Morgunblaðið - 07.12.1995, Síða 1
SKEMMTUN
Kvikmyndir gerö-
ar í tölvum /4
LÍFEYRIR
Raunhæft aö sjóö-
um fækki /6
ATVINNA
Týnda kynslóöin í
Evrópu /7
2Hov0unÞTftÍMÍ>
Alnetið
Lífeyrissjóður verslunarmanna
hefur fyrstur lífeyrissjóða opnað
heimasiðu á Alnetinu. Þar geta
sjóðfélagar og aðrir kynnt sér
starfsemi sjóðsins. Þar er að finna
m.a. upplýsingar um helstu stærð-
ir og kennitölur úr rekstri sjóðs-
ins, dæmi um útreikning lífeyris,
iðgjald og lánareglur. Netfang
sjóðsins er skima.is lifver.
Hrávara
Verð á hveiti stigur ört á alþjóð-
legum hrávörumarkaði vegna lít-
ils framboðs í Evrópu og vegna
endurnýjun viðræðna við Rússa
um aukin kaup á hveiti. Verðið
nálgast 5,11 doilara markið, sem
hveitið fór upp í fyrr á árinu og
var hið hæsta í 16 ár. Kaffið féll
hins vegar um 42 dollara og end-
aði í 1,985 doliurum tonnið.
Skipasmídar
Eftirlitsstofnun EFTA í Brussel
skýrði frá því í gær að það hefði
staðfest tillögu norskra stjórn-
valda um að veita ríkisstyrk í
tengslum við smíði rannsóknar-
skips sem á að fara til vísinda-
stofnunar í Indónesíu. ESA lítur
á styrkinn sem hluta af þróunar-
aðstoð Norðmanna við Indónesíu.
SÖLUGENGI DOLLARS
Auðiind Islenski Almenni Hlutabr.sj.
Rekstraraðili VÍB Kaupþing Landsbréf Skandia Kaupþing Norðurl.
Eignir samtals (m.kr.) 1343 634 620 202 189
Hlutabréf 59% 63% 48% 51% 54%
Skuldabréf 30% 25% 39% 41% 43%
Erl. verðbréf 4% 9% 13% 6% 2%
Laust fé 7% 3% 0% 2% 1%
Raunávöxtun s.l. 5 ár 5,3% 5,0% 1,5%
s.l. 4 ár 5,5% 6,1% 5,3% 2,8% 10,8%
s.l. 3 ár 14,2% 8,6% 10,4% 8,6% 12,3%
s.l. 2 ár rXT'^ s.l. 1 ár 38,2% 13,6% 13,1% 20,8% 14,8%
49,6% 24,6% 14,6% 38,1% 24,3%
s.l. 6mán. (m.v. ár) 59,9% 23,0% 28,3% 69,8% 32,4%
s.l. 3 mán. (m.v. ár) 58,0% 22,3% 54,5% 154,7% 29,8%
Arður 1 - (.
1991 12% 0% 0% 0% 0%
1992 8% 0% 5% 0% 0%
4% 0% 0% 0% 0%
1994 0% 0% 0% 0% 3,5%
1995 8% 5% 4% 0% 2,0%
Fjöldi hluthafa 3950 2320 2630 538 820
Umsjónarlaun * 0,5% 1,9% 1,8%** 1,0% 1,4%
Innra virði (Kaupgengi) 1,96 1,41 1,40 1,29 1,54
Sölugengi 2,01 1,44 1,45 1,32 _ 1,57
* Hlutfall á ári af heildareignum ** Samkvæmt ársreikningi
HLUTABRÉFASJÓÐIRNIR hafa aðeins ráðstafað liðlega helmingi eigna
sinna til kaupa á hlutabréfum undanfarin ár. Að öðru leyti er fjármagnið
ávaxtað í skuldabréfum og erlendum verðbréfum, eins og sést á töflunni.
Sjóðirnir hafa náð framúrskarandi ávöxtun undanfarin 2 ár og náð að vinna
upp verðlækkanir árin þar á undan. Þegar litið er yfir síðustu 5 ár nemur
raunávöxtun tveggja stærstu sjóðanna numið um 5% en Almenni
hlutabréfasjóðurinn sýnir hins vegar nokkuð lakari ávöxtun. Þá er hins
vegar ótalinn verulegur skattalegur ávinningur kaupendanna. Þess má geta
að ávöxtun spariskírteina var í árslok 1990 allt að 6,75%. Hafa ber í huga
Hlutabréfasjóður VÍB og Hlutabréfasjóðurinn hf. sameinuðust fyrr á árinu.
Gengi bréfa í síðarnefnda sjóðnum var þá nokkuð undir innra virði. Það
hefur nú verið leiðrétt og á það sinn þátt í þeirri háu ávöxtun sem sést á
töflunni.
Erlend greiðslukortaviðskipti
í október og nóvember
Jukust um 8%
frá fyrra ári
ERLEND greiðslukortaviðskipti hjá
Visa íslandi jukust um 8% í október
og nóvember miðað við fyrra ár.
Þessi aukning kann að stafa af mik-
illi aðsókn í verslunarferðir til ná-
iægra stórborga í haust en margir
kaupmenn óttast að þær dragi úr
jólaversluninni hér heima, sem hefst
af alvöru um helgina.
Nýtt greiðslukortatímabil hefst
hjá flestum smásöluverslunum í dag.
í desember geta þær valið á milli
tvenns konar tímabila hjá kortafyrir-
tækjunum, hefðbundna tímabilsins,
sem hefst hinn 18. og breytilega
tímabilsins sem hefst í dag.
Einar S. Einarsson, forstjóri Visa
Islands, á von á að jólaverslunin
verði ekki síður lífleg nú en í fyrra.
„Velta greiðslukorta Visa íslands er
að meðaltali tæpir fjórir milljarðar
á mánuði, og gera má ráð fyrir því
að aukning vegna jólaverslunarinnar
nú losi rúman milljarð. Nokkurrar
aukningar gætir jafnan í viðskiptum
íslendinga erlendis síðustu mánuð-
ina fyrir jól og í október og nóvem-
ber hafa greiðslukortaviðskipti auk-
ist nokkuð miðað við fyrra ár eða
um 8%. Þessa tvo mánuði námu er-
lendu viðskiptin um 800 milljónum
króna að meðaltali."
Kortin ráða
Þeir kaupmenn sem Morgunblaðið
ræddi við segja að búast megi við
því að sjálf jólaverslunin hefjist með
nýju kortatímabili í dag, þ.e.a.s. sá
hluti hennar sem ekki fari fram er-
lendis. Edda Sverrisdóttir, kaupmað-
ur í versluninni Flex í Bankastræti
og talsmaður Laugavegssamtak-
anna, segir að kaupmenn í Miðbæn-
um og við Laugaveg séu almennt
bjartsýnir á jólaverslunina. „Frá því
í nóvember hefur verið töluvert að
gera á svæðinu og margir telja að
um aukningu sé að ræða frá fyrra
ári og að fólk hafi meira fé á milli
handa. Hingað til hefur fólk þó gert
meira af þvf að skoða en kaupa og
samkvæmt fyrri reynslu byijar jóla-
verslunin fyrir alvöru með nýju
kortatímabili. Það eru kortin sem
ráða.“
Edda segir að hjá kaupmönnum
ríki þó viss kvíði vegna mikillar að-
sóknar íslendinga í verslunarferðir
til nálægra stórborga í haust. „Það
er talað um að aðsóknin hafí aldrei
verið meiri. Þetta er mikið rætt í
okkar hópi og margir eru hræddir
við að stórborgarfararnir hafí annað
hvort eytt um efni fram í útlöndum
eða keypt allar gjafírnar þar og
kaupi því engar hér heima.“
Samkeppni svarað
Sigurður Jensson, eigandi tísku-
verslunarinnar Monsoon í Kringl-
unni, segir að jólaverslunin hafi far-
ið vel af stað í Kringlunni og líklega
hafi verið meira að gera það sem
af er en á sama tíma í fyrra.
Hann segir að íslenskar kaup-
menn svari samkeppni við erlendar
verslanir með ýmsum hætti og hans
verslun bjóði til dæmis sömu vörur
á sama verði og verslanir í Lundún-
um og Glasgow. „Ég held að íslensk-
ir kaupmenn bregðist við þessari
samkeppni með markvissum hætti
þar sem vöruúrval og verðlagning
eru tekin til endurskoðunar."