Morgunblaðið - 21.12.1995, Side 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
2fl«ríju»WaS>ll6
B
1995
FIMMTUDAGUR21. DESEMBER
BLAD
Guðni og sam-
herjar úr leik
GUÐNI Bergsson og samherjar í Bolton duttu
út úr ensku deildarbikarkeppninni í gærkvöldi
eftir að hafa tapað 3:2 í vítakeppni á heimavelli
gegn Norwich. Liðin gerðu markalaust jafntefli
í Norwich og þurftu því að leika aukaleik í Boi-
ton. Leikmönnum tókst ekki að skora í venjuleg-
um leiktíma og ekkert mark kom í framlenging-
unni og því þurfti að grípa til vitakeppni til að
fáfram úrslit. Þá kom til kasta Bryans Gunns,
markvarðar Norwich, en hann varði þijár víta-
spyrnur. Bolton skoraði ekki fyrr en í þriðju
spyrnu en gat gert út um leikinn með því að
skora í þeirri fimmtu. Bryan Gunn kom í veg
fyrir það og hann varði einnig næstu spyrnu en
Norwich skoraði og er komið í átta liða úrslit
eins og Birmingham sem vann Middlesbrough
2:0. Kevin Francis gerði bæði mörk Birmingham.
KNATTSPYRNA
Þorvaldur samdi við
Oldham til júlí 1999
orvaldur Örlygsson, landsliðs-
maður í knattspyrnu, skrifaði
í gær undir samning við enska 1.
deildar liðið Oldham og gildir hann
til 1. júlí 1999. Stoke vildi fyrst
fá 400.000 pund (um 40,4 millj.
kr.) fyrir Þorvald en hann hélt að
sú upphæð hefði hækkað upp í
500.000 til 600.000 pund. Félögin
komust ekki að samkomulagi um
kaupverðið og fer málið fyrir gerð-
ardóm en Þorvaldur er þegar lög-
legur með Oldham og gerir ráð
fyrir að leika fyrsta leik sinn með
liðinu á heimavelli gegn Watford á
Þorláksmessu.
Góð jólagjöf
„Þetta er góð jólagjöf og ég er
geysilega ánægður,“ sagði Þor-
valdur við Morgunblaðið í gær-
kvöldi. í gærmorgun fór hann á
heimavöll Stoke til að ná í skóna
sína en hélt síðan til Oldham þar
sem hann skrifaði undir samning-
inn að lokinni læknisskoðun.
Þorvaldur, sem verður 30 ára á
næsta ári, hóf ferilinn hjá KA en
gerðist atvinnumaður hjá Notting-
ham Forest í Englandi eftir tíma-
bilið á íslandi 1989. Hann skipti
yfir í Stoke 1993 og rann samning-
ur hans út í sumar. Hann vildi
fara til annars félags en Stoke
setti honum stólinn fyrir dyrnar
með því að setja hærra verð á
hann en félög voru tilbúin að
borga. Stoke bauð Þorvaldi nýjan
samning en hann hafði ekki áhuga
og hefur neitað að spila með aðall-
iði félagsins síðan í haust.
Að sögn Þorvaldar hafa verið
ýmsar fyrirspurnir en Oldham kom
fyrst inn í málið fyrir þremur
mánuðum. Hann sagðist strax
hafa náð samkomulagi við félagið
en forsvarsmenn félaganna hefðu
rætt saman í fyrradag og ákvörð-
un hefði síðan verið tekin í fram-
haldi af þeim viðræðum.
Mjög ánægður
„Eg er mjög ánægður," sagði
Þorvaldur, „og mér líst mjög vel
á þetta. Graeme Sharp, yfirþjálf-
ari Oldham, er ungur og hress og
ég er ekki aðeins ánægður með
að fara að spila aftur heldur að
spila undir stjórn manns sem vill
spila fótbolta eins og ég hef áhuga
á. Þá skemmir ekki fyrir að geng-
ið var að öllu sem ég fór fram á
og það er mjög ánægjulegt."
Þorvaldur og eiginkona hans
búa í Stoke en þaðan er aðeins
um klukkutíma akstur til Oldham.
Hann sagði að þau myndu gefa
sér tíma til að finna húsnæði og
gerði ekki ráð fyrir að flytja fyrr
en í sumar eða næsta haust. „Það
er ekkert mál að keyra á milli og
ég bíð spenntur eftir að fara á
fyrstu æfinguna,“ sagði hann en
umrædd æfing átti að vera árdeg-
is í dag.
Heimilislegt félag
Oldham er lítið félag í skugga
risanna í Manchester en Þorvaldur
sagði að metnaðurinn að komast
upp í úrvalsdeildina væri greini-
lega mikill og menn virkuðu sam-
stiga í að ná markmiðunum.
„Þetta er lítill og skemmtilegur
fjölskylduklúbbur,“ sagði hann.
„Félagið er heimilislegt og and-
rúmsloftið gott. Leikmanna-
hópurinn er ágætur og stefnan
er ljós. Markmiðið er að komast
í úrvalsdeildina og ég vona vissu-
lega að ég geti orðið að liði tii
að við verðum með í baráttunni.
Staðan er mjög jöfn en það er
erfið dagskrá framundan um jólin
og það verður gaman að taka
þátt í henni.“
Nick Henry, fyrirliði Oldham og
miðjumaður, verður frá næstu sex
til átta vikurnar vegna meiðsla og
hafði það sitt að segja varðandi
áhuga Sharps að fá Þorvald. Eins
og staðan er nú er Sunderland
efst í deildinni með 38 stig en
Oldham er í 12. sæti með 30 stig
og því ljóst að lítið sem ekkert
má út af bregða í baráttunni um
efstu sætin.
„þetta er spennandi dæmi og
ég er ánægður með að hafa sýnt
nauðsynlega biðlund og þolin-
mæði,“ sagði Þorvaldur. „Ég beið
eftir rétta tækifærinu og þetta
sýnir að þolinmæði borgar sig,
þótt á ýmsu hafi gengið.“
ÞORVALDUR Orlygsson i leik með Stoke. Næst klæðist hann
búnlngi Oldham og telur að hann leiki með liðinu ð laugardag.
Amór
reif
liðþófa
ARNÓR Guðjohnsen, lands-
liðsmaður í knattspyrnu,
meiddist á æfingu með Val
um helgina og kom í ljós að
liðþófi í vinstra hné hafði rifn-
að en hann gekkst undir að-
gerð í gær. Ekki liggur fyrir
hvaða áhrif þetta hefur en
Arnór sagði við Morgunblaðið
í gærkvöldi að yóst yæri að
hann missti af leik Örebro
gegn Sirius i sænsku bikar-
keppninni um miðjan janúar.
„Eg á að vera tiltölulega
fljótur að ná mér en ég vona
að ekki verði um neinar hlið-
arverkanir að ræða,“ sagði
Arnór sem fer í læknisskoðun
í kvöld. „Þetta eru álags-
meiðsl. Eg fann fyrir þessu í
síðustu lcikjum tímabilsins en
svo gerðist þetta allt í einu.“
Samningur Arnórs og
Örebro rann út í haust og
liafði hann komist að sam-
komulagi um að gera nýjan
samning til eins árs en ekki
er búið að staðfesta hann með
undirskrift. „Ég talaði strax
við þjálfarann og við vonuð-
um að aðeins væri um liðþóf-
ann að ræða eins og kom á
daginn. Þetta á ekki að breyta
neinu um framhaldið hjá fé-
laginu en ég vona að ég verði
ekki mjög lengi frá, ekki leng-
ur en þijár til fjórar vikur.“
Þrír koma
til greina
hjá FIFA
ALÞJÓÐA knattspyrnusam-
bandið, FIFA, tilkynnti í gær
að baráttan um titilinn Knatt-
spyrnumaður ársins stæði á
milli þriggja manna en um
það bil 100 landsliðsþjálfarar
víðs vegar í heiminum taka
þátt í kjörinu. Þjóðverjinn
Jiirgen Klinsmann hjá Bayern
Miinchen, ítalinn Paolo Mald-
ini hjá AC Milan og Líberíu-
maðurinn George Weah hjá
sama liði eru í efstu sætunum
en tilkynnt verður um valið í
sérstakri veislu í Mílanó 8.
janúar.
KNATTSPYRNA: BRÆÐUR FRÁ ESKIFIRÐITIL ARSENAL í LONDON / B4