Morgunblaðið - 07.11.1995, Page 8
HANDKNATTLEIKUR
Þorbjörn Jensson, landsliðsþjálfari, ósátturvið sóknarleik landsliðsins
Næsta skref er að
taka sóknarleik-
inn föstum tökum
ValurB.
Jónatansson
skrifar frá
Moskvu
ÞORBJÖRN Jensson landsliðs-
þjálfari í handknattleik var ekki
ánægður með átta marka tap
gegn Rússum í Moskvu á
sunnudaginn. „Fyrri hálfleik-
urinn var í jafnvægi lengst af
þó þeir hafi oftar haft yfirhönd-
ina. Sóknarleikurinn hjá okkur
í sfðari hálfleik var einfaldlega
mjög slakur. Eftir að Lavrov fór
að verja í síðari hálfleik urðu
aðalskyttur okkar ragar og
náðu ekki að skjóta af fullum
krafti. Ég er þó nokkuð ánægð-
ur með varnarleikinn í heild því
það er ekki mikið að fá á sig
22 mörk gegn Rússum á úti-
velli. Guðmundur Hrafnkelsson
stóð sig líka ágætlega í mark-
inu og er það kannski það eina
sem stendur upp úr eftir þenn-
an leik,“ sagði þjálfarinn.
Þorbjöm sagði að liði, sem spil-
aði sóknarleikinn illa gegn
Rússum, væri refsað með hrað-
aupphlaupum og
sú varð raunin í
þessum leik. „Þeir
léku öfluga 5-1
vörn þar sem
Kulechov truflaði mjög mikið spil
okkar og hinir voru eins og múr-
veggur fyrir aftan. Nú er það
næsta skref hjá okkur að taka
sóknarleikinn föstum tökum og
það er mikil þörf á því. Undirbún-
ingur okkar fyrir Rússaleikina var
ekki langur og því tók ég þann
kostinn að taka varnarleikinn fyr-
ir og fá hann til að virka. Þegar
undirbúningurinn er svona
skammur er ekki hægt að gera
allt i einu og maður verður að
taka einn hlut fyrir i einu og fá
hann góðan. Við þurfum meiri
tima í sóknarleikinn en ég held
að þetta komi þegar fram líða
stundir. Ég hef ekki haft mikinn
tíma með liðið og það er ljóst að
það er ekki nógur tími til að fara
yfir alla þessa þætti,“ sagði Þor-
björn.
Næsta verkefni landsliðsins eru
leikirnir gegn Pólverjum og segir
Þorbjörn að það verði að vera
búið að bæta sóknarleikinn fyrir
þá. „Þetta eru leikir sem við verð-
um að vinna hvernig svo sem
önnur úrslit verða í riðlinum.
Rússarnir eiga fyrst útileik í Rúm-
eníu og það er von okkar að þeir
leiki af eðlilegri getu og vinni
báða leikina og þá erum við inni
ef við vinnum Pólveijana. En
maður veit aldrei. Ég hef einhvern
veginn þá trú að þessi lið séu að
„makka“ sig saman um úrslitin.
Bjarki skorar í Moskvu
BJARKI Slgurðsson stekkur upp og sendl knöttlnn yfir Oleg Kullshov og í netlð hjá Rússum
í landsleiknum í CSKA-hölllnni í Moskvu.
Það er auðvitað óþolandi að vera
að taka þátt i íþróttakeppni og’
svo er kannski verið að semja um
úrslit ákveðinna leikja. Það hefur
verið mikil umræða um þessa
blessuðu dómara og það sýndist
sitt hverjum um dómgæsluna í
fyrri leiknum gegn Rússum. Það
má segja um þennan leik að Rúss-
ar voru að hagnast á dómgæsl-
unni hér á heimavelli sínum, voru
að taka of mörg skref til að skora
sín mörk oft og tíðum á meðan
við vorum ekki að fá það sama.
Þetta eru því miður hlutir sem við
verðum að sætta okkur við. Ég
ætla þó ekki að fara að kenna
dómurunum um hvernig fór. Þetta
var fyrst og fremst aulaskapur í
okkur. Liðin verða að spila vel,
hvort sem dómarar eru slæmir eða
ekki, og spila betur en andstæð-
ingárnir og dómararnir.“
Sóknarleikurinn brást
Júlíus Jónasson sagði að leikur-
inn hafi ekki spilast eins vel og
fyrri leikurinn heima. „Sóknar-
lega gekk leikurinn ekki nægilega
vel og við náðum ekki upp sömu
baráttu í vörninni og í heimaleikn-
um. Við vorum með í þessu í fyrri
hálfleik og áttum möguleika á að
gera betur. Lavrov var erfiður í
síðari hálfleik og það réð úrslitum.
Osjálfrátt vorum við ragari við
að skjóta eftir að Lavrov fór að
veija. Ef við hefðum spilað agaðri
leik hefðum við átt að geta slopp-
ið frá þessu með tveggja til
þriggja marka tap og það hefði
verið í lagi,“ sagði Júlíus.
Afleítt í slðari hálfleik
Geir Sveinsson fyrirliði sagðist
vera þokkalega ánægður með
fyrri hálfleik. „Við getum alveg
verið sáttir við fyrri hálfleikinn
en síðari hálfleikur var afleitur.
Ég er sáttur við varnarleikinn og
markvörsluna en sóknarleikurinn
var dapur hjá okkur. Menn reyndu
of mikið upp á eigin spýtur og
gerðu sér ekki grein fyrir stöð-
unni þegar við vorum komnir fjór-
um mörkum undir. Við urðum að
halda því og það mátti ekki verða
meiri munur. Hvert einasta mark
er svo dýrmætt og það er eins og
vanti stöðumat í okkur, að vega
og meta stöðuna. Að tapa með
þremur til fjórum mörkum hefðu
verið ágætis úrslit en átta mörk
er allt of mikið. Nú erum við með
mínus sjö í markatölu. Nú verðum
við að byija á því að vinna Pól-
verja í báðum leikjunum og
treysta á að Rússar vinni báða
leikina gegn Rúmenum. Það er
kannski langsótt því það kæmi
mér ekki á óvart að Rúmenar
næðu að vinna Rússa á heima-
velli. En við verðum bara að bíða
og vona að markatalan verði okk-
ur ekki enn og aftur að falli,“
sagði fyrirliðinn.
Leikurinn / B5
Johans-
son gegn
Have-
lange
LENNART Johansson, forseti
Knattspymusambands Evrópu,
hefur ákveðið að gefa kost á
sér í embætti forseta Alþjóða-
knattspymusambandsins. Jo-
hansson hefur lengi verið að
hugsa um þetta en sagði við
þýska tímaritið Kicker í gær
að hann væri ákveðinn í að
bjóða sig fram á móti Brasilíu-
manninum Joao Havelange sem
hefur verið við stjómvölin hjá
FIFA síðan 1974. Kjörtímabil
hans rennur út 1998 og þá
ætlar Johansson að bjóða sig
fram.
Sampras
á toppinn
PETE Sampras frá Bandaríkj-
unum sigraði Boris Becker í
úrslitaleik opna Parísarmótsins
í tennis í Bercy höllinni um
helgina, og komst þar með í
efsta sæti heimslistans á ný.
Sampras sigraði Becker 7-6,
6-4, 6-4 og hlaut að launum
342.000 dollara, andvirði rúm-
lega 22 milljóna króna. Andre
Agassi, sem sló Sampras úr
efsta sæti heimslistans í apríl,
átti titil að vetja í París um
helgina en var ekki með - er
meiddur.
Heims-
metí
stangar-
stökki
KÍNVERSKA stúlkan Sun
Caiyun bætti heimsmet Danielu
Barovu frá Tékklandi í stangar-
stökki á móti í Shenzhen um
helgina. Caiyun vippaði sér yfir
4 metra og 23 sentimetra, ein-
um sentimetra hærra en
Barova hefur gert. Ekki er
langt síðan konur fóru að
kepppa í stangarstökki og var
þétta í 15. sinn á þessu ári sem
heimsmetið fellur.
Bowe
sigraði
Holyfield
RIDDICK Bowe sigraði Evand-
er Holyfield á rothöggi í átt-
undu lotu. Dómarinn stöðvaði
bardagann eftir að Bowe hafði
iamið Holyfield tvívegis í gólfið
í sömu lotunni. Holyfield hafði
hins vegar lamið Bowe í gólfið
í 6. lotu og var það í fyrsta
sinn sem hann hefur verið lam-
inn í gólfið sem atvinnumaður.
Báðir hafa kapparnir verið
heimsmeistarar um tíma, Ho-
lyfield tvívegis, en að þessu
sinni börðust þeir ekki um
heimsmeistaratitil.
ENGLAND: 11X 22X 11X 1112 ITALIA: 1 X X 121 X21 11X2 LOTTO: 1 3 14 21 29 + 16