Morgunblaðið - 13.12.1995, Blaðsíða 2
2 C MIÐVIKUDAGUR 13. DESEMBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
Fá upp í 2 tonn af góðum
þorski í trollið á mínútu
Björn Valur á Sólbergi ÓF
hefur aldrei séð annað eins
GÍFURLEG
þorskgengd er
nú fyrir Vest-
fjörðum og eru
togararnir að fá
upp í tvö tonn á mínútu í trollið og toga þeir bara í 10 til 15 mínútur til
að taka ekki of mikið í einu. Margir eru í vandræðum með þorskkvóta
og verða því að sætta sig við að láta þess miklu möguleika eiga sig.
„Eg hef aldrei séð annað eins,“ segir Björn Valur Gíslason, skipstjóri á
Sólbergi. „Það er þorskur um allan sjó, en þó ekkert í líkingu við kökk-
inn sem er þama norðarlaga á Halanum og Barðinu. Það væri hægt
að veiða alveg óhemju magn þarna.“
Hitt og þetta
Verðlaun
veitt fyrir
ferskleikamæli
• NÝLEGA fengu Guðrún
Ólafsdóttir, Emilíana Mar-
teinsdóttir og Einar H. Jóns-
son verðlaun frá WEFTA
eða Samtökum rannsókna-
stofnana fiskiðnaðar í Evr-
ópu hönnun sína á nemum
sem skynja ferskleika í fiski
með sjálfvirkum hætti.
Tækið sem um ræðir vinn-
ur þannig að það breytir
lofttegundum í rafboð og
má þá sjá ástand fisksins á
tölvu. Þetta gerir fyrirtækj-
um kleift að halda uppi
gæðamælingu allan sólar-
hringinn. Auk þess hönnuðu
þremenningarnir gasskilju,
sem gerir starfsmönnum
kleift að þefa úr skiljunni
þá lykt sem er af loðnunni
og greina þannig ástand
hennar á fliótlegan hátt.
Guðrún Olafsdóttir segir
að tækið hafi verið unnið í
samstarfi við SR-Mjöl, en
verði prófað í fiskimjöls-
verksmiðju i Vestmannaeyj-
um eftir áramót: „Tækið er
á tilraunastigi, en allt bend-
ir til að það gefi mjög góða
samsvörun við hefðbundnar
aðferðir sem notaðar eru til
að skynja ferskleika.“
Deilt um
ríkisstyrki
• NORGES Fiskarlag,
heildarsamtök í norskum
sjávarútvegi, hafa hafnað
tillögu stjórnvalda um ríkis-
styrki að upphæð um 700
miiyónir króna. Sú tiilaga
felur í sér 40% niðurskurð
á þeim styrkjum sem útveg-
urinn fékk á þessu ári. Sam-
tökin telja þennan niður-
skurð allt of mikinn og sjáv-
arútvegurinn ráð ekki við
afleiðingamar.
Reglugerð um
merkingu skipa
verði breytt
• í TILLÖGU til þingsálykt-
unar til Alþingis er lagt til
að breytt verði reglugerð
um merkingu skipa, þar sem
segir að þilfarsfiskiskip
skuli vera merkt með skipa-
skrámúmeri á heppilegum
stað á báðum hliðum. í
fyrsta lagi verði sú breyting
gerð á að jafnhliða skipa-
skrárnúmeri komi kall-
merki skips.
í öðm lagi verði settar
þær reglur um hæð kall-
merkisstafa á þilfarsskipum
að ef skipslengd er á bilinu
24 til 45 metrar skuli hæð
stafa vera 75 sm, en ef skips-
lengd er 45 metrar eða
lengri skuli hæð stafa vera
100 sm. Stafina eigi að setja
á sérstök merkingarspjöld,
svarta á lit á Ijósum bak-
grunni, sem gefi endurskin.
í greinargerð meðtillög-
unni segir að ætla megi að
einhvera aðiögunartima
þurfi fyrir útgerðir og Sigl-
ingamálastofnun, sem og
Tilkynningarskyldu ís-
lenskra skipa, ef og þegar
þessi breyting nái fram að
ganga, en þó eigi að vera
óþarft að hafa hann lengri
en tvö ár.
Flutningsmenn tillög-
umnar eru þeir Guðmundur
Halivarðsson og Guðjón
Guðmundsson.
Togarinn Sólberg frá Ólafsfirði
var í vikubyijun á Barðinu og tog-
urðu þeir í 10 mínútur, en það
skilaði um 20 tonnum í haii. Þeir
tóku svo nokkur enn styttri og
fengu meðal annars 4 tonn eftir
örfáar mínútur.
Átta mílna þorskflekkur
Þorskflekkurinn á þessum slóð-
Allir framleiðendur sem SÍF sel-
ur fyrir, pakka fiski sínum í sér-
staka kassa merkta vörumerki SÍF,
Islandia, en auk þess er í homi
hvers kassa svokallað hornmerki,
sem er skammstöfun, sem gefur
til kynna nafn framleiðandans. Þó
SIF setji mjög strangar kröfur um
gæði og flokkun á saltfiskinum,
um er talinn um, 8 mílna langur,
2 mílna breiður og allt að 50 faðma
þykkur. Togaramir eru því aðeins
að stinga sér rétt inn í jaðarinn á
flekkunum til að fá ekki of mikið.
Einnig hefur verið góður þorskafli
út af Víkurál í áttina út á Torg
og var Júlíus Geirmundsson að
taka þar 12 til 20 tonn í holi eftir
stuttan togtíma.
em gæðin mismikil og njóta þeir,
sem beztan fiskinn framleiða, þess
í því að fiskurinn frá þeim selst
fyrr en hjá hinum og á góðu verði.
Þórsberg hefur haft þetta merki,
OTM, frá stofnun fyrirtækisins
1975. Samstarfsaðili Armengol á
íslandi er B. Benediktsson hf.
Grunur leikur á að fiski hafi
Þorskur um allan sjó
Björn valur á Sólberginu segir
að það sé þorskur um allan sjó og
vandamálið sé að forðast hann.
„Við byijuðum á grálúðu norður í
kanti, en þar var lítið af hafa. Við
ákváðum þá að reyna ýsu og fá
blandaðan afla fyrir vinnsluna
heima. Við urðum lítið varir við
ýsuna, en þorskinn vantaði ekki.
Vandamálið er að það eru engin
skip gerð út á þorsk um þessar
mundir. Það eiga engir kvóta til
þess, en þorskurinn er um allt.
Hann er fyrir austan, fyrir vestan
og kemur í miklum mæli sem
meðafli á hefðbundinni ýsu- og
grálúðuslóð."
Sá guli flæólr inn á slóðina
Björn Valur segir að þorskurinn
hreinlega flæði inn á slóðina og
verið pakkað í umbúðir Armengol
hér á íslandi og kassarnir verið
merktir með hornmerki Þórsbergs.
Ennfremur hefur komið í ljós að
Armengol selur saltfisk undir
þessu merki á Spáni, þó hann sé
ekki framleiddur af Þórsbergi.
Vegið harkalega að
afkomu fyrirtækisisns
Guðjón Indriðason segir, að með
þessu sé verið að vega harkalega
að afkomu fyrirtækisins. Armengol
geti sett hvaða fisk sem er í kassa
með þessu hornmerki og selt á
mörkuðunum. Þessi fiskur sé ekki
af sömu gæðum og fiskurinn frá
Þórsbergi og því geti hann eyðilagt
þá gæðaímynd, sem fiskurinn frá
Þórsbergi hafi áunnið sér. Það
geti svo bæði leitt til sölutregðu
og verðlækkunar fari allt á versta
veg.
Samkeppnin komin út í öfgar
„Með þessu eru þeir að nýta sér
hann hafi aldrei séð aðrar eins
fiskilóðningar. „Þessi kökkur er
búinn að vera þarna mánuðum
saman og hvort, sem rétt er talið
að veiða meira úr þessu en gert
hefur verið, væri örugglega fróð-
legt að fá fiskifræðingana á miðin
til að finna út hvað er að gerast
þarna.
Þessi fiskur átti
ekki að vera til
Við þurfum að vita hvaðan þessi
fiskur kemur og afhveiju hann
þéttir sig á svona litlu svæði.
Kannski er þetta fiskur frá Græn-
landi, að minnsta kosti átti allur
þessi fiskur ekki að vera til hérna,“
segir Björn Valur Gíslason.
Þeir á Sólberginu lönduðu á
ísafirði í gær. Grálúðuna seldu
þeir þar, en annar afli er fluttur
til vinnslu á Ólafsfirði í gámum.
þá gæðaímynd, sem fyrirtæki mitt
hefur skapað sér á þessum mark-
aði. Mér finnst að samkeppnin sé
farin út í miklar öfgar ef viðskipta-
hættir eins og þetta er það, sem
koma skal. Þetta verður kært og
reynt að fá skráningu þessa vöru-
merkis hnekkt. Þá verður öllum
kaupendum á Spánarmarkaði
kynnt hvað hér er að gerast.-Þetta
er allt annars konar samkeppni en
maður reiknaði með, þegar útflutn-
ingur á saltfiski var gefinn fijáls.
Virðast hafa farið á taugum
Þeir hjá Armengol virðast hafa
farið á taugum við stofnun Cop-
esco SÍF og rokið til og látið skrá
þetta vörumerki á sitt nafn til að
reyna að bæta eigin ímynd,“ segir
Guðjón. „Framleiðendur sjálfir
geta haft mikil áhrif ef þeir skoða
vandlega hveijum þeir fela sölu á
framleiðslu sinni.“
Þórsberg framleiðir árlega 850
til 1.000 tonn af saltfiski.
Þeir
beita
fyrir
Guðnýju
ÞESSIR vösku kappar á
ísafirði beita fynr Iínu-
bátinn Guðnýju IS og þá
munar ekkert um að
bera balana á milli skúrs
og báts með gamla lag-
inu. Þetta eru þeir Sæv-
ar Gestsson, Þorgeir
Guðmundsson, Óðinn
Grímsson, Guðbjartur
Jónsson, Sigurður Hann-
esson og Baldur Ingi-
marsson. Nú er línutvö-
földun í gangi og því
keppast menn um að ná
sem mestu, aðeins helm-
ingur þorskafla á línu
telst til kvóta. Það hefur
líka verið ágætis kropp
á línu fyrir vestan. Mik-
ill þorskur er á Halanum
og stór þorskur fæst i
Nesdýpinu.
... - - -
Morgunblaðið/Birgir Þórbjarnarson
Deilt er um vörumerki a
spænska saltfískmarkaðnum
Armengol skráir
hornmerki Þórsbergs
sem eigið vörumerki
SÍF vinnur nú að því með
lögfræðingum sínum að
hnekkja skráningu
ákveðins vörumerkis,
sem spænski innflytjand-
inn Armengol, hefur
fengið einkaleyfi á. Ar-
mengol er keppinautur Copesco SlF í sölu og dreifingu á saltfiski í
Katalóníu. Vörumerki sem Armengol hefur skráð er svokallað horn-
merki OTM, sem er framleiðslumerki Þórsbergs hf. á Tálknafirði.
Kaupendur að saltfiski fara að mestu eftir þessum hornmerkjum, sem
notuð hafa verið allt frá 1930 og þannig verið virt á saltfískmörkuðun-
um við innkaup á saltfiski. Þórsberg hefur getið sér mjög gott orð
fyrir framleiðslu sína og segir Guðjón Indriðason, framkvæmdastjóri
fyrirtækisins, að hann líti á þetta framferði Armengol sem algjöran
þjófnað.