Morgunblaðið - 09.12.1995, Blaðsíða 7
MORGUNBIAÐIÐ
LAUGARDAGUR 9. DESEMBER 1995 B 7
Lesið
fyrir
bömin!
ÍSLENSKA lestrarfélagið
býður bömum á öllum aldri
afdrep í önnum jólakauptíð-
arinnar, laugardaginn 9.
desember kl. 12.30-16.
Höfundar og fleira fólk
ætlar þá að lesa upp úr
nýjum barnabókum í and-
dyri Borgarleikhússins.
íslenska lestrarfélagið
hefur undanfarin ár unnið
að því að vekja athygli á
mikilvægi þess að lesið sé
fyrir börnin og um leið bent
á að bók er oft besta skjólið
þegar hvessir í heimi hinna
fullorðnu."
„ * Morgunblaðið/Kristinn
KÖRAMOT barna- og unglinga verður haldið í Perlunni í dag.
Stuttmyndasýn-
ing o g málstofur
KAROLA Schlegelmilch kvikmynda-
gerðarmaður frá Berlín er stödd hér
á landi og stendur fyrir stuttmynda-
sýningum og málstofum sem opnar
eru almenningi. Karola hefur áður
heimsótt ísland, unnið hér að kvik-
myndagerð, haldið sýningar og starf-
að sem gestalistamaður. Hún er ges-
takennari í fjöltækni við Myndlista-
og handíðaskóla íslands í desember.
Dagana 13. og 14. desember
klukkan 20 sýnir og kynnir Karola
Schlegelmilch framúrstefnu- stutt-
myndir í húsnæði MÍR, Vatnsstíg
10, Reykjavík, með tilstyrk þýska
sendiráðsins og Kodak fyrirtækisins.
í kynningu segir: „Stuttmyndirnar
þann 13. desember eru fyndnar en
fíngerðar myndir sem sýna fólk og
umhverfi þess. Vísað er til þess að
áhorfandinn nær aldrei til þess fólks
og umhverfis sem kvikmyndin sýnir
og að kvikmyndin kveikir óuppfyllta
þrá til að upplifa þessa ímyndurt sem
raunveruleika. Myndimar, sem
margar hveijar eru alþjóðlega verð-
launaðar eru þýskar, amerískar, og
franskar, meðal annars eftir Romu-
ald Karmakar, Uli Versum, Matthias
Mueller, Stan Brakhage ofl.
Landslag og viðhorf fólks til þess
er viðfangsefni stuttmyndasýning-
arinnar þann 14. desember. Aðal-
myndirnar hafa verið valdar sem
dæmi um hvemig má nota landslag
til íhugunar um margræða merkingu
myndarinnar. Allar myndirnar eru
skemmtilegar og margbrotin lista-
verk.“
Þann 12. desember kl. 15 og 15.
desember kl. 13 leiðir Karola Schleg-
elmilch málstofur í Myndlista- og
Úr stuttmyndinni
„Donauwellen".
handíðaskóla íslands, Skipholti 1, 4.
h. Barmahlíð í tengslum við stutt-
myndasýningarnar. Þar verður gefin
innsýn í praktíska hlið stuttmynda-
gerðar og fjallað um einstaka lista-
menn.
Kóramót
í Perlunni
KÓRAMÓT barna- og unglinga
verður haldið í Perlunni í dag,
laugardag. Þetta er þriðja árið í
röð sem Perlan stendur fyrir
kóramóti á aðventunni. Um 700
börn og unglingar koma fram
og er aðgangur ókeypis.
♦ ♦ ♦
Dönsk
tónlist
HARMONÍKULEIKARINN Carl
Erik Lundgaard og trommuleikar-
inn Flemming Quist Moller leika
þjóðlega tónlist á Hótel Íslandi í
dag, laugardag. Þeir leika einnig í
Ráðhúsi Reykjavíkur í dag kl. 17.
Aðgangur er ókeypis.
Sónata á myndbandi
Jólatón-
leikar
Do-Re-Mí
JÓLATÓNLEIKAR Tónskólans
Do-Re-Mí verða haldnir í dag kl.
14 í Neskirkju.
Fram koma nær allir nemendur
skólans og forskólanemendur 6-8
ára. Áhersla verður lögð á samleik
nemenda og jólalögin skipa stóran
sess í dagskránni, að því er segir
í frétt frá skólanum.
Þetta er annað starfsár Tón-
skólans og stunda rúmlega 80
nemendur nám við hann.
Aðgangur er öllum heimill á
meðan húsrúm leyfir.
-----♦-♦ ♦--
Hádegisleik-
hús Leikfélags
Reykjavíkur
HÁDEGISLEIKHÚSI Leikfélags
Reykjavíkur var hleypt af
stokkunum síðastliðinn laugardag.
Hádegisleikhúsið er starfrækt
hvern laugardag frá kl. 11.30-
13,30.
í dag verður boðið upp á bland-
aða dagskrá, leikin verða atriði
úr leikritinu Bar-par, flutt verða
revíulög úr ýmsum revíum, sagðar
verða gamansögur úr leikhúsi og
leikin verður tónlist.
Ókeypis aðgangur er að Há-
degisleikhúsinu.
ÞEIR sem standa að myndbandi af
barnaóperunni Sónötu, sem ætluð er
6-9 ára grunnskólabörnum eru: Þor-
varður Ámason kvikmyndagerðar-
maður, Hjálmar H. Ragnarsson tón-
skáld, Messíana Tómasdóttir leik-
mynd, líbrettó og leikstjóm, Marta
G. Halldórsdóttir sópran, Sverrir
Guðjónsson kontratenór, Guðrún
Óskarsdóttir semballeikari, Kolbeinn
Bjamason flautuleikari, Árni Bald-
vinsson ljósahönnuður.
„Leikbrúður eru notaðar í mynd-
inni, en þær tala hver sitt bullmál.
Við gerð bullmálsins hefur meðal
annars verið tekið mið af hljóðfræði-
rannsóknum Margrétar Pálsdóttur
Metaðsókn
í Borgar-
leikhúsinu
METAÐSÓKN hefur verið í Borgar-
leikhúsinu í vetur. Nú í byrjun des-
ember hafa þrisvar sinnum fleiri
áhorfendur komið í Borgarleikhúsið
en á sama tíma í fyrra. Tæplega
50.000 áhorfendur hafa sótt sýn-
ingar í húsinu og auk þess hafa um
800 grunnskólabörn komið í heim-
sókn í leikhúsið. „Það má í raun
segja að um 150% aukningu á
áhorfendaijölda sé að ræða,“ segir
í tilkynningu.
Sjö leikverk hafa verið sýnd í
vetur, fimm á stóra sviðinu, eitt á
því litla, auk þess sem opnað var
nýtt leikrými, Leynibarinn, í kjall-
ara hússins. Auk þessa hefur fjöldi
málfræðings. Bullmál brúðanna er
ýmist þýtt, eða merking þess kemur
fram af tilsvörum. Söngvararnir
stjórna brúðunum," segir í kynningu.
Hjálmar H. Ragnarsson samdi
tónlistina, en hann hefur áður samið
barnaóperu og auk þess unnið með
bulltexta í tónsmíðum sínum. Söngv-
arar/leikarar eru Sverrir Guðjónsson
kontratenór og Marta G. Halldórs-
dóttir sópran. Tveir hljóðfæraleikar-
ar taka þátt í myndinni, Kolbeinn
Bjarnason flautuleikari og Guðrún
Óskarsdóttir semballeikari.
Söngvarar eru sögumenn og
syngja/tala fyrir brúðumar.
„Blær myndarinnar byggist á því,
nýjunga verið í starfsemi Leikfélags
Reykjavíkur.
Sýningum fyrir jól er nú að ljúka
en sýningarhald hefst á ný milli
jóla og / nýárs. Leikverkin Hvað
dreymdi þig, Valentína?, Bar par,
Við borgum ekki, við borgum ekki
og Lína Langsokkur verða sýnd
áfram. Nú standa yfir æfingar á
Isiensku mafíunni eftir Einar Kára-
son í leikstjórn Kjartans Ragnars-
að söngvarar og hljóðfæraleikarar
virka sem jarðtenging, ljúfir og
skemmtilegir, en brúðurnar aftur á
móti gefa okkur innsýn í annan og
ljóðrænni veruleika. Við viljum þann-
ig reyna með myndinni að opna
glugga inn í hljóðlátari heima hugar-
flugsins,“ segir í kynningu.
Strengjaleikhúsið sýndi barna-
óperuna Sónötu í húsi íslensku óp-
erunnar í október og nóvember 1994
fyrir um það bil 6.000 grunnskóla-
og leikskólabörn á aldrinum 4-8
ára. Tíu dansarar úr Listdansskóla
Islands tóku þátt í sýningunni undir
stjórn Nönnu Ólafsdóttur danshöf-
undar.
sonar. Verkið er örlagasaga Kill-
ians- fjölskyldunnar og er unnið upp
úr skáldsögum Einars Kárasonar
Heimskra manna ráð og Kvika-
silfri. íslenska mafían verður frum-
sýnd 28. desember nk. Auk þess
eru hafnar æfingar á samstarfs-
verkefni Leikfélags Reykjavíkur og
Hlínar Agnarsdóttur á leikritinu
Konur skelfa sem frumsýnt verður
í janúar.
BORG ARLEIKHÚ SIÐ
MENNING/LISTIR
NÆSTU VIKU
MYNDLIST
Kjarvalsstaðir
Kjarval - mótunarár 1885-1930. Sýn.
Einskonar hversdagsleg rómantík og
sýn. Einars Sveinss. arkitekts tíl 9. des. (
Onnur hæð i
Alan Charlton sýnir út des. 1
Gallerí Sólon íslandus
Myndaröð eftir Sölva Heigason.
Gallerí Sævars Karls
Þór Elís Pálsson sýnir.
Gerðuberg
Sýn. VerGangur til 8. jan.
Hafnarborg
Finnsk og ísl. silfursmíði.
Ingólfsstræti 8
Ásgerður Búadóttir sýnir til 22. des.
Gallerí Stöðlakot
Messíana Tómasdóttir sýnir til 16. des.
Nýlistasafnið
„Viðhorf' góðar stelpur/slæmar konur
sýna til 17. des.
óerðarsafn
Ljósm.sýn. Ragnars Th. til 17. des.
Norræna húsið
Rut Rebekka sýnir.
Listasafn Siguijóns Ólafssonar
Sýning á völdum andlitsmyndum eftir
Sigurjón Ólafsson stendur í allan vetur.
Gallerí Fold
Katrín H. Ágústsd. sýnir til 10. des.
og Ásdís Sigurþórsd. í Kynningar-
homi.
Ásmundarsalur
Tumi Magnússon sýnir til 10. des.
Gallerí Birgir
Hannes Lárusson sýnir til 15. des.
Listhúsið, Laugardal
Eva Benjamínsdóttir sýnir til áramóta,
einnig sýnir Pía Rachelan Sverrisd.
Listhús 39
Samsýn. „Englar og erótík" til 31. des.
Mokka
Sýningin „Stríð".
Ófeigur
Sjö myndlistarm. sýna til 14. jan.
Myndás
Liósm.sýn. Kristjáns Logas. til 15. des.
TONLIST
Laugardagur 9. desember
Söngsveitin Fílharmónía í Kristskirkju
kl. 17. Tónlistarsk. Kóp. heldur að-
ventutónl. í sal skólans kl. 14. Mótettu-
kór Hallgrímskirkju; Jólaóratoría
Bachs í Hallgrímskirkju kl. 17.
Strengjasveit frá Tónsk. Sigursveins á
Sóloni íslandus kl. 15. Hljómsveit
Kristínar Eysteinsdóttur einnig á Sól-
oni kl. 23. Kóramót barna- og ungl-
inga í Perlunni. Jólatónl. Tónlistarsk.
Isafj. í sal Grunnskólans kl. 15. og 17.
Tónl. i Húsinu, Eyrarbakka, kl. 14.
Sunnudagur 10. desember
Söngsveitin Fílharmónía í Kristskirkju
kl. 17. Kvennakór Reykjav. í Víði-
staðakirkju kl. 18. Jólatónl. Söngsmiðj-
unnar í Perlunni kl. 15. Jóla- og kaffi-
tónl. Árnesingakórsins í Rvk. í Lang-
holtskirkju kl. 15. Mótettukór Hall-
grímskirkju; Jólaóratoría Bachs í Hall-
grfmskirkju kl. 17. Jólatónl. Tónlist-
arsk. ísafj. f sal Grunnskólans kl. 17.
Ljóð og djass í Hafnarborg kl. 20.30.
Þriðjudagur 12. desember
Söngsveitin Fílharmónía í Kristskirkju
kl. 21. Tónleikaröð LR á litla sviðinu
kl. 20.30; Trio Nordica.
Miðvikudagur 13. desember
Kvennakór Reykjavíkur f Hallgríms-
kirkju kl. 20.30.
Fimmtudagur 14. desember
Kvennakór Reykjavíkur í Hallgríms-
kirkju kl. 20.30._______________
LEIKLIST
Þjóðleikhúsið
Þrek og tár lau. 9. des.
Taktu lagið, Lóa lau. 9. des., sun.
Kardemommubærinn lau. 9. des., sun.
Borgarleikhúsið
Lína Langsokkur sun. 10. des.
BarPar lau. 9. des.
Hádegisleikhús lau. 9. des á Leynibamum.
Hafnarftarðarleikhúsið
Hermóður og Háðvör sýnir Himnaríki,
lau. 9. des.
Kaffileikhúsið
Sápa þijú og hálft lau. 9. des
Kennslustundin sun. 10. des.
Hjartastaður Steinunnar þri. 12. des.
Stand-up, mið. 13. des. kl. 21.
Leikbrúðuland
Jólasveinar einn og átta, sun. 10. des. kl.
15. að Fríkirkjuvegi 11.
Hátún 12
Hala-leikhópurinn sýnir Túskildingsóper-
una lau. 9. des. kl. 20.
Sólon íslandus
„Gimsteinn í augum Guðs“, saga, leikur,
íjóð og tónar sun. 10. des. kl. 14.30.
Mcnningarmiðstöðin Gerðuberg
Turak Théatre sýnir Critures i Tjamarbfói
lau. 9. des., sun.___________________
KVIKMYNDIR
MIR
„Einn möguleiki af þúsund" sun. kl.
16.
Norræna húsið
„Sjö bræður" sun. kl. 14._______
LISTAKLÚBBUR
Leikhúskjallarinn
Útgáfutónl. Stórsveitar Reykjavíkur
kl. 21.
-