Morgunblaðið - 13.12.1995, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR13. DESEMBER1995 C 7
_______________________VIÐTAL_______________________
Gáskabátarnir frá Mótun hf. eru eftirsóttir víða um heim
ATHAFNAMAÐURINN Reginn
Grímsson, eigandi og fram-
kvæmdastjóri Mótunar hf. segir
að mjög bjart sé framundan í
rekstrinum hjá sér ef marka má
alla þann fjölda pantana, sem ver-
ið sé að staðfesta þessa dagana.
Ljóst sé að Gáskabátarnir séu eft-
irsóttir víða um heim og í ýmsum
tilgangi.
Reginn telur að sú kynningar-
vinna, sem hann hafi unnið að síð-
an hann flutti framleiðsluna frá
íslandi til Nova Scotia í Kanada
hausið 1984, sé nú að byija að
skila sér fyrir alvöru „enda
streyma að pantanir hvaðanæva
að. Þetta er hreint ótrúlegt. Miðað
við það, sem er nú þegar í farvatn-
inu, geri ég mér fastlega von um
að umfangið hjá mér tífaldist á
næsta ári miðað við árið í ár,“
sagði Reginn í samtali við Verið.
Starfsmönnum þarf
að fjölga mikið
Frá því að Reginn flutti fram-
leiðsluna út, hefur hann framleitt
átta Gáskabáta, þar af þrjá sem
voru seldir til íslands. Atta til
fimmtán starfsmenn hafa að stað-
aldri verið í vinnu hjá Mótun
Canada, eins og fyrirtækið heitir
ytra, en hann á von á því að þurfa
að fjölga starfskröftum verulega,
eða allt að 150 manns. „Ég er að
svipast um eftir íslenskum fram-
kvæmdastjóra og svo geri ég ráð
fyrir að ráða ófaglærða kanadíska
starfsmenn, sem ég þjálfa upp til
ákveðinna verka,“ segir Reginn,
en atvinnuleysi í Nova Scotia er
„Á von á tífaldri
aukningn umfangs“
mikið eða um 25%
skv. óopinberum
tölum.“
Gáskabátar hafa
hingað til aðeins ver-
ið seldir til íslands,
Grænlands og
Kanada og nokkrir
notaðir til Noregs, en
ljóst er að þeir munu
fara víðar á næst-
unni. Reginn segist
nú þegar hafa gert
samninga um smíði á
einum 70 bátum. Þar
af væru kanadískir
fiskmiðlarar að
kaupa 40 báta, sem
þeir ætluðu að fara
með til Bahamaeyja
þar sem þeir hafa
keypt sér fiskveiði-
heimildir, 10 bátar
færu til Trinidad og
svo 20 bátar til lítillar
eyjar, sem hann vildi
ekki nafngreina.
„Bara þessir samn-
ingar þýða um 700
milljónir kr., en nærri
GÁSKI 1000 að sigra í keppni í kvartmílu i Sidney Cabe
Bretton í Nova Scotia síðastliðið sumar. Gáskinn er með
350 hestafla vél á meðan keppinauturinn er með 640
hestöfl.
lætur að hver bátur
kosti um tíu milljónir
kr.“
íslensk
smábátaútgerð
í karabíska
hafsins
Fyrir utan þetta
eru ýmis önnur verk-
efni í gangi, t.d. í
Rússlandi og Banda-
ríkjunum. „Eg er að
innleiða íslenska
smábátaútgerð til
Trinidad og Belize í
karabíska hafinu og
ég bind sömuleiðis
ákveðnar vonir við
Hong Kong og Indó-
nesíu. Þar er kín-
verskur kunningi
minn að vinna að
samningum fyrir
mig. Meðal annarra
væru Kanadamenn
mjög hliðhollir þess-
ari íslensku hönnun,
hraðskreiðum
króka- og handfærabátum, og nú
væri rætt mikið um að auka þorsk-
veiðar og að aukningin yrði á svo-
kölluðum „vistvænar“ veiðiaðferð-
um. Það þýddi að engin vöxtur
yrði í togveiðum frá því sem nú
er, heldur heldur aðeins krókar, lína
og gildrur. Með öðrum orðum yrði
vöxturinn í smábátaútgerðinni.
„Þá hefur Kanadastjórn nýlega
ákveðið að styðja skemmtibátaiðn-
aðinn, ekki síst vegna atvinnuleys-
is kanadískra bátasmiða, og hefur
sjávarútvegsráðherra Nova Scotia
Jim Barkhouse að Mótun hf. með
sína Gáska væri það fyrirtæki sem
væri nú þegar að framleiða plan-
andi báta með mjög góðum ár-
angri. Ég á því fastlega von á því
að mínir bátar verði notaðir sem
grunnur hanna þurfi yfirbyggingu
og annan tilheyrandi lúxus,“ segir
Reginn.
Flytur framleiðsluna
í stærra húsnæðl
Hingað til hefur Reginn haft
aðsetur í bænum Chester, en mun
eftir áramót flytja bátasmíðina í
bæ skammt hjá sem heitir Hub-
bards og er um hálftíma akstur
þaðan til Halifax. Þar hefur hann
fengið til afnota íþróttahús, sem
var notað í tengslum við herstöð,
auk birgðageymslu við hliðina.
Bæði þessi hús hyggst hann nýta
sér undir starfsemina. í birgða-
geymslunni fyrrverandi verða bún-
ir til bátsskrokkarnir og í íþrótta-
húsinu verður yfirbyggingin sett
á og bátarnir innréttaðir.
Færeyingar fiska meira
FÆREYINGAR hafa aukið fiskafla kominn upp í 35.000 tonn allt árið
sinn töluvert á þessu ári. Reyndar
liggja ekki fyrir tölur nema fyrir
fystu 6 mánuði ársins, en aukningin
miðað við sama tíma í fyrra er 31%.
Fyrri helming þessa árs varð
fiskafli Færeyinga 161.000 tonn,
en 122.500 í fyrra. Heildaraflinn
síðustu árin hefúr rokkað frá
224.000 tonnum upp í 249.000 og
fór reyndar minnkandi árin 1993 og
1994.
Sterkari stofnar
Nú eru fiskistofnar við eyjarnar
að ná sér á strik og er nokkurrar
aukningar á þorskkvóta að vænta.
Þorskaflinn undanfarin ár hefur
heldur aukizt. 1991 var þorskafli
' Færeyinga 24.400 tonn, en var
í fyrra. Fyrstu 6 mánuði þessa árs
veiddu Færeyingar 22.500 tonn af
þorski, sem er 8% aukning miðað
við sama tíma í fyrra.
Ufsinn uppistaðan
Ufsinn hefur lengst af verið uppi-
staðan í afla Færeyinga. Árið 1991
veiddust 59.000 tonn af ufsa, en
ufsaafli hefur síðan minnkað hratt.
í fyrra var hann aðeins 34.600 tonn
og fyrstu 6 mánuði þessa árs 16.400
tonn, sem er 17% samdráttur.
Meira en helmingur aflans er
tekinn í troll, ýmist tvílembing, þar
sem tvö skip draga sama trollið,
eða hefðbundið troll með hlerum.
18% aflans eru tekin á linu, 12% á
handfæri og 4% í net.
...orðaðu það við Falkarm
Þekking Revnsla Þjónusta
SUBOBlftNDSBRAOT 6. 16B BCYKJftWlK. SlMI: Slt fAX: 581 31«
WtABAUGLYSINGAR
Fiskiskip til sölu
Til sölu er fiskiskip, smíðað 1974 í Hollandi.
Lengd 37,05 m, breidd 7,50 m.
Aðalvél er af gerðinni Stock Werkspoor
9 FHD 2000 BHP, árgerð 1982.
Upplýsingar hjá B.P. SKIP HF., Borgartúni 18,
105 Reykjavík, sími 551 4160, fax 551 4180.
Til sölu togbátur
Til sölu er mb. Sléttunúpur ÞH-272, sem er
180 bt. togbátur, smíðaður í Finnlandi 1979,
með 1001 hestafla Wartsila Vasa aðalvél,
sem er nýupptekin. Báturinn var endur-
byggður verulega 1987 og búnaður og tæki
endurnýjuð. Báturinn er með þrjú togspil og
búinn til veiða með tvö troll samtímis.
Báturinn selst með veiðileyfi en án aflahlut-
deildar. Til greina koma skipti á stærra eða
minna skipi.
LM skipamiðlun,
Friðrik J. Arngrímsson hdl.,
löggiltur skipasali,
Skólavörðustíg 12, Reykjavík,
sími 562 1018.
KVUITABANKINN
Vantar þorsktil leigu
Varantegur þorskur til sölu
Sími 565 6412, fax565 6372, Jón Karlsson.
Matsveinn
Matsveinn óskast frá og með áramótum á
frystitogara sem gerður er út frá Austurlandi.
Upplýsingar í síma 474 1123.
Slysavarnaskóli
sjómanna
Námskeið í lyfjakistu og meðferð slasaðra
verður haldið í Slysavarnaskóla sjómanna
18.-20. desember.
Upplýsingar í síma 562 4884.