Morgunblaðið - 30.11.1995, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 30. NÓVEMBER 1995 C 7
STOÐ3
Laugardagskvöldið
2. desember verður
sýndur léttur gaman-
myndaþáttur um út-
varpsmannin Martin. Segir frá
Martin Payne og vinkonu hans
Ginu Waters sem er ungur en
háttsettur stjórnandi í stóru fyrir-
tæki. í útvarpinu er Martin grófur
og læst vera frægur kvennaflag-
ari. Sömu ímynd sýnir hann vin-
um sínum. Sannleikurinn er hins
vegar sá að Maitin er þægilegur
og einlægur, og þá hlið sýnir hann
Ginu.
Martin tekst að móðga ríka og
foreldra hennar í beinni útsend-
ingu í útvarpinu og móðir hans
er alls ekki hrifin af Ginu, sem
hún telur að sé að stela syni sín-
um. Martin kemst í kast við lögin
út af stolnu krítarkorti og fer á
taugum þegar þeirri sögu er kom-
ið á kreik að Gina sé með mun
hærri laun en hann.
Engin lognmolla
Á sunnudagskvöld verður sýndur
á Stöð 3 þáttur um fréttakonuna
Murphy Brown, sem er engum
lík. Það er aldrei lognmolla í
kringum hópinn sem sér um
fréttaskýringaþáttinn „FYI“.
Fyrir hópnum fer Murphy Brown
í túlkun Candice Bergen.
Murphy Brown er hörð í horn
að taka og ósmeyk við að taka
Khadaffi, Castro eða Clinton á
beinið. Henni er ekkert heilagt,
fréttin skal í loftið hvað sem það
kostar.
Henni gengur hins vegar ekki
eins vel að ráða við einkalífið;
hefur verið vistuð á Betty Ford
stofnuninni vegna áfengissýki og
einkamálin eru sífellt að flækjast
fyrir. Félagar Murphy eru Jim
Dial, gamall fréttahaukur sem
fengið hefur öll hugsanleg verð-
laun í gegnum tíðina, en skortir
fótfestu í nútímafréttamennsku
og Frank Fontana, ungur ein-
hleypur rannsóknarblaðamaður
sem hefur unun af því að vinna
úti á ystu nöf. Corky Sheerwood
er fyrrum fegurðardrotting sem
heldur uppi áhorfinu með útlitinu
en á í vandræðum með flest ann-
að og Miles Silverberg sem er
framleiðandi FYI er 25 ára undra-
barn í viðskiptaheiminum en
fremur utanveltu í fjölmiðlaum-
ræðunni. Þetta er hópur sem get-
ur ekki brugðist.
Murphy Brown er fyrsta flokks
gamanþáttaröð sem hlotið hefur
fjölmargar viðurkenningar s.s.
fyrir framúrskarandi gamanefni,
og einnig hefur þáttaröðin hlotið
mörg Emmy-verðlaun. Aðallei-
konan, Candice Bergen hefur
einnig hlotið frábæra dóma og
verðlaun fyrir frammistöðu sína.
SYN
Erótík og fótbolti
ERÓTÍSKA kvikmyndin Rauða
dagbókin er á dagskrá Sýnar
laugardagskvöld. Hún segir frá
hinni ungu og fallegu Alex og
ástarævintýrum hennar. Unnusti
hennar, Jake, er snjall húsagerð-
armeistari og tillitsamur elsk-
hugi. Hinn maðurinn í lífi hennar
er verkamaður sem hún kynnist
af tilviljun á byggingarsvæði í
borginni. Kynnin við hann veita
henni þá spennu sem skortir í
sambandi hennar og Jakes. Alex
þarf að gera upp á milli þessara
ólíku manna, en hvorugur veit af
hinum.
Á sunnudag verður leikur ít-
ölsku liðanna Juventus og AC
Milan í beinni útsendingu á Sýn
en íþróttir skipa háan séss í dag-
skrá Sýnar á sunnudögum.
Klukkan 18 verður dagskrá frá
NHL-deildinni í íshokkí en það
er besta deild heims í þessari
íþrótt. Klukkan 19.15 tekur síðan
við bein útsending frá ítölsku
H ELG ARDAGSKRÁIN
Gamanþættir um
fjölmiðlafólk
FRÉTTAKONAN Murphy Brown er hörð
í horn að taka.
KRUMMI er fuglinn minn,
orti Davíð Stefánsson í ljóðinu
Krummi sem út kom í Svört-
um fjöðrum árið 1919, fyrstu
ljóðabók skáldsins.
SVARTFELLINGURINN Dej-
an Savicevic i liði AC Milan
verður væntanlega á skots-
kónum gegn Juventus.
NOEL Gallagher, aðallaga-
smiður hljómsveitarinnar
Oasis, verður í Rokklandi.
MARTIN læst mikill flagari en er í raun
einlægur ungur maður.
knattspyrnunni. Klukkan 21.30
tekur síðan við klukkustundar
dagskrá frá knattspyrnuvöllum
víðsvegar að í Evrópu. En klukk-
an 22.30 verður sýnt frá amerísku
atvinnumannadeildinni í fótbolta.
RUV
Sjálfstæðissöngvar, „Oasis“ og
kvennabókmenntir
Á LAUGARDAG verður fluttur
þáttur í minningu Davíðs Stefáns-
sonar frá Fagraskógi því í ár eru
liðin eitt hundrað ár frá fæðingu
hans. Davíð vakti strax á sér at-
hygli með fyrstu ljóðabók sinni,
Svörtum fjöðrum, sem hann gaf
út aðeins 24 ára gamall árið 1919.
í þætti Ingólfs Steinssonar Segið
það móður minni sem útvarpað
verður á Rás 1 kl. 14.00 verður
fjallað um Davíð og lesin nokkur
kvæði úr Svörtum fjöðrum auk
þess sem sungin eru frumsamin
lög við sex af kvæðum Davíðs.
Davíð var afkastamikið skáld og
auk kvæðanna samdi hann hina
sögulegu skáldsögu Sólon ísland-
us um ævi Sölva Helgasonar og
nokkur leikrit, m.a. hið óborgan-
lega leikrit Gullna hliðið.
Kl. 16.20 verður fluttur síðari
þáttur Unu Margrétar Jónsdóttur
um söngva úr íslenskri sjálf-
stæðisbaráttu á tímabilinu 1800-
1918. Eins og heiti þáttarins gef-
ur til kynná verður sagt frá
söngvum sem notaðir voru í sjálf-
stæðisbaráttu íslendinga. í þætt-
inum á föstudag var Islendinga-
bragur Jóns Ólafssonar fluttur en
sá bragur olli hneyksli og mála-
ferlum á sínum tíma en laugardag
fá hlustendur meðal annars að
heyra lagið Öxar við ána eftir
Helga Helgason leikið í sinni upp-
runalegu mynd.
Nokkur lög voru hljóðrituð sér-
staklega fyrir þessa þætti og er
enginn vafí á því að tónlistarunn-
endur eiga eftir að njóta þáttanna.
Oasis í Rokklandi
Það er mikið um fjör í þáttum
Ólafs Páls Gunnarssonar á
laugardögum kl. 16.05 á Rás 2.
Þátturinn er unninn í nánu sam-
starfi við BBC og útvarpað er
splunkunýjum tónleikaupptökum.
í dag verður meðal annars útvarp-
að nýrri upptöku BBC með hljóm-
sveitinni Thunder. Flutt verður
viðtal við Noel Gallagher gítar-
leikara og aðallagasmið hljóm-
sveitarinnar Oasis og rætt er við
Brian May gítarleikara Queen um
það hvernig hljómsveitin fer að
án Freddy heitins Mercurys.
Sunnudagsleikrit Útvarpsleik-
hússins verður Öll sú þrá eftir
breska leikritahöfundinn Alison
Thirkell í þýðingu Elísabetar
Snorradóttur. I leikritinu segir frá
leikkonunni Marguerite, sem um
langa hríð hefur orðið að taka
hvaða hlutverki sem er til þess
að sjá fyrir sér og fatlaðri móður
sinni. Daglega leitar hún á vit
hins gamalkunna flótta frá raun-
veruleikanum til þess að halda
út hlutskipti sitt. Með hlutverk
Marguerite fer Ingrid Jónsdóttir.
Aðrir leikendur eru Þóra Friðriks-
dóttir, Margrét Helga Jóhanns-
dóttir, Bríet Héðinsdóttir og Örn
Árnason. Upptöku annaðist Grét-
ar Ævarsson og leikstjóri er Þór-
hallur Sigurðsson.
Ólétta í bókmenntun
Klukkan 16.08 verða konur og
bókmenntir í brennidepli á Rás 1.
Helgina 20.-22. október í haust
var haldin ráðstefna um íslenskar
kvennarannsóknir. Nokkrir fyrir-
lestrar á ráðstefnunni fjölluðu um
bókmenntir. Þar á meðal voru er-
indi um óléttu í íslenskum bók-
menntum, mat og bókmenntir,
orðræðu kvenna í Laxdæla sögu,
íslenskar tröllkonur og fleira og
fleira. Anna Margrét Sigurðar-
dóttir hefur tekið saman þátt um
þessa hlið ráðstefnunnar sem verð-
ur á dagskrá Rásar 1 eftir fréttir
kl. íjögur sunnudag.