Morgunblaðið - 07.12.1995, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 7. DESEMBER 1995 C 5
LAUG ARDAGUR 9/12
MYNDBÖND
Sæbjöm Valdimarsson
GILDRA FYRIR
DÓMARAIMN
DRAMA
Lögfræðilegt samþykki (Judicial
Consent) ★ ~kV-i
Leikstjóri og handritshöfundur
William Bindley. Tónlist Christ-
opher Young. Kvikmyndatöku-
stjóri James Glennon. Aðalleik-
endur Bonnie Bedelia, Billy
Wirth, WiII Patton, Lisa Blount,
Kevin McCarthy, Dabney Cole-
man. Bandarísk kapalmynd.
Rysher 1994. Sam myndbönd
1995. 95 mín. Aldurstakmark 16
ára.
JUDIQAL
CONSENT
UM ÞAÐ leyti
sem til stendur að
skipa dómarann
Gwen Warwick
(Bonnie Bedelia)
til æðstu metorða
við hæstarétt
Michigan, hellist
ólánið yfír.
Starfsbróðir
hennar, Charley
Mayron (Dabney Coleman), finnst
myrtur og er Warwick valin til að
fara með málið af hálfu hins opin-
bera. A sama tíma á hún í blossandi
framhjáhaldi og er að skilja við sinn
grautfúla eiginmann. Það er hinsveg-
ar öllu verra að fijótlega berast bönd-
in að henni sjálfri sem hugsanlegum
morðingja. Utlitið er orðið dökkt hjá
Warwick dómara. Er hún sek eða
saklaus?
Mörg atriði gera það að verkum
að Lögfræðilegt samþykki er í vænu
meðallagi. Handritið er heldur mál-
efnalegt og rökrétt, Bonnie Bedelia
er fyrirtaks leikkona (þó hún hafi
komist hvað lengst á framabrautinni
að vera eiginkona „Die Hard Willis").
Enginn leikur óþolamdi eiginmenn
betur en Will Parron, og gömlu jaxl-
amir, þeir Dabney Coleman og Kevin
McCarthy, hressa upp á heildarmynd-
ina í smáhlutverkum. Kvikmyndatak-
an er í höndum gamals fagmanns,
þá er tónlistin mjög áhrifarík, enda
samin af Christopher Young, einum
efnilegasta músíkant Hollywood um
þessar mundir — eins og tónsmíðar
hans í Murder in the First, sem verið
er að sýna í borginni, er til vitnis um.
Nokkuð óvænt skemmtun.
SHAME KANN
EKKIAÐ
SKAMMAST SÍN
SPENNUMYND
Algjör bömmer (A Low Down
DirtyShame) >kikVi
Leikstjóri og handritshöfundur
Keenen Ivory Wayans. Tónlist
Marcus Miller. Aðalleikendur
Keenen Ivory Wayans, Charles
S. Dutton, Jada Pinkett, Sally
Richardson. Bandarísk. Savoy
Pictures 1994. Sam myndbönd
1995.96 mín. Aldurstakmark 16
ára.
EINKSPÆJAR-
INN Shame
(Keenen Ivory
Wayans) er í
klípu. Hann þarf
að leita á náðir
fyrrum kær-
ustunnar (Jada
Pinkett) til að
hafa hendur í hári
suður-amerísks
eiturlyfjabaróns.
Ekki nóg með það, heldur missti hann
tangarhaldið á stúlkunni einmitt þeg-
ar hann var að eltast við þennan sama
krimma nokkru áður. En Shane kann
ekki að skammast sín og er hvergi
banginn við að leita á náðir vinkon-
unnar, það getur líka haft aðra góða
kosti í för með sér!
Ekkert merkileg mynd, en það er
kvikmyndagerðarmaðurinn og leikar-
inn Wayans, sem hér er allt í öllu.
Wayans hóf ferilinn í skemmtana-
bransanum sem brandarakarl á sviði,
í félagsskap Eddie Murphy og hans
nóta. Síðan hlaut hann mikið umtal
og kynningu er hann gerði þættina
In Living Color hjá Fox-sjónvarpsnet-
inu. Varð þó ekki jafn frægur og hinn
þá algjörlega óþekkti Jim Carrey, sem
lék á móti honum í þáttunum, sem
hlutu frábæra dóma en lélegt áhorf.
Wayans á lítið meira en stöku spretti
í þessari myr.d, sem er ekkert annað
en hræringur gamanmála og óláta
þar sem gengur á ýmsu. Myndin virk-
ar að talsverðu leyti betur á skjánum
en tjaldinu, hvemig sem á því stend-
ur. Ætli Wayans sé ekki sniðinn fyrir
hann?
SYSTRABLÚS
SPENNUMYND
Skuggamynd (Silhouette) Arl/i
Leiksljóri Eric Till. Handrit Kar-
ol Ann Hoeffner. Aðalleikendur
JoBeth Williams, Corin Bernsen,
Stephanie Zimbalist. Bandarisk
sjónvarpsmynd. WIN 1994. Skíf-
an 1995. 95 min. Aldurstakmark
12 ára.
HJÚKRUNAR-
KONAN Ann
Parkhurst (Step-
hanie Zimbalist)
nýtur ljúfa lífsins
á næturklúbbum
Los Angeles-
borgar. Stundar
kynlíf, drykkju og
næturgölt í óhófi.
Og geldur fyrir
með lífínu. Stóra
systir hennar, Nancy (JoBeth Will-
iams), heldur á stúfana til að freista
þess að komast að því hver varð henni
að aldurtila. Það sem hún uppgötvar
er miður fagur vitnisburður um villt
lífemi systurinnar. Nancy fær vin Ann
til að aðstoða.sig við lausn morðmáls-
ins og reynist sannleikurinn að lokum
hinn skelfilegasti.
Þær eru orðnar ansi margar mynd-
imar sem byggðar em á þessari leitar-
formúlu, jafnvel þó maður fari ekki
út fyrir borgarmörk Los Angeles.
Enda fátækum framleiðendum hæg
heimatökin. Hér er ekki bryddað á
umtalsverðum nýjungum í tækni eða
sögulykkjum, allt gengur sinn vana-
gang og hin prýðilega leikkona, Jo-
beth Williams, lætur sig ekki muna
um að láta eins og hún sé að túlka
persónu eftir Miller eða Williams. En
það dugar ekki til, myndin er und-
anrenna.
BÍÓMYNDBÖND
Sæbjörn Valdimarsson
TÓNAFLÓÐ (The Sound of
Music) (§[)★★★
METAÐSÓKN-
ARMYNDIN,
Óskarsverð-
launaþeginn,
vinsælasta tón-
listarmynd' allra
tíma. Klassíkin
Tónaflóð var að
koma á markað-
inn, ný kembd,
þvegin og hljóð-
blönduð. Sem fyrr
jafn hlýleg, gædd sínu minnisstæða,
aðlaðandi andrúmslofti. Þar sem allt
leggst á eitt, tónlistin þeirra Rodgers
og Hammerstein, leikurinn og söngur-
inn og ekki síst hrífandi fegurð Alp-
anna til að gleðja augu og eyru fjöl-
skyldunnar. Kjörin mynd til að bregða
í tækið um hátíðirnar. Með Julie
Andrews, Christopher Plummer.
Leikstjóri Robert Wise. 185 mín. Öll-
um leyfð.
Cybll Shepherd leikur einkaspæjaran Sam.
Blikur á lofti
n 20.50 ^-Gamanmynd Cybill Shepherd leikur
aðalhlutverkið í gamansamri og spennandi einka-
spæjaramynd. Margir muna eftir henni úr Moonlighting
þáttunum sem hún lék í ásamt Bruce Willis og voru
mjög vinsælir. í þessari gamansömu og spenanndi sjón-
varpsmynd sem Stöð 3 frumsýnir föstudagskvöld leikur
hún Samönthu Weathers, eða Sam eins og hún er oftast
kölluð. Sam rekur einkaspæjaraskrifstofu sem hún setti
á laggirnar með pabba sínum en hann var lögreglustjóri
í Los Angeles. Sam þekkir vel til borgarinnar og veit
hvar spillinguna er að finna. Hún tekur tilveruna hins
vegar ekkert of hátíðlega enda með svarta beltið í kar-
ate. Þegar glæsilegur ítalskur maður af aðalsættum hef-
ur samband við hana og biður hana um að leita horfins
ættinga fer heldur betur að hitna í kolunum. Sam kemst
á snoðir um þaulskipulagt fíkniefnasmygl, óleysta ráð-
gátu um fjöldamorð og skipulagðar aðgerðir til að eyði-
leggja feril þingkonu. Með önnur aðalhlutverk fara Rob-
ert Beltran og Charlie Schlatter.
BÍÓIIM í BORGINNI
Arnaidur Indriðason/Sæbjörn Valdimarsson
BÍÓBORGIN
Algjör jólasveinn ★★'/2
Ekta jólamynd fyrir alla fjölskyiduna
leysir ráðgátuna um jólasveininn.
Gamanleikarinn Tim Allen er sem
sniðinn í hlutverkið.
„Dangerous Minds“ ★★14
Michelle Pfeiffer leikur nýjan kennara
í fátækraskóla sem vinnur baldna
nemendur á sitt band með Ijóðabækur
að vopni. Gamalreynd hugmynd að
sönnu en skemmtileg mynd.
Brýrnar f Madisonsýslu ★ ★ ★
Meryl Streep og Clint Eastwood gera
heimsfrægri ástarsögu ágæt skil. Mið-
aldraástin blossar í nokkra daga í
Madisonsýslu en getur aldrei orðið
neitt meira. Sönn ástarmynd.
BÍÓHÖLLIN
Algjör jólasveinn (sjá Bíóborgina)
Sýningarstúlkur ★
Versta mynd Paul Verhoevens til
þessa segir af sýningarstúlkum í Las
Vegas. Kvenfyrirlitning og klúryrði
vaða uppi og sagan er lapþunn og
leikurinn slappur.
Tölvunetið ★★%
Þokkalegasta afþreyingarmynd með
Söndru Bullock í vondum málum. Sýn-
ir hvemig má misnota tölvusamfélagið
og skemmtir í leiðinni. Bullock er ágæt
sem sakleysinginn er flækist inn í at-
burðarás sem hún hefur engin tök á.
Benjamín dúfa ★★★%
Einstaklega vel heppnuð bíóútgáfa
sögunnar um Benjamín dúfu og fé-
laga. Strákarnir ungu í riddararegl-
unni standa sig frábærlega og myndin
er hin besta skemmtun fyrir alla fjöl-
skylduna.
Hundalíf ★ ★ ★
Bráðskemmtileg Disneyteiknimynd
um ævintýri meira en hundrað hunda.
Bráðgóð íslensk talsetning eykur enn
á fjörið.
Hlunkarnir ★★
Feitir strákar gera uppreisn þegar
nýir aðilar taka við sumarbúðunum
þeirra. Saklaus og oft lúmskfyndin
fjölskylduskemmtun.
HÁSKÓLABÍÓ
Sakiausar iygar ★,/2
Breskur lögreglumaður rannsakar
dularfullt morðmál í Frakklandi. Ótta-
lega óspennandi og oft óskiljanleg
spennumynd um systkinakærleik og
siðferðilega úrkynjun.
„Jade" ★★
Spennumynd sem hefur alla hefð-
bundna þætti Eszterhaz-handrita og
kemur þvf ekki á óvart. Leikstjórn
William Friedkins er þó prýðileg og
leikurinn ágætur.
Fyrir regnið ★ ★ ★ ★
Frábær mynd sem spinnur örlagavef
persóna og atburða í sláandi stríðs-
ádeilu og minnir á til hvers er ætlast
af okkur hvar og hver sem við erum.
Að lifa ★★★%
Enn eitt listaverkið frá Zhang Yimou
og Gong Li fjallar um djöfulskap
ómennskra stjórnvalda og endalaus
áföll saklausra borgara. Lætur engan
ósnortinn.
Glórulaus ★★
Alicia Silverstone bjargar annars fá-
fengilegri unglingamynd frá glötun
með góðum leik og Lólítusjarma.
Ætti að vera bönnuð eldri en 16 ára.
Apollo 13 ★★★★
Stórkostleg bíómynd um misheppnaða
en hetjulega för til tunglsins. Tom
Hanks fer fyrir safaríkum leikhópi.
Sannarlega ein af bestu myndum árs-
ins.
LAUGARÁSBÍÓ
Feigðarboð ★
Einkar viðburðasnauð en kynferðis-
lega hlaðin sálfræðileg spennumynd
sem býður uppá óvænt en lítt greindar-
leg endalok.
Hættuleg tegund ★ ★,/2
Spennandi og vel gerð blanda af hryll-
ing og vísindum heldur finum dampi
fram á lokamínúturnar. Góð afþrey-
ing.
Einkalif ★★
Brokkgeng gamanmynd um unga
krakka sem gera heimildarmynd um
fólkið í kringum sig.
REGNBOGINN
Handan Rangoon ★★★
Spennandi og vel gerð mynd Johns
Boormans um ástandið í Burma. Ung
bandarísk kona leiðist inn í átök lýð-
ræðissinna gegn herforingjastjórninni
árið 1988 þegar landið rambaði á
barmi borgarastyijaldar.
Krakkar ★★★%
Einstök, opinská mynd um vágestinn
eyðni, eituriyf og afbrot meðal ungl-
inga á glapstigum í New York.
Kalínn á hjarta ★ Vi
Samræðustykki sem tekur á taugam-
ar. Dauðyflislegar persónur í dauð-
yflislegu umhverfí að tala um ást og
ástleysi á franska vísu.
Leynivopnið ★★
Útlitslega vel gerð teiknimynd um
skæmr apafjölskyldna í frumskógin-
um skilur lítið eftir en hugnast smá-
fólkinu.
Að yfiriögðu ráði ★ tk-'A
Hrottafengin og óþægileg sannsögu-
leg mynd um illa meðferð fanga í
Alcatraz og hvernig ungur lögfræð-
ingur berst gegn ofurefli til að fá hið
sanna í ljós. Kevin Bacon er góður sem
bæklaður fanginn.
Ofurgengið ★,/2
Sæmilegar tölvuteikningar halda þess-.
ari ómerkilegu ævintýramynd á floti
en flest í henni hefur Verið gert áður
í betri myndum.
Freisishetjan ★ ★ ★,/j
Gibson er garpslegur að vanda í hlut-
verki kunnustu frelsishetju Skota.
Sýnir það einnig (einkum í fjöldasen-
um) að hann er liðtækur leikstjóri.
Frelsishetjan er ein af bestu myndum
ársins.
SAGABÍÓ
Boðflennan ★★
Grallaraleg gamanmynd um svertingja
sem treður sér inn á fjölskyldu í út-
hverfi og veldur miklum usla. Sinbad
og Phil Hartman halda uppi fjörinu.
„Dangerous Minds“ (sjá Bíóborg-
ina)
Nautn ★★
Popptónlist, léttúð og áhyggjuleysi
setur mark sitt á skemmtilega stutt-
mynd iim helgarsport æskufólks.
Daniel Ágúst og Emiliana Torrini eru
flott í aðalhlutverkunum.
Klikkuð ást ★ ★
Andleg vanheilsa setur strik í reikn-
inginn í vegamynd um unga elskendur
í leit að hamingjunni.
STJÖRNUBÍÓ
„Desperado“ ★★%
Hollywoodútgáfa Farandsöngvarans
hefur litlu við að bæta öðru en frá-
bærri hljóðrás. Antonio Banderas er
ábúðamikill sem skotglaði farand-
söngvarinn.
Benjamín dúfa ★ ★ tr'A
Einstaklega vel heppnuð og skemmti-
leg kvikmyndaútgáfa sögunnar um
Benjamín dúfu og félaga. Strákamir
ungu í riddarareglunni eru frábærir í
hlutverkum sínum og myndin er hin
besta skemmtun fyrir alla fiölskylduna.
Tár úr steini ★ ★ ★%
Tár úr steini byggir á þeim þætti í
ævisögu Jóns Leifs sem gerist á
Þýskalandsárum hans frá þvf fyrir
1930 og fram undir lok heimsstyijald-
arinnar síðari. Þegar best lætur upp-
hefst Tár úr steini í hreinræktaða
kvikmyndalist. Mælikvarðanum í ís-
lenskri kvikmyndagerð hefur hér með
verið breytt, nýtt viðmið skapað.
Erlendur Sveinsson