni landsliða
FOLX
RUSSLAND
Möri< Sóknir %
ÍSLAND
Mðrk Sáknir %
12 22 55 F.h 9 22 41
10 20 50 S.h 5 20 25
22 42 52 Alls 14 42 33
4 Langskot 5
5 Gegnumbrot 5
Hraðaupphlaup
Horn
Lina
Víti
Leikur alltaf til sigurs
MAXIMOV þjálfari var ánægður
með sigurinn. Hann sagðist vera
sérstaklega ánægður með ungu
leikmennina Torgovanov og Ser-
ikov, sem var að spila sinn fyrsta
landsleik.
Hann sagði að varnarleikurinn
hafi verið það sem réð úrslitum
auk þess sem Lavrov varði vel.
„Vörnin var mun betri þjá okkur
í þessum leik en í fyrri leiknum
á íslandi. Oleg Kulichov lék einn-
ig mjög vel í þessum leik og við
fengum nánast að gera það sem
við vildum því dómararnir leyfðu
munmeiri hörku en í fyrri leikn-
um.
Leikmenn mínir voru líka með-
vitaðir um að tap gæti þýtt að
við værum úr leik í keppninni.
Við eigum tvo leiki eftir við Rúm-
ena. Við vitum talsvert um rúm-
enska liðið og ég tel að við höfum
aukið til muna möguleika okkar
á að komast í úrslitakeppnina
með því að vinna Island í þessum
leik,“ sagði Maximov.
Hverja telur þú möguleika ís-
lendinga á að komast í úrslita-
keppnina á Spáni?
„Möguleikar íslands eru háðir
því hvernig við leikum við Rúm-
ena. Ef við vinnum Rúmena í
báðum Ieikjunum komast Islend-
ingar áfram. En ef leikirnir
verða tvísýnir gæti markatala
ráðið því hvaða lið komast áfram.
Það er því í raun allt opið enn.
Ég veit ekki hvaða leikmenn ég
fæ til að leika gegn Rúmenum
því ég vissi það ekki fyrr en
daginn fyrir leikinn gegn íslend-
ingum hverjir myndu leika. Þetta
er allt undir því komið hvort
spænsku félögin hleypa okkar
mönnum í leikinn. Við þurftum
að greiða fimm þúsund dollara
til að fá Grebnev og Atavin í leik-
inn á íslandi og því notuðum við
þá ekki í þessum leik. Nú fara
fljótlega fram viðræður við
spænsku félögin um að fá þessa
tvo leikmenn í fyrri leikinn gegn
Rúmenum sem verður í Rúmeníu.
Eg legg meiri áherslu á að fá
þá til Rúmeníu. Ef við vinnum
þann leik get ég sleppt því að fá
þá í síðari leikinn á heimavelli.
Rúmenar eru erfiðir á heima-
velli og því tel ég mikilvægt að
hafa reyndari leikmenn þar.“
Ef þú kæmist í þá lykilstöðu
að ráða þvíhvort Rúmenar eða
íslendingar myndu fylgja ykkur
í úrslitakeppnina, hvortliðið
mundirþú vilja taka meðþér?
„Mitt markmið sem þjálfara
er að leika alltaf heiðarlega og
til sigurs. Þeir leikmenn sem léku
með liðinu í þessum leik vilja
komast á Ólympíuleikana og það
er þvi mikil samkeppni milli
yngri og eldri leikmanna - það
verður því ekkert gefið eftir
gegn Rúmenum og við ætlum
okkur sigur í báðum leikjunum.
Ég neita því ekki að það væri
gaman ef íslendingar kæmust til
Spánar því þeir eru með mjög
ungt og skemmtilegt lið.“
Geir
Júlíus
Valur B.
Jónatansson
skrífar frá
Moskvu
FJÓRIR leikmenn, sem léku
með í íslenska landsliðinu á sunnu-
dag, léku með liðinu á Friðarleik-
unum í Moskvu 1986. Það eru þeir
Geir Sveinsson,
Guðmundur Hrafn-
kelsson, Júlíus Jón-
asson og Valdimar
Grímsson.
ÍSLENDINGARNIR bjuggu í
æfingamiðstöð rússneskra landsliða
í Novakosk sem er rétt utan við
Moskvu. Sovéski herinn var með .
þessa íþróttamiðstöð á sínum tíma
og undirbjó þar landslið sín fyrir
stórmót. Islensku leikmennirnir
sögðu að þetta væri eins og að vera
í fangabúðum því svæðið var allt
girt af og enginn fékk að fara inn
nema hann ætti þangað brýnt er-
indi. Ekki var hægt að hringja úr
síma nema til Moskvu^ ekki út úr
landinu og hvað þá til íslands.
■ DAGUR Sigurðsson og Einar
Gunnar Sigurðsson voru í sama
herbergi í íþróttamiðstöðinni. Að-
faranótt laugardagsins vöknuðu þeir
upp við þrusk og þegar betur var
að gáð voru tvær svartar mýs að
spássera á gólfinu. Þeir neituðu að
sofa í herberginu eftir það og fluttu
sig í annað herbergi.
■ BJARNI Felixson, íþróttafrétta-
maður RUV, var mjög borubrattur
við komuna til Moskvu því hann var
sá eini í hópnum sem var með rúbl-
ur með sér. En hann átti þær í fór-
um sínum síðan hann var í Moskvu
fyrir þremur árum. En það kom
babb í bátinn þegar hann ætlaði að
nota þær því þá kom í ljós að búið
var að skipta um gjaldmiðil og rúbl-
urnar því einskis nýtar.
■ GEIR Sveinsson og Júlíus Jón-
asson fóru frá Moskvu strax eftir,
leikinn á sunnudaginn. Þeir flugu til
Stokkhólms og þaðan til Þýska-
lands því þeir áttu að vera mættir
á æfingu með liðum sínum í gær-
kvöldi
■ BORIS Akbachev, aðstoðar-
þjálfari íslenska landsliðsins, var á
heimavelli í Moskvu. Hann bjó þar
áður en hann flutti til íslands og
var því mikil hjálparhella í Moskvu
þar sem hann þekkir vel til. Hann
sagði að lítið hafi breyst í Rússiandi
frá því hann fór þaðan fyrir sjö árum
og hann gæti varla hugsað sér að
búa þar núna. Hann varð þó eftir
og ætlar að koma til íslands á föstu-
dag.
■ ISLENSKU landsliðsmennirnir ••
fóru í skoðunarferð á Rauða torgið
í Moskvu á laugardaginn og aftur
e.ftir leikinn á sunnudag. Flestir
þeirra keyptu kósakkahúfur, enda
komu þær sér vel í frostinu sem var
um 5 gráður á laugardag. Þær kost-
uðu 10 dollara eða um 650 krónur.
STAÐAN
Rússland - ísland..........22:14
Rúmenía - Pólland.........30:22
Staðan:
Rússland.....4 3 0 1 102: 78 6
Rúmenía......4 3 0 1 103: 92 6
ísland.......4 2 0 2 77: 85 4
Pólland......4 0 0 4 93:121 0-
•Rússar og Rúmenar eiga eftir að
mætast í tveimur leikjum'Og íslend-
ingar og Pólveijar.
•Tvö efstu liðin í riðlinum komast
áfram í lokakeppni EM á Spáni.