Morgunblaðið - 07.12.1995, Side 4
4 E FIMMTUDAGUR 7. DESEMBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ - AUGLÝSING
Fastir liðir á St<
Lögreglustöðin - The Thin Blue Line
á föstudögum
Hinn óborganlegi grínisti Rowan Atkinson (Mr. Bean, Four
Weddings And A Funeral) fer á kostum í þessari þáttaröö sem
hefur slegiö í gegn í Bretlandi. Þættirnir gerast á lögreglustöö
og þurfa löggurnar að takast á við stúdentaóeirðir og vopnuö
rán á hverjum degi. Starfsliöiö á þessari stöö gerir þaö á sinn
einstaka hátt en óhætt er aö lofa því að aðferðirnar eru ekki
alltaf eftir skólabókum lögregluskólans. Handritshöfundur þátt-
anna er Ben Elton en hann samdi m.a. Svörtu nöðruna
(Blackadder Goes Forth) og unnu þeir Atkinson og Elton síðast
viö gerð þeirra myndaflokka fyrir sex árum síðan. Ben Elton er
einnig frameiðandi ásamt Geoffrey Perkins. Með önnur hlutverk
fara Kevin Ailen, Mina Anwar, James Dreyfus, Serena Evans,
David Haig og Rudolph Walker.
Svalur prins
- The Fresh
Prince of Bel Air
á föstudögum
Bandarískur gamanmynda-
flokkur fyrir alla fjölskylduna
með Grammyverðlaunahafan-
um Will Smith. Svalur er send-
ur til ættingja sinna í Kaliforn-
íu. Þar á hann að læra góða
siði og annað sem máli skiptir
í lífinu. En frændi hans og
frænka eru ekki alveg viðbúin
og það gengur á ýmsu í heimilis-
haldinu.
Murphy Brown
á mánudögum
Óborganlegur bandarískur
gamanmyndaflokkur um frétta-
konuna Murphy Brown og fé-
laga hennar á fréttastofunni
FYI. Með hlutverk Murphy fer
leikkonan Candice Bergen en í
öðrum hlutverkum eru Charles
Kimbrough, Joe Regalbuto og
Faith Ford.
Hrakfallabálkurinn
- The Baldy Man
Breski gamanleikarinn Gregor
Rsher fer með aðalhlutverkið í
þessum gamansömu stuttþátt-
um. Hrakfallabálkurinn er vel
þekktur úr BBC Naked Video og
sömuleiðis nokkrum verðlauna-
auglýsingum.
Framleiðandi og leikstjóri
þáttanna er Colin Gilbert.
Boðið til árbíts
- Dressing for
Breakfast
á mánudögum
Louise er á lausu og leitar að
hinum eina rétta af miklum
móð, ekki síst vegna þess að
besta vinkona hennar, Carla,
er komin í hnapphelduna. Ekki
batnar ástandið þegar mömmu
gömlu tekst að næla sér í einn
líka. Hvað á Louise að gera?
Þetta eru breskir gamanþættir
eins og þeir gerast bestir, en
alls eru þættirnir sex talsins.
Vettvangur Wotffs - Wolff’s Revier
á sunnudögum
Leynilögreglumaðurinn Wolff hefur í nógu að snúast þegar
hann eltist við glæpamenn Berlínarborgar. í starfi sínu nýtur
hann dyggrar aðstoðar Savatzki, fyrrum lögreglu í Austur Þýska-
landi, og Peter Fried umdæmissaksóknara. En allt glæpagengi
borgarinnar og sú hætta sem starfinu fylgir bliknar í samanburði
við áhyggjur hans af einkadótturinni Verenu. Þá fyrst reynir á
taugarnar hjá honum og á bak við þykkan skráp löggunnar leyn-
ist fyrirmyndarfaðir.
Með helstu hlutverk fara Jurgen Heinrich, Klaus Pönitz, Gerd
Wameling og Nadine Seiffert.
Höfuðpaurinn
- Pointman
Jack Scalia leikur hér kaup-
sýslumanninn Connie Harper
sem er ranglega sakfelldur fyr-
ir stórfellt fjársvik. í fangelsinu
verður hann að sýna samföng-
unum að hann hræðist þé
ekki, enda liggur líf hans við
Smám saman ávinnur han
sér virðingu fanganna. Connic
er þrjú ár í steininum, en þá
tekst lögfræðingnum að sanna
sakleysi hans. Connie hefur
breyst mikið á þessum þremur
árum og ákveður að byrja á því
að leita uppi systur samfanga
síns, en sá óttaðist
að hún væri í lífshættu. Grunur
hans reynist réttur og allt í einu
er Connie flæktur í dularfulla
svikamyllu.
á þriðjudögum
Grátt gaman - Bugs á fimmtudögum
Breskir spennuþættir með úrvalsleikurum. Þrjú ungmenni berj-
ast gegn glæpum með því nýjasta í tækninni. Byssur eiga ekki upp
á pallþoröiö hjá þeim. Ed er þyrluflugmaður og ber sig eins og
fimasta fjallageit í klettum og fjöllum. Ross er afleit undir stýri og
því snjall ökufantur. Líf Becketts hangir venjulega á bláþræði og
hann getur engum nema sjálfum sér um kennt. Þau vinna fyrir þá
sem eru réttu megin viö lögin og þá skiptir ekki máli hver viðskipta-
vinurinn er. Þættirnir náðu miklum vinsældum í Bretlandi fýrr á
þessu ári og horfðu milljónir áhorfenda á þættina að jafnaði.